Vísir - 02.06.1973, Page 4
4
Laugardagur 2. júnl 1973.
Tvö mikilvœg
skref stigin
- EN MEIRA ÞARF TIL AÐ GERA UNGA
ÚTVARPSHLUSTENDUR ÁNÆGÐA
Fyrir nokkrum árum skrifaöi
ungur maöur I pósthólf út-
varpsins og kvartaöi yfir þvi, aö
sér fyndist alit of litiö um
poppmúsik I útvarpinu. Eins og
viö var aö búast fannst svara-
manni útvarpsins þetta órétt-
mæt gagnrýni og þvi til
sönnunar taldi hann upp
poppþætti útvarpsins, sem þá
voru: óskalög sjómanna, Óska-
lög sjúklinga, danslög laugar-
dagsog sunnudagskvöld, Lögin
viö vinnuna, A nótum æskunnar
og Lög unga fólksins. Og þar
meö átti öllum aö vera Ijóst, aö
engin tónlist tók eins mikinn
tima i dagskrá útvarpsins og
poppiö. Já, þannig var nú popp-
menningunni háttaö hér á ts-
landi, þcir sem voru þar i
fremstu viglinu voru þeir
félagar Edmundo Hoss, Max
Greger og Alki Jóla.
En svo tók nýtt útvarpsráð
viö. Þeir, sem þar voru kváðust
vel skilja vandamál unga
fólksins, auövitað þyrfti það að
fá sinn skammt af poppi eins og
ungtfólk annars staöar. Héðan i
frá skyldu vera tveir
poppþættir daglega, hina fimm
virkudaga vikunnar, einn fyrir
hádegi og svo popphornið eftir
hádegi, og var þeim valinn timi
á þeim tima dags sem fæstir
hlusta á útvarp. Þar með var
búið að redda málunum næstu
árin. En hvernig fór, popp-
þátturinn sem er fyrir hádegið
er alltaf að styttast og geispar
sennilega golunni fljótlega og er
orsökin sú, að sumum finnst nú
of langt gengið á hlut
synfónianna. Já, og svo var það
popphornið, þar voru leiddir
saman nokkrir kunnáttumenn,
og áttu þeir að sjá um að fæða
hina hungruðu popphlustendur,
Þetta var sundurleitur hópur,
og sumum hefur tekizt nokkuö
vel, en öðrum miður. En samt,
popphorniðer þó allavega spor i
rétta átt.
Þaö hefur verið áberandi,
hvað það er, sem vantar i
poppþætti útvarpsins, það er
,,það nýjasta’’ þ.e.a.s. lög, sem
eru ný og að verða vinsæl úti.
Sum þessara laga heyrast eigin-
lega aldrei, en önnur eru spiluö
og spiluð i vikur og mánuði, þar
til allir hafa fengið ógeð á þeim.
Og hver er ástæöan, hún er sú,
að alltof litið er spilað af ,,þvi
nýjasta” meðan það er nýtt.
Já, popp hefur veriö mikil
hornreka i dagskrá útvarpsins
og greinilegt, að þeir, sem þar
stjórna, hafa gert eins litið og
mögulegt var til aö koma til
móts við hlutstendur, og eitt
gleggsta dæmið um það er, að
fyrir 2-3 árum, þegar mikil
pressa var á þessum háu herr-
um að auka popp i útvarpinu,
gripu þeir til þess ráðs að
endurtaka fyrir hádegið
þættina Lög unga fólksins og A
nótum æskunnar. Sýnir þetta
hið mikla virðingarleysi, sem
popphlustendum hefur hingað
til verið sýnt.
