Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Blaðsíða 25

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1970, Blaðsíða 25
Björn Jónsson í Bæ Hann á níu líf eins og kötturinn Þáttur af Jóhanni Eiríkssyni á Hofsósi gjöld fyrir dónaskapinn. Hvem fjandann meinti fíflið með þessu? En Chasseloup sýndi engin móðgunarmerki. Hann starði aðeins fast á hinn, sem þá flýtti sér að bæta við: „Náðug frúin spyr, hvort þú viljir koma yfir nú á síundinni. Ég skal vísa þér leið.“ Chasseloup hikaði brot úr sekúndu og rétti úr sér, sagði stiðan: „Af stað, þá.“ E>að var augljóst, að hann hafði ekki minnstu hugmynd um, i hvaða ævintýri hann var að hella sér. Á leiðinni yfir götuna hvíslaði ég: „Hvað á þetta eiginlega að þýða?“ Hann hvíslaði á mðti: „Ég veit það ekki, en ég held við fáum þriðja sjússinn.“ Við fórum inn I stórt og glæsilegt fjölbýlishús og þar i lyftu. Á svipstundu vorum við komnir upp á 5. hæð og drifn- ir þar inn í hol með þykkum gólfteppum. Húsþjónninn fór og kom ekki aftur fyrr en eft- ir 3 eða 4 mínútur. Þegar hann svo kom, var hann ákaflega var kár. Hann stundi upp við Chasseloup: „Hm, er yður ekki sama, þó vinur yðar bíði fyrir utan, herra?“ Chasseloup sagði fastmæltur: „Nei, segið göfugri frúnni, að þar sem Limpo fari, fylgi einn- ig Blotto." Aftur var hlé, og þá kom hús þjónninn enn og bað okk- ur báða að fylgja sér. Við fór- um inn í stóran reyksal með strjálum húsgögnum. 1 herberg inu voru fyrir 3 karlmenn. f>eir voru allir stórvaxnir, og allir stóðu þeir. Á arinmottunni stóð einhver sú ískyggilegasta mannvera, sem ég hef nokkurn tíma augum litið. Hann var grið arhár, tröllgildur um herðar, með kolsvart glæpaskegg og öndótt augu. Eitthvað var það í stellingum þessara manna, sem mér gazt ekki að. Þetta virtist allt vera vandlega undirbúið. Stóri maðurinn, sem var furðu mjóróma eftir fyrir- ferð, sagði stríðnislega: „Ó, komið þér inn, hr. hm. — Limpo. Júlíus Lindt ætti ég kannski að segja. Mig tekur sárt að þurfa að segja yður, að hennar göfgi er ekki viðstödd, óhjákvæmilega forfölluð, skilj- ið þér?“ Chasseloup hneigði sig með kurt og pi og sagði ískaldri röddu: „Mér þykir leitt að heyra það.“ „Hm, hm, já. Já, einmitt rétt. Ég get vel trúað þvi. Ég býst við, að þér lesið Times vel og vandlega, hr., hm, Limpo, Lindt á ég víst að segja.“ „Ég les Times á hverjum degi,“ svaraði Chasseloup kurteislega. „Já, og skrifið fyrir þá greinar líka, hr., já, Lindt. Fal- legar, vingjarnlegar, elskuleg- ar, litlar klausur ekki satt?“ Hann rétti fram blað af Times og hélt upp útsíðunni. Utan um smágrein hafði verið dregið blátt blýantsstrik. Stóri maðurinn þrýsti þvi upp að andlitinu á Chasseloup og sagði: „Lesið þér þetta upphátt, hr„ hm . . .“ Það var andstyggilegur, skaðvænn hreimur í röddinni. Mér féll hann alls ekki. Ég fór að hugsa hlýlega til tónlistar- félagsins Mínervu, litlu gylltu stólanna og F-moll sónötu Cyr- uisiar P.Q.H. Robinsons. Chaissie loup var alveg rólegur. Hann leit aldrei af andliti hins manns ins. Haain sagði kuldalega: „Blotto, vinur minn ætlar að lesa það.