Alþýðublaðið - 07.05.1976, Qupperneq 3
blaSfd*' Föstudagur 7. maí 1976.
FRÉTTIR 3
AAálmiðnaðarmenn
á Akranesi mótmæla
Á aðalfundi Sveinafélags
Málmiðnaðarmanna á Akranesi,
sem haldinn var 5. april siðast-
liðinn var samþykkt ályktun þar
sem fundurinn lýsir yfir furðu
sinni og andúð á þeim verð-
hækkunum, sem dunið hafa yfir
launþega á undanförnum vikum
og étið hafa upp hinar smánar-
legu kjarabætur, á mettima.
Fundurinn skorar á stjórnvöld að
endurskoða stefnu sina i
verðlags- og efnahagsmálum.
Þá skorar fundurinn á rikis-
stjórnina að endurskoða stefnu
sina i efnahagsmálum, sem hann
telur að lýsi sér i algjöru
aðgerðar- og úrræðaleysi.
Þá skorar fundurinn á rikis-
stjórnina að segja sig úr NATO,
eða að öðrum kosti að leggja það
undir dóm þjóðarinnar i
kosningum.
Þá mótmælti fundurinn harð-
lega stefnu útvegsmanna á
Akranesi að leigja eða selja tvo af
fjórum togurum bæjarins á sama
tima og atvinnuleysi rikir hjá
verkakonum á staðnum.
Fundarmenn lýstu yfir stuðningi
við baráttu verkakvenna á
Akranesi fyrir almennum mann-
réttindum til jafns við aðra þegna
þessa þjóðfélags.
ES
Skagfirðingar
næstum alsælir
Skagfirðingar hafa fyrir nokkru
lokið við sina árlegu sæluviku,
sem að þessu sinni bauð upp á
óvenju mikla fjölbreytni.
Útvarpsstjóri, Andrés Björns-
son flutti fróðlegan og skemmti-
legan fyrirlestur um Sölva Helga-
son hinn nafntogaða flakkara og
listamann, sem árum saman lék
bæði á yfirvöld og undirgefna
viða um land.
Hörður Ágústsson flutti og
ágætan fyrirlestur um gömul hús,
en hann mun nð manna fróðastur
um þau efni af núlifandi Is-
lendingum.
Benedikt Gunnarsson, list-
málari, hafði fjölbreytta mál-
verkasýningu uppi, meðan á
sæluvikunni stóð.
Heimsóknir listafólks
Ruth L. Magnússon söng á há-
tiðinni og maður hennar Jósep
Magnússon lék á flautu, hvort
tveggja við undirleik Agnesar
Löve. Safnhúsinu hefur nýlega
boriztaðgjöf dýrindis flygill, sem
gefinn var af góðu fólki, og gerir
nú mögulegt að taka á móti
hljóm- og sönglistamönnum.
Þá heimsótti Leikfélag Akur-
eyrar staðinn og sýndi þar „Gler-
dýrin,” tókst það með ágætum.
Heimafenginn baggi
En Skagfirðingar áttu lika
sjálfir ýmislegt i pokahorninu.
Leikfélag Sauðárkróks sýndi Sjó-
Lýðháskóla-
nemendur
frá Skálholti
leika fyrir
Biskups-
tungnamenn
Sunnudaginn 25. april sýndu
nemendur Lýðháskólans i
Skálholti leikritið „Hrepp-
stjórinn á Hraunhamri” eftir
Loft Guðmundsson, á sumar-
fagnaði skólans i félagsheimili
Biskupstungna, Aratungu.
Þau ár sem Lýðháskólinn
hefir starfað, hafa nemendur
jafnan tekið nokkurn þátt i
félagslifi heimamanna og var
þessi kvöldskemmtun i sam-
ræmi við þá hefð. Auk leikrits-
ins var á dagskránni söngur
skólakórsins og pianóleikur
eins af nemendum skólans,
Gry Ek.
