Lesbók Morgunblaðsins - 21.12.1987, Blaðsíða 11
Samt veit ég að það eru ekki hárin. Ég
er bara að vona . .. Ég heyri að það eru
ekki hárin. Það eru fæturnir, kálfinn hægra
megin. Þangað benda fingumir. Þangað
stara’ naktir bekkjarbræður mínir. Hafa
fíngurgómar þeirra plokkað ú.r mér sjáöldr-
in? Því ég stari líka. Ef ég hef séð þessa .
æðahnúta áður hef ég ábyggilega haldið
að þeir væru ósýnilegir. En það er satt,
þama eru ótal bláleitir nibbar, bæði stórir
og bólgnir.
Ég heyri í röddunum: „Hann er með
æðahnúta einsog kerling." Hópurinn nálg-
ast. Ég ýti frá mér með höndunum og
streitist á móti. Ég er að reyna afrtala. Ég
ætla að útskýra fyrir þeim að hér sé um
ættgengan kvilla að ræða, mamma sé með
æðahnúta, pabbi, amma og jafnvel afí. En
orð mín drukkna í syndaflóði sturtunnar, í
háværum röddum og hjörð sem leysist upp
í andlitslausa þvögu.
Ég heyri bara að það er einhver sem
segir: „Fyrst hann er með æðahnúta einsog
kerling, hlýtur hann þá ekki líka að vera
með píku?“ Honum er svarað: „Þú ætlar
þó ekki að fara að ríða honurn?" „Ertu vit-
laus? Mér fínnst bara að við eigum að athuga
málið." Ég sprikla. Ég æpi og veina. Mér
rétt tekst að losa mig. Ég hleyp eftir grá-
leitu sturtugólfinu. Til vinstri. Meðfram
sturtunum. Ég ætla að reyna að ná í ystu
sturtustöngina og halda mér í hana. Ég
hleyp ... Mér finnst rymja í bekkjarbræðr-
um mínum. Er ég staddur í frumskógi? Ég
hlýt að hafa runnið á sápustykki því ég
fell kylliflatur aftur fyrir mig. Hnakkinn
skellur í gólfið. Ég ligg í móki og heyri
ekki neitt, fínn bara þegar rennblautir fing-
ur lyfta upp pungnum.
Ég gleymi honum aldrei; deginum þegar
ég skellti á eftir mér hurðinni og yfírgaf
íþróttabraggann í hinsta sinn. Það var mjög
kalt og eftir á fínnst mér ég hafa hlaupið
nakinn á milli bæjarblokkanna með fötin í
skólatöskunni. Kvaldist ég í höfðinu eða
kálfanum? Stundum hélt ég að hægri fótur-
inn væri að detta af eða æðahnútamir
mundu blása út, þrútna og verða svo stórir
að ég kæmist ekki út um dymar á herberg-
inu.
Samt leitaði ég ekki læknis og bað um
að æðahnútamir yrðu fjarlægðir. Bara sú
tilhugsun að vera lagður upp á skurðarborð
og meðhöndlaður einsog akfeit kerling
hrelldi mig svo að mér fannst ég vakna af
skelfílegum draumi. Ég sá mig umkringdan
öllum feitustu konum landsins og eina nótt-
ina dreymdi mig að ég væri sjálfur orðinn
feitasta kona í heimi. Ég var að halda fyrir-
lestur um sjúklega útvíkkun á bláæðum og
háma í mig rjómakökur þegar ég vaknaði
og fann æðasláttinn í kálfanum einsog
bassatrommu.
Það var alltaf verið að flytja konur á
spítala og skera þær upp við æðahnútum.
Þær voru óralengi í burtu og sumar sneru
aldrei aftur. Á spítölunum hlutu að vera til
margir kílómetrar af æðum. Nóg til að girða
af herstöðina eða jafnvel heila sýslu. Sagt
var að æðahnútar mynduðust vegna ofnotk-
unar á þröngum lífstykkjum eða þeir voru
raktir til hreyfíngarleysis vegna einhæfra
starfa innan veggja heimilisins. En ég stund-
aði engin heimilisstörf og þröng lífstykki
höfðu aldrei komið nálægt mínum hvíta
kroppi. Gat verið að ég væri að breytast í
konu? Verður mér stillt upp í stelpuröðinni?
Verð ég látinn ganga með bijóstahaldara?
Að leita til iæknis jafngilti að svara þessum
spurningum játandi.
