Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Qupperneq 12
404
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Cá góðisiður hefir nú verið upp
^ tekinn, að helga sjómönnun-
um einn dag á ári hverju. Einn
af föstu dagskrárliðum Sjó-
mannadagsins er, að minst er
druknaðra sjómanna og á eftir
er leikið lagið „Alfaðir ræður“.
Þetta yndislega kvæði Sigurð-
ar Eggerz, með hinu ódauðlega
lagi Sigvalda Kaldalóns, lýsir
átakanlega hugarstríði konunn-
ar, sem bíður milli vonar og
ótta, meðan ástvinurinn er að
velkjast í brimlöðrinu. Kvæð-
ið er alt í senn: þrungin ör-
vænting, innileg bæn og dásam-
legur lofsöngur.
Jeg hefi sjeð minst á slysið í
Mýrdal, sem var tilefni þess, að
Sigurður Eggerz orti kvæð-
ið, en þar var ekki rjett með
farið. Jeg hefi hinsvegar orðið
þess var, að sjómönnum er
kvæðið einkar kært. Það er því
ekki óviðeigandi, að þeir viti nán
ar um slys það, er varð tilefni
þess, að kvæðið var ort. Jeg
var á skipinu, þegar þetta slys
varð, og man atburðina allvel.
Mun jeg því hjer skýra frá slys-
inu, sem varð í Vík í Mýrdal
fyrir 30 árum.
★
Hinn 16. maí 1910 kom danskt
skip, ,,Vendsyssel“, til Víkur
með vörur til Halldórs Jónsson-
ar kaupmanns. Sjór var þá ekki
það góður, að hægt væri að skipa
upp. Bátur fór þó út til þess að
hafa tal af skipstjóra og biðja
hann að bíða.
Næstu daga var sjór ófær, en
skipið beið. Hinn 24. maí var
byrjað að skipa upp, en ekki
hægt að fara nema eina eða
tvær ferðir. Þá brimaði aftur.
Næsta dag, 25. maí, var sjór
ófær, en skipið beið ennþá.
Þá rann upp hinn örlagaríki
dagur, 26. maí. Annað vöruskip
var þá einnig komið á Víkina.
Það var gamla „Isafold", með
vörur til Brydes-verslunar.
Þrír áttæringar voru notaðir
við uppskipunina, tveir við
„Vendsyssel", þ. e. Stóri-Far-
sæll, formaður Einar Hjaltason,
og Pjetursey, formaður Jón
Gíslason á Götum; þriðja skip-
ið var Björg, formaður Jón Þor-
steinsson. Hún var notuð við upp
skipun úr „ísafold".
Samkvæmt vinnubók verslun-
ar Halld(írs Jónseonar í Vík frá
þessu ári, en hún er til enn, hafa
verið 14 menn á Stóra-Farsæl
þenna dag, en það var á honum,
sem slysið varð.
Mig minti að 17 menn hefðu
verið á skipinu, enda var það
föst venja, að ekki væri færri
en 17 á áttæringum við uppskip-
un, þ. e. tvískift undir árar og
svo formaðurinn. Oft voru fleiri
menn á, einkum ef sjór var vond
ur. En verið getur að hörgull
hafi verið á mönnum, þar sem
mannskap þurfti á þrjú skip, og
þess vegna hafi ekki verið nema
14 á í þetta sinn. Samkvæmt
vinnubókinni voru þeir þessir:
Einar Hjaltason (formaður),
Sigurður Björnsson, Jón Brynj-
ólfsson, Bergsteinn Sigurðsson,
Jakob Björnsson, ísleifur Þor-
steinsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Jón Jónsson, Högni
Högnason, Ingibergur Ólafsson,
Árni Gíslason, Bergsteinn Er-
lendsson, Jón Kjartansson og
Oddur Brynjólfsson.
Hjer varð þó sú breytnig, að
Eftir Jón Kjartansson ritstjóra