Fjölmenni sótti kvöldvöku
þessa, og þakka aðstandendur
hennar gestum öllum ánægju-
legar undirtektir og eftir-
minnilega samverustund.
leiðina til Bagdad eftir Jökul
Jakobsson undir leikstjórn Kára
Jónssonar og þótti fagnaðarbót
að.
Þá söng nýr blandaður kór
undir stjórn Gunnlaugs Olsen,
söngkennara.
Þar að auki skemmtu menn sér
við hefðbundin skemmtiatriði,
dans og söng heimafólks. Hafa
Skagfirðingar jafnan verið ágætir
gleðimenn og fer það ekki dvin-
andi.
Framkvæmdir
Sauðárkrókskaupstaður hefur
látið gera 10 ára áætlun um mal-
bikun gatna i kaupstaðnum.
Ætlað er, að meginhluti verksins
verði framkvæmdur á næstu 2-3
árum.
Afanginn sem fyrirhugaður er i
ár er að lengd um 2,2 km. og
áætlað að kostnaður verði um 70
milljónir króna. Verktakafyrir-
tækið Miðfell h/f mun taka fram-
kvæmdirnar að sér, sjá um jarð-
vegsskipti eftir þörfum, endur-
nýja lagnir og loks malbika.
Fjáröflun til framkvæmdanna
ertalin nokkurnveginnöruggt, þó
ekki liggi endanleg svör fyrir enn.
Lögð verða á gatnagerðargjöld,
framlag mun koma úr s.n. þétt-
býlisvegasjóði, bæjarsjóður legg-
ur fram nokkurt fé og tekur að
auki lán það sem á skortir að
endar nái saman.
Einhversmáhreyfing mun vera
á graskögglaframleiðslu i Hólm-
inum, hefur verið unnið nokkurt
undirbúningsstarf, en allur fram-
ga> gur þó i óvissu.
Aflabrögð og atvinna
Aflabrögð hafa upp á siðkastið
verið heldur slakari en fyrr i vet-
ur, en segja má að atvinnuástand
hafi verið sæmilegt.
Alþjóðlegt
skákmót
Taflfélag Reykjavikur gengst
fyrir sterku alþjóðlegu skákmóti
hér i sumar og hefst það væntan-
lega i ágúst. Meðal þekktra er-
lendra stórmeistara sem taka
þátt i mótinu verða Vesterinnen
frá Finnlandi og hin gamalkunna.
kempa Najdorf frá Argentinu.
Þátttakendur i skákmótinu
verða 16, átta erlendir og átta
islenzkir. Auk þeirra tveggja sem
áður er getið er mjög liklegt aö
Vestur-þýzki stórmeistarinn Rob-
ert Hiibner komi til leiks. Þá
hefur tveimur sovéskum skák-
mönnum verið boðið og er unnið
að þvi að heimsmeistarinn
Karpov verði annar þeirra. Þá er
von á einum Júgóslava, Dana og
Bandarikjamanni.
Meðal tslendinga sem búizt er
við að taki Jfett i mótinu eru þeir
Friðrik Ólafsson, Guðmundur
Sigurjónsson, Haukur Angan-
týsson, Helgi Ólafsson og Margeir
Pétursson. __sG
BREIÐHOLTIÐ
ER EFTIRSÓTT
Þúsund fjölskyldur sóttu um 308
íbúðir í verkamannabústöðum!
Um eitt þúsund umsóknir
voru um 308 ibúðir sem byggðar
voru á vegum Framkvæmda-
nefndar i Breiðholti og afhentar
verða á þessu ári. Ljóst er þvi
að þrir eru um hverja ibúð og
verður unnið úr umsóknum i
þessum mánuði, en sem
kunnugt er fá kaupendur þessar
ibúðir með sérlega hagstæðum
kjörum.
— Ef tekjuhámarkið hefði
verið örlitið hærra tel ég vist að
komið hefðu 300 umsóknir til
viðbótar, sagði Guðmundur J.
