Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Qupperneq 8
400 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS annað hefði komið fyrir um þess- ar mundir. Þeir nafnarnir hefðu hittst á prestastefnu um vorið og jafnað með sjer þessi mál. Báðir orðnir reiðir. En síra Jón fór einmitt ekki til prestastefnunnar. Árferði var þá afarilt og fleira, sem tafði hann. Ritaði hann því biskupi afsökun- arbrjef, dags. 1. júlí, en það barst ekki biskupi fyr en prestastefnu var lokið. Hefir biskup Veiðst því mjög, að þessi merkisprófastu* skyldi hvorki koma nje senda af- sökun, og enginn prestur úr pró- fastsdæmi hans. Fóru þjettings- brjef milli þeirra um þetta. Síra Jón skrifar t. d. 3. sept.: „Af ein- feldni minni vonaði jeg svo góðs til yðar velæruverðugheita, að vorkunnsamlega munduð álíta vort tilstand um þessar sveitir á næst- liðnu vori og vetri.......Ei var jeg svo fávís, að jeg meinti þess- um mínum forföllum væri hrósað“, en hann telur að sæmra hefði ver- ið að dæma sig til sektar hrein- lega, en að álasa sjer þar fjarver- andi o. s. frv. Er brjefið alt mjög þvkkjuþungt í garð biskups, og er auðheyrt á því, að síra Jón hef- ir frjett, að biskup hafi verið harðorður í garð hans. En svo seg- ir hann í eftirskrift; „Hvað yðar Velæruverðugh. minnist in post- scripto brjefs yðar, dat. 9. apríl, kom mjer öldungis óvörum og óvitandi, og ei vissa eg nokkra orsök þar til, fyrr en sra Jón Jóns- son sagði mjer nokkurt tilhæfi, að hálfskrifað blað hefði frá sjer mist, meðan frá skrifi sínu til mín gekk1); hvað hann kvaðst og gvo í sumar hafa tilkynt yðar Hd. (herradómi), hvar um í þetta sinu ei vil fjölvrða svo með pennan- um, sem munnlega kynni nær sam- funda auðið yrði (lofi guð). En þess vil eg óska, að yðar velæruverðugheit Ijeti hjá líða, að senda mjer sumarpartinn af com- mentationibus yðar, svo eg því J) Þetta bendir á, að blaðið hafi ekki borist til biskups með post- illuhandritinu, heldur öðruvísi, enda hefir handritið af postillunni sennilega verið sent miklu fyr en þetta. síður þyrfti að mæta forþenkingu um mælgi eður gáleysi, er eg vildi að engum til óvirðingar kæmi, og einna síst yðar velæruverðugheit- um í þessu; því þar er enginn kendur sem hann kemur ekki; það góða verk forbetrast ei af minni hálfu“. Hjer er orðið æðiþungt í pró- fasti af þessu öllu saman, og er fróðlegt að athuga hve virðuleg- an búning hann velur reiði sinni. Höggið í niðurlagi brjefsins hefir ekki komið síður við þó að það sje slegið með gullhamri. Ádrepa frá biskupi. Það var ekki líkt Jóni Vídalín að þegja við svona ádrepu. Hana svarar með brjefi dags. 30. sept., og lýsir það brjef honum ekki síð- ur, en hitt lýsir sínum höfundi. Hann segir þar m. a. um afsökun síra Jóns, að hann kom ekki til prestastefnunnar: „En hvað afböt- uninni sjálfri viðvíkur, þá er hún aldeilis ekki lögleg, scilicet: Pró- fasturinn og presturinn í Hítar- dal, forríkur maður, hann hefir ekki ráð á að senda í kaupstað eður til útvega sinna, nema hann fari sjálfur!---------Hver hefir flutt yður það, að þjer hafið mætt á synodo merkilegri álasanf Það kannast jeg við, að ljet af mjer heyra, að mjer þótti bæði rjett- urinn og jeg í því nokkuð óvirt- ur — að þjer að minsta kosti ekki senduð forföll yðar þangað, og et jeg það ekki í mig aftur. Hver hefir frætt yður á því, að yður hafi verið múlkt tildæmdf Ekki mundi jeg hafa sparað yður held- ur en hvern annan, hefði bevísan- legt framkomið í synodo, að þjer hefðuð meðtekið citatiuna (fund- arboðið) og þess þá síður, sem þjer hafið vitið meira en flestir'*. En um hitt atriðið, postilluna, segir hann í þessu brjefi: „Ekki hygg eg það satt sje, sem yðar domestique (húskarl, þ. e ungi presturinn) hefir framborið nm það hálfskrifaða blað, er hann segir sjer horfið hafi, og er það fyrsta merkið til ósanninda, að re- marquerne (athugasemdirnar) eru eins fullar og jeg hefi þær í hendi þess þriðja manns, frá honum. Vel ef ekki eru útgengnar nokkrar editiones (útgáfur eða eintök) þar af“. -----------Af þessu virðist mega ráða, að Vídalín hafi fengið þessar athugasemdir frá einhverj- um öðrum, og hefir það ekki blíðk- að hann. Svo heldur hann áfram, og má nú sjá, að það sem honum hefir mest sárnað er það, að síra Jón biðst undan að fá sumarpart postillunnar sendan; „Þjer biðjið mig, að láta hjá líða að seqda yður sumarpartinn af commentationibus mínum. Það skal gjarnan vera Dne. præposite, en trúið mjer til, að jeg þykist ekki missa svo mikið þar í, sem þjer ætlið. Það er allri veröldinni kunnugt, að hinir lærðustu menn, sem bæk- ur gjöra, Salmasii, Vossii, Heinsii, Casanboni, Seldeni, Cambdeni, láta bækur sínar í gegnum lesa af góð- um vinum sínum, jafnvel þeim, sem ekki eru þeirra líkar, því bet- ur sjá augu en auga. Og okkur íslendingum er engin óvirðing að gjöra hið sama. En ef þjer þykist óvirtir af því, að eg kjöri yður framar öðrum til þessa, þá vil eg svara yður með orðum Páls, er hann sagði við þá í Corintho: For- látið mjer þann ójöfnuð!“ Það er gaman að sjá hvernig mælskan og snildin streyma þegar úr penna Vídalíns er hann reið- ist. Svo segir hann; „Sjáið til að þjer reiðist rjettí- lega, Dne. præposite! Nær hefi jeg kent yður um þessa var- mensku? Aldrei; og ekki hefir mjer það í hug komið, því það hefði verið illmenska að þenkja svoddan glópsku um einn góðan og vísan mann; heldur hefi jeg kent það honum, hvers þekkjan- leg hönd að beVísar verkið. Og læt jeg nú hjer um úttalað að svo stöddu“. „Skammist hann sín“. Þessi misklíð náði svo ekki lengras og þeir nafnarnir hafa sjálfsagt sættst á málið þegar þeir hittust næst. En brjef Vídalíns sýna, hvo skapstór hann er og óhlífinn við hvern sem hann á. Og ekki vant- ar hann snildina að hæfa and- stæðinginn þar sem hann vill.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.