Alþýðublaðið - 03.06.1972, Blaðsíða 24
alþýðu
\mm
Alþýöubankinn hf
KOPAYOGS APOTEK
Opið 611 kvöld til kl. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga miHi kl. í og3.
ykkar hagur/okkar metnaður
SENÐIBIL ASTÖÐíN Hf
MILLI
Markús Orn Antonsson lagði
fyrir skömmu fram i Borgar-
stjórn þar sem segir, að Borgar-
stjórn Reykjavikur liti þróun
þess vandamáls, að ólöglegur
innflutningur og neyzla ávana-
og fiknilyfja hafa átt sér stað i
stórum stil hérlendis, og harmi
það og liti alvarlegum augum,
að yfirvöld hafi enn ekki orðið
við eindregnum áskorunum
Borgarstjórnar og Æskulýös-
ráðs Reykjavikur að koma upp
föstu skipulagi á eftirlit og
rannsóknum til að koma i veg
fyrir þessi lögbrot. ••• 1 til-
lögunni vill Markús örn að
stofnaðar verði rannsóknar-
deildir sérþjálfaðra eftirlits-
manna til að hafa ofangreint
hlutverk með höndum
Skipulagsstjóri borgarinnar
hefur lagt fram bréf varðandi
tillögu um breytingu á nýtingar-
hlutfalli á byggingarreit, sem
afmarkast af Laufásvegi, Bók-
hlöðustig, Miðstræti og Skál-
holtsstig. • • •
Tuttugasta og annað fulltrúa-
þing Sambands islenzkra
barnakennara var sett klukkan
10 i morgun i Melaskólanum og
stendur i þrjá daga. 110 fulltrú-
ar viðsvegar að af landinu sitja
þingið. Auk þess sem rætt verð-
ur um launakjara og skipulagS-
mál sambandsins, verður rætt
um framtið kennaramenntunar
Furðulegt, — hvaða stærðfræðileg líkindi skyidu vera gegn þvl
að tveir menn séu með sprengju i sömu flugvél?
á tslandi • • • Beint tap af bif-
reiðatryggingum Sjóvátrygg-
ingafélags fslands varð á árinu
1971 6.850,00 krónur Þrátt
fyrir þetta tap á bifreiðatrygg-
ingum varð hagnaður á heildar-
rekstri Sjóvá 1.250.000,00 krón-
ur • • • Hannibalar láta nú
skammt stórra ferða á milli i
boöi NATO, t vetur fór Hannibal
til að heilsa upp á generála eins
og kunnugt er. Nú um þessar
mundir er sonur hans, Jón
skólameistari á tsafirði á leið i
mikinn Varðbergsleiðangur til
útlanda. 1 för með honum er
m.a. Karvel Pálmason, hanni-
balsþingmaður á Vestfjörðum.
Þetta tilkynnist hérmeð Lúðvik
Jósepssyni • • • Mörgum þótti
það bæöi einkennilegt og at-
hyglisvert, að ávallt þegar sjón-
varpið sýndi fréttamyndir frá
för þeirra Einars og Lúðviks til
viðræðna við brezka ráðherra til
London á dögunum, stóð Lúðvik
við hliðina á utanrikisráðherr-
anum brezka en Einar fjarri.
Framsóknarmenn munu sér-
staklega hafa veitt þessu at-
hygli • • • Þá tóku menn einnig
eftir þvi i sambandi við þetta
ferðalag, að i .myndum þtim,
sem Timinn birti af tslending-
um ytra var þess gætt aö Jóns
Árnason, annar af tveim sér-
stökum fylgdarmönnum ráð-
herranna sæist hvergi
EG ER AÐ REYNA AÐ
KOMAST TIL BOTNS í )>VÍ
Hvort bændur fari oft út
um þúfur...
ALÞYÐUBLAÐIÐ
FYRIR 50 ÍRUM
Knattspyrnunni í gærkvöldi lauk svo aö Víkingur
sigraði KR með9:l. Vindur var töluverður. Yfirburðir
Víkings voru sýnilegir allan leikinn.
