Vísir - 02.06.1973, Page 20
Pompidou er glaðklakkalegri en Nixon á þessum fundi, sem forsetarnir héldu meft fullskipuöu lifti slnu undir lokin. Margir telja, aö
hlutur Pompidous á fundinum hafi orðið stærri en Nixons.
„FRJÓVGUNIN NOTA-
LEGRI EN FÆÐINGIN"
fundarlok - en fréttaskýrendur telja, að lítið hafi gengið
vísm
Laugardagur 2. júni 1973.
Enn rœtist
ein spá
völvunnar
Enn rætist ein spá völvunnar
umræddu, sem spáði um áramót-
in I Vikunni sem kunnugt er. Ein
af spám hennar var sú, að Anna
prinsessa myndi ganga I hjóna-
band nær hausti.
Eftir öllu að dæma virðist svo
ætla að veröa, þar sem Anna
prinsessa og Mark Philips ridd-
araliðsforingi hafa nú trúlofast,
og tilkynnt hefur veriö i Bucking-
ham Palace, að þau hafi ákveöið
að ganga i hjónaband i haust,
trúlega i nóvember.
Það verður fróðlegt að fylgjast
áfram meö spám völvunnar, en
liklega er Kötlugos eitt af þvi,
sem menn biöa helzt eftir nú.
— EA
Nixonbíll
í árekstri
Það er deginum Ijósara að bilar
Nixons Bandarikjaforseta ættu aö
standast kúlnaregn mætavei.
Þegar bilalestin var aö fara frá
Myndlistarhúsinu i gærdag i há-
deginu, lenti varabill forsetans i
árekstri viö rútubil við innkeyrsl-
una að húsinu. Varð þarna a 11-
snarpur árekstur og rifnaði bretti
af rútunni að mestu auk annarra
skemmda, en á Cadillac Nixons
mátti greina þrjár rispur, — en
ekki lét málmurinn undan að öðru
leyti. Suður á Keflavlkurflugvöll
brunaði Nixon á öðrum skotheld-
um bil af Lincoln-gerð.
— sagði Pompidou í
,,Við vorum sammála um
fleiri atriði en viö vorum ósam-
mála um. Þessu má likja við
frjóvgun, en fæðingin er eftir,
og vissulega er frjóvgunin nota-
legri en fæðingin”, sagöi
Pompidou Frakklandsforseti
við blaöamenn að skilnaöi,
þegar hann kom af lokafundi
þeirra forsetanna.
Fréttaskýrendur eru þó yfir-
leitt þeirrar skoðunar að niður-
stöður fundarinshafiveriö næsta
litlar, nema að halda fleiri
fundi, en þar munu embættis-
menn ræðast við.
Fundurinn i gærmorgun varð
nokkrum minútum lengri en
ráö haföi verið gert fyrir. Var
augljóst, að Nixon var farinn
að þreytast, enda sagt, að
Bandarikjamenn hefðu ekki
haft erindi sem erfiði. Frakkar,
stöðu fast fyrir og höfnuðu
þeim tillögum Bandarikja
manna, sem mestu skiptu.
Bandarikjamenn stefna að
þvi, að Nixon hitti æðstu menn
V-Evrópurikja, þegar hann fer
til Evrópu á hausti komanda.
Frakkar hafa ekki fallizt á
þetta, nema þvi aðeins að fundir
embættismanna leiði til veru-
legs árangurs og ýmis
ágreiningsmál Bandarikjanna
og Frakklands verði leyst fyrir
haustið. Ráðherrar munu meta
þá stöðu, þegar liður að hausti.
Haft var eftir Ziegler, blaða-
fulltrúa Nixons, að eitthvað hafi
miðaðf áttina á fundinum i gær-
morgun. Fréttaskýrendur
drógu i efa, að fullt mark mætti
taka á „hressilegum ummælum
ráöamanna”, þar sem ekkert
kom fram, sem benti til raun-
verulegs árangurs.
Forsetarnir héldu siðan með
föruneyti sinu til Keflavikur-
flugvallar, og fóru blaða-
mennirnir bandarisku og
frönsku samtimis. Nixon gekk
úr bilnum á vallarsvæðinu og
tók i hendur margra Banda-
rikjamanna, sem höfðu safnazt
saman þar til að hylla hann.
Flaug svo hver til sins heima.
—HH
Sjá nánar um niður-
stöður fundanna á
Kjarvalsstöðum i
forystugrein á bls. 6.
ÁTTIAÐ MYRDA NIXON
EÐA POMPIDOU?
- MAÐUR VOPNAÐUR BYSSU HAND-
TEKINN VIÐ LAUFÁSVEGINN í FYRRINÓTT
1 fyrrinótt var maöur vopnaður
byssu handtekinn á Laufásvegin-
um, þar sem forsetarnir Nixon og
Pompidou bjuggu. Maðurinn var
undir vopnum i bii við Laufásveg-
inn, þegar hann var handtekinn.
Hann er Kópavogsbúi og ungur
maður. Hann var færður i hendur
rannsóknarlögreglunni I Kópa-
vogi til yfirheyrslu.
