Vísir - 05.05.1975, Blaðsíða 1

Vísir - 05.05.1975, Blaðsíða 1
65. árg. — Mánudagur 5. mal 1975 — 100. tbl. Þrjú töp hjó Sviss — einn sigur Svissnesku bridgemeistararn- ir, sem hér eru I boði Bridgefé- lags Reykjavlkur, spiluðu fjóra leiki við tslendinga um helgina og töpuðu þremur þeirra. Unnu hins vegar einn — og hann með mikl- um mun. Fyrsti leikurinn var á laugar- dag við félagsmeistara Bridgefé- lags Reykjavikur — sveit Hjalta Eliassonar — og sigraði sveit Hjalta með 13-7 eftir talsverðar sviptingar. A laugardagskvöldið spiluðu Svisslendingar við Is- landsmeistarana, sveit Þóris Sigurðssonar, og máttu þá þola stórt tap. Sveit Þóris spilaði mjög vel og sigraði með 20 stigum gegn nóll — munurinn var 59 impstig, þannig að stutt var í minusinn. A sunnudag tókst gestunum að hefna fyrir það tap — spiluðu þá landsleik við ísland, Norður- landafara'na, og sigruðu með 20, en Islenzka sveitin fékk að auki minus fimm stig. 1 þeim leikblés I seglin hjá Sviss. I gærkvöldi var svo siðari landsleikur þjóðanna og þá sigraði ísland með 11-9 eða 3ja impstiga mun. t kvöld spila Svisslendingarnir fimmta og síð- asta leik sinn hér — mæta þá úr- vali úr Bridgefélagi Reykjavíkur, það er spilara, sem ekki hafa áður mætt þeim. Leikurinn verð- ur sýndur á sýningatöflunni I Vfkingasal Loftleiða. HITI FOR I SEXTAN STIG UM HELGINA — hlýjasta helgin til þessa en nú fer iíklega að kólna Eftir kuldakastið, sem skall á okkur, voru það mikil viðbrigði að fá allt i einu hlýindi. Og breytingin var mikil, þvi hitinn fór upp i hvorki meira né minna en 16 stig á landinu I gær, og var það á Vopnafirði. Liðin helgi er mjög hlý miðað við árstíma, en slær þó ekkert met, sögðu veðurfræðingar okk- ur i morgun. En laugardagur- inn og sunnudagurinn eru tvi- mælalaust hlýjustu dagar árs- ins fram að þessu. A laugardag var t.d. 15 stiga hiti á Akureyri og einnig á Vopnafirði. 9 stiga hiti var þá i Reykjavik. Sunnudagurinn var nokkru hlýrri. Þá fór hitinn i 16 stig á Vopnafirði, og 15 stiga hiti var á nokkrum stöðum norðan- lands. 11 stiga hiti var i Reykja- vik. Þessi sumarhlýindi vara þó ekki lengi að þessu sinni. Nú er gert ráð fyrir útsynningi i einn eða tvo daga, skúraveðri vestan til, en þurru og björtu austan til. Gert er ráð fyrir, að hiti fari sums staðar niður fyrir 5 stig. —EA Vísitala bygg- ingakostnaðar: 56,8% UPP - bls. 3 Enginn í flugturninum þegar Iscargovélin lenti blindaðflugi Eyjamenn, — loksins! — bls. 3 • Tók leigubíl til að frelsa heiminn! — baksíða Hljómsveit í hrakningum í Manntapagili — baksíða AXEL í ÓNÁÐ r — Iþróttir í opnu Sigurvegarinn fœr dótturkoss Hann þarf ekkert smáræðis pláss fyrir sigurlaunin sin hann Haraldur Kornellusson. Um helgina hreppti hann 4 Is- landsin cistaratitla i sinni iþrótt, badminton. Og fjóra glæsilega verðlaunagripi. Að sjálfsögðu fékk hann fallegan dótturkoss frá Sirrý litlu Hrönn, 3ára, eftir að hafa krækt I siðasta titilinn I keppn- inni. — Ljósmynd Visir — Bjarnleifur. Fjögurra hreyfla flugvél laugardag, sögöu flugvall- flugumferöarstjóra segir, íscargo lenti blindaðf lugi armenn í morgun, en Ólaf- að yfirvinnubann þeirra án allrar aðstoðar á ur H. Jónsson, talsmaður ætti ekki að skapa hættu, en það skapaði tafir, sem tillit yrði að taka til. Flug- umferðarstjórar segja, að flugfélögin verði að taka tillit til réttmætra aðgerða þeirra og þeirra sé ábyrgð- in að haga ferðum sinum í samræmi við yfirvinnu- bannið. Gisli Guðjónsson, formaður fé- lags flugumferðarstjóra sagði, að enginn hefði verið i turninum, þegar vélin kom. Flugmanni hefði verið sagt að fara til Keflavikur og mundi lending hans kærð. Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugleiða, sagöi i morgun, að truflanir hefðu orðið á flugi Flugfélagsvéla, aðallega á kvöld- ferðum og á leiðinni Reykjavik — Akureyri og Reykjavik — Vest- mannaeyjar. Þurft hefði að flýta ferðum. „3-4 farþegar misstu af ferð fyrir vikið”, sagði Sveinn, ,,og voru að vonum óhressir yfir þvi, en ekki náðist til þeirra i sima, svo að ekkert var við þessu að gera”. „Við breytum ekki áætlun út af þessu”, sagði hann, „en það er ekki fyrr en seinni hluta dags, að séð verður, hvernig ferðum þarf að hátta”. Ólafur H. Jónsson sagði, að flugumferðarstjórar hefðu i mörg ár fengið loforð um, að úr málum þeirra yrði bætt. „Við höfum ósk- að, að við gætum fengið sumar- fri”, sagði hann. „Við verðum að vinna yfirvinnu jafnlanga friinu. Búið var að gera samning við okkur um, að við fengjum orlof að vetrarlagi, þegar minna er að gera, en ekki verið staðið við þau loforð. Yfirvinnubannið er þann- ig, að við vinnum aðeins þá yfir- vinnu, sem samningsbundin er”. Ólafur kvartaði um manneklu i stéttinni, sem skapaði hættulegt álag á flutumferðarstjóra. „Ef vel ætti að vera, þyrftu að okkar dómi að bætast I stéttina 8 i ár og fjórirá ári siðan”. Hann sagði, að nú hefðu komið átta nemar, en það tæki allt að 5 1/2 ár að fá þá i gagnið. —HH 14 óra, drukkinn, á stolnum bíl: FÓR SEX VELTUR OG GJÖREYÐI- LAGÐI BÍLINN — baksíða Yfirvinnubann flugumferðar- stjóra kemur hart niður — „Á ekki að skapa hœttu" segja þeir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.