Riklingur sem hefur frosið fæst hjá Kaupfélaginu.
Skipsmenn á E/S Glað biðja Alþýðublaðið að bera
kæra kveðju til allra vina og vandamanna. Góð líðan,
mikill afli..
Ólafur Friðriksson hélt hér (á Norðfirði) almennan
fund í gærkvöldi.Pöntunarhús fékkst. Einn drukkinn
útgerðarmaður gerði mikil fundarspjöll í fundar-
byrjun.
SKATTASKRAIN
Senn kemur skattaskráin
i skinandi fallegu bandi,
lesning mikil og merk,
gleði gamalla og ungra,
gjöf til fátækra og ríkra,
jafnt fyrir kaupmann sem klerk,
biblía ríkis og bæjar,
bókmenntaviðburður ársins
og alltaf jafn umtalað verk.
Senn kemur skattaskráin,
við skundum að klófesta hana
og leyfum oss litinn frest,
þetta er bók sem við bíðum
°9 blessum á hverju sumri
eins og aufúsugest,
minnug á nöfn og númer,
nákvæm á laun og tekjur,
og allra bóka bezt.
/£>■
SYRPA
GATUR
HEIMSKAUTAiSSINS
Kyrrð heimskautasvæðanna er
að ýmsu leyti blekking. Hér er i
raun að verki stórkostleg iverk-
smiðja, sem aldrei hættir störf-
um. Á ári hverju kristallast hér á
isha fsbreiðunum hundruö
trilljóna smálesta eða þiðna aft-
ur.
Vissrar hringrásar gætir i
starfi þessu. A sjö ára fresti snar-
eykst ismyndun i Tsjúkotahafi við
Siberiu austanverða. A næsta ári
hefur miðja^ stóraukinnar
ismyndunar færzt vestur i
Laptévhaf og enn að ári liðnu til
Barentshafs - og um leið minnkar
ismagniðsmám saman i lshafinu
austanverðu •
Þannig fer mikilismyndun eins
og firnaleg bylgja um Norður-
tshafið frá austri til vesturs.
Nokkrir visindamenn við
Heimskautrannsóknastofnunina i
Leningrad hafa reynt að finna
orsakir þessarar merkilegu
hringrásar. Þeir telja þessar
sveiflur i ismyndun lokahlekk i
keðju jarðeðlisfræðilegra
breytinga, sem tengdar eru
háttbundnum sveiflum sjálfs
jarðarmöndulsins.
Stjarnfræðingar fundu þessar
hreyfingar möndulsins með at-
hugunum sinum á afstöðu-
breytingum fjarlægra stjarna.
Enda þótt þær breytingar væru
mjög litlar, næmu aðeins 0,01
sekúndu á 14 mánaða tima, nægja
þær samt til að valda miklum
tregðubreytingum á loftmassan-
um yfir heimskautunum.
Niðurstöður af margra ára
mælingum á loftþrýstingi á
ýmsum svæðum norðurhjarans
staðfestu þessa tilgátu. Það kom
á daginn, að breytingar á hverju
svæði endurtóku nákvæmlega
fjórtán mánaða breytingar á
að orka til þessara hreyfinga
komi frá voldugum hræringum i
iðrum jarðar.
JUANIT I SIBERIU
Moskvu.—Fundizt hefur i
Siberiu mjög sjaldgæfur málmur,
juanit, sem er blanda af fluor og
barium. Er þetta i fyrsta sinn,
sem málmtegund þessi finnst i
Sovétrikjunum.
BLÓM A ANTARKTIS
Moskvu. — Tvær grastegundir,
önnur áður óþekkt, hafa fundizt á
Waterlooeynni i Antarktis. Þar
með hafa verið afmörkuð ný
suðurtakmörk fyrir blómjurtir.