Þess í stað ákvað ég að verða mér úti
um læknisvottorð og fá undanþágu frá leik-
fimi, sundi og smíði ef hægt væri. Pabbi
reddaði læknisvottorðinu. Það var undirritað
af heimilislækni og sálfræðingi, sem átt
hafði við mig löng samtöl um önnur mál-
efni, en því miður gilti það aðeins um leikfimi
og sund, það er þær námsgreinar þar sem
lengri eða skemmri viðdvöl í sturtuklefa var
hluti af námsefninu. Ég gat þvi gengið í
buxum í skólanum og þurfti ekki að hátta
mig fyrir augum annarra. Mér var jafnvel
fíjálst að hlæja að æðahnútabröndurum og
segja þá á annarra kostnað en slíkir brand-
arar voru sérlega vinsælir í strætisvögnum.
Hitt vissi ég um leið og ég yfirgaf svarta
íþróttabraggann: ég var staðráðinn í að fara
héðan burt. Ég ætlaði ekki að stijúka að
heiman, ekki að fremja sjálfsmorð eða fela
mig í von um umhyggju. Strax og ég hefði
aldur til ætlaði ég að yfirgefa þetta land.
Ég get því sagt: „Ég var aðeins ellefu ára
þegar ég ákvað að fara út í heim.“ Og eins-
og í bók bæti ég við: „Nítján ára gamall
stend ég á Keflavíkurflugvelli á leið til
Frankfurt með það fyrir augum að setjast
við fótskör mestu kennimanna sem uppi eru
í þjóðfélagsfræðum og heimspeki."
Nú eru liðin önnur nítján ár og ég hef
enn ekki snúið aftur. Það er kalt úti, sann-
kallaður febrúar í loftinu. I slíku veðri hugsa
ég oft heim. Ég er að reyna að jafna mig
í fætinum. Ég ligg aftur í sófa og læt hann
hvíla á borði fyrir framan mig. Það er enn
háreysti á götunum. Sjefferhundarnir gelta
fyrir utan félagsheimilið og einhveijir eru
að þvælast um með talstöðvar. Af og til
bera vaktmennimir úlpuklædda vesalinga á
milli sín. Þeir sprikla ekki einsog óþekkir
krakkar heldur dingla útlimir þeirra.
Við eðlileg skilyrði væri ég að vinna við
doktorsritgerð mína niður á Konunglega
Bókasafni. Ég sæti á bekknum undir höfði
sálmaskáldsins og hugsaði yfír einni Cecil-
sígarettu og plastbollakaffi eða grúfði mig
yfir lesborðið sem ég hef haft í þau fjögur
ár síðan ég kom frá París þar sem ég lagði
stund á táknfræði og miðaldasögu við há-
skólann í Sorbonne.
Borðið mitt er á milli tveggja roskinna
fræðimanna. Annar þeirra er að safna
tækniorðum úr búfræðitímaritum fyrir orða-
bók sem landbúnaðarráðuneytið ætlar að
gefa út, en hinn rannsakar orgeltónlist frá
barrokktímanum. Á milli þeirra sit ég en
rannsóknarefni mitt er staða portkvenna á
miðöldum og félagslegar breytingar sem
orðið hafa á henni.
Það er ekki alveg rétt að ég hafí aldrei
leitað til læknis. Ég gerði eina tilraun. Það
var sex árum eftir atvikið í sturtuklefanum.
Þá hafði ég hitt stelpu á unglingaskemmti-
stað og hélt að við værum að byija á föstu.
Hún hafði komið með mér heim og ég gert
tvær tilraunir til að hátta hana úr flauels-
buxunum. I þriðja skiptið, þegar ég var
búinn að hneppa tölunni frá og renna niður
buxnaklaufinni, sagði hún: „Kannski
seinna."
Þó jafn hversdagsleg orð verði tæpast
fundin var töframáttur þeirra slíkur að í
einni svipan gjörbreyttist afstaða mín til
skurðarborðsins. Það birtist mér jafnvel sem
hægindastóll. Ég gat ekki hugsað mér að
standa nakinn með alla hnútana á kálfanum
frammi fyrir kærustunni minni. Að minnsta
kosti eki ef orðin „kannski seinna“ yrðu
„Kondu strax". Ég fór að gylla fyrir mér
hnútalausa fótleggi og dreymdi um að eign-
ast stuttbuxur.