“ Mér var fengið blaðið, og ég las upphátt úr þessum óheilla- dálki: „Molly. Ég þrái þig svo heitt. Verð í klúbbnum á sunnu dagskvöldið. Ef Drekinn er í burtu, sendu þá eftir mér. Ást- arkveðjuir. Limpo.“ Ég var of skelkaður til að sjá, hvað ástandið var skop- legt. Hér var hinn kokkálaði eiginmaður, og með einstakri slægvizku hafði hainn veitt vit- lausan kokkál! Hvernig gátum við útskýrt þetta? Hin sorg- lega helti Chaisseloups sýndist alltof djöfull gott sönnunar- gagn. Hann hafði farið á stað- inn af ásettu ráði og stungið hausnum í snöruna. Ástandið var geigvænlegt. Hið versta var, að undir slíkum kringum- stséðum stanza menn ekki til að hugsa og álykta. Ástríða og skrílslög eru gamlir fylgifisk- ar. Sú staðreynd fékk fullnað- arsönnun næstu sekúndurnar. Allt virtist þetta gerast i einu vetfangi. Drekinn teygði út höndina í áttina að stuttu, staf- laga keyri, sem hafði verið fal- ið bak við arininn, hinir tveir laumuðust til að umkringja Chasseloup, og þá, sá hinn fjórði — var það þjónninn? — greip utan um hálsinn á mér aftan frá, og mér var kastað í átt til dyra. Hugmyndin var að fjarlægja mig, meðan hinir kag hýddu Chasseloup. Ég datt aft- ur á bak, út í holið, og hurðin sveiflaðist. Að lokum var hún næstum skollin í lás. Henni var skellt með hroðalegum ofsa, en á síðasta augnabliki var fæti skotið á milli. Aflið, sem henni var skellt með, hefði möl brotið alla venjulega fætur, en nú stóð svo á, að fóturinn, sem þrýst var milli stafs og hurð- ar, var úr tré og með stálgrind. Handleggirnir fyrir ofan höfðu sýnilega nóg að gera annars staðar. Fóturinn þarna, sem hafði nú heldur en ekki fengið nýtt og óvænt gildi, hvatti mig til dáða. Ég rak oln bogana af öllu afli í siðurnar á árásarmanni mínum. Ég heyrði hann stynja og hljóp aftur inn að dyrunum. Ég held það hljóti að hafa verið húsþjónninn. Ég hef ekki séð hann síðan. Þegar ég tróðst aftur inn í herbergið, þá held ég, að sálræn áhrif af nærveru minni hafi verið okk- ur dýrmætari heldur en þau líkamsafrek, sem ég væri lík- legur til að vinna. Þrír menn gegn tveimur, það var ekki yf- irþyrmandi Iiðsmunur. Maður- inn, sem var rétt innan við dyrnar og hafði tekið Chasse- loup hryggspennutökum, hik- aði og fékk i syndagjöld vel útilokið högg fyrir ofan vinstra augað. Hinir tveir voru að um- kringja þá, er Chasseloup rétti sig upp og losnaði. Þá var það, að ég sá manninn eins og hann raunverulega var. Augu hans loguðu af ofsakæti. Nú skemmti hann sér óskorað. Óvænit og skyndiilega sveiflaði hann sér til hliðar, greip blóma vasa og mölbraut með honum peruna i ljósastaiðinu. Það Framli. á bls. 30 Hann er fæddur 20. septem- ber 1901, hefir marga hildi háð, vanur við fugl og fisk, bóndi, útgerðarmaður og sjómaður, af lífi og sál. Skallinn er rétt að byrja að sýna sig; hann er far- inn að safna ýstru eins og kaupmanni og embættismanni sæmir, léttlyndur er hann, en ekki get ég neitað þvi að stund um finnst mér hann fuli orð- hvatur og öfgasinnaður, en þar ræður miklu um dugnaður hans og óhlifni við sjálfan sig. Jóhann