Vísir - 05.05.1975, Side 13
Vísir. Mánudagur 5. mal 1975.
13
NORÐMENN
SETTU LÍKA A
SVIÐ STÓRSLYS
Almannavarnaœfingar í Osló
og Reykjavík með stuttu millibili
HVERS VEGNA
HÆGRA MEGIN?
Hvers vegna ökum við hægra
megin á veginum? Vegna þess
að sú regla var upp tekin fyrir
sjö árum, segir kannski ein-
hver. En málið er ekki svona
einfalt.
•Hvers vegna var sú regla upp
tekin fyrir sjö árum? Jú, það
var til þess að samræma um-
ferðina þvi, sem algengast er i
heiminum. En hvers vegna varð
þá hægri akstur ofan á i heimin-
um?
Það er frá timum hestvagn-
anna. Sú regla komst á með
kúska tjaldvagnanna, sem
notaðir voru á timum landnem-
anna i Ameriku, að þeir riðu
fremsta hrossinu vinstra megin.
Ef þeir gerðu það ekki, gengu
þeir gjarnan vinstra megin með
þvi. Ef vagnarnir voru þá hafðir
vinstra megin á veginum, lenti
kúskurinn þar alveg úti i blá-
kanti, sem oft var ansi óþægi-
legt. Ef hann hins vegar stýrði
tæki sinu hægra megin á vegin-
um, hafði hann sæmilega þægi-
lega gönguleið sjálfur.
Þannig komst á sú regla, að
vagnarnir voru hægra megin,
og það er sú regla, sem meiri
partur hins bilvædda heims
gegnir enn i dag. — SH
Það gekk ekki svo litið á I
Reykjavik á ellefta timanum
fyr:ri laugardag. Þá var
haldin feiknaleg almanna-
varnaæfing með mikium
sirenubiæstri og öðru tilheyr-
andi.
Stor 0veíse:
mmM's
ty
SliŒT i
i-ii\\i\'
Aðeins 15 1/2 tima áður hafði
svipaður hamagangur átt sér
stað f Osló. Svo einkennilega
vildi nefnilega til.að kvöldið áð-
ur var haldin mjög svipuð æfing
i ósló, nema hvað þar voru að-
eins 50 látnir siasast i stað 108
hérna.
Það var klukkan 19.05 föstu-
dagskvöldið fyrir viku að sim-
inn hringdi á slökkvistöðinni i
Bryhn i Osló og tilkynnt var um
að lestarvagn hefði oltið djúpt
inn i lestargöngum við Munkelia
stöðina i Osló. 50 höfðu slasast.
Allt fáanlegt hjálparlið var þeg-
ar kvatt á staðinn og almanna-
varnakerfið sett i gang.
Lestin lá 200 metra inni i
göngunum og það tók fyrstu
slökkviliðsmennina 15 minútur
að komast á staðinn (aðeins 4
minútur i Reykjavik). Fyrstu
lögreglubilarnir komu að göng-
unum 15 minútum eftir tilkynn-
inguna (i Reykjavik 5 minútum
eftir útkall).
Tveim minútum siðar komu
svo fyrstu sjúkrabilarnir og
læknarnir. Hjálparsveitir komu
á staðinn klukkan 19.40 eða 35
minútum eftir útkall (hér komu
þær 28 minútum eftir útkall) og
á sama tima fer viðbótarstarfs-
liðið að streyma inn á sjúkra-
húsin.
Samanburðurinn er
björgunarmönnunum okkar þvi
i vil, þótt þeir hafi ekki vitað af
þvi fyrr en eftir á að þeir væru
að keppa við hjálparsveitir I
öðru landi, sem einmitt höfðu
tekið þátt i svipuðum
björgunaraðgerðum kvöldið áð-
ur.
— JB
SMÁTT
AMINNING
Maöurinn var reiður. Sýningin,
sem hafði kostað hátt i jarðar-
verö, var ieiðinleg. Hann greip i
handlegginn á fallegri sætavisu
og hreytti út úr sér: „Hvar i
fjandanum er kamarinn i þessu
húsi?”
„Þú ferð fram i anddyrið,”
svaraði stúlkan ljúflega, „og
snýrð til hægri. Þar sérðu spjald
á dyrunum, sem á stendur
„Gentlemen.” Láttu sem þú
sjáir það ekki og farðu bara
inn.”
Weekend Chuckle
HANN ÞURFTI ÞESS
EKKI
George Washington sagði aldrei
ósatt — en hann gerði heldur
aldrei skattskýrslu.
J.D. Harkins.
SLÆMT MEÐ GÓÐU
LÍFSKJÖRIN
Við búum við beztu lifskjör i
heimi. Slæmt, að við skulum
ekki hafa efni á þeim.
Lucille S. Harper
FULLKOMINN
SKILNINGUR
Eiginmaður er maður, sem
væntir þess að konan hans sé
fullkomin — og skilji hvers
vegna hann er það ekki.
Oscar Jay
ÞYNGDARLÖGMÁL-
IÐ
Það er slæmt að vita til þess, en
þyngdarlögmálið gerir það að
verkum, að það er léttara að
opna munninn en loka honum.
International Flying Farmer
I BREIÐHOLTIÐ
Hamarshöggin eiga lengi enn eftir að heyrast í
Breiðholti III. En þjónustustofnanir eru þegar
farnar að rísa í þessu nýja hverfi.
Þann 16. maí verður hverfið enn einni þjónustu-
stofnun ríkari. Þá opnar Iðnaðarbankinn nýtt
útibú að Völvufelli 21.
Eftir það þurfa því íbúar í Breiðholti III ekki
lengur að sækja bankaviðskipti sín í bæinn.
Þeir geta sparað sér tíma og fyrirhöfn með því
að beina viðskiptum sínum til Iðnaðarbankans
að Völvufelli 21.
LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT.
Iðnaðarbankínn
Völvufelli 21 Breiðholti III