Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Side 4
> Sumar kirkjur hafa sett á fót siðbótarnefndir til að vinna að umbótum á eigin kirkju og Ráðsmennsku- hreyfingin hefur sett svip á leikmannastarfið. Sr. Jóhann Hannesson, prófessor TÍÐINDI FRÁ TRÚARBRÖGÐUM i. Úr víðri veröld berast mikil tiðindi og sundurleit af trúar- legum hreyfingum, þótt fátt af þeim fréttum komist inn i ís- ienzk blöð. Þó er þeirra stund um getið ef byltingar og stór- glœpir eru í tengslum við ein- hverja afkáralega trúarflokka. Og það er réttmætt að segja frá þessu, því að það er ein veigamesta breytingin á siðast liðnum árum, að ýmsar róttæk ar hreyfingar hafa tekið inn í sig allmikfS" af trúarlegum hug myndum. Það hefir lika oft gerzt áður í sögunni, að radik alismi ungra manna hefir búið um sig í trúarlegum hreyfing- i)m. Menn geta auðveldlega kynnt sér þetta með því að lesa nokkuð í kirkjusögunni um betlimunkahreyfingar’ kristninnar, eða um upptök Búddhadóms. — í samtíð vorri gefur að líta ritsmiðar ungra manna, sem eru sérkennilega róttækar í hugsun, en grund- vallaðar á sígildri trúarlegri hugsun. Svo sterk hefir krafan um trúarlega upplýsingu orðið vestan hafs að ríkisháskóiar hafa orðið að láta undan og veita fræðslu í þeim. Annars hefir það verið stefna ríkishá- skólanna að láta trúarbrögðin afskiptalaus. Hins vegar hafa fornfrægir sjálfstæðir háskóiar vestra löngum haft guðfræði- skóla (schools of divinity), nánast sem sjálfstæðar stofnan ir, nátengdar háskólunum. Almenn trúarbragðafræði eru stunduð likt og hver önn- ur veraldleg vísindi við há- skóla, og þurfa ekki að vera í sambandi við neina kirkju- deild né trúarflokk. Óskir ungra manna um að nema þessi fræði sanna því ekki, að um sé að ræða trúarlegan áhuga. Áhuginn gæti alveg eins verið félagslegur, og er það senni- lega þegar menn leita einkum að hamingjutrúarbrögðum, en hirða lítt um sannleikssrildið i þeim. Ný samsteyputrúarbrögð frá Japan og öðrum löndum Austur-Asíu eru flest af þeirri gerð að þau má telja til ham- ingjutrúarbragða. Mikið kapp leggja menn á að kynna sér goðsagnir og helgi- siðaform (myther og ritual). Þegar ég spurði ungan Breta hvers vegna hann hefði í kerfi sínu tvö fornaldargoð, þau Isis og Ósiris, og ekki frekar ein- hver önnur nærtækari, var svarið á þá lund að hann tryði raunverulega á þessi goð og engin önnur gætu komið í þeirra stað. Nú getur hver sem vill lesið um þessi goð á ís- lenzku og gert sér í hugarlund hvers vegna pilturinn hafði tekið tryggð við þau. Hann hefði tæplega tekið trú á „þann rauðskeggjaða” þótt honum hefði verið boðuð hún og oss hefði fundizt að Ásaþór kæmist vel fyrri í kerfinu, fyrst pilturinn trúði á annað borð á marga guði! Mjög veigamikil vísindaleg og trúarleg spurning er þessi: hvernig breiðast ný trúar- brögð út? Ef vér vitum engin deili á því, þá er varla von til að vér vitum hvernig ísland varð á sínum tíma kristið land. Þá er önnur spurning forvitnileg: Hvernig lifir gamall átrúnaður innan um nýjan? Hvernig stendur á þvi að skemennska og animismi hefir lifað jafn lengi á Islandi og raun ber vitni? Soka-gakkai trúarbrögðin, sem ég hef áður skrifað um, eru sterk í heimalandi sínu, Japan, en breiðast hægar út nú en áður. Hins vegar virðist Zen búddhadómur eiga fylgi að fagna í Vesturheimi sökum mik illa samskipta Japans og Bandaríkjanna. Zen hefir átt þvi láni að fagna að eiga með- al talsmanna sinna hinn mikil hæfa rithöfund, Suznki, en bækur hans hafa verið kunnar á Vesturlöndum um fimm ára- tuga s'keið og eru nú mjög út- breiddar. Almenn trúarbragðasaga er ekki aðeins nauðsynleg mennta mönnum, heldur einnig öðrum þeim, sem vilja hafa fyrir því að skilja sína sioritíð. Fyrren varir kann maður að hitta, jafn vel hér á Islandi, einhvern sem tilheyrir einhverjum nýjum eða ævafornum átrúnaði. Og maður skilur ekki hinn fram andi mann nema með því að vita nokkur deili á þeim átrún aði sem hann aðhyl'llst. II. Það væri þrátt fyrir allt mis- skilningur að ætla að samtíð vor sé trúhneigð eða trúarlega leit andi. Samtíðarmenn vorir eru umfram allt afþreyingarmann- eskjur, fóðraðar á æsifréttum og auglýsingum. Manneskjuleg sambönd eru sundur slitin, sum ir segja að allt að því 80% af þeim samböndum sem voru milli manna, séu nú liðin undir lok. lætta hefir verið rannsak- að af félagsvísindamönnum og árangurinn fram settur í verk- um, sem fjalla um firringn samtíðarmanna vorra. Meðal vottanna eru líka margir lista menn, sem helga sig þeirri íþrótt að semja „absúrdrit" og bækur um tilgangslaust líf. Af- þreyingarmanneskja Vestur- landa er kaldranaleg, úttroðin af fjölmiðluðu efni, óánægð, gráðug í hluti og fjármuni og gerir endalausar kröfur, rétt- mætar og óréttmætar. Hún lík ist yfirstéttinni í Frakklandi á 17. og 18. öld, sem Pascal og fleiri höfundar þeirra tíma hafa lýst snilldarlega. Mætir menn tala um kvíða, geig og ótta samtiðarmanna vorra, en fæst af þessu ristir djúpt. Svo er einnig um mikið af trúrækni tímanna. Hún snýst oftar um hamingjuleit en fórn og ber því ekki þann ávöxt sem trúin bar einatt áður. Þetta er nauðsynlegt að gera sér ljóst, einkum þeim sem hafa löngun til að veita náunganum trúarlega þjónustu, svo að þeir gangi ekki inn í sjálfsblekk- ingu. Vera má að ráðamenn fjölmiðlanna hafi ekki gert samsæri gegn hugsjónum, sið- gæði og trú, miskunnsemi og mannkærleika, en útkoman verður samt líkust því sem þeir hefðu tekið sig saman um að halda öllum þessum þáttum menningarinnar niðri í lág- marki, geyma það í neðstu skúffunum. „Bókvitið verður í askana látið — og asklokin verða að himnum gerð.“ Þessi hugsun er vissulega nútímaleg, eða minnast menn ekki 1. des? En hún boðar enga „trú, sem blessar og reisir þjóðir.“ m. Hér með er ekki komið að kristnihaldi Vesturlanda né kannaður sá jökull, sem yfir því hvílir, glacies infidelitatis, ís vantrúarinnar. Orðin eru tekin úr miðaldariti eftir ókunnan höfund, í tilefni þess að þá bræddi varmi trúarinn- ar (calor fidei) þennan ís að verulegu leyti. Nú hefir um alllangt skeið ísinn þykknað og orðið að fargi. Þetta vita sum ungmennin og segja frá þvi, áður en þau týna sér I dópinu. „Þið hafið tekið pen- inga, afþreyingu og vélar fram yfir okkur, sem erum þó ykk- ar eigin börn“ — eða „ykkar eigin hold og blóð“. 1 þessurn og öðrum álíka setningum er dregið saman kvein sumra þeirra unglinga, sem hafa orð- ið fórnarlömb firringarinnar. Þótt einstaka foreldrar kunni að vilja taka ráð í tima og tala við þau um æðstu gildi lifsins, kunna slíkar tilraunir að renna út í sandinn fyrir fá fræði sakir, ef allt þeirra vit hefir verið í askana látið. Það er sagt að margt samtíðarfólk vort sé stafrófsleysingjar (an- alfabeter) í andlegum efnum, og það er erfitt fyrir stafrófs- leysingja að vera kennari eða andlegur leiðtogi. Þá vantar hina djúpu reynslu tilbeiðsl- unnar inn í líf margra, sem eðlilegt er, ef menn hafa ekki langtímum saman tilbeðið Guð. Menn minnast e.t.v. sins eigin andlega lífs sem fjarlægrar for tíðar, sem er farin að mást út úr vitundinni. Þó er betra að eiga slíkar minningar en alls engar. Skal nú vikið að nokkrum þáttum, sem eru áberandi í lífi kristninnar á vorri öld. a). Biblían í nútímalegum þýðingum og útgáfum er mjög eftirsótt. Sá æskulýður sem heldur tryggð við kirkjuna, er betur að sér í biblíufræðum en ungt fólk fyrir 30 árum var á sínum tíma. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. desember 1970 >

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.