Vísir - 14.11.1975, Síða 6
6
Nýir
snjóhjólbarðar
Hollenskir
heilsólaðir
snjóhjólbarðar
HJDLBflRDflSflLflH
BORGARTÚNI 24 - SÍMI 14925 - PÓSTHÓLF 5169
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 62., 64. og 66. tbl. Lögbirtingablaös 1974 á
Grettisgötu 42, þingl. eign Gertie Jóhannssonar, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni sjálfri,
mánudag 17. nóvember 1975 kl. 10.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 1., 3. og 5. tbl. Lögbirtingablaðs 1975 á
liluta i Flókagötu 62, þingl, eign Ólafs Björnssonar, fer
fram eftir kriifu Jóns N. Sigurðssonar hrl. á eigninni
sjálfri, mánudag 17. nóvember 1975 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Nauðungaruppboð
annað og siöasta á Hjaltabakka 22, talinni eign húsfélags-
ins fer fram á eigninni sjálfri, mánudag 17. nóvember 1975
kl. 15.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Nauðungaruppboð
annaö og siðasta á Fögrubrekku v/Blesugróf, þingl. eign
Guðmundar Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri,
mánudag 17. nóvember 1975 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
KEFLVÍKINGAR
NJARÐVÍKINGAR
FRÁ OG MEÐ FÖSTUDEGINUM
14. Þ.M.VERÐA KEFLAVÍKURUMBOÐ
OG NJARÐVÍKURUMBOÐ MEÐ
SAMEIGINLEGA SKRIFSTOFU AÐ
HAFNARGÖTU 58, KEFLAVÍK,
SÍMI 3510 OG 3511.
VIÐ BJÓÐUM GAMLA OG NÝJA
VIÐSKIPTAMENN VELKOMNA
Á HINA NÝJU SKRIFSTOFU.
BRUNABÓTAFÉLAG
ÍSLANDS
REUTER
AP/NTB+
Föstudagur 14. nóvember 1975 VISIR
UTLÖNDI IVIORGUN UTLÖND I MORGUN
— Ég sýndi þeim sko hver stjórnar hérna, ha, Henry! Ford, Bandaríkjaforseti,
rak Colby úr embætti forstjóra CIA, og James Schlesinger úr embætti varnar-
málaráðherra. Lurie hefur sína skoðun á hvar Henry Kissinger kemur inn í málið.
Frakkar brynja sig
með kjarnorkubombum
Valery Giscard P’Estaing
Frakklandsforseti sagði i fyrra-
dag, að frakkar væru þriöja
stærsta kjarnorkuveldi heims, að
visu langt á eftir bandarikja-
mönnum og sovétmönnum, en vel
á undan bretum.
í sjónvarps- og blaðaviðtölum
bar hann til baka tillögur um að
frakkar ættu að taka aftur þátt i
almennu varnarsamstarfi Nato,
en taka heldur upp að nýju hina
gömlu stefnu gaullista um sjálf-
stæðar varnir Frakklands.
t sjónvarpsviðtölum og i viðtöl-
um við blaðið Le Figaro visaði
Giscard D’Estaing á bug öllum
fullyrðingum vonsvikinna kjós-
enda um að hann hefði enga utan-
rikisstefnu og vanrækti varnir
landsins. Hann útskýrði stefnu
sina nákvæmlega:
,,Við erum þriðja mesta kjarn-
orkuveldið. Að sjálfsögöu erum
við langt á eftir tveim þeim
„Rússar stærri en við” — P’Esta-
ing og Brezhnev.
fyrstu. En það er staðreynd, að
við erum i þriðja sæti,” sagði
hann.
„Við erum greinilega á undan
bretum. Með þvi á ég við, að kaf-
bátafloti okkar lætur alveg að
stjórn og við höfum byggt eld-
flaugarnar, sem þeir innihalda
sjálfir. Bretar verða hins vegar
að notast við Polariseldflaugar
frá Bandarikjamönnum,” sagði
hann i sjónvarpsviðtalinu.
Hann nefndi engar tölur þessu
„Minni en við” — D’Estaing og
Harold Wilson.
til stuðnings — hin kjarnorku-
veldin tvö eru bretar og Kina —
en hann kvaðst andvigur þvi aö
nokkur samdráttur yrði gerður i
kjarnavopnaframleiðslu frakka.
„Ef hafður er i huga hinn mikli
munur, sem er á vopnabirgðum
okkar og risaveldanna tvéggja,
þá er það augljóst, að vigbúhaði
okkar má ekki setja nein tak-
mörk.”
Konur handteknar
vegna ránsins á
Peter Lorenz
Tvær konur voru handtekn-
ar i Vestur-Berlin i gær,
grunaðar um að eiga þátt i
ráninu á Peter Lorenz fvrr á
þessu ári.
Konurnar sem eru 19 ára og
36 ára, báðar þýskar, eru
grunaðar um að hafa hjálpað
„2. júni hreyfingunni", sem
lýsti ráni Lorenz á hendur sér.
önnur handtekna konan á að
hafa leigt ibúð sem tveir
félagar úr hreyfingunni voru
handteknir i i september. Hin
konan tók á leigu bil sem þeir
höfðu notað til að flytja i ibúð-
ina.
Nú er búið að handtaka 18 af
þeim 23 sem eftirlýstir voru i
sambandi við ránið á Lorenz.
Eins og kunnugt er slapp hann
úr haldi þegar fimm anarkist-
um var sleppt úr fangelsum i
Þýskalandi.
„Stærri en við” — D 'Estaing og
Ford.
Aðalstyrkur frakka væri nú
lágfleyg skeyti er staðsett væru i
Frakklandi, Mirage sprengjuþot-
ur og kafbátaflotinn.
í viðtalinu við Le Figaro, kvað
hann engar breytingar fyrirsjá-
anlegar á stefnu frakka, um aö
hafa að engu viðræðurnar i Genf
um afvopnun og jafnvægi milli
herstyrkja austurs og vesturs i
Evrópu.
Einnig visaði hann á bug öllum
fullyrðingum um að frakkar
hygðust taka upp samstarf aö
nýju við Nato.
Hann lýsti yfir miklu vantrausti
á Helsinkisáttmálann, og kvað
hann varla myndu leiða til frjáls-
ari samskipta austurs og vesturs.
„Svo maður tali nú i fullri
hreinskilni, þá er markmiðið með
slökun spennu ekki að breyta
þjóðskipulagi rikja.”
„Við gætum vopnað, að stjórn-
kerfi þessara rikja muni breytast
með minnkaðri spennu, en sú leið
á ekki að vera til að knýja fram
breytingar, sem sósialistarikin
telja óæskilegar.”
Forsetinn fór varlega i sakirnar
með að ásaka rússa um seina-
gang i sambandi við ákvæðin um
aukin mannréttindi i Sovétrikjun-
um, jafnvel þótt að ýmsir erfið-
leikar hafi myndast i Rússlands-
för hans nýlega, vegna þessa við-
kvæma deiluefnis.
Hann bar einnig til baka „kald-
hæðnislegar athugasemdir” um
stöðnunina innan EBE.
Hann kvað það mjög æskilegt
að leiötogar EBE-rikjanna kæmu
sér saman um evrópskt þjóðþing,
sem kosið væri beinum kosning-
um. Hann sagði að lokum:
„Evrópa er á batavegi en við
veröum þeirra breytinga ekki
varir, þvi þær eru ekki það stór-
vægilegar.”