Vísir - 05.05.1975, Qupperneq 20
vísm
Mánudagur 5. mai 1975.
Árás á
Laugavegi
RáOizt var á 17 ára pilt á horni
Laugavegar og Snorrabrautar
um þrjúleytið i fyrrinótt. Arásar-
maðurinn var einu ári eldri og er
ekki vitað til, að hann hafi verið
fórnarlambinu kunnugur. Lög-
reglan kom þarna að og færði
árásarmanninn f geymslu. Ekki
hiutust alvarieg meiðsl af rysk-
ingunum.
—JB
Stal stuðara
af bíl
Sáu ibúarnir við Ásbrautina I
Kópavogi mann vera að gera við
rauða fólksvagninn sinn fyrir
framan hús númer 11 á laugar-
dagskvöldið eða nóttina?
Ef svo er, eru þeir beðnir um að
láta lögregluna vita, þvi umget-
inn maður átti ekkert I bilnum.
Þegar hinn rétti eigandi aftur á
móti kom út á sunnudagsmorgun-
inn sá hann, að stuðaranum hafði
verið stolið af farartækinu. bað
tekur hokkurn tima að kippa
stuðaranum af fólksvagni og bið-
ur þvi lögreglan i Kópavogi þá, er
kynnu að hafa orðið varir við það,
að hafa samband við sig.
—JB
íbúarnir
tóku hrossin
í pant
tbúar i fjölbýlishúsi við Völvu-
fell I Breiðholti tóku 6 hross i
pan't, eftir að þau höfðu valdið þó
nokkrum spjöilum i garði við
húsið i gærkvöldi.
tbúarnir hringdu i lögregluna,
er þeir urðu varir við hrossin, og
fór hún ásamt vörzlumanni bæj-
arlandsins á staðinn. Hross þessi
tilheyrðu flest Vatnsenda, og
neituðu Ibúarnir að afhenda þau,
nema trygging yrði sett fyrir bót-
um á skemmdunum.
Hrossunum var þvi komið fyrir
I girðingu við Suðurfell, sem er
á vegum Breiðholts h.f., en er
siöast fréttist I morgun, voru
hrossin á bak og burt. Hvort
trygging hafði verið sett fyrir
skemmdunum eða einhver
óprúttinn hleypt þeim út var ekki
vitað.
—JB
Tók leigubíl
til að frelsa
heiminn
— á kostnað Félags-
málastofnunarinnar
Leigubilstjóri einn i höfuð-
borginni ók farþega sinum
niður á lögreglustöð snemma i
morgun. Var hann ekki alveg
ánægður með, að þær tvær
ökuferðir, sem hann hafði
farið með farþega sinn I, yrðu
skrifaðar á reikning Félags-
málastofnunarinnar.
Við yfirheyrslur niðri á lög-
reglustöð hélt farþeginn, sem
var kona, þvi fram, að hún
hefði ætlað að taka leigubil út
fyrir bæinn til að sinna köllun
sinni, sem væri að frelsa
heiminn, enda bæri hún nú
barn sitt eingetið undir belti.
Konan mun vera sjúklingur,
og lét lögreglan sér þvi nægja
þessar upplýsingar og ók
henni til sins heima.
—JB
Festu bíl
sinn í „Manntapagili
##
— og eyðilögðu hljóðfœri
Það varð ekki ferð til
fjár, er hljómsveit Ás-
geirs Sigurðssonar frá
ísafirði fór til Patreks-
fjarðar á laugardag til
að leika þar fyrir dansi
i félagsheimilinu.
Hljómsveitin fór i VW-
sendiferðabil og á leið-
inni til Patró fór billinn
hálfur á kaf og við það
skemmdust hljóðfæri
og bíllinn varð óöku-
fær.
ökuferðin hafði gengið vel
yfir Breiðadalsheiðina og kring-
um Dýrafjörð, en þegar félag-
arnir koma á Rafnseyrarheiði,
komu þeir i mikinn snjó. Það
var þó búið að ryðja göng i
gegnum Skipadal og gat hljóm-
sveitin þvi haldið áfram ferð
sinni.
Skyggni var mjög slæmt og
varð ökumaður bifreiðarinnar
þess þvi ekki var, að i svonefndu
„Manntapagili” hafði snjó-
skriða fallið á veginn og göngin
fyllzt af vatni á kafla. Skyndi-
lega var bifreiðin föst og náði
vatnið upp á miðjar bilhurðir.
Bifreiðin drap á sér og billinn
tók að fyllast af vatni. Hljóðfær-
in fóru á kaf og rafmagnsorgel
hljómsveitarinnar og söngkerfi
eyðilagðist.
Þeir félagarnir i hljómsveit-
inni voru ekki á þeim buxunum
að láta sig vanta á dansleik Pat-
reksfirðinga. Fengu þeir aðstoð
vegavinnumanna, sem þarna
voru skammt frá. Voru þeir
dregnir til Rafnseyrar, en það-
an fóru þeir með bát yfir til
Bildudals og þaðan með bil til
Patreksfjarðar.
Það var ekki fyrr en um mið-
nætti, sem hljómsveitin komst á
ákvörðunarstað og var þá þegar
farið i að fá lánuð handa þeim
hljóöfæri til að spila á, en á
meöan Ásgeirs og félaga hans
var beðið, hafði verið notazt við
plötuspilara.
Má öruggt telja, að fáar
hljómsveitir hafi lagt á sig eins
mikið erfiði fyrir einn dansleik
og hljómsveit Ásgeirs á laugar-
daginn.... —ÞJM
r
14 óra, drukkinn, ó stolnum bíl:
FOR 6 VELTUR
OG GJÖREYÐILAGÐI BÍLINN
FINNST
EKKI
Leitað var án árangurs i allan
gærdag aö Sigurði Þ. Agústssyni
fiugvirkja, 53 ára að aidri, er ekk-
ert hefur spurzt til siðan á föstu-
dag.