Það var febrúar þegar ég dreif mig til
æðahnútasérfræðingsins. Alveg einsog nú,
á meðan ég ligg hér með fótinn upp á borði
og hugsa um eituiiyfjavandamálið í hverf-
iinu. Hann skoðaði á mér kálfann, spjallaði
við mig um nám og störf og var allur hinn
vingjarnlegasti. Síðan sagði hann: „Líttu
við hjá mér í vor. Við kippum þessu í lag.“
Þegar hann sá vonleysissvipinn bætti hann
við: „Biðlistinn er langur." Hann vissi greini-
lega ekki hvað var í húfi.
Samt gat ég ekki gleymt æðahnútasér-
fræðingnum, því hann var alltaf að skrifa
greinar í blöðin. Hann var í læknisslopp á
myndunum en mér til mikillar furðu fjölluðu
greinarnar ekki um æðahnúta heldur her-
varnir hins vestræna heims og stríðsrekstur
Bandaríkjamanna í Víetnam. Æðahnúta-
sérfræðingurinn hélt með Bandaríkjamönn-
um og studdi hervarnir hins vestræna heims.
Ég var aftur á móti farinn að ganga í
hettuúlpu, dreifa dreifíbréfum á götum úti
og boða þjóðnýtingu framleiðslutækjanna.
Þetta framferði mitt og ýmislegt annað
varð til þess að kærastan sá sig um hönd
og fór að halda í hönd þess sem síðar gekk
með henni upp að altarinu. Orðin „kannski
seinna" urðu því „nei aldrei". við það missti
ég allan áhuga á fagurfræði fótleggja en
sneri mér óskiptur að fræðiritum um marx-
isma. Gat ekki maður sem lofsöng Banda-
ríkjaher blóðugan upp fyrir axlir vel fundið
upp á því að skera af mér fætuma? Ég lét
því biðlista æðahnútasérfræðingsins lönd
og leið og hélt mínum hnútum.
Sem nú eiga sinn þátt í því að ég ligg
hér út af og get varla hreyft mig. Það kann
einhveijum að þykja það undarlegt en í
aðra röndina er ég feginn. Mér fínnst gott
að þurfa ekki að skrönglast niður á safn.
Skræðumar höfða ekki til mín þessa stund-
ina. Hvað hef ég haft upp úr öllu þessu
grúski nema skallann? Til Frankfurt hélt
ég með mikinn lubba. Þá var sítt hár tákn
þjóðfélagslegrar andstöðu. í París byijaði
hárið að þynnast. Ég hélt fyrst að það
væri út af menguninni í neðanjarðarbraut-
unum en það getur líka hafa stafað af því
að á þeim tíma gekk ég alltaf með derhúfu
einsog Lenín. Á morgnana lágu hárin á
koddanum. Ég dustaði þau af herðunum,
tíndi þau jafnvel upp úr léttvínsglösum og
expressóbollum. Samt varð skallinn ekki
áberandi fyrr en eftir að ég var fluttur til
Kaupmannahafnar.
Þó Danir sýni sköllóttum karlmönnum
vissa velvild héldu æðahnútamir áfram að
þvælast fyrir mér. Hjólreiðatúrar á góðviðr-
isdögum hafa oft sett mig í mikinn vanda.
Ég hef aldrei kunnað við mig á stuttbuxum
en fundist jafn óviðeigandi að vera kapp-
klæddur þegar allir aðrir eru á stuttbuxum.
Æðahnútamir hafa dregið að sér athygli.
Bendi einhver með fingri kemur sturtuklef-
inn upp í hugann. Raddir sem ávarpa mig
verða að nöktum skólastrákum.
Nótt eina í nóvember var ég á leiðinni
heim eftir kráarrölt. Þegar ég var kominn
að-litlu brúnni við síkið, rétt hjá torginu,
stoppaði ég til að virða fyrir mér ljóskerin
og trén sem speglast í síkinu. Það var búið
að loka djasskránni á horninu. Tunglbjarm-
ann bar við gluggana á yfirgefnu skipa-
smíðastöðinni, lýsti þá upp einsog
atvinnulaus vofa. í íjarska sá ég gult hús
umgirt tijám.
Ég hélt ég stæði þama einn í kaldri kyrrð
næturinnar þegar fimm menn í kuldaúlpum
höfðu allt í einu umkringt mig. Mér brá.
Þegar ég sneri mér við sá ég augu þeirra.
Þau voru gráleit og gljáandi, mennirnir all-
ir náfölir. Ég flýtti mér oní frakkavasann
til að ná í peninginn sem ég var með á
mér. En þegar ég ætlaði að rétta þeim
seðlana héldu þeir einnig á seðlum sem
skulfu einsog lauf milli fingranna. Þá tók
ég til fótanna. Næst þegar ég vissi lá ég
hríðskjálfandi undir sæng. Ég bylti mér í
hvert sinn sem ég var byijaður að selja eitur-
lyf á brú.