hefir alltaf verið fram- gjarn og hefir þvi hlotið sæti i mörgum félagsstjórnum og nefndum. Hann sat lengi í hreppsnefnd, formaður Búnað- arfélags Hofsóss, i sóknarnefnd og meðhjálpari. Hann var í stjórn Verkamannafélags, Slysavarnarfélags og hefur mikið starfað að hvers konar söngmálum sveitar sinnar. Þó hér sé nokkuð upptalið hefir hann af dugnaði og ósérhlifni lagt hönd og huga að ýmsum fleiri nytjamálum, og nú nær ' sjötugur, rekur hann smáverzl- un og selur olíur og bensin fyrir Shell. Jóhann getur ekki aðgerðarlaus verið og iðar I skinninu af starfsáhuga. Eins og ég sagði í byrjun hefir hann marga hildi háð og nokkr ar skrokkskjóður hefir hann fengið um ævina. Þau voru sjö systkinin og er hann einn eftir af þeim, en var þó þeirra elztur. Haustið 1920 vildi það sviplega slys til, að bræður hans þrír ásamt einum manni öðrum, drukknuðu í fiskiróðri á Skagafirði. Sunn- an frostsperringur var og þeir höfðu náð i nýja smásíld til beitu. Líklega hafa þeir ofhlað- ið bátinn, því að í heimahöfn komust þeir aldrei. Daginn eft- ir fór Jóhann til leitar ásamt fleirum í slæmu veðri, en án árangurs. Var þetta mikið áfall fyrir fjölskylduna. Foreldrar Jóhanns, Eiríkur og Ingunn, bjuggu á býli rétt Utan við Hofsós. Það heitir Berlín. Ekki voru þar háreist húsadtynni og efnin voru líka litil, en þó komst fjölskyldan vel af vegna dugnaðar heimilisföðurins og drengjanna, er þeir komust á legg. Til Drangeyjar var róið á vorin, en þaðan fékkst margur málsverður á þeim árum. Tii fiskjar var róið úr Naustavík hvenær sem veður gaf og byss- an var þeim feðgum heldur ekki ónýt, því að oft fékkst selur, hnýsa eða fugl. Ungur fór Jóhann á vertið, sem kallað var, það er, að fara til sjóróðra til Vestmannaeyja eða Suðurnesja. Þá var það i eitt skipti, að hann fór með M/b Höskuldi frá Reykjavik til Vestmannaeyja en skip- stjóri var Gisli Magnússon frá Skálholti í Eyjum. Þeir voru ellefu á bátnum; fóru á stað á miðvikudagsmorgni fyrir jól, en voru að hrekjast á hafinu með bilaða vél fram á jóladags- kvöld, en þá bar jóladag upp á sunnudag. Matarlausir voru þeir orðnir fyrir nokkru, segl- In rifin i tætlur og ljósin I ólagi. Oftar en einu sinni var mjög tvisýnt um að báturinn kæmist heill úr þessum háska. Jöhann er raunar einn eftir lifandi af þessum hrakninga- mönnum. Á þessum árum réðst hann eitt sinn á norskt síldarskip. Á þeirri vertíð fengu þeir aftaka veður af suðri og nokkrir menn voru sendir niður í nóta- bátana til að lagfæra þar og ausa. En bátamir slitnuðu frá skipinu og fyllti þá hvað eftir annað og nótin fór í hafið. Við illan Ieik og mikla vosbúð mannanna, sem í bátnum voru, náðust þeir þó um borð í skip- ið. Þennan dag fórst báturinn Ýmir frá Siglufirði með áhöfn. 