Sigurður fór frá heimili sinu um
hádegi á föstudag á bil sinuni og
er ekkert hafði spurzt til hans á
hádegi á laugardag var lýst eftir
bilnum og Sigurði.
Billinn fannst svo á iaugardag
mannlaus úti við Reykjanesvita. 1
morgun var haldið áfram leit á
þessum slóðum. —JB
Kaffirjómi
ó markaðinn
Verður okkur boðið upp á
sérstakan kaffirjóma á næst-
unni? Eftir öllu að dæma er I
bfgerð að setja hann á
markaðinn. Þessi ferna barst
okkur hér á ritstjórninni og
var ekki annað að heyra en
mönnum fyndist kaffið bragð-
ast ágætlega eftir að búið var
að helia rjómanum út i það.
Annars virðist kaffirjóminn
liafa margt annað til sins
ágætis, svo sem geymsluþol,
scm upplýsingar eru gefmar
um á umbúðunum. Mjólkur-
samsaian var ekki tilbúin til
þess að tjá sig neitt um málið i
morgun.
—EA
Billinn gjörónýtur við Kópavogsiækinn við dagrenningu á sunnudaginn.
Bill frá Hafnarfjarðarlögregl-
unni stóð Hafnarfjarðarmegin
við Kópavogsbrúna eldsnemma
á sunnudagsmorguninn og
fylgdist með þeim fáu bílum,
sem voru á ferðinni á þessum
tima sólarhringsins.
Þá bar að nýlegan ameriskan
bil á leið i Hafnarfjörð og þótti
lögreglumönnunum sem bil-
stjórinn héldi ekki alveg örugg-
lega um stjórnvölinn. Ók lög-
reglubillinn á eftir þeim ame-
riska til að kanna, hvort þetta
aksturslag héldi áfram. Bilarnir
beygðu inn á Keflavikurveginn
og á móts við Glerborg. Þótti
lögreglumönnunum þá timi til
kominn að stöðva ökumanninn.
ökumanninum og farþega
hans i framsætinu virtist ekkert
um lögregluna gefið, og þegar
lögreglubillinn ók i veg fyrir
ameriska bilinn setti ökumaður
hans benzingjöfina i botn, sneri
bilnum við á punktinum og
stefndi i átt til Reykjavikur á
ný.
Nú þótti lögreglumönnunum
nóg komið, og héldu þeir á eftir
þeim ameriska með blikkandi
ljós og sirenur. Hraðinn jókst og
á rúmlega 100 kilómetra hraða
nálguðust bilarnir brúna fyir
Kópavogslækinn.
En nú fipaðist bilstjóra ame-
riska bilsins. Billinn hentist
utan i vinstri brúarvænginn
Kópavogsmegin og lög-
reglumennirnir i bilnum á eftir
sáu er billinn tókst á loft, lentiá
jörðinni á ný og valt einar 5-6
veltur, sem sýnir glöggt, hversu
hraðinn hefur verið orðinn mik-
ill undir lokin.
ökumaður bilsins hentist út
úr honum i þriðju eða fjórðu
veltu, en stúlka, sem var með
honum i bilnum, hékk i flakinu
allar hringferðirnar. Billinn
gjöreyðilagðist, en fólkið slapp
við skrámur.
En sagan var ekki búin þar
með. ökumaður og farþegi voru
færðir til yfirheyrslu og fékk þá
lögreglan að heyra hina
furðulegustu sögu. ökumaður
bilsins reyndist vera töluvert
drukkinn, en aðeins 14 ára að
aldri. Stúlkan var 15 árá og
reyndist hafa strokið af upp-
tökuheimilinu i Kópavogi um
kvöldið. Hafði hún þvi verið ófús
að leita þangað aftur um nótt-
ina.
Fundum unglinganna hafði
borið saman i Tónabæ á laugar-
dagskvöldið. Þau voru ekki til-
búin að fara að sofa að dansleik
loknum og ákváðu þvi að verða
sér úti um farkost. Þau gengu
inn á Suðurlandsbraut, þar sem
Kr. Kristjánsson er til húsa, og
komust inn i fyrirtækið i
gegnum opinn smáglugga. Pilt-
urinn hafði þá farið inn á skrif-
stofu verkstjóra, þar sem töflu
með lyklum þeirra bila er i
húsinu voru var að finna og þar
valdi hann sér bezta og
fallegasta bilinn. Nú var sett i
gang, stúlkan opnaði hurðina,
pilturinn ók út og hún lokaði
aftur. Svo var ekið af stað og
haldið út alla nóttina, þar til
óhapp það skeði, er áður grein-
ir.
Við yfirheyrsluna spurði
rannsóknarlögreglan piltinn,
sem þrátt fyrir lágan aldur á lit-
rikan afbrotaferil að baki, hvort
þetta mikla tjón, sem hann hefði
valdið, fengi hann nú ekki til að
hætta þessari iðju.
„Ekki get ég nú lofað þvi”,
sagði stráksi.
—JB
Brotizt inn
í bíó og
tízkuverzlun
Brotizt var inn i tizkuverziun-
ina Parið á Njálsgötu I gærkvöldi
og þar rótað i pappakössum full-
um af fatnaði. Ekki var séð, að
miklu hefði verið stolið.
Þá var einnig aðfaranótt
sunnudagsins brotizt inn i Hafn-
arbió i leit að peningahirzlum.
Þær fundust, en ekki tókst að
opna þær. Þjófarnir fylltu þvi
vasana af sælgæti og héldu á
brott. Bæði eru þessi mál I rann-
sókn.
—JB