Alþýðublaðið - 03.06.1972, Síða 21
HALLDOR SPRETTIR
AFTUR ÚR SPORI
Það vakti athygli á E.Ö.P.
mótinu að okkar bezti lang-
hlaupari seinni ára, Halldór
Guðbjörnsson sat i stúku og
fylgdist með iþróttakeppninni
þaðan. Áhorfendur eru þvi van-
astir að sjá hann i fararbroddi
fyrir öðrum hlaupurum.
Á siðastliðnu sumri hafði
hann tekið þá ákvörðun að hætta
algjörlega keppni i langhlaup-
um, en snúa sér i þess stað að ið-
kun Judo, hvar i hann hefur náð
ágætum árangri.
Ástæðan fyrir ákvörðun
Halldórs i fyrrasumar var að
hans sögn sú að honum fannst
forráðamenn iþrótta hér ekki
sýna iþróttamönnum nægan
skilning né áhuga. En svo fór,
að þegar vorið kom hljóp fiðring
i fætur Halldórs og hefur hann
ákveðið að hefja æfingar að
nýju.
Heldur væri það leiðinlegt til
afspurnar, ef hver iþrótta-
maðurinn á fætur öðrum hættu
keppni löngu fyrir aldur fram -
vegna skilningsleysis forystu-
mannanna. Nógu slæmt var það
þegar Jón Þ. Ölafsson hætti þó
svo að Halldór og jafnvel fleiri
iylgi ekki á eftir.
KJAFTASKAR SLAST AFTUR
Bandariska Hnefaleikasambandiö er búið að samþykkja aðra 20 lotu keppni milli
þeirra kappanna Muhammed Ali (Cassius Clay) og Jerry Quarry. Mun keppnin fara
fram i Las Vegas þann 27. júní næstkomandi. Báðir eru þessir þungavigtarhnefa-
leikarar miklir orðhákar, og samvisku sinni trúir hafa þeir hótað hvor öðrum
ævarandi örkuml.
Sama kvöld á sama stað mun heimsmeistarinn í léttþungavigt Bob Foster
verja titill sinn fyrir Mike Quarry yngri bróður Jerry. Eins og flestir muna var Jerry
Quarry fyrsti andstæðingur Ali eftir að hann hafði öðlast réttinn til að taka þátt i
keppni á nýjan leik. Þá keppni sem fram fór T Atlanta 26—10—70 sigraði Ali á
teknisku rothöggi í þriðju lotu. Gaman verðurað fylgjast með því hvort hinum irsku
Quarry bræðrum tekst að sigra.
r
JOHANNES
EÐVALDSSON
KOMINN HEIM
Hinn kunni knattspyrnumaður
Jóhannes Eðvaldsson kom til
landsins i gærkvöldi, eftir að hafa
dvalist i fjóra mánuði í Suður-
Afriku við æfingar og leik með
knattspyrnuliðinu Cape Town.
Lét Jóhannes mjög vel af dvöl-
inni hjá Cape Town sem hann
kvað hafa verið mjög lærdóms-
rika. Sagði hann að æft væri
tvisvar á dag nema föstudaga,
það eru leikdagar þar suður frá.
Lék hann eina sex eða sjö leiki
með B-liði Cape Town og skoraði
mörk i öllum leikjunum. 10 urðu
leikirnir sem hann lék með aðal-
liðinu og skoraði hann tvö mörk i
þeim leikjum, sem er vel af sér
vikið, þar sem hann lék með at-
vinnumönnum gegn atvinnu-
mönnum en er sjáifur aðeins
áhugamaður, og lék áðurtalda
leiki sem slikur. Kvað Jóhannes
þessa ferð út hafa orðið sér mikil
og dýrmæt reynsla, enda áhuga-
vert að kynnast þvi andrúmslofti
er rikir i herbúðum atvinnu-
manna.
Lengst af bjó hann á hóteli en
fluttist i ibúö niðri við ströndina
undir það siðasta.
— Forráðamenn Cape Town
buðu mér samning til tveggja ára
og fengi ég borgað fjögur þúsund
pund við undirskrift, og siðan viss
mánaðarlaun ásamt þvi bónus-
kerfi sem þarna er rikjandi —
sagði Jóhannes. — Ég vildi ekki
ganga að þessum skilmálum og
kom með gagnkröfur sem þeir
vildu ekki ganga að. — Var ég,
þegar hér var komið sögu, —
heldur Jóhannes áfram, — kom-
inn i samband við annað knatt-
spyrnulið sem heitir Southern
Suburb og höfðu þeir áhuga á
samningum við mig. En þegar
þeir hjá Cape Town fréttu af þvi,
fóru þeir þess á leit við útlend-
ingaeftirlitið að það framlengdi
ekki dvalarleyfi minu, þar sem ég
hefði komið til Suður Afriku á
þeirra vegum. Ég sagði að það
væri allt i lagþég myndi fara heim
og Southern gæti þá haft samband
við mig þar. Svo þegar ég var
staddur i Jóhannesarborg á
heimleið höfðu þeir hjá Cape
Town samband við mig og kváð-
ust myndu ganga að skilmálum
minum. Ég sagði að það væri of
seint þar sem ég væri á leið heim
en þeir gætu sent mér öll tilboðs-
gögn þangað en ég myndi lika
taka á móti tilboði frá Southern til
athugunar ef mér bærist slikt.
Vitanlega hef ég áhuga á þvi að
hefja aftur leik með Val fái ég
tækifæri til þess, — sagði
Jóhannes og ekkert þvi til fyrir-
stöðu þar sem allt er á hreinu
milli min og Cape Town, og ég
með alla pappira upp á það að ég
sé laus við þá.
Ekki er að efa aö það er bæði
Val og landsliðinu mikill styrkur
að vera búin að fá Jóhannes heim
aftur og óskum við hann velkom-
inn i raðir islenzkra knattspyrnu-
manna á nýjan leik.
STAÐAN
K.R.
Fram
l.B.K.
U.B.K.
JA.
Valur
l.B.V.
Vikingur
2-2-0-0-5:1 4
1-l-O-O-l:0 2
1- l-0-0-0:2 2
2- 1-0-1-5.2 2
l-O-O-l-l:3 3
l-0-0-l-l:2 0
1-0-0-1-2:3 0
l-O-O-l-l:0 0
Markhæstir:
Atli Héðinsson K.R. 3
Steinar Jóhannsson IBK. 2
Næstu leikir verða milli Fram
og ÍBV. á Laugardalsvelli á laug-
ardag.
A sunnudagskvöld leika á
Laugardalsvellinum K.R. og 1A
en fyrr um daginn leileiða saman
hesta sina i Keflavik ÍBK og Vik-
ingur. A mánudagskvöld verður
svo leikur milli Vals og Breiða-
bliks á Laugardalsvelli.
Laugardagur 3. júní 1972