Guðmundsson i samtali við
Alþýðublaðið. Tekjur
urpsækjenda máttu ekki fara
yfir 509 þúsund á ári timabilið
1972-74 að meðaltali að við-
bættum 47 þúsundum króna
fyrir hvert barn. Sagði
Guðmundur, að vegna mikillar
vinnu og yfirvinnu væru margir
fyrir ofan mörkin þót tekjur
þeirra i dag væru hlutfallslega
innan markanna vegna minnk-
andi atvinnu. Þvi hefði ekki
verið ósanngjarnt að hafa
mörkin ivið hærri.
Það er áberandi hve mörg
roskin hjón sækja um minnstu
ibúðirnar svo og einstaklingar
t.d. ekkjur eða ekklar. Þær
ibúðir eru 1 1/2 herbeigi.
Ungt fólk sem er að stofna
heimili og býr sitt i hvoru lagi
eða hjá foreldrum annars er
einnig stór hópur umsækjenda.
Þá má nefna fólk sem býr i
heilsuspillandi húsnæði eða
ófullnægjandi leiguibúðum.
Við úthlutun þarf að taka tillit
til margs og raunar þarf að
meta hverja umsókn sér-
stakléga, sagði Guðmundur.
Úthlutunarnefnd mun ljúka
störfum um næstu mánaðamót.
— SG
Engar sölur íslenzkra skipa
Sjómaður i Keflavik hafði sam-
band við blaðið og vakti athygli á
þvi, að nú hefði um langan tima
ekkert heyrzt um sölur islenzkra
togara erlendis.
Er verið að fela
eitthvað?
Taldi hann jafnvel þá skýringu
koma til greina, að verðið væri
það lágt, að ekki væri talið ráð-
legt að flika þvi. Sagðist sjómað-
urinn hafa heyrt sögur um, að nú
væri verið að borga eitthvað um
26—36 kr. hvert kg af þorski
á fiskmörkuðum erlendis.
Um þessar mundir er i gildi
verð sem hljóðar upp á 63 krónur
og 90 aura fyrir hvert kg af haus-
uðum og slægðum þorski, 70 cm
ogstærri, lönduðum hér á landi.
Ef tilgátur sjómannsins eru rétt-
ar, virðist sem togarar okkar séu
að reyta upp tóman undirmáls-
fisk, og fái greitt samkvæmt þvi.
Siðast sala þann
12. aprih
f tilefni af þessu hafði blaða-
maður Albýðublaðsins samband
við skrifstofur L.Í.Ú. Þar varð
fyrir svörum Agúst Einarsson,
sagði hann skýringuna á hinum
fáu fréttum af sölu islenzkra
skipa erlendis vera þá, að ekki
hefði verið um neinar sölur að
ræða frá þvi um miðjan april.
Þann 12. aprfl seldi islenzkt skip
siðast afla erlendis og fékkst þá
130 kr. meðalverð fyrir hvert kg
af hausuðum og slægðum þorski.
Sem betur fer '
ekki rétt.
Aðspurður um hið lága verð,
sagði Agúst að það væri sem bet-
ur fer ekki rétt.
Hins vegar sagði hann, að um
mánaðamótin marz-april hefði
fengistlágt verð á fiskmörkuðum
erlendis, eða um 70 kr fyrir hvert
kg-
Lélegur afli seldur er-
lendis i siðasta verkfalli
Skýringin á þvi verði, var að
sögn Agústs, að á þessum tima
var mjög mikið framboð af fiski á
fiskmörkuðum erlendis. Við þetta
bættist, að á þessum tima var
verkfall hér heima, sem gerði það
aðverkum.að sjómenn forðuðust
i lengstu lög að koma með afla að
landi. Biðu þeir frekar i von um
að úr leystist. Þegar ekki þótti
þorandiað biða lengur, af ótta við
að afli byrjaði að skemmast, vai
gripið til þess ráðs, að sigla með
hann.
Vegna þessara tafa, og hins
mikla framboðs, var ekki við þvi
að búast að verðið væri hátt.
—gek