Ég vaknaði við hávaða í loftpressu
skömmu eftir hádegi. Þá var ég kominn út
á gólf, lá í frakkanum og hélt um höfuðið.
í draumi var Sjefferhundur að bíta mig í
rassinn. Ég var ekki bara sveittur heldur
klæjaði mér, einkum innanvert á lærunum
og í kringum kynfærin en líka uiidir handar-
krikunum og á milli tánna. Ég fór fram og
þvoði mér með naglabursta. Kláðinn hvarf
og kom ekki aftur fyrr en ég var byijaður
að vinna við borðið mitt á bókasafninu. Svo
viðþolslaus var ég að safngestir litu við.
Ég minntist þýska guðfræðiprófessorsins
sem fór yfir um í fyrra og byijaði að kenna
safnvörðunum um að hafa hafið seinni
heimsstyijöldina. Niðri á klósetti sá ég í
speglinum að skallinn var kafrjóður og hár-
in í hliðunum óvenju rytjuleg.
Á leiðinni heim sá ég mennina fjóra en
nú voru þeir á brúnni hinu megin við göt-
una. Voru þeir að horfa á mig? Kannski
átti ég tvífara sem seldi eiturlyf. Ég flýtti
mér áfram, svo staðráðinn í að halda mínu
striki að á torginu gekk ég beint í flasið á
öðrum hópi. Ég rak mig óvart utan í einn
þeirra. Hann var svo grindhoraður að hann
valt um koll. Tveir félagar hans bölvuðu
mér án þess að líta upp. Þeir voru báðir
með barðastóra hatta en þegar þeir ætluðu
að hífa hann duttu þeir sjálfir. Hvert sem
ég leit sá ég náföla úlpuklædda menn með
gráleit augu sem gljáðu. Þeir stóðu í hnapp
upp við þvottahúsið, báðum megin við dym-
ar á vídeóleigunni og í portinu þegar ég
opnaði dyrnar. Einn sem var útsteyptur
kýlum hallaði sér nötrandi upp að bíllugt.
Ég mundi miðaldir rétt fyrir daga plágunn-
ar. í stiganum steig ég á sprautu. Ég flýtti
mér upp.
Nú var ég einn með kláðanum. Ótal flug-
ur sveimuðu undir húðinni og suðuðu. Næsta
morgun var ég mættur á biðstofuna áður
en dr. Nielsen kom. Sumir eru á móti dr.
Nielsen. Þeir segja að hann þjást af alvarleg-
um sljóleika. Ég fletti nokkrum litskrúðug-
um blöðum og var að skoða ljósmyndir úr
brúðkaupi sjónvarpsfréttamanns þegar dr.
Nielsen kallað mig inn. Ég háttaði og lagð-
ist uppá bekk. Kláðinn reyndist ómerkileg
sveppasýking. Síðan stóð dr. Nielsen álengd-
ar, virti mig fyrir sér og var hugsi. Hann
hafði aldrei séð mig svona fáklæddan fyrr.
Þegar hann hætti að vera hugsi benti hann
á æðahnútana. „Þetta er ljótt,“ sagði hann.
„Finnst þér engin ástæða til að láta fjar-
lægja þá?“ Ég kinkaði kolli en spurði: „Tekur
það langan tíma?“ Dr. Nielsen yppti öxlum.
„Svona korter tuttugu mínútur."
Með tilvísun á áburð sem eyddu sveppum
og símanúmer hjá æðahnútasérfræðingi í
öðrum borgarhluta er alls ekki hægt að
segja að ég hafí gengið tómhentur út frá
sljóum lækni. Dr. Nielsen vissi hvað hann
söng og ég vil alls ekki kenna honum um
hvernig síðar fór. Kláðinn hvarf, ég gat
sest við fræðistörf á ný og einn daginn
mannaði ég mig upp og hringdi úr símklefa
bókasafnsins í dr. Thorup, æðahnútasér-
fræðing í Fredriksberg, og pantaði hjá
honum tíma. Ritarinn sagði að ég gæti kom-
ið eftir tæpaþijá mánuði, í byijun febrúar.