En timarnir eru að breytast,
fyrsta skrefið var popphornið og
annað skrefiö var þátturinn Tiu
á toppnum, en sá þáttur á að
vera opinber vinsældalisti Is-
lendinga. Eg ætla að vona, að
þessi þáttur heppnist vel, en til
þess þarf samvinnu tveggja
aðila. Útvarpið veröur að spila
þessi lög oftar en bara i þessum
þætti. Og hlustendur veröa aö
vera virkir þátttakendur i þess-
um leik. I Tiu á tdppnum er
spilaður vinsældalisti og auk
þesskynnt ný lög, sem koma til
með aö verða vinsæl, en eins og
áöur var sagt, þá þurfa þau að
heyrast oftar en i þessum eina
þætti. Já, tvö skref hafa verið
tekin til að koma til móts viö
popphlustendur, en miklu fleiri
þarf aö taka til þess að fá þá til
að brosa út i annað, hvað þá
gera þá ánægða.
Að lokum, hér hefur veriö
talaö um popphlustendur:
Hverjir eru það? Þeir eru 90%
af þeim hluta þjóðarinnar, sem
ermilli fjögurra ára og fertugs.
Stjarna 8.
áratugs?
DAVID BOWIE:
David Bowie:
A r á d din Sane.
Elvis Presley var stjarna 6.
áratugarins, Bitlarnir voru
stjörnur 7. áratugarins, og þeir
segja, að David Bowie veröi
stjarna 8. áratugarins. En svo-
leiðis lagað er aldrei hægt að
segja til um fyrirfram. Það
verður ekki séð fyrr en 8. ára-
tugurinn er liðinn. En i dag er
David Bowie óneitanlega ein
skærasta stiarnan, sem skin i
poppheiminum. Aladdin Sane er
nú i efsta sæti enska listans og á
hraðri uppleið i Bandarikjun-
um. Allt, sem Bowie hefur gert
hingað til, er frábært, og svo er
einnig um þessa plötu. Það
skyldi enginn láta útlit hans
blekkja sig, þvi sú tónlist, sem
hann framleiðir, er það sem allt
snýst um, og hún er góö. Þess
vegna er þeim, sem ekki hafa
hlustað á Bowie, en ætla að
fylgjast með tónlist 8. áratugar-
ins, hollast aö fá sér þessa plötu
eða einhverja aðra með David
Bowie.
NÝJAR
PLÖTUR5
Spooky Tooth:
You Broke My Heart,
So I Busted Your Jaw.
Spooky Tooth var fyrir nokkr-
um árum talsvert vinsæl hljóm-
sveit. Þegar hún hætti, fóru
aöalmennirnir, Gary Wright og
Mike Harrison, hvor i sina
áttina. Nú hafa þessir tveir
endurvakið Spooky Tooth. Þessi
fyrsta plata þeirra eftir upp-
risuna lofar góðu. A henni er
ekkert æðisgengið eða framúr-
skarandi, en margir góðir
punktar. Ef þeim félögum tekst
að halda hópinn, er öruggt, að
Spooky Tooth á eftir að láta
talsvert að sér kveða i framtið-
inni.
/i Roger Daltrey:
V Daltrey
Roger Daltrey hefur hingað til
aðeins verið þekktur fyrir að
vera söngvari Who, og örugg-
lega hafa fáir átt von á sólóplötu
frá honum. En það er nefnilega
það skemmtilega við þessa
plötu, hún kemur á óvart. Hér er
ekkert, sem minnir á Who, jafn-
vel ekki söngurinn, nema á
stöku stað. Daltrey ætti að halda
áfram á þessari linu, þvi hann
hefur aldrei notið sin betur, og
ég tel, að með þessari plötu hafi
hann lagt grundvöllinn að sóló-
ferli sinum, og er það vel.
Paul Simon:
There Goes Rhymin
Simon.
Mikið hefur verið talað um
þessa plötu, og við miklu hefur
verið búizt. Þegar svo er ástatt,
er oft hætt við, að þegar platan
kemur, valdi hún vonbrigðum,
vegna þess að við of miklu var
búizt. Én ekki i þessu tilfelli,
Paul Simon uppfyllir það, sem
viö var búizt og rúmlega það.
