Vísir - 02.06.1973, Blaðsíða 6

Vísir - 02.06.1973, Blaðsíða 6
6 Vlsir. Laugardagur 2. júni 1973. VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611 (7 llhur) Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands I lausasölu kn 18.00 einfakiö. BlaBaprent hf. Biðskák hjá forsetum Skákin, sem Nixon og Pompidou tefldu á Kjar- valsstöðum, var ekki til þess fallin að vera jafn „spennandi” fyrir almenning og skákir Fischers og Spasski. En skák var það, og verðlaunin, sem til var keppt, eru ekki hundruð milljónir króna, heldur ótaldar þúsundir milljarða. í húfi var hvorki meira né minna en framtið tveggja stór- velda, Bandarikjanna og Efnahagsbandalags Evrópu. Bandarikin vilja tryggja, að hið upprennandi stórveldi EBE vaxi sér ekki yfir höfuð. Banda- rikjamenn hafa yfirburði yfir EBE á hernaðar- sviðinu, og þeir hyggjast færa sér þá yfirburði i nyt til að fá betri kjör i viðskiptum. Efnahags- og hermál þessara rikja eru tvimælalaust nátengd. Til dæmis hefur það aukið á viðskiptahalla Bandarikjanna við önnur lönd, að þau greiða mikið fé til að halda uppi herjum i Vestur-Evrópu. Bandariska stjórnin hefur á prjónunum miklar ráðagerðir, sem hafa verið kenndar við Kissinger, þar sem stefnt er að heildarsamning- um milli Norður-Ameriku- og Vestur-Evrópu- rikja um efnahags-, her- og stjórnmál. Kæmu slikir heildarsamningar til framkvæmda, mundi samvinna rikjanna verða miklu meiri og með samtvinnaðra móti en nú er. Hins vegar hafa Frakkar sýnt þessum ráðagerðum litinn áhuga. í efnahagsmálum hafa Bandarikin staðið höll- um fæti að undanförnu. Gengi Bandarikjadollars hefur verið fellt tvisvar á rúmu ári, en þó riðar það enn og með þvi allt gjaldeyriskerfi heimsins, sem að miklu leyti grundvallast á Bandarikja- dollar. Þvi krefjast Frakkar og fleiri EBE-þjóðir þess, að dollarinn verði gulltryggður að nýju, sem mundi þýða enn eina gengisfellingu, eins og sakir standa. Nixon samþykkti á fundunum i Reykjavik kröfur Pompidous um, að ekki skyldi kallað heim bandariskt herlið frá Vestur-Evrópu nema til kæmu samningar milli austurs og vesturs um gagnkvæma fækkun i herafla beggja vegna járntjalds. ,,Við vorum sammála um fleira en við vorum ósammála um,” sagði Pompidou að skilnaði á Kjarvalsstöðum i gær. Þessi yfirlýsing lofar ekki góðu um árangur, þar sem stjórnarleiðtogar iðka það fremur að gera mikið úr einhug sinum á slik- um fundum en að ýkja ágreining sinn. Samkomu- lag varð þó um, með hvaða hætti yrði á næstunni reynt að leysa deilumál Bandarikjamanna og Frakka. Þetta á að gera með margvislegum fundahöld- um sérfræðinga. Fyrsti fundurinn verður i næstu viku, þegar Kissinger og franski utanrikisráð- herrann hittast i Paris. Þegar liður að hausti, ætla rikisstjórnir siðan að athuga, hvað miðað hefur með þessum fund- um öllum, og þá verður tekin ákvörðun um, hvort æskilegt sé að halda fund æðstu manna Vestur-Evrópu og Bandarikjanna. Allavega ætlar Nixon i för til Vestur-Evrópu fyrir jól, og mun hann þá halda áfram viðræðum við æðstu menn þar. í viðræðum forsetanna á Kjarvalsstöðum bar Nixon merki Watergatehneykslisins, og Pompi- dou var sjúkur. Af þvi og öðru, sem hér er talið, gekk litið i skákinni. Hún var sett i bið. Sam Ervin, formaBur rannsóknarnefndarinnar (t. hægri), hlustar, á meöan Howard Baker öidunga- deildarþingmaður, leiðtogi repúblikana I rannsóknarnefndinni, er aö spyrja eitt vitnanna I rannsókn- inni. ,Hugorfar Gestapo — sagði Sam Ervin formaður rannsóknarnefndarinnar í Watergatemólinu / Sumir hinna núverandi og fyrr- \ verandi framámanna I Washing- I ton segja sögur I sitt hverri út- \ gáfunni um innbyröis samskipti I sin i Watergatehneykslinu. \ ()g Sam Ervin, formaður rann- / sóknarnefndar þingsins, segir, að \ hann hafi lesið íeyndarskjöl Hvita / hússins, sem afhjúpi „hugsunar- \hátt Gestapomanna” meðal / mikilsráðandi manna i stjórn \ Nixons. 