Ég merkti febrúardaginn með rauðum
hring; og nú liðu dagarnir hratt. Ég brun-
aði áfram í doktorsritgerðinni. Ég var svo
önnum kafinn að jólin sigldu framhjá mér
og ég tók ekki eftir áramótunum fyrr en
unglingamir í hverfínu sprengdu símklefann
á hominu í loft upp. Á nýársdag lauk ég
við kaflann um „Saurlífi í klaustrum". En
ekki nóg með að ég brunaði áfram í doktors-
ritgerðinni; ég hætti líka að taka eftir öllum
náfölu mönnunum sem eigmðu úlpuklæddir
um göturnar með gráleit gljáandi augu.
Samt fór þeim stöðugt fjölgandi. Þeir
komu úr öllum áttum en enginn vissi ná-
kvæmlega hvaðan. Nú stóðu þeir ekki bara
á torginu og við brúna, ekki bara í anddyr-
um og portum. Þeir lögðu líka undir sig
alla trébekkina í þvottahúsinu, mynduðu
langar biðraðir í apótekinu og komu sér
fyrir á gólfínu í útibúi bæjarbókasafnsins.
Sölumenn í leðuijökkum stóðu upp við ljósa-
staura eða vom með sérstakar íbúðir á
sínum snæram. Það var líka verslað í
skúmaskotum, í portum, bakgörðum og inná
klósettum á krám. Þegar íbúamir tóku sig
saman og sögðu hingað og ekki lengra hafði
fjöldi innbrota fímmfaldast. Allar þjófabjöll-
ur vom uppseldar í verkfæraversluninni á
hominu. Hverfið flaut í einnota sprautum.
Þær lágu einsog hráviði á götum, gangstétt-
um og í bakgörðum. Oft tóku lítil böm þær
upp og fóm í læknaleik og starfsfólk bóka-
safnsins gat ekki gengið örna sinna án þess
að blóðugar sprautur mættu augum þeirra.
Félagsmálaskrifstofur klómðu sér í koll-
inum og lögreglan hristi höfuðið. Stundum
stefndu blá blikkljós að úr öllum áttum og
stórar lögreglurútur umkringdu torgið. Þeir
sem lögreglan tróð inn í rúturnar vom hins
vegar aðallega rónar og aðrir þeir sem tóku
á móti henni með viðeigandi fagnaðarlátum
og handapati. Eitt sinn hirti hún feita bar-
þjóninn á djasskránni. Sömuleiðis voru
ljóðskáldið með pijónahúfuna, sem alltaf
þuldi sömu slitróttu línumar á nóttunni,
háværi húsvörðurinn og drykkfelldi ungling-
urinn með fuglabúrið tíðir gestir á stöðinni.
Kannski fylgdu nokkrir úlpuklæddir vesal-
ingar með en þeir vom jafnóðum komnir
aftur. Sölumennimir virtust hins vegar allt-
af ganga lögreglunni úr greipum, einsog
þeir yrðu ósýnilegir um leið og hún birtist
eða það væri alls ekki verið að leita að þeim.
Það var allt í lagi með drykkfellda ungl-
inginn, háværa húsvörðinn, ljóðskáldið með
pijónahúfuna og feita barþjóninn. Enginn
kvartaði yfir þeim. Ekki frekar en mér sem
er sköllóttur og vinn að doktorsritgerð um
portkonur eða halta reiðhjólasalann sem í
frístundum leikur á rafmagnsbassa. „Það
er hins vegar óviðunandi ástand að börn
okkar skuli leika sér að blóðugum sprautum
og að innbrot séu orðin svo tíð að lögreglan
sjái sér ekki einu sinni fært að veita kæmm
viðtöku," en þannig var það orðað í dreifi-
bréfinu sem bæði datt inn um bréfalúguna
og mér var þrívegis afhent úti á götu.
Næsta morgun kom fögur kona í kulda-
úlpu og spurði hvort ég væri tilbúinn að
vera á vakt fyrir utan apótekið. Það átti
að góma eiturlyfjasjúklinga um leið og þeir
kæmu til að ná sér í sprautur. Þeim skyldi
boðin meðferð; ella skyldu þeir hafa sig á
brott úr bæjarhlutanum og ekki láta sjá sig
Ég er að reyna að rísa á lappir. Þegar
allt í einu birtast fimm vaktmenn með
rauða borða á handleggjunum og tvo
sjefferhunda í broddi fylkingar. Ég
rétti upp aðra höndina en í stað þess
að hjálpa mér upp hoppar annar
sjefferhundanna á mig og heldur mér
föstum í orðlausum ótta ££
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 21. DESEMBER 1987