Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1970, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.05.1970, Síða 10
í lítt kunnri fundabók stjórnar Sjálf- Stæðisflokksins gamla, 1914—1917, seg- ir að stjórnin hafi haldið fund sunnud. 16. jan. 1916 og „með því að Jörundur Brynjólfsson hafi gengið úr flokks- stjórninni varð Páll H. Gíslason, kaup- maður valinn í stjórnina að áskildu samþykki Sig. Eggerz og prófasts Kristins Daníelssonar. Var tekið til um- ræðu hvort réttara mundi vera að ganga í bandalag við nokkurn flokk við kosningar og þá hvern. Var ákveð- ið að láta heimastjórnarmenn alveg hlutlausa, en beita sér gegn ráðherra- flokknum," þ.e. Einari Arnórssyni og stuðningsmönnum hans (langsum-mönn- um). í næstu fundargerð á undan er nafns Jörundar Brynjólfssonar (þá barna- kennara) einnig getið og sagt að flokk- urinn hafi fengið Jörund og Ólaf G. Eyjúlfsson, stórkaupmann, ,,til aðstoð- ar í miðstjórnina.11 Af fundagerðarbókinni má sjá, að um þetta leyti snerust umræður innan flokksins um afstöðu til stjórnarinnar og einkum væntanlegar kosningar. Frá því er skýrt 25. marz 1916, að tiltæk- ast hafi þótt að raða mönnum á lands- lista svo: 1. Sigurður Eggerz, 2. Hjört- ur Snorrason, 3. Gunnar Ólafsson, Vest mannaeyjum, 4. Magnús Friðriksson, Staðarfelli, 5. Kristján Benjamínsson á Tjörnum, 6. Ólafur Thorlacius, læknir, 7. Magnús Magnússon, kennari. Var ákveðið að bera lista þennan undir þá flokksstjórnarmenn, sem eigi voru við- staddir og til náðist. Undir þá fund- argjörð rita, auk Sigurðar Eggerz og Björns Kristjánssonar, þeir Bjarni Jónsson frá Vogi og Benedikt Sveins- son. Síðan er haldinn aðeins einn fund- ur um sumarið og má sjá að áhugi hef- ur allur beinzt að kosningunum. Á fundi, sem haldinn er 9. des. 1916, kemur Jörundur Brynjólfsson aftur við sögu — þá eru boðaðir á fund af mið- stjórn flokksins „nokkrir þingmenn" og eru þeir þessir: Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson, Björn Kristjánsson, Hákon Kristófersson, Hjörtur Snorra- son, Jörundur Brynjólfsson, Kristinn Daníelsson, Pétur Óttesen, Pétur Þórð- arson, Sigurður Eggerz og Þorleifur Jónsson. Af þeim sem boðaðir eru á fundinn eru Magnús Torfason og Skúli Thoroddsen fjarverandi. Á þessum fundi urðu umræður „um afstöðu til stjórnarinnar og horfur á nýrri stjórn- armyndun, en engin atkvæðagreiðsla fór fram, né ályktun tekin.“ Enn situr Jörundur á fundum miðstjórnar flokks- ins 11. og 12. des. og á síðari fundinum skýrðu „ýmsir . . . frá viðræðum sínum við flokksmenn úr öðrum flokkum um stjórnarhorfur, en ekki þótti enn til- tækilegt að fastráða um fyrirætlanir flokksins." Eru þessar viðræður upphafið að fyrstu samsteypustjórn hér á landi, Benedikt Sveinsson Matthías Johannessen: lofningiir Sj álf stæðí sf lokksins gamla 1 undanfari og afleiðing stjórn Jóns Magnússonar, en undanfarinn er sársaukafull átök innan Sjálfstæðis- flokksins gamla, sem lauk með því að hann klofnaði í langsum-menn og þvers- um, þegar Einar Arnórsson varð ráð- herra 1915. ★ ★ Þannig var mál með vexti, að einn af helztu forystumönnum sjálfstæðismanna, Sigurður Eggerz var 1. júlí 1914 til- nefndur af meirihluta Alþingis ráð- herra íslands. Sigurður varð þingmað- ur Vestur-Skaftfellinga í kosningunum 1911, en hann var þá sýslumaður Skaft fellinga. Heimastjórnarmenn unnu mik- inn sigur í kosningum þessum, en Sig- urður var utan flokka. Þingkosningar fóru fram í apríl 1914 og komu þá inn í þingið þrír nýir menn, sem áttu eftir að hafa úrslita- áhrif á stjórnmálaþróun næstu ára, Einar Arnórsson, Guðmundur Hannes- son og Sveinn Björnsson. Hannes Haf- stein sá fram á að hann yrði í minni- hluta og bað um lausn frá ráðherra- embætti, áður en þing kom saman, en þó gegndi hann embættinu þar til Sig- Sigurður Eggerz urður Eggerz tók við. Sigurður fór á konungsfund og var settur í embættið 21. júlí, en um þremur vikum síðar af- greiddi Alþingi stjórnarskrárfrum- varpið (frá 1913), en báðar deildir þingsins samþykktu þann „fyrirvara", „að uppburður sérmála íslands fyrir konung í ríkisráði Dana verðí hér eftir sem hingað til íslenzkt sérmál.“ Þá var einnig samþykkt í sameinuðu þingi þingsályktun um gerð íslenzka fánans. Ráðherra lagði nú stjórnarskrárfrum varpið fyrir konung í ríkisráðinu til staðfestingar 30. nóvember þetta sama ár og tók upp í tillögu sína að fyrir- vari þingsins yrði staðfestur og hélt fast við það. En á ríkisráðsfundinum náði stjórnarskrárbreytingin, vegna fyr- irvarans, ekki staðfestingu konungs og ekki var heldur gefinn út konungsúr- skurður um gerð íslenzka fánans. Þá baðst Sigurður Eggerz lausnar, en gegndi ráðherraembætti þar til nýr ráðherra, Einar Arnórsson, var valinn. Flokksblöð sjálfstæðismanna töldu að framkoma Sigurðar Eggerz hefði verið rétt og lýstu yfir stuðningi við hann. Einar Arnórsson Það gerði einnig meirihluti þingmanna. Fullyrtu þessir aðilar að ráðherra hefði ekki verið stætt á þvi að halda áfram störfum, þegar konungur vildi ekki samþykkja ,,fyrirvarann“. Sjálfstæðismenn héldu fund í Reykja vík 30. des. 1914 og var ráðherra boð- inn velkominn heim. Hann flutti ræðu og skýrði utanför sína, en að ræðunni lokinni var hann hylltur ákaflega og samþykkti fundurinn svolátandi til- lögu: „Fundurinn þakkar ráðherra framkomu hans í ríkisráði 30. nóv. þ.á., telur skoðanir þær, sem hann hélt þar fram í umræðunum um stjórnarskrár- málið vera í fullu samræmi við vilja meirihluta kjósenda fyrir síðustu kosn- ingar og álítur vel farið að ráðherra flutti svo ljóst við Dani skoðanir ís- lendinga í deilumálunum." í desember er Sigurður Eggerz á fundi i miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Honum er þökkuð góð framganga. Hann skýrði nokkuð frá því sem gerzt hafði í ríkisráðinu, en síðan vikið að því hvað gera skuli: „Ráðherra og aðrir voru á eitt mál sátt- ir, að leita undirtekta þingmanna og Bjarni Jónsson frá Vogi 10 LESBOK MORGUNBLAÐSINS 24. maí 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.