Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 26

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1938, Síða 26
418 Meðan sveitin var að nokkru leyti í flagi, eða ýmsar þær jarð- ir, sem fólk hafði ekki yfirgefið alveg, þá var mikið um það tal- að, að leggja þessa útskækla und ir afrjett. Og þá var úti og búið með sveitarfjelagið. En þegar bændurnir eignuðust sjálfir þess- ar jarðir, þá fór kjarkur þeirra og mótstöðuafl vaxandi. Þannig bjargaðist bygðin. Mörgum fanst þessi fyrstu odd vitaár mín hjer, að jeg væri harð ur í horn að taka. En ýmsir komust að annari niðurstöðu síð- ar. Þar á meðal vinur minn, Björn Jónsson, ritstjóri. Jeg hefi viljað stuðla að því, eftir því sem jeg hefi getað, að menn lærðu að hjálpa sjer sjálfir. Og við höf um reynt það hjer í Landssveit. Við kunnum því ekki við að not- færa okkur heimild kreppulána- sjóðslaga, til þess að komast und an því að greiða skuldir okkar. Enginn okkar fór í kreppulána- sjóð, en við biðum sumir tap af öðrum. Það gerði minna til. Lög þessi eru að mínu viti óholl, því að þau gera ráð fyrir óskilvísi manna. En hvað fengum við svo fyrir bað að fara ekki í kreppu- lánasjóðinn? Ekki annað en það, að sagt er, að hjer í sveit sje nurlarabúskapur. Jeg fyrir mitt levti sje ekkert eftir því, þó að við Land-menn hefðum ekki ann- að en tan af lögum þessum, því það er ekki mikið að tapa þessu fje, sem við mistum þar, hjá því að tapa ærlegum hugsunarhætti úr hieraðinu. Mjer er líka óhætt að segia það, að betta sveitarfjelag hefir goldið öllum sitt og altaf staðið í skilum. En jeg verð að iáta, að stundum hefir greiðsla ekki far- ið fram, fyr en að undangengn- um úrskurði eða dómi. ★ veitin náði sjer furðanlega ’ fljótt eftir harðindin 1882. Og þegar fram í sótti, jók sand- græðslan vonir manna um, að takast mætti að stemma stigu fyr ir áframhaldandi eyðileggnigu. Við stofnuðum hjer búnaðar- fjelag vorið 1888, og voru lög þess samþykt í nóvember sama ár. Það var smátækt framan af. Og helst tel jeg, að aldrei hafi LESBÓK MQRGUNBLAÐSTNS komið neinn verulegur kraftur í jarðabæturnar hjer, fyr en við fengum hingað „tractor" og til- heyrandi jarðyrkjuverkfæri árið 1930. Rjómabú var hjer um skeið, alt fram yfir stríðsárin, og seldi hjeðan smjör fyrir sam anlagt 90—100 þúsund krónur. Og hjer er fóðurbirgðafjelag. Það er okkar besta vátrygging, segi jeg. Ef hjer hefðu verið nóg hey veturinn 1881—82, þá hefði aldrei farið, eins og fór. Við stefnum að því að hafa fóðurbirgðir á hverjum bæ, sagði Eyjólfur, um leið og hann sýndi mjer fóðurbirgðaskýrslu sveitar- innar síðustu 15 árin, þar sem talið er saman fyrir hvert ár, hyer er heyfengur og hverjar fyrningar á hverjum bæ, og hey- forðinn samanlagður að haustinu. Það hefir komið fyrir sum árin, að fyrningarnar hafa náð nál. 8000 hestum og verið þriðjungur af heyforða haustsins. — Þið haldið trygð við gamla búskaparlagið, þið Land-menn, með sauðaeign í fjárræktinni? — Já. Okkur gefst það vel hér. Við höfum sauðina þetta 3—4 vetra, og 5 vetra þá elstu. En það er með fjárræktina eins og ýmislegt annað, að farin hafa verið gönuskeið. Fjeð er ekki eins úthaldsgott við beitina, eins og það áður var, áður en þessar svokölluðu kynbætur komu til sögunnar. Þegar við tölum um óbreytt búskaparlag hjer, þá er það nátt úrlega ekki nema hálfur sann- leikur, því margt og mikið hefir breyst þessi 50—60 ár, síðan jeg byrjaði að búa, frá þeim tíma, er aðal verslunin var á Eyrarbakka. og innlegg var ekki annað að heita mátti en ull og fiskur, og hver bóndi varð að afla sér sjó- fangs, til þess að leggja inn í verslunina, til þess að fá sínar brýnustu nauðsvnjar. Það voru reyndar þeir kotbændur, sem ekk ert höfðu annað en ullarhárið. En þeirra líf var vesaldómur. ★ ;ð gengum út á hlaðið við Eyjólfur, og skoðuðum hús og önnur mannvirki. Þar er hin snildarlegasta umgengni í smáu og stóru, hvergi rusl nje reit- ingur, alt á sínum stað. Við skoð uðum trjen í garðinum, sem nú eru rúml. 30 ára, há og beinvax- in, en nokkuð margstofna flest. Sum þeirra eru tekin upp í Hraunteig við Rangá, önnur eru ættuð frá Hallormsstað. Kofoed Hansen hjálpaði mjer um þetta, segir Eyjólfur. Jeg ætlaði líka að stofna hjer „heim- ilisskóg" vestur á móunum, 2—3 dagsláttur, og byrjaði þar gróð- ursetningu, að hans ráði. Mjer virðist trje eiga erfitt uppdrátt- ar í móajörð. Þetta fór út um þúfur, og þó kanske mest fyrir það, að jeg hafði ekki efni á því þá að kosta upp á girðingu, en vildi ekki taka til þess lán, eins og nú tíðkast. Mjer var litið upp í brekkurn- ar í Skarðsfjallinu austan við bæinn og spurði Eyjólf, hvort rof þau og flög, sem þar eru, væru af sandganginum yfir fjall ið, en uppblástur er þarna aðal- lega, sem kunnugt er, í norð- austan átt, og vestanvert við Skarðsfjall er því skjól fyrir ,,sandáttinni“, sem hlífir, nema í aftökum, eins og 1882. En Eyjólfur segir mjer, að þessi ,,sár“ í vestanverðu Skarðs fjalli sjeu flest menjar jarð- skjálftanna 1896. Þá gekk mikið á, sagði gamli maðurinn. Við vorum að taka saman hey niðri á flötunum, skamt frá brekkunum. Góðkunn- ingi minn einn, sem var að fara til Ameríku, hafði komið til að kveðja mig, og ætlaði jeg að fylgja honum langa leið, áður en við skildum. En þegar við erum komnir spölkorn frá bænum, segi jeg við hann: Nú get jeg ekki farið lengra með þjer. Ekkert veit jeg, hvernig á því stóð. En svona varð það að vera. Jeg sneri við og fór í hevið með hinu fólkinu. Og það varð því til bjargar. Því að, vegna þess, að jeg kom þar að, þá vorum við komin nægilega langt frá brekk- unni, er jarðskjálftinn dundi yf- ir. Siáðu brekkurnar. Þær eru ekki sjerlega brattar. En hvern- ig fóru bær? FialHð skókst svo mikið til í jarðskjálftunnm, að jarðvegstorfurnar í hlíðunum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.