Alþýðublaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 13
biaSfö* Föstudagur 7. maí 1976.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég afa. Blessuð sé minning
hans.
Björgvin Björgvinsson.
dshækkunina
isamlegri leiða
gerða, sem raska starfsemi at-
vinnuvegannaogkoma misjafnt
niður á atvinnugreinum.
Þá vekur stjórnin athygli á
þvi að i hvert skipti sem einhver
kyrrstaða veröi i verðlagi noti
rikisvaldið svigrúmið og
hækki álögur, en atvinnu-
vegirnir verði að sæta verð-
stöðvunum eða hertum verð-
stöðvunum þrátt fyrir
sihækkandi tilkostnað.
Þessu telur stjóm Félags is-
lenzkra stjórkaupmanna að
þurfi að breyta og ný vinnu-
brögð i verðlagsmálum verði
innleidd, svipaö og gerist i ná-
grannalöndum okkar.
ES
marklausa pappirsákvöröun aö
ræða um hagnýtingu kunnátt-
unnar.
Skyldi einhver efast, mætti
minna á nýlegt dæmi úr
verksviði sama ráðherra, sem
haföi aö engu einróma álit
innlendra og erlendra sér-
fræðinga um prófessorsstarfiö i
læknadeild.
Það eitt er rétt i frumvarpinu,
að mikil þörf er á festu I staf-
setningu, svo þýðingarmikill
þáttur málakunnáttu sem hún
er. En það kemur sannarlega úr
hörðustu átt, að álykta, að með
þvi að setja úrslitavaldið i
hendur misviturra ráðherra, sé
þeim þætti bezt borgið.
Alþingismenn eru vitanlega,
margir hverjir, ekki neinir sér-
kunnáttumenn i islenzku máli.
Eigi að siöur verður að telja
nokkurnveginn hafið yfir allan
efa, að væru þessir hlutir
bundnir með lögum, gæti ekki
hvaða apaköttur, sem settur
væri i ráðherrasæti, rokið upp
með ótimabærar breytingar.
Sú festa, sem á var komin i
stafsetningu frá 1929 hefur nú
verið rofin. Það er slæmt, en þó
er enn möguleiki að afstýra
verstu hrakföllunum með þvi að
hverfa aftur til þess, sem þá var
ákveðið. Annað eraðeins liður i
aö afsiða fólk i umgengni við
móðurmál, sem hingað til hefur
verið álitinn okkar dýrmætasti
arfur.
Oddur A. Sigutjónsson
OR VMSUM ÁTTUM 13
Merkilegur bókaflokkur
Ferðafélagsins - Deilt
um fjölda bankastjóra
Búnaðarbankans
Breytingar á lögum
Búnaðarbankans
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um Búnaðarbanka
tslands. Með þessu frumvarpi
eru lög Búnaðarbankans sam-
ræmd þeim lögum, sem nú gilda
um Landsbanka tslands og
Útvegsbanka tslands, þ.e. rikis-
bankana.
Lögin um Búnaðarbanka ts-
lands eru frá árinu 1941. Mörg
ákvæði laganna, jafnvel heilir
kaflar þeirra, eru óraunhæfir og
úreltir og þvi mál til komið, að
löggjöfin um Búnaöarbankann
sé samræmd lögum hinna rikis-
bankanna og sniðnir af þeim
vankantar.
eru allir sammála um þetta at-
riði.
Hugmyndir hafa komið fram
um það að sameina Veðdeild
Búnaðarbankans Stofnlána-
deildinni, eða gera viðamiklar
breytingar á starfsemi hennar.
Niðurstaöa liggur ekki fyrir, og
er sagt i athugasemdum við
frumvarpið, að rétt sé taliö að
láta þennan kafla biöa, þótt
brýnt sé að endurskoða starf-
semi Veðdeildarinnar, eins
fljótt og kostur sé. — Alþýðu-
bandalagsmenn eru ekki sam-
þykkir þvi, að lögin verði af-
greidd, án þess að tekin verði
Deilt um fjölda
bankastjóra.
í frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir, að bankastjórum Búnaðar-
bankans verði fjölgað I 3 til
samræmis við rikisbankana.
Um þetta atriði laganna hefur
nokkuð verið deilt á Alþingi. —
Landbúnaðarráðherra, sem fer
með yfirstjórn Búnaðarbankans
hefur lagt á það áherzlu, aö
bankastjórum verði fjölgað. Hið
sama hafa ýmsir þingmenn
gert. Alþýðuflokkurinn hefur
lýst þeirri skoðun sinni, að þessi
fjölgun verði gerð i samræmi
við fjölda bankastjóra hinna
rikisbankanna, en hins vegar
megi það biða á meðan ástand
efnahagsmála er, eins og nú
standa sakir.
Undir hvaða stjórn?
