Vísir - 26.03.1975, Qupperneq 17
Vísir. Miðvikudagur 26. marz 1975.
17
ÚTVARP OG SJÓNVARP UM PÁSKANA
Útvarp fimmtudag kl
16,40:
Tvœr smá-
sögur eftir
Matthías
Tvær smásögur verða fluttar
eftir Matthias Johnannessen i
útvarpinu á morgun, en þá er
skirdagur. Sögurnar heita „Sið-
asti vikingurinn” og ,,Mold und-
ir malbiki”. Það er höfundur
sjálfur, sem les.
r
Utvarp fimmtudag kl. 16,40:
Ýmislegt um skíða-
íþróttina
Ef veður leyfir, bregða sér
sjálfsagt margir á skiði um.
páskana. t barnatimanum á
Útvarp föstudaginn
langa kl. 16,15:
Meistari
Jón
MEISTARI Jók kallast dag-
skrá, sein tekin er saman af
herra Sigurbirni Einarssyni
biskupi, og flutt verður i útvarp-
inu á föstudaginn langa.
Niu guðfræðinemar lesa þar
úr ritum Jóns Vidalins. Dr.
Steingrimur J. Þorsteinsson
flytur kvæði Einars Benedikts-
sonar „Meistari Jón”. Dr. Ró-
bert A. Ottósson stjórnar tón-
listarflutningi. Dagskrá þessi
var áður flutt fyrir niu árum.
— EA.
Biskupinn tók saman dagskrá,
sem flutt verður i útvarpinu
föstudaginn langa.
morgun, skirdag, verður fjall-
að um skiðaiþróttina. Til dæm-
is verður flutt efni frá skíöa-
skólanum i Kerlingarfjöllum.
Barnatimanum stjórnar Agústa
Björnsdóttir.
Sjónvarp kl. 22,30
föstudaginn langa:
GAF ALTARIS-
TÖFLUNA í
HALLGRÍMS-
KIRKJU í
SAURBÆ
— mynd um finnska
mólarann Lennart
Segerstrdle
ÞIN BYRDI ER MÍN heitir
mynd, sem sjónvarpið sýnir
að kvöldi föstudagsins langa.
Er hér um að ræða finnska
heimildarmynd um málarann
Lennart Segerstrðle, sem við
sjáum hér á meðfylgjandi
mynd við vinnu sína.
Segerstrále, er nú á niræðis-
aldri, en hann hefur á löngum
listferli getið sér frægðarorð
fyrir fjölhæfni og kunnáttu i
málaralist.
Kunnastur er hann fyrir
trúarlegar myndir 'og meðal
þeirra má nefna altaristöfl-
una, sem hann gaf Hallgrims-
kirkju i Saurbæ á Hvalfjarðar-
strönd.
býðandi og þulur er Hrafn
Hallgrimsson, en myndin
hefst kl. 22.30.
— EA
Michaelangelo á afmœliáföstudagmn
Fimm hundruð ár eru liðin frá
fæðingu listmálarans mikla
Michaelangelo á föstudaginn
langa. Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur mun i tilefni af af-
mælinu halda fyrirlestur i út-
varpinu þann dag, þar sem rifj-
uð verður upp ævi Michael-
angelo og spjallað um list hans
og bakgrunn hennar á italiu á
þeim timum. — JB
Sjónvarp, föstudaginn langa, kl. 20,15:
Eitt viðamesta verk
sœnska sjónvarpsins
„Töfraflauta" Mozarts í leikstjórn
Ingmars Bergman
í 20 ár hafði Ingmar Bergman
hugsað um að setja á svið
Töfraflautu Mozarts. Hann fékk
tækifærið til þess, þegar sænska
útvarpið átti 50 ára afmæli, en
það var einmitt þetta árið. A
nýársdag var verkið frumsýnt i
sænska sjónvarpinu.
Við sjáum þetta verk i
sjónvarpinu á föstudaginn langa
klukkan 20.15.
1 þessu verki höfðar Ingmar
Bergman til allra, þarna er
komin saga fyrir börnin, músik
fyrir unglinga og ekki siður
fyrir fullorðna. Þetta er eitt
viðamesta verkið, sem sænska
sjónvarpið hefur tekið að sér, en
það virðist hafa tekizt frábær-
lega vel.
Töfraflautan var fyrst sett á
svið 30. september árið 1791 i
Vin. Mozart vann að óperunni
vorið og sumarið 1791. Tæpum
tveimur mánuðum eftir
uppfærsluna lézt hann, 35 ára
gamall. En hann hafði fengið að
heyra og sjá frábærar mót-
tökur, sem Töfraflautan hlaut.
Töfraflautan var ekki samin
fyrir sérfræðinga og sérlega
músikaðdáendur, heldur fyrir
almenninginn.
Eftir rúmlega tveggja ára
undirbúning i Sviþjóð var
byrjað að leika verkið i lok
marzmánaðar 1974. Geysilega
margir listamenn voru prófaðir
áður en valið var i hlutverkin,
þvi að til alls skyldi vandað sem
mest.
Sænska sjónvarpið sá alger-
lega um sviðsetningu, sem var
erfitt verk og nákvæmt. Með
aðalhlutverkin fara Josef
Köstlinger, Irma Urrila, Hákon
Hagegárd, Ulrik Cold, Birgit
Nordin og Ragnar Ulfung.
Eric Ericson stjórnar kór og
hljómsveit sænska útvarpsins.
Leikstjóri er svo Ingmar Berg-
man, eins og fyrr er komið
fram.
