Vísir - 05.05.1975, Blaðsíða 6

Vísir - 05.05.1975, Blaðsíða 6
6 Vfsir. Mánudagur 5. mal 1975. VISIR Útgefandi: Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: Fréttastjóri: Ritstjórnarfulltrói: Auglýsingastjóri: Auglýsingar: Afgreiösla: Ritstjórn: Reykjaprent hf. Sveinn R. Eyjólfsson Jónas Kristjánsson Jón Birgir Pétursson Haukur Helgason Skúli G. Jóhannesson Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611 Hverfisgötu 44. Simi 86611 Sföumúla 14. Simi 86611. 7 linur Askriftargjald 700 kr. á mánuði innaniands. t lausasölu 40 kr.eiptakiö. Blaöaprent hf. Bitbein Striðslokin i Suður-Vietnam og Kambódiu eru fagnaðarefni, einræðisherrum var steypt úr stóli, en óvist er samt, að það, sem við tekur, verði far- sælla alþýðu manna. Sannleikurinn er sá, að al- menningur i þessum löndum býr við þau kjör, að baráttan er og verður aðallega um að hafa til hnifs og skeiðar og láta hverjum degi nægja sinar þjáningar. Hitt skiptir almenning minna máli, hvort valdhafarnir i höfuðborgunum eru brúnir eða rauðir. Á pólitiska sviðinu eru einnig fram- undan átök. Þessi riki verða óhjákvæmilega bit- bein kommúnistisku stórveldanna, Kina og Sovétrikjanna. Hatrið milli valdhafa i Peking og Moskvu er miklu meira en milli þeirra og valdhafa i Was- hington. Bæði hafa rikin stutt þjóðfrelsishreyf- ingarnar og Norður-Vietnama , og bæði munu þau þvi þykjast eiga tilkall til þeirra. Barátta kommúnistastjórnanna i Kina og Sovétrikjunum hefur gengið svo langt, að Kin- verjar hafa lýst yfir stuðningi við Atlantshafs- bandalagið, sem þeir vona, að komi i veg fyrir framsókn Sovétveldisins til vesturs. Kinverjar hafa stundum látið i það skina, að Sovétmenn hafi verið svifaseinir við stuðning við kommúnista i Vietnam og einkum i Kambódiu, þar sem Sovét- rikin héldu um skeið diplómatisku sambandi við stjórn andkommúnistans Lon Nols. Kinverjar hafa betri stöðu en Sovétmenn i þessari skák, en ráðamenn i Moskvu munu vafalaust eiga eftir að freista þess að grafa undan Kinverjum i þessum löndum. Þjóðfrelsismenn, sem nú ráða i Saigon og Phnom Penh, þarfnast mikillar aðstoðar við uppbyggingu i hinum striðseyddu rikjum, Þar verður tækifæri fyrir Sovétmenn að ota sin- um tota. Hætt er við, að byltingin eigi eftir að eta ein- hver af börnum sinum i Kambódiu og Vietnam. Vel að merkja eru helztu ráðamenn i þjóðfrelsis- hreyfingu hinna Rauðu Kmera i Kambódiu fornir andstæðingar Sihanouks prins, sem þeir þó kalla nú foringja sinn. Foringjar Kmeranna eru mun róttækari en prinsinn hefur verið. í Vietnani virð- ast komnar upp deilur milli rikisstjórnar Norð- ur-Vietnams og foringja þjóðfrelsishreyfingar- innar i Suður-Vietnam um, hversu lengi Suður-Vietnam eigi að vera sjálfstætt riki. Rikis- stjórn Norður-Vietnams segist vilja, að Norður- og Suður-Vietnam verði sameinuð hið fyrsta, en forystumenn þjóðfrelsishreyfingarinnar leggja hins vegar áherzlu á muninn á Norður- og Suður-Vietnam, svo sem á lifskjörum og atvinnu- uppbyggingu, og segjast ekki vilja sameiningu fyrr en eftir nokkur ár. Sigri þjóðfrelsisliða og Norður-Vietnama svip- ar i mörgu til sigurs byltingarhers kommúnista i Kina. 1 báðum tilvikum hafði rikisstjórnin miklu meira lið og betur búið, þar til upplausn innan stjórnarhersins og mistök i herstjórn færðu stjórnarandstæðingum sigurinn á silfurfati. Sennilegast munu sigurvegararnir i Kambódiu og Suður-Vietnam taka stjórn kinverskra kommúnista til fyrirmyndar. Kinverskum kommúnistum hefur verið mest i mun að láta landslýð vinna sem mest og með þeim hætti hafa lifskjörin batnað og hungurvofunni, sem var landlæg i Kina, bægt frá. Ef þetta gerist i Kam- bódiu og Suður-Vietnam, er nokkuð unnið fyrir fátæka alþýðu, en lýðræði mun hún ekki fá og hún mun verða að þola langvarandi pólitiskar deilur. — HH Margir franskir ríkisborgarar á faraldsfœti í Víetnam Hjá frönsku stjórninni hafa vaknað áhyggjur af því, að hún kunni að neyð- ast til að opna landið fyrir straumi flóttafólks eftir að Saigon féll í hendur kommúnistum. I Vietnam var fjöldi fólks, sem hafði frönsk vegabréf og rikisborgararétt frá þeim tíma, er Frakkar höföu yfirráö lands- ins i sinum höndum. — En emb- ættismenn i ráðuneyti innanrik- ismála i Frakklandi