Frá fundi þessum var skýrt i
skýrslu til Landfræðifélags
Sovétrikjanna af Igor Simonov,
sem hefur stjórnað leiðangri til
Waterlooeyjarinnar. Eyjan, sem
tilheyrir Suður-Shetlandseyja-
klasanum á sextugustu gráðu
suðlægrar breiddar, er einn hlýj-
asti staðurinn i Sntarktis, þótt
hún sé að mestu þakin is. Þær
plöntur, sem menn hafa fundið
þar áður, eru mosa- og lágplöntu-
ættar.
„VAGN" AN HJÓLA
Moskvu. —Við sovézka
rannsóknastofnun hafa sér-
fræðingar búið til ,,VAGN” sem
ferðazt getur um hin torfærustu
landsvæði. „Vagninn” hefur
engin hjól, en er nánast einskonar
gangandi brú með klefa og búinn
tveimur þrifótum. Klefinn hreyfir
sig fram og aftur á brúnni, allt
eftir hallanum, og þegar hann
nær öðrum enda hennar, lyftist
þrifóturinn á hinum endanum frá
jörðu af þvi að þyngdar-
punkturinn hefur flutzt til. Nú
snýst brúnin með þrifótinn sem
öxul og klefinn færir sig aftur til á
brúnni. Og þannig endurtekur
þetta sig. A þennan hátt getur
brúin gangandi farið yfir sprung-
ur og holur i landið, sem ekki eru
stærri eða breiðari en fjarlægðin
milli þrifótanna á brúnni. Likan
af tæki þessu hefur verið sýnt á
m
AUSTAN
stöðu jarðmönduls. Til þessa ber
svo aö rekja hita- og kuldaköst,
sem ganga yfir með 14 mánaða
háttvisi. Þegar þessi hringrás
blandast saman við árstiða-
bundnar breytingar á verðurfari,
myndast þær háttbundnu hita-
stigsbreytingar, sem spanna sjö
ára timaskeið, og stjórna
ismyndun.
En þá má spyrja: af hverju
hreyfist jarðmöndullinn? Fræði-
menn eru ekki á einu máli um
svarið. Jarðeðlisfræðingar gera
ráð fyrir þvi, að ástæðan sé fólgin
i þvi, að þungamiðja jarðar og
möndull hennar falli ekki saman,
stjörnufræðingar telja, að mis-
munandi styrkleikur aðdráttar-
afls tungls eigi hér sök á, og jarð-
skjálftafræðingar hallast að þvi,
geimrannsóknaráðstefnum i
Júgóslaviu og i Frakklandi og
vakið mikla athygli, en það er
einnig hægt að nota það til margs
hér á jörðinni.
IBÚAR SOVÉT-
RÍKJANNA
246 MILLJÓNIR
Moskvu.-Ibúar Sovétrikjanna
eru nú 246.300.000 talsins og hefur
ibúafjöldinn tvöfladazt á þeim 50
árum, sem liðin eru frá stofnun
Sambands sósialiskra
sovétlýðvelda, segir i Hagskýrsl-
um Sovétrikjanna, en þær koma
út i sérstakri hátiðaútgáfu vegna
hálfrar aldar afmælis rikjasam-
bandsins sovézka. Helmingur
ibúanna er innan við þritugs-
aldur. Meðalliflikur hvers
nýfædds barns i Sovétrikjunum
eru nú taldar 70 ár, en það er tvö-
falt lengri timi en reiknað var
með fyrir byltinguna 1917. Tiundi
hver sovétþegn er kominn yfir 60
ára aldursmörkin og átta af
hverjum 100 þúsund ibúum eru
hundrað ára eða eldri. Til saman-
burðar má geta þess að i Banda-
rikjunum ná 6 af hverjum eitt
hundrað þúsund ibúum svo háum
aldri, en innan við einn til
jafnaðar á Englandi. 1 Sovét-
rikjunum starfar nú fjórðungur
allra lækna i heiminum, þ.e. 28 á
hverja 10 þúsund ibúa, en það er
miklu hærri hlutfallstala en gerist
i nokkru öðru landi. Yfir 100
milljón Sovétborgarar eiga nú að
baki 10 ára skólagöngu eða lengri.