Vísir - 05.05.1975, Síða 8
8
Vfsir. Mánudagur 5. mai 1975.
LINOVA
plastmálning
fæst aöeins hjá okkur
LITABLÖINIDUN
FRAMLEIÐANDh
VESTURGÖTU 21 - SIMI 21600
Stúlka
óskast til fatabreytinga, þarf að geta grip-
ið inn i afgreiðslustörf.
Herradeild J.M.J. Laugavegi 103. Rvik.
Afgreiðslustúlka óskast
ekki vngri en tvitug. Uppl. á staðnum.
milli kl. 3 og 6.
Pylsubarinn Laugavegi 86.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 12. 4. og 7. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1975 á Austurbraut 2, Keflavlk, eign Asdisar óskarsdóttur,
fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfu Theódórs Georgs-
sonar hdl. miðvikudaginn 7. mal 1975kl. 10. f.h.
Bæjarfógetinn I Keflavlk.
t
Oska eftir
2ja-3ja herbergja ibúð strax. Einhver
fyrirframgreiðsla. Uppl. i sima 33063 eftir
kl. 1. e.h.
Trésög
i borði og helzt með landi óskast keypt.
Uppl. i sima 32500, heimasimi 32749.
PASSAMYNDIR s
feknar i litum
ftilftsútiar sfrax I
bartaa & fiölslcyldu
LJ ÖSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
' " N
Nýir og sólaðir
sumarhjólbarðar
i miklu úrvali
á hagstæðu verði
<
Hjólbarðasalan
Borgartúni 24 — Slmi 14925.
(Á horni Borgartúns og
Fulltrúar Amnesty fyrir
framan sendiráð Tékka,
Björn Guðmundsson,
Einar Karl Haraldsson og
Ingi Karl Jóhannesson.
(Ljósmynd: Bjarnleifur)
ÁSK0RUN UM AÐ SENDA TÉKK
NESKUM RÁÐAMÖNNUM SKEYTI
„Nú þegar tékkóslóvaska
þjóðin efnir til mikiila hátiða-
halda i minningu frelsunar
Tékkóslóvakiu úr greipum
nasista fyrir þrjátiu árum og
endaloka siðari heims-
styrjaldarinnar, viljum við
undirrituð skora á rikisstjórn
Tékkóslóvakiu að veita sakar-
uppgjöf öllum þeim, sem nú
sitja i varðhaldi eða fangelsi i
iandinu og hafa ekki brotið
annað af sér en að gagnrýna
rikjandi stjórnarfar,” segir I
bréfi þvi, sem islandsdeild
Amnesty International afhenti
Josef Rajchart, sendifulltrúa, i
tékkneska sendiráðinu i gær-
morgun.
Og bréfið heldur áfram: Sem
liður i hátiðahöldunum 9.
maí næstkomandi myndi slík al
menn náðun mælast vel fyrir,
og er reyndar ekki annað
sæmandi i menningarriki en að
skoðana- og tjáningarfrelsi sé
virt að fullu.
Við viljum leyfá okkur að
vekja sérstaka athygli á þvi, að
þeir starfsbræður okkar, sem
staðið hafa að brúðuleikhúsi i
Tékkóslóvakiu, voru dæmdir i
eins og hálfs til tveggja ára
fangelsisvistar i desember i
fyrra.
Islenzkir listamenn munu
fylgjast náið með þvi, hver
verða afdrif þeirra Emils
Hauptmans, Lenku Horakovu
og Frantiseks Maxera, sem og
annarra tékkóslóvaskra lista-
manna, sem svipað er ástatt
um, og fagna þvi, ef þau fá á ný
að leggja stund á list sina.”
Undir þessa áskorun rituðu 37
listamenn islenzkir þeirrar á
meðal formenn allra aðildar-
samtaka Bandalags islenzkra
listamanna.
íslandsdeild Amnesti Inter-
national hefur sent frá sér
fréttatilkynningu, þar sem
leitað er eftir stuðningi máls-
metandi manna utan sam-
takanna sjálfra i þessu máli,
svo og annarra unnenda
mannréttinda. Frá 1.-9. mai
mega allir taka þátt i þessari
herferð með þvi að senda skeyti
til Svoboda, forseta
Tékkóslóvakiu, Husaks, aðal-
ritara kommúnistaflokksins
eða sendiráðs Tékkóslóvakiu i
Reykjavik.
Amnestydeildin óskar sér-
staklega eftir þvi, að beðið sé
un náðun Ing Bohmir Kuba
sem er sérstakur skjólstæðingur
fyrsta starfshóps Amnesty á Is-
landi. Áherzla er lögð á, að öll
skeyti eða bréf séu orðuð af
fyllstu kurteisi. Ókurteisar
orðsendingar gera ekki annað
en spilla fyrir.
1 tilkynningu Amnesti Inter-
national eru talin upp nöfn 16
tékkneskra samvizkufanga —
þeirra, sem hafa ekki annað til
saka unnið en að halda fram
skoðunum sinum og
sannfæringu, án þess að beita
neins konar ofbeldi. SHH.
Hún heitir Rut Rekinalds þessi litla stúlka á myndinni hér að
ofan. Hún er aðeins 9 ára gömul, en er þegar farin aö skapa sér
nafn f skemmtanaiðnaði okkar tslendinga. Hún sésí hér I félags-
skap góðvinar sfns, bangsans Robba, sem hún á einmitt fyrstu
vinsældir sinar að þakka. Það er nýkomin hljómplata á markað-
inn þar sem Robbi bangsi er aðal söguhetjan, en með sönghlut-
verk hans fer Rut litla. A piötunni eru 16 lög, og tekur það
kiukkutfma að hlusta á plötuna alia. Auk hinnar ungu söngkonu
koma fram á hijómpiötunni Helgi Skúlason, sem fer með hlut-
verk sögumanns, Pálmi Gunnarsson, sem fer með hlutverk
þeirrar merku persónu er nefnist herra Flinkur, Sigrfður Haga-
lin, Pétur Einarsson, Asgeir Óskarsson, Þórhailur Sigurðsson og
Haraldur Sigurðsson, Janis Carol, Drffa Kristjánsdóttir, Linda
Gisladóttir, Helga Steinsdóttir og tvær söngkonur, sem báðar
bera nafniö Helga Möller. Platan um Robba er fyrsta hijómplata
fyrirtækisins Demant hf.