segja, aö 9000 Vietnamar með frönsk vegabréf gætu fengiö aö setjast aö i Frakklandi án frekari for- mála. „En hvaö öörum viðvikur, þá erum viö ekki i aöstööu til aö veita flóttafólki móttöku. Komi eitthvað af sliku fólki, án þess aö hafa tryggt sér atvinnu, á þaö á hættu að veröa visað úr landi,” var fréttamanni Reuters sagt, þegar hann aflaöi sér upp- lýsinga hjá opinberum aöilum. Með rúmlega 700.000 atvinnu- leysingja á framfærslu heima fyrir, hvetur franska stjórnin franska rikisborgara, sem búsettireru i Suður-VIetnam, aö vera þar um kyrrt áfram, hvað sem á gangi. Embættismenn vilja verja þessa afstöðu yfirvalda með þvi, aö ástandiö i Vietnam núna sé gjörólikt þvi sem kom upp, þegar Vietnam klofnaði I tvennt eftir að Viet Minh haföi sigraö franska nýlenduherinn 1954. Um 11000 Vietnamar eru nú búsettir i Frakklandi, en ekki er vitað nákvæmlega um fjölda þeirra, sem eru af vietnömskum ættum og fengu franskan rikis- borgararétt eða settust aö i Frakklandi 1954. Samkvæmt tölum þess opinbera þá flúöu um 350.000 Vietnamar (mest- megnis kaþólikkarlfrá Norður- Vietnam til Suður-Vietnams eftir uppgjöf Frakka, en aðeins nokkur hundruð fóru þá til Frakklands. Það er einkennileg tilviljun, að þaö voru Bandarikjamenn, sem lika þá aðstoðuðu þetta fólk viö flóttann, en ekki Frakkar. Einn gömlu striðsgarpa Frakka minntist þessara tima i viötali við Adrian Darmon, fréttamann Reuters: ,,Ég var vitni að þessum flutningum. Þúsundir og aftur þúsundir manna flykktust suður á bóginn. Frakkland gerði litið sem ekk- ert þeim til aðstoðar. En banda- riska herliðið, sem þá var I Viet- nam, skaut yfir þetta fólk skjólshúsi. Það fékk inni 1 her- mannaskálum.” Nguyen Van Khan, heitir einn þessara Vietnama, sem flutti til Frakklands 1966. Hann er kaþó- likki og segir, að biskupar Vlet- nams hafi hvatt fólkið I noröri til að flytja suður á bóginn. Franskir embættismenn viðurkenna i dag, að Frakkar hafi sloppið við vandamál af flóttamannastraumnum, vegna þess aö fólkiö nam flest staðar i Suður-Vietnam, og settist þar að. Sumir Vietnamar, sem höfðu rikisborgararétt I báðum lönd- unum, Vietnam og Frakklandi, héldu þó áfram til Frakklands, eftir aö franski herinn varð á burt. — En löngu fyrir daga seinni heimsstyrjaldarinnar voru margir Asiumenn með franskan rikisborgararétt. Raunar var ekki svo gott um vik að hafa tölu á Vietnömum, sem fluttu til Frakklands. Margir Frakkar höfðu kvænzt vietnömskum stúlkum og börn lllllllillll UMSJÓN: G.P. þeirra höfðu rikisborgararétt beggja landanna. Ólíkt arabisku verkamönnun- um, sem flutzt hafa t.d. frá Alsir til Frakklands, þá hafa vietnömsku innflytjendurnir ekki myndað kjarna á borð við Arabahverfin i Marseilles. Þó örlar rétt á sliku i Paris og Bordeaux. Það þykir stafa af þvi, að flestir Vietnamar eru ekki ein- staklingshyggjumenn, og þeir eiga auðvelt með að blanda geði við fólk af ólikum kynþáttum. Flestir hafa þvl gengið i hjóna- band með Evrópubúum og aðlagað sig franska umhverfinu og lifnaðarháttum nýja lands- ins. Fæstir þeirra hafa ástæðu til þess að sjá eftir þvi að hafa yfirgefið ættjörðina. Þeim hefur vegnað vel i nýja heiminum og telja litla ástæðu til að halda i minningar eða gamla siði heim- an frá. Astæðan fyrir velgengni þeirra liggur lika að hluta i þvi, að þeir einir fluttust burt frá Vietnam sem höfðu efni á þvi, bæði farareyri til þess að kom- ast og einhvern höfuðstól til þess aö koma undir sig fótum að nýju. Þeir, sem komnir voru á miöjan aldur, hófu fljótlega rekstur af einhverju tagi, gjarn- an þá veitingahúsarekstur. En yngra fólkið settist viö nám eða rann strax út i atvinnulifiö. Að þessu sinni er fólksflóttinn miklu meiri úr Vietnam. Með vissu er vitað nú þegar um aö minnsta kosti 80.000 Vletnama, sem flúið hafa land. Margir þeirra til Bandarikjanna, en óvist um, hvert aðrir halda. Frakkar vita um nær tiu þús- und franska rikisborgara, sem bjuggu I Vietnam. Það er búizt við þvi, að margir þeirra vilji taka sig upp og flytja til Frakk- lands. En frönsk yfirvöld, sem sjá fram á erfiðleika viö aö koma þessu fólki fyrir og veita þvl mannsæmandi kjör, von- ast til þess að obbinn verði um kyrrt i Vietnam.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.