Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1953, Qupperneq 14
300
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ur verið ráðizt hér á landi og miða að
bættum lífskjörum þjóðarinnar.
Fundurinn telur að leggja verði allt
kapp á að efla svo atvinnuvegi þjóð-
arinnar, að hún geti staðið á eigin fót-
um fjárhagslega, og að svo verði jafn-
an búið að þeim, að þeir geti veitt mót-
töku öllu því vinnuafli, sem fyrir er í
landinu á hverjum tíma. Lítur fund-
urinn svo á, að með stofnun Fram-
kvaemdabanka ríkisins og með því fé
ár Mótvirðissjóði, er hann jafnan hef-
ur til umráða sé merkum áfanga náð að
því marki, sem hér er stefnt að.
Fundurinn lítur svo á, að tímabært
sé að leggja niður Fjárhagsráð í nú-
verandi mynd, og afnema jafnframt
allt fjárfestingareftirlit, og felur mið-
stjórn og þingmönnum flokksins að
vinna að því, að svo verði gert. En að
því leyti, sem nauðsynlegt þykir á
hverjum tíma að takmarka fjárfesting-
una, þá sé það aðeins gert með lána-
starfsemi bankanna.
Dýrtíðarmál
Landsfundurinn leggur áherzlu á að
allt verði gert sem unnt er, til þess að
halda við jafnvægi í fjármálum, við-
skiptamálum og atvinnumálum þjóðar-
innar, svo að takast megi að koma í veg
fi*r
fyrir vaxandi dýrtíð í landinu. Vill
fundurinn sérstaklega benda á þá
hættu, sem í því felst, að stuðla að of-
vexti í einstökum óvaranlegum atvinnu
framkvæmdum, sem draga um of vinnu
aflið frá nauðsynlegri framleiðslu
landsmanna og hleypa þannig á stað
nýrri óviðráðanlegri dýrtíðaröldu. Tel-
ur fundurinn að stefna beri að því með
festu, að komið verði á samvinnu á
milli stéttasamtakanna og opinberra
aðila um lausn þessara vandamála á
grundvelli þeim, er siðasti landsfundur
gerði tillögur um í dýrtíðarmálum. Er
fundurinn þess fullviss, að á þann hátt
verði verðgildi gjaldmiðilsins bezt
tryggt, að þar með verði glæddur á ný
sparnaðarvilji hjá þjóðinni. Telur fund-
urinn það höfuðnauðsyn, þar sem vitað
er að vantraust á gjaldmiðli þjóðarinn-
ar er eitt erfiðasta vandamálið í efna-
hagsmálum hennar.
Verzlunarmál
Landsfundurinn telur frjálsa verzlun
eitt af frumskilyrðum fyrir góðri af-
komu almennings. Þess vegna fagnar
fundurinn þeim umbótum, sem orðið
hafa í verzluninni á undanförnum
þremur árum, með því að vöruskömmt-
un hefur verið afnumin og innflutn-
ingurinn að % hlutum leystur undan
innflutningshöftum. Er þetta í sam-
ræmi við stefnuyfirlýsingu flokksins
fyrir síðustu alþingiskosningar.
Fundurinn lýsir yfir þvi sem skoð-
un sinni:
1. Að leggja beri áherzlu á að af-
nema öll höft af innflutningsverzl-
uninni.
Fundurinn telur sjálfsagt að
breyting sé gerð á fjárhagsráði í
samræmi við núverandi verkefni
þess og að það verði lagt niður
strax og tök eru á að gefa allan
innflutninginn frjálsan.
2. Að eðlilegt sé að einkaverzlun og
samvinnuverzlun starfi hlið við hlið
í frjálsri samkeppni og á jafnrétt-
isgrundvelli, ekkí sízt að því er
snertir skattamál.
3. Að miklu varði, að fjármagn bank-
anna sé skipt í eðlilegu hlutfalli
milli atvinnuveganna og að einka-
verzlunin og samvinnuverzlunin
fái þar sinn rétta skerf eftir hlut-
fallslegri þátttöku í innflutnings-
verzluninni.
Fundurinn leggur áherzlu á það, að
frjálst verðlag verði ráðandi í landinu
þar sem hann telur að frjáls sam-
keppni og eðlilegt vöruframboð tryggi
almenningi bezt hóflegt vöruverð og
fyrirbyggi svartan markað. Ber því að
stefna að því örugglega að heilbrigt