1 \ Svo sitt hvaö er að gerast i / Watergatemálinu, eftir þvi sem \ rannsókn þess vindur fram, enda / má heita að málið hverfi varla af \ forsiöum blaða neinn einasta / dag , og ný tiðindi eru af þvi sögð \ i nær hverjum fréttatima út- I / varpsstöðvanna. \ Eftir að það kom upp, að leyni- / þjónusta Bandarikjanna (CIA) \ kunni að hafa verið þvinguð til að / veita þjónustu hliðstæða Water- \ gatemáiinu, hafa ýmis eftirlits- / ráö og nefndir tekið til við að \ rannsaka athafnir þessarar / njósnastofnunar, eða alla vega \starfsmanna hennar sumra / hverra. \ Út úr þvi hefur svo komið það, , / að framburður fyrrverandi hátt- \ settra ráögjafa i Hvita húsinu / hefur skotið mjög skökku við bað. \ sem æðstu ráðamenn CIA og alrik / islögreglunnar (FBI) hafa sagt. \ Þannig á Robert E. Cushman, / fyrrum næstæðsti yfirmaður CIA, \ að hafa borið undir eiði, að John // Ehrlichman hafi beöið hann i \ sima 8. júli 1971 að láta CIA aöstoða Howard Hunt, sem dæmdur hefur verið fyrir þátt sinn I Watergatemálinu. A hinn bóginn hefur Ehrlich- man, sem var helzti ráðunautur Nixons forseta i innanrikismál- um, sagt, að hann hafi aldrei beöiö um neitt slikt. Cushman hershöfðingi gáði þá i minnisblöð sin og gekk þar úr skugga um, að simhringjandi hafði samt verið Ehrlichman. ! annan stað hittust þeir Ehr- lichman og starfsmannastjóri forsetans. H.R. Haldeman, og svo Richard Helm., forst.irtri CI.4, og fulltrúi hans, Vernon A. Walters. Fundur þeirra var i Hvita húsinu 23. júni 1972 og umræðuefnið var CIA og innbrotið 6 dögum fyrr i Watergate. — Helms og Walters sögðu þar, að CIA væri ekki blandað i málið og rannsókn FBI gæti ekki skaðað leyniþjónustuna. Walters segir, að Haldeman og Ehrlichman hafi sent hann siðan á fund þáverandi forstjóra FBI, Patrick Gray, til að segja honum, að rannsókn FBI á peninga- greiðslu frá Mexikó gæti skaðað aðgerðir CIA. Ehrlichman segir, að Helms og Walters hafi ekki þverneitað, að FBI-rannsóknin gæti skaðað CIA, — Haldeman segir, að það hafi ekki verið nokkur vilji eða við- leitni til að torvelda rannsókn Watergatemálsins. Ehrlichman og Haldeman hafa báðir sakað eina manninn, sem rekinn var úr starfsliði Hvita hússins, John Dean ráð- gjafa, fyrir þær tilraunir, sem vitnazt hefur um, að gerðar voru til að draga CIA inn i hneykslið. Dean hefur hins vegar sagt, að allar klær veröi hafðar úti til að sverta hann, áður en hann mætir fyrir nefndina til þess að leysa frá skjóðunni. Með þvi skuli reynt að tortryggja framburð hans. Þegar Ervin, formaður rann- sóknarnefndarinnar, talaði um „hugsunarhátt Gestapo”, tók hann mikið upp i sig á fundi, sem haldinn var með fréttamönnum i Norður-Karólina. Leyndarskjölin sem hann nefndi, voru skjölin, sem Dean sagði alrikisdómara, að hann hefði tekiö úr Hvita hús- inu og komið fyrir i bankahólfi af ótta við, að þeim væri ekki óhætt i Hvita húsinu. Dómarinn lét Dean sækja skjölin i bankahólfið oe af- henda sér þau en hinsvegar hefur hann ekki lagt þau opinberlega fram. Sam Ervin fékk þó eitt afrit af þvi, sem var áætlun um njósnir innanlands. — Nixon forseti hefur lvst bvi vfir, að bessari niósna- áætlun hafi aldrei verið hrundið i framkvæmd, vegna þess að J. Edgar Hoover, fyrrverandi yfir- maður FBI, hafi verið henni and- vigur. „Það mundi verða bandarisku þjóðinni mikið áfall, ef hún fengi að vita innihald þessara skjala," sagði Ervin við fréttamennina á fundinum, og hann bætti þvi við, að hann hygðist leita álits hjá levnibiónustu deildum rikisins, hvort rétt væri að birta skjölin. Nokkrir þeirra, sem við sögu hafa komiö I Watergatemálinu. Talið frá vinstri: Nixon forseti, Mitchell, fyrrum dómsmálaráðh., Haldeman, fyrrum yfirmaður starfsliðs Hvita hússins. 1 neðri röð: John W. Dean, áðurlögfræðiráðgjafi Hvitahússins. Ehrlichman ráðgjafi og Maurice Stans, sem áður stýrði fjáröflun vegna kosningabaráttu Nixons.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.