Ásmundur Guðmundsson,
rannsóknarlögreglumaður i
Kópavogi, sem hefur meö rann-
sókn málsins að gera, vildi sem
minnst segja um málið, en sagði,
að hann héldi, aö hér væri ekki
um stórmál á ferð, a.m.k. ekki við
fyrstu sýn.
Ekki er vitað, hvort hér hafi átt
að sýna Nixon eða Pompidou til-
ræöi, eða hvort maðurinn hefur
veriö að fiflast. Ekki er vitaö,
hvers konar byssur það voru, sem
maöurinn var með i fórum sinum.
Maðurinn var fyrir utan afgirtu
svæðin kringum bústaði forset-
anna og hefur ekki frétzt að hann
hafi sýnt mótþróa við handtök-
una.
A þessum tima voru forsetarnir
að koma úr veizlu aö Bessastöö-
um, en ekki er vitaö, hvort þeir
voru ókomnir, þegar byssumaö-
urinn var handtekinn.
Við yfirheyrslu i gærdag bar
maðurinn þvi við, að hann hefði
gleymt þvi, að byssan væri i biln-
um hjá honum. Manninum var
sleppt lausum i gærdag, eftir að
Pompidou og Nixon voru farnir af
landi brott. —ÓH
ENGAR KVÖLDSKEMMTANIR
í REYKJAVÍK 17. JÚNÍ
— segir þjóðhátíðarnefnd í greinargerð sinni til borgarráðs
Þjóöhátiðarncfnd Reykja-
vikurb. hefur lagt þá tillögu
fyrir borgarráð, aö engar kvöid-
skemmtanir verði i Reykjavik á
17. júni, og er taliö nokkurn veg-
inn öruggt, aö þessi tillaga hljóti
samþykki. Borgarráö hefur
skorið fjárhagsáætlun til há-
tiðahalda 17, júni niður um tæp-
lega eina miiijón.
Blaðið hafði samband við
Markús Orn Antonsson, for-
mann þjóðhátiðarnefndar, og
spurði hann um þessi mál og
ástæðurnar fyrir tillögu
nefndarinnar. Markús sagði,
að þjóðhátiöarnefnd hefði sent
greinargerð til borgarráðs, þar
sem lagt var til, að engar
skemmtanir yröu i miðbænum
eftir kvöldmat á 17. júni og aö
hátiðahöldunum lyki með
barnaskemmtun á Lækjartorgi
kl. 7-8. Bent er á reynsluna frá
þvl i fyrra, sem nefndin telur
miður góða. Einnig er
kostnaður við slikar kvöld-
skemmtanir talinn vera óhóf-
lega mikill. Nýstúdentar komu
þvi til leiðar i fyrra, að af kvöld-
skemmtun varð, en nú fer þeim
óöum fækkandi, sem útskrifast
ekki fyrr en 17. júni, og i
Reykjavik er þaö reyndar
aðeins einn skóli, Verzlunar-
skólinn. Þjóðhátiðarnefnd
heldur við fyrri tillögur sinar
um stærri hátiðahöld á fleiri
ára fresti.
A fjárhagsáætlun Reykja-
vikur núna var gert ráð fyrir
einnar milljón króna framlagi
til hátíðahaldanna, en i fyrra
var framlagið 1,7 milljónir og
fór samt fram úr áætlun. Þykir
þvi sýnt, að borgarráð muni
samþykkja tillöguna, en fundur
þess er ekki fyrr en á þriðjudag-
inn.
Þess má geta, að i Kópavogi
hefur einnig verið falliö frá þvi
aö hafa kvöldhátíðahöld.
SKJÓNA KOMIN
í DÝRASAFNIÐ
Það er ekki vitað, hvað
Kristján S. Jósefsson, eigandi
Dýrasafnsins, lét Björn frá
Löngumýri hafa fyrir skrokkinn
af henni Skjónu. Hitt er vitaö, að
einhverntima á dögunum voru
boðnar I kringum eitthundraö
þúsund krónur fyrir húðina af
henni.
Dýrasafnið hreppti hrossiö —
og nú er búið að stoppa hana
Skjónu upp og i gærkveldi var
henni stillt upp i Dýrasafninu
við Skólavörðustiginn.
„Skjóna er fyrsti visirinn aö
hestasafni, sem ég hef ákveðið
aö koma hér upp,” sagði
Kristján, er hann i gærkveldi
sýndi okkur gripinn. ,,Ég hef til
að mynda komizt yfir 18 vetra
stóðhest, sem ég ætla að láta
stoppa upp fljótlega,” hélt hann
áfram. Og hann sagði okkur lika
frá 5 vetra bola, sem hann felldi
fyrir nokkru siöan og ætlar að
setja á safnið. Auk þess á hann
svo tilbúna til uppstoppunar
fjölmarga fugla og þrjá 300
kilóa útseli.
„Það hefur Spánverji verið
mér til aðstoðar við uppstopp-
unina siðasta árið,” sagði
Kristján næst. Og nú á hann von
á enskum hjónum til sin að auki,
sem ætla að leggja honum nokk-
urt lið við að koma upp þeim
dýrum, sem mest liggur á.
—ÞJM
i