Vísir - 05.05.1975, Qupperneq 9
Axel vor
r r w x § r
i onoð i ur-
slitoleiknum
GRÓTTU-
MEISTARAR
Ármannsstúlkurnar sem sigr-
uðu i Gróltumótinu i handknatt-
leik kvenna í gær. Fremri röð
talið frá vinstri: Katrln Axels-
dóttir, Álfheiður Emilsdóttir,
Guðrún Sigþórsdóttir, Hjördis
Rafnsdóttir og Auður Rafns-
dóttir. Aftari röð frá vinstri:
Snorri Kjartansson formaður
handknattleiksdeildar Ár-
manns, Þórunn Hafstein, Jó-
hanna Asmundsdóttir, Helga
Egilsdóttir, Anna Gunnarsdótt-
ir, Jórunn Hafsteinsdóttir, Sig-
riður Brynjólfsdóttir og Arnar
Guðlaugsson þjálfari.
Ljósmynd Bj.Bj..
Staðan I Reykjavlkurmótinu
eftir leik Fram — Þróttar á laug-
ardaginn og fyrir leik KR-Vals á
Melavellinum I kvöld:
Fram
KR
Valur
Vlkingur
Þróttur
Ármann
Markhæstu menn:
Kristinn Jörundsson Fram 4
Jóhann Torfason KR 2
Ingi Björn Albertsson Val 2
Marteinn Geirsson Fram 2
Hinn skemmtilegi markvörður Þróttar er hér kominn niður á hnén og handsamar knöttinn I leiknum við
Fram á laugardaginn. En þrisvar I leiknum náði hann honum ekki og varð að sætta sig við að
rölta á eftir honum inn I markið. —Ljósmynd Bj.Bj....
Verður það KR
Fram eða Valur?
Þjólfarinn hélt honum fyrir utan á móti
Gummersbach og varð að svara til saka þegar
heim var komið — en eiginkona Axels kom
heim með Þýzkalandsmeistaratitil í staðinn
Axel Axelsson fékk lltið að sýna
og gera I úrslitaleiknum I vest-
ur-þýzku 1. deildarkeppninni I
handknattleik I gær, en þar mætti
lið hans, Dankersen, hinu fræga
þýzka liði VFL Gummersbach.
Axel hefur verið i ónáð hjá
þjálfara Dankersen undanfarnar
vikur, og hefur hann viljandi
haldið honum fyrir utanliði leikj-
um þess að undanförnu.
í úrslitaleiknum keyrði þó um
þverbak, þvi Axel fékk ekki að
fara inn á, fyrr en þrjár minútur
voru eftir af fyrri hálfleik, og var
svo tekin útaf snemma i siðari
hálfleiknum.
Dankersen tapaði leiknum 13:7,
en þegar Axel var tekinn útaf i
siðari hálfleik var staðan 6:5 fyrir
Gummersbach. Hann fékk svo
aftur að fara inn á, þegar leiknum
var að ljúka, en þá var sigur
Gummersbach i höfn.
Þegar Axel kom inn á I fyrri
hálfleik, átti hann frábæra llnu-
sendingu, og rétt á eftir skoraði
hann gott mark, sem áhangendur
Dankersen, sem fjölmenntu til
Dortmund, kunnu vel að meta.
Þeir urðu alveg æfir út i þjálfar-
ann fyrir að nota ekki Axel meira
i leiknum og þjörmuðu að honum
við heimkomuna til Minden.
Þar var haldinn fundur og
þjálfarinn látinn standa fyrir
máli sinu, en hann gat ekki komið
með neina viðunandi skýringu af
hverju hann hefði haldið Axel
svona lengi fyrir utan og tekið
hann útaf, þegar hann var sýni-
lega 1 miklum ham.
Búið er að ákveða, að þjálf-
arinn verði látinn fara frá félag-
inu og annar fenginn i hans stað.
Ekki er ákveðið, hvort Axel verði
áfram hjá Dankersen. Hann
hefur fengið tvö góö tilboð frá
öðrum félögum og er nú að kanna
þau.
tbúar Minden fengu plástur á
sárið, þegar kvennalið borgarinn-
ar, sem eiginkona Axels, Krist-
björg Magnúsdóttir, leikur með,
varð Þýzkalandsmeistari kvenna
i gær. Kristbjörg og stöllur henn-
ar sigruðu i úrslitaleiknum 12:8,
og er Kristbjörg áreiðanlega þar
með fyrsti Islendingurinn, sem
verður Þýzkalandsmeistari i
iþróttum.
—klp—
Kínverjarnir
r x* r
goðir i
badminton
Kinverska landsliðið I badmin-
ton, sem nú er á ferðalagi um
Evrópu, sigraði Vestur-Þýzka-
land I landskeppni I gær 6:2.
Kinverjarnir, sem eru sagðir
frábærir badmintonleikarar,
sigruðu I öllum einliðaleikjunum,
en töpuðu I tviliðaieik.
Starfsmenn hússins og dómar-
ar ráku hóp af vinstri sinnuðum
stúdentum út úr húsinu, er þeir
trufluðu keppnina með þvl að ráð-
ast aðkinverska hópnum með það'
fyrir augum að afhenda þeim
fána samtakanna. Klnverjarnir
vissu ekki hvernig þeir áttu að
taka þessu, en starfsmennirnir
björguðu þeim með þvi að reka
hópinn á dyr við mikinn fögnuð á-
horfenda.
—klp—
Fram í efsta sœti í Reykjavíkurmótinu eftir 3:1 sigur yfir
Þrótti, en síðasti leikurinn er í kvöld
Eftir sigur Fram yfir Þrótti I
Reykjavikurmótinu I knattspyrnu
á laugardaginn hafa þrjú lið
möguleika á þvlaðsigra I mótinu,
sem á að ljúka á Melavellinum I
kvöld með leik KR og Vals.
Fram er með 8 stig og hefur
lokiö slnum leikjum, KR er með 7
stig, og Valur 6. Sigri KR I leikn-
um I kvöld, eru KR-ingar Reykj-
vfkurmeistarar. Verði jafntefli,
þurfa KR og Fram að leika auka-
STAÐAN
leik, en sigri Valur I leiknum, eru
það Valsmenn og Framarar, sem
berjast um Reykjavlkurmeist-
aratitilinn.
1 leiknum á laugardaginn voru
Framararnir betri aðilinn og sig-
ur þeirra sanngjarn. Það tók þá
samt þó nokkurn tima að ná yfir-
höndinni. Þar var körfubolta-
maðurinn Kristinn Jörundsson,
sem kom þeim á bragðið með
góðu marki, þegar um 30 mlnútur
voru búnar af leiknum, og náðu
Þróttararnir ekki að jafna fyrir
hálfleik.
I siðari hálfleik bætti Steinn
Jónsson öðru marki við fyrir
Fram, og rétt á eftir var Kristinn
Jörundsson enn á ferðinni og
skoraði 3ja mark Fram I leiknum.
Þróttararnir minnkuöu biliö I
3:1 rétt fyrir lokin meö marki
Leifs Helgasonar, en vannst ekki
tlmi til að minnka bilið meir, og
urðu að sætta sig við þetta 3:1 tap.
Leikur KR og Vals i kvöld hefst
kl. 19.00, og er eins og fyrr segir
mikilvægur leikur fyrir þau þrjú
liö, sem enn hafa möguleika á að
hreppa Reykjavikurmeistara-
titilinn.
—klp—