Þá hefur all-nokkuð verið
deilt um það undir hvaða stjórn
bankinn ætti að vera. Þar eð
bankinn mun lúta sömu lögum
og aðrir rikisbankar eftir sam-
þykkt frumvarpsins, telur Al-
þýöuflokkurinn eðlilegt, að
bankinn veröi tekinn undan
stjórn landbúnaðarráöherra og
lúti stjórn rikisstjórnarinnar,
eins og aðrir rikisbankar. Ekki
Þessi mynd er úr síöustu árbók Feröafélagsins og er af fossi I B1
f jallakvisl.
Þessi mynd er úr riti Útivistar, grein Haligrims Jónassonar: „Fyrsta
vetrarferð okkar i Þórsmörk á bil”. Þarna má þekkja marga landskunna
ferðamenn. Meðal þeirra eru Hallgrimur Jónasson, Ingólfur heitinn tsólfs-
son, Jóhannes Kolbeinsson, Jón heitinn Bjarnason, ritstjóri, Þorsteinn
Kjarval og Þorvaldur Hannesson.
afstaða til sameiningar Veð-
deildar og Stofnlánadeildar.
Nokkur ákvæði
frumvarpsins.
1 fjórða kafla frumvarpsins er
rætt um stjórn bankans og
reikningsskil. Þar segir meðal
annars, að yfirstjórn bankans sé
i höndum ráðherra þess, er fari
með landbúnaðarmál. Hann
setur bankaráði og bankastjór-
um erindisbréf og ákveður laun
bankaráðsmanna. Laun banka-
stjóra skulu ákveðin af banka-
ráði með samþykki ráðherra.
Stjórn bankans er að öðru leyti i
höndum þriggja manna banka-
stjórnar.
Bankaráð skal skipað fimm
mönnum, sem kosnir eru hlut-
bundinni kosningu af Alþingi til
fjögurra ára i senn. Ráðherra
skipar einn hinna kjörnu manna,
formann bankaráðs til fjögurra
ára.
Bankastjórarnir þrir skulu
ráðnir með 12 mánaða gagn-
kvæmum uppsagnarfresti. Þó
getur bankaráð vikiö banka-
stjóra frá fyrirvaralaust, án
sérstakrar launagreiöslu, ef
hann hefur brotið af sér i starfi.
Bankaráð skal skýra banka-
stjóra skriflega frá ástæðum
fyrir uppsögn eða frávikningu
hans úr starfi. Siðan koma á-
kvæði um fundi bankaráðs og
fleira.
Merkilegur
bókaflokkur.
Um siðustu mánaðamót kom
út Arbók Ferðafélags Islands og
fjallar hún að þessu sinni um
Fjallabaksleið syöri. Arbækur
Ferðafélags Islands eru merki-
legur þáttur i bókaútgáfu á Is-
landi. Þessi árbók er hin 49. i
röðinni, en fyrsta bókin kom út
árið 1928. Hún fjallaöi um Þjórs-
árdal.
Fyrstu árbækur félagsins eru
löngu uppseldar. Frumútgáf-
urnar eru mjög eftirsóttar og
hafa árbækurnar selst dýru
veröi, þegar heil söfn hafa verið
boðin. Félagið hefur nú látið
ljósprenta jafnóöum þá ár-
ganga, sem seljast upp, og eru
nú allar árbækurnar fáanlegar,
nema bækurnar frá 1931 og 1963.
Þær eru i ljósprentun og veröa
fáanlegar eftir nokkrar vikur. í
heild eru árbækur Ferðafélags
Islands eitt itarlegasta og vand-
aðasta safn um sögu lands og
þjóðar, sem völ er á.
Siöasta bókin, sem út kom um
Fjallabaksleið syöri, þ.e. leiöina
úr Skaftártungu að Rangárvöll-
um, sunr.an Torfajökuls, er eftir
Arna Böðvarsson, cand. mag..
Hann er borinn og barnfæddur
Rangvellingur og þaulkunnugur
þessari leiö og nágrenni hennar.
Bókin er 200 blaðsiður og
skreytt fjölda mynda. — Þessi
útgáfa er Ferðafélaginu til mik-
ils sóma.
Vandað rit Útivistar
Þá hefur Útivist gefið út sitt
fyrsta rit með fjölbreytilegu
efni. Hallgrimur Jónasson
skrifar þar grein um fyrstu
vetrarferðina i Þórsmörk i bil,
en þar komu margir mætir
menn við sögu, — Þá skrifar Jón
I. Bjarnason tvær greinar, önn-
ur heitir ,,Á Vatnajökli” og hin
„Fyrir neðan heiði”. Gisli Sig-
urðsson ritar um Selvogsgöt-
una. Mikill fjöldi mynda, lit-
myndir og svart/hvitar prýða
bókina.
Þetta er fyrsta útgáfa þessa
unga ferðafélags, sem var
stofnað 23. marz á siðasta ári
eftir haröar deilur, sem risu i
Ferðafélaginu. All-vel er af staö
farið og er ekki aö efa að vel
veröur vandaö til ritsins i fram-
tiðinni.
—AG—