Aðalsöguhetjan er sveinninn
Taminó. Hann er á veiðum,
þegar dreki mikill og illvigur
ræðst að honum. Það verður
honum til bjargar, að þrjár
þjónustumeyjar nætur-
drottningarinnar ber þar að.
Þær vinna á drekanum og
segja drottningu sinni, hvað
fyrir þær hefur borið. Drottning
segir nú Taminó frá dóttur
sinni, Paminu, sem numin var á
brott af töframanninum
Sarastro. Það verður úr, að
Taminó heldur af stað til að
heimta meyna úr höndum töfra-
mannsins.
Hann er vopnaður töfraflautu,
sem næturdrottningin hefur
gefið honum, og með honum i
för er fyglingurinn Papagenó,
ógætinn i tali og dálitið sér-
sinna.
-EA.
Tamino (Josef Köstlinger) og Pamina (Irma Urrila).
SJÓNVARP •
Föstudagur
28. mars 1975
(Föstudagurinn langi)
17.00 „Hann skal erfa
vindinn” (Inherit the Wind)
19.05 Hlé.
20.00 Fréttir og veöur.
20.15 Töfraflautan.öpera eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
22.30 Þfn byrði er mln.
23.20 Dagskrárlok.
Laugardagur
29. mars 1975
16.30 íþróttir. Knatt-
spy rnukennsla. Enska
knattspyrnan. Aðrar
Iþróttir. Umsjónarmaður
Cmar Ragnarsson.
18.30 Lina Langsokkur. Sænsk
framhaldsmynd. 13. þáttur.
Sögulok. Þýðandi Kristin
Mantyla. Aður á dagskrá
haustið 1972.
19.00 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Elsku pabbi.Breskur
gamanmyndaflokkur. Hús
til sölu. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
20.55 Vaka. Dagskrá um
bókmenntir og listir á
lföandi stund. Umsjónar-
maður Aðalsteinn Ingólfs-
son.
21.35 Kristnihald I Kongó.
Þýsk heimildamynd um
tilraunir sumra afríkuþjóða
til að aðlaga kristna trú
þjóðlegum siðum og
háttum. Þýðandi Auður
Gestsdóttir. Þulur Jón
Hólm.
22.15 Anastasia.
23.55 Dagskrárlok.
Sunnudagur
30. mars 1975
17.00 Páskaguðsþjónusta i
sjónvarpssal. Séra Árelíus
Nielsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Kór Langholts-
safnaðar syngur. Söngstjóri
og organleikari Jón
Stefánsson.
18.00 Stundin okkar Kór
öldutúnsskóla i Hafnarfirði
syngur. Nemendur i Ballett-
skóla Eddu Scheving dansa
vordansa, og sýnt verður
leikritið ,,Mér er alveg
sama, þótt einhver sé að
hlæja að mér” eftir
Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Umsjónarmenn Sigriður
Margrét Stefánsdóttir og
Hermann Ragnar
Stefánsson.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.15 Eldur i öskju Fyrir
réttum hundrað árum, 29.
mars árið 1875, hófst mikið
eldgos i öskju, og varð það
upphaf þess harðindakafla,
sem varð ein af megin-
orsökum fólksflótta ns
vestur um haf. 1 tilefni þess,
að öld er liðin siðan þetta
varð, ræðir Eiður Guðnason
við Sigurð Þórarinsson,
jarðfræðing, um gosið og
afleiðingar þess, og siðan
verður sýnd stutt kvikmynd
eftir ósvald Knudsen.
Nefnisthún „Eldur i öskju”
og fjallar aðallega um
öskjugosið 1961.
20.45 íslensk kammermúsik
Rut Ingólfsdóttir, Pétur
Þorvaldsson og Halldór
Haraldsson leika Trió i e-
moll fyrir fiðlu, selló og
pianó eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.05 Edward Munch Norsk
kvikmynd um málarann
Edvard Munch og æviferil
hans. Fyrri hluti. Leikstjóri
Peter Watkins Aðalhlutverk
Geir Westby, Gro Fraas,
Johan Halsbog og Lotte
Teig. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson. Myndin lýsir
bernskuárum listamannsins
á heimili, þar sem sjúk-
dómar og dauði setja mark
sitt á daglegt lif. Siðan er
fylgst með þroskaferli hans
og leit hans að tjáningar-
formi við sitt hæfi. öll hlut-
verk i myndinni eru leikin af
áhugafólki og eru þátttak-
endur alls um 360. Siðari
hluti myndarinnar er á dag-
skrá á annan dag páska.
(Nordvision — Norska
sjónvarpið)
Mánudagur 31. mars
Annar i páskum
18.00 Endurtekið efni
Björgunarafrekið við
I.átrabjarg Heimildamynd.
sem Óskar Gislason gerði
fyrir Slysavarnafélag
tslands, er breskur togari
fórst undir Látrabjargi fyrir
nærfellt 30 árum. Mynd
þessi hefur verið sýnd viða
um land og einnig erlendis.
Hún var áður á dagskrá
sjónvarpsins fyrir rúmum
sjö árum.
18.50 Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Edvard Munch
Kvikmynd um norska
málarann Edvard Munch og
æviferil hans. Siðari hluti.
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson. (Nordvision —
Norska sjónvarpið)
22.15 Rolf Harris Fyrsti þátt-
urinn i flokki breskra
skemmtiþátta, þar sem ást-
ralski söngvarinn og æring-
inn Rolf Harris skemmtir
ásamt fjölda þekktra lista-
manna. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
22.55 Dagskrárlok