Þetta er þannig plata, að manni
liður ósjálfrátt vel, þegar hlust-
aö er á hana. Það er alveg
sama, hvar á plötuna er litið, al-
búmið, textana eða músikina,
allt er gert eins vel og kostur er
á og yfirleitt með smáhúmor.
Þess vegna er þetta ánægjuleg-
asta plata, sem ég hef hlustað á
I langan tima, og ef þú þekkir
einhvern, sem þig langar til að
sjá brosa, þá skaltu reyna þessa
plötu Paul Simons.
A1 Green: Call Mé
A1 Green er bandariskur
negri. Árið 1972 var hann kosinn
bezti söngvari Bandarikjanna,
og það er þvi furðulegt, að hann
skuli ekki þekktari hér en raun
ber vitni. Þessi plata hans er
mjög góð og i sama klassa og
fyrri plötur hans. Annars ættu
það að vera næg méðmæli með
A1 Green, að hann er uppáhalds-
söngvari bezta poppsöngvara
Islendinga, Björgvins Halldórs-
sonar.
Tiu á toppnum i dag.
1 þættinum TIu á toppnum i
dag verður kynntur vinsælda-
listinn, eins og hlustendur hafa
valið hann. Einnig verða kynnt
þar þrjú ný lög, sem örugglega
eiga eftir að fara inn á listann.
Þar ber fyrst að nefna nýtt lag
með Paul Simon, Kodachrome,
og nýtt lag með Doobie Broth-
ers, Long Train Running, en
bæði þessi lög æða nú á fullri
ferð upp vinsældalista vestan-
hafs. Siðast en ekki sizt verður
þar lagið Power to All Our
Friends með Cliff Richard, en
það lag nýtur nú þegar tals-
verðra vinsælda hér.
VINSÆLDALISTAR
N.M.E. þessa vikuna:
ENGLAND
10
11
12
13
14
15
23 16
SEE MY BABY JIVE
Wizzard (Harvest)
CANTHECAN . Suzi Quatro (Rak)
ONE AND ONE IS ONE
Medicíno Head (Polydor)
ANDILOVE HERSO
Perry Como (RCA)
TIE A YELLOW RIBBON
Dawn (Bell)
HELL-RAISER ......Sweet (RCA)
BROKENDOWN ANGEL
Nazareth (Mooncrest)
YOU ARE THE SUNSHINE OF MY
LIFE .....Stevie Wonder (Tamla)
ALSO SPRACH ZARATHUSTRA
(2001) ...Deodato (Creed Taylor)
WALK ON THE WILD SIDE
Lou Reed (RCA)
COULD IT BE l'M FALLING
Detroit Spinners (Atlantic)
GIVING ITALLAWAY
Roger Daltrey (Track)
HELLO! HELLO! I'M BACK AGAIN
Gary Glitter (Bell)
RUBBER BULLETS ... 10 c.c. (UK)
BOTHER LOUIE
Hot Chocolate (Rak)
WALKING IN THE RAIN
Partridge Family (Bell)
AMERÍKA
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
23 17
MY LOVE ....................Wings
FRANKENSTEIN ..........Edgar Winter
DANIEL .................EltonJohn
PILLOWTALK ................Sylvia
TIE A YELLOW RIBBON ROUND THE OLE
OAKTREE .....................Dawn
STUCK IN THE MIDDLE WITH YOU
Stealers Wheel
HOCUS POCUS ................Focus
I M GONNA LOVE YOU JUST A LITTLE
MORE BABY ..............Barry White
WILD FLOWER ..............Skylark
STEAMROLLER BLUES ......Elvis Presley
THINKING OF YOU .... Loggins and Messina
GIVE ME LOVE ........George Harrison
FUNKYWORM ..............Chic Players
PLAYGROUND IN MY MIND ..Clint Holmes
l’MDOIN'FINENOW .....New York City
WILL IT GO ROUND IN CIRCLES
Billy Preston
ONEOFAKIND ..............Spinners