1 Vestmannaeyjaferðum sín- um var Jóhann svo heppinn að kynnast konu sinni, Sigur- laugu Einarsdóttur, ættaðri undan Eyjafjöllum. Hún var af burða dugleg og myndarleg stúlka, en er nú dáin fyrir ári. Eignuðust þau tvö börn, Öldu og Einar, sem eru nú bæði gift og eiga afkomendur. Þau Jóhann og Sigurlaug keyptu sér jörðina Þöngla- skála 1927, hún er rétt utan við Hofsós. Þar bjuggu þau í 21 ár, og voru siðar kennd við þann bæ. Jðrð þessi er stutt frá uppeldisheimili Jóhanns. Þetta var því hagræði fyrir sjð manninn, enda var nú ósleiti- lega unnið, bæði til sjós og lands. Mörg ævintýri segir hann mér frá búskap sínum. Eitt sinn hafði hann keypt sláttuvél, sem var tengd við dráttarvél og var hann að slá á sléttu, sem náði fram á sjáv- arbakka, en margar mannhæð- ir niður í fjöru. Sjóblautt var á jörðu og hált í grasi. Vildi þá svo til, að er hann ætlaði að setja í afturábakgír, fór vélin að renna áður en það tækist. Eins og áður segir, voru þama fleiri mannhæðir niður í stór- grýtta fjöruna. En ekki var langur umhugsunarfrestur — annaðhvort var að kasta sér af vélinni eða fara niður með henni — og niður fór hann. En á löngum kafla sjávarbakkans hitti hann á litla gilskoru, og' var hún eini staðurinn þar sem likur voru til, aS hann kæmist lifandi úr þessum voða. Hann gat á einhvern hátt stýrt vél- inni niður, þannig að hún hvorki valt, né steyptist yfir sig. Nokkuð meiddist Jóhann en var þó kominn til vinnu dag inn eftir. 1 annað skipti var Jóhann að slá á túninu með dráttarvél sinni. Kom þá eitt- hvað i greiðuna, sem þurfti að ná burtu. Hann álpaðist til að troða fingri niður á milli tind- anna en um leið hreyfðist ljár- inn og fingurinn var fastur. Skarst þar inn að beini báðum megin, en fingurinn var fastur og þarna mátti hann dúsa þar til fólk varð vart við hann í aumkunnarlegu ástandi, „og mikið fjári leið mér illa þenn- an tíma,“ segir Jóhann. Eftir að þau hjón hættu bú- skap og fluttust til Hofsóss, keyptu þeir feðgar 19 tonna bát, Harald Ólafsson, sem þeir gerðu út með þeim veiðarfærum sem þá og þá þóttu hentugust til fanga. Eitt sinn voru þeir á Haraldi að kasta dragnót úti á Skagafirði. Kom þá lykkja á dragnótatógið, sem slóst um fót á Jöhanni ofan við hné. Herti þar strax að og skipti engum togum, að maðurinn fór í hafið með nótinni. Á einhvern óskilj- anlegan hátt lánaðist honum að losa sig, enda missti hann ekki meðvitund og hafði fulla hugs- un á þvi hvað var að gerast. Báturinn var á fullri ferð og varð þvi nokkur aðdragandi að ná Jóhanni. Var hann búinn að drekka nokkuð af sjó er honum skaut upp úr kafinu, en hélt þó rænu að mestu. Af þessu svamli fékk Jóhann snert af lungnabólgu og var auk þess mikið marinn. Hefir hann ekki að fullu náð sér eft- ir þetta ævintýri og ber ennþá greinilega merki á fæti eftir snöruna. Af framansögðu er augljóst, að Jóhann hefir feng- ið æði margar skrokkskjóður en þó sloppið furðanlega. Ef þið komið i búðina til hans núna, er hann vís til að segja ykkur fulla meiningu sína um málefni dagsins, en þetta er allt græskulaust. 1 gegnum lifs ins öldurót er lundin á stund- um orðin meir og hefir kannske alltaf verið það. En þrátt fyrir allt mun hann veifa glað- lega til ykkar hendi eða húf- unni, ef hún er þá tiltæk, þvl karlinn er bezti náungi og á sér, að ég held, engan óvild- armann. 22. desember 1970 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.