Vísir - 30.10.1972, Side 3
Visir Mánudagur :!0. október 1972.
3
Ennþá er sambandslaust víða
Nœr 300 símastaurar
brotnuðu vegna ísingar
Simasambandslaust er
ennþá i allri Strandasýslu
og stórum hluta
Húnavatnssýslna. Viðar á
landinu kubbuðust sima-
staurar i sundur eða lögð-
ust flatir. Urðu t.d. miklar
skemmdir í Dalasýslu og
Hvalfirði. Alls munu hátt
i 300 staurar hafa
skemmzt i óveðrinu að-
faranótt laugardags. Við-
gerð er hafin á flestum
stöðum.
í Strandasýslu eru fimm
stöövar sambandslausar Linan
frá Brú til liólmavikur, inn til
Drangsness og allur Stein-
grimsfjörður er án simasam-
bands. i Húnavatnssýslu er
Skagaströnd án simasambands,
en þar brotnuðu 50-80 staurar
cða hreinlega lögðust flatir án
þess að brotna. Hvammstangi
cr einnig án sambands, en þar
er nú unnið við að setja upp
hjálparmótor, dieselknúinn og
kemst samband fljótlega á.
Detta eru mestu skemmdir,
sem orðið hafa i 10 til 20 ár á
simaiinum, að sögn Arsæls
Magnússonar hjá landsiman-
um. i Dalasýslu «ru sim-
stöðvarnar að Hnjúki og Saurbæ
án sambands. Ennfremur
brotnaði mikið af staurum hjá
Búöardal. Þá urðu skemmdir i
Hvalfirði, i isafjarðardjúpi,
Mýrdalssandi og i Grimsnesi. i
Eyjafirði lagöist simalinan
niður á liðlega tveggja kiló-
metra kafla á leiðinni til Greni-
vikur. Einnig urðu skemmdir i
innanverðum Eyjafirði.
Ársæll sagði allar þessar
skemmdir stafa af hinni gifur-
legu isingu, sem hlóðst á
linurnar. Allt tiltækt lið hefur
verið kallað út til viðgerða, en
ekki er nægilegur mannskapur
fyrir hendi til þeirra starfa.
Ekki eru tök á fullnaðarvið-
gerðum strax. Reistir verða
nýir staurar á brotum þeirra
gömlu, en lokaviðgerðir verða
framkvæmdar næsta sumar.
Spáð hefur verið versnandi
veðri fyrir norðan, og sagði Ar-
sæll, að það væri spurning um
hitasitg, hvernig gengi að lag-
færa linurnar. Ef hitastigið færi
niður fyrir 3 stig, væri vandi á
höndum.
Ekki er útlit fyrir, að unnt
verði að Ijúka viögerðum alls
staöar fyrr en siðar i vikunni. A
sumum stöðum hafa stöðvarnar
samband við sveitabæina, en
geta aftur á inóti ekki náð sam-
bandi við aörar stöðvar.
-SG.
Stórþjófnaður
í Hafnarfirði
Stórinnbrot var framið i
biöskýlinu á Hvaleyrarholti að-
fararnótt þriðjudagsins 24. þessa
mánaðar. Hcr virðist hafa verið
um að ræða þjálfaða glæpamenn,
en ekki þá skemmdarvarga sem
oftast eru viðriðnir innbrot.
Brotin var rúða við hliðina á
dyrunum og önnur inni i húsinu.
Stolið var verðmætum, sem nema
tugum þúsunda, aðallega
vindlum, vindlingum og sælgæti.
Einnig höfðu þjófarnir á brott
með sér eitthvað af niðursuðu-
vörum (spaghetti, grænar baunir
og fleira).
Auk varningsins höfðu inn-
brotsmennirnir á brott með sér
talsvert af skiptimynt, þar á
meðal voru 10-eyringar og 25-
eyringar i poka, fimm hundruð
krónur i 50-eyringum og nokkuð
af tveggja krónu peningum. Hafi
fólk orði orðið vart við að menn
hafi viljað skipta óvenju miklu af
smápeningum, væru allar upp-
lýsingar þar að lútandi vel þegnar
hjá rannsóknarlögreglunni i
Hafnarfirði. Smápeningunum
gæti alveg eins hafa verið skipt
utan Hafnarf jarðar, eða að
ódæðismennirnir ættu eftir að
láta þá frá sér. -LO
MILLJÓNATJÓN
Á RAFLÍNUM
VEGNA
GÍFURLEGRAR
ÍSINGAR
ibúar Hvammstanga verða enn
um sinn að halda á sér hita með
öllum tiltækum ráðum. Þar hefur
verið rafmagnslaust siðan á
laugardagsmorgun og kemst ekki
rafmagn á fyrr en i fyrsta lagi i
nótt. Alls brotnuðu liðlega 180 raf-
linustaurar viða um land, og auk
þess lögðust staurar i tugatali.
Sums staöar var isingin á linun-
um um 20 cm, og er þetta ein
mesta ising, sem menn muna
Yfir 30 staurar brotnuðu frá
Múla og inn á Hvammstanga, og
brotnuðu staurar inn i þorpinu
sjálfu. Af þeim sökum var ekki
unnt að veita þangað rafmagni
frá varastöð, sem er i Reykja-
skóla. Þar sem simasambands-
laust er við Hvammstanga, tókst
ekki að fá þaðan nákvæmar frétt-
ir, en það mun miklu hafa bjarg-
að, að hlýtt hefur verið i veðri, 5-7
stiga hiti. Baldur Helgason hjá
Rafmagnsveitum rikisins sagði
Visi i morgun, að á Skaga-
strandarlinu hefðu 50 staurar
brotnað. Þar er dieselstöð til vara
og þvi unnt að skammta rafmagn
á staðnum, en sveitir i kring hafa
ekkert rafmagn. Þar er nú unnið
að lagfæringum og væntanlega
hægt að ljúka bráðabirgðarvið-
gerð i dag. Verið er að flytja
dieselstöð frá Reykjavik norður á
Hvammstanga og verður væntan-
lega hægt að fara að keyra hana i
nótt.
A Ólafsfirði brotnuðu nokkrir
staurar og 20 lögðust flatir. Þar er
litil vatnsaflsstöð, sem gripið var
til, og hægt að skammta rafmagn
ikaupstaðnum sjálfum. Þá brotn-
uðu um 40 staurar við Hólmavik.
Sveitin er þar rafmagnslaus, en
Hólmavik fær rafmagn frá vara-
stöð á Drangsnesi. Ekkert raf-
magn eriGeiradal, skammt frá
Króksfjarðarnesi, en þar urðu
miklar bilanir. Við Saurbæ i Döl-
um brotnaði mikið af staurum.
Þar er varastöð, en hún dugir
ekki til, þar sem linan liggur mik-
ið til niðri.
1 Miðdölum urðu einnig miklar
skemmdir. Þar lagðist linan nið-
ur á þriggja km kafla og auk þess
lögðust, um 20 staurar á öðrum
stað og tveir brotnuðu. Ovist er,
hvenær viðgerð lýkur á þessum
stöðum. Þá má nefna, að hjá oliu-
stöðinni i Hvalfirði brotnuðu 17
staurar og er búizt við, að viðgerð
ljúki i dag. Viðar urðu nokkrar
skemmdir á raflinum.
Baldur Helgason sagði, að þetta
væri eitt hið mesta isingaveður,
sem komið hefði. Það væri von-
laust að byggja raflinur, sem
þyldu slikan þunga. Tjónið væri
gifurlega mikið og skipti vafa-
laust milljónum, ef ekki milljóna-
tugum. Fullnaðarviðgerð tekur
langan tima.
—SG
„Þungaðar" konur
smygluðu eiturlyfjum
Fikniefnalögreglumenn i Chile
fundu kókain-verksmiðju á bað-
strönd um 100 km vestur af Santi-
ago. Þeir telja sig hafa sönnur á
þvi, aö verksmiöjan hafi fram-
leitt um 500 kg af hreinu kókaini á
siöustu 3 árum. — Frá Suður-
Ameriku hafa kókain-neytendur i
Bandarikjunum fengiö mestan
hlutan af þessu efni á siðustu ár-
um.
Lögreglan i Chile hefur hand-
tekið nokkrar konur á flugvellin-
um i Santiago — svonefndar
„múlösnur” sem smyglað hafa
kókainsendingum i skjóli „óléttu-
kjóla”. Þegar þessar „þunguðu”
konur voru athugaðar nánar, kom
i ljós, að „þunginn” var kókain i
plastpokum.
Eigandi verksmiðjunnar var
handtekinn.
GP
Þrjór bœttust í hópinn um helgina
Nú um siðustu heigi bættust
þrjár fegurðardrottningar i hóp
þeirra, sem þegar hafa vcrið
kjörnar. i Hafnarfirði var
Margrét Árnadóttir kosin
feguröardrottning á föstudaginn.
Kosningin fór fram i Skiphóli, og
Rauðsokkar létu ekkert til sin
heyra, cnda þótt þær heföu veriö
búnar að tilkynna mótmælaaö-
gerðir.
Margrét er 19 ára gömul fædd
18. júni 1953. Áhugamál hennar
eru ferðalög og sund. Margrét er
gagnfræðingur að mennt, og
hefur blá augu, dökkskollitað hár
og er 171 cm á hæð.
i Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
varð Þuriður ósk Sigursteins-
dóttir fyrir valinu. Hún er frá
Þuriður ósk Sigursteinsdóttir,
ungfrú Mýra- og Borgarfjarðar-
sýsla.
Galtarvik i Skilmannahreppi og
er 17 ára. Hún er með blá augu og
ljóst hár, og áhugamálin eru
músik og iþróttir.
i llcllubió var Kristborg
llafsteinsdóttir kosin ungfrú
Rangárvallasýsla, en hún er til
heimilis að Smáratúni i Þykkva-
bæ. Kristborg er 17 ára og með
blágrá.augu og brúnt hár, hún er
176 sm á hæð. Hennar áhugamál
eru hestamennska og söngur.
Sigurkoss fyrir Margréti Árnadóttur, cftir að hún var kosin
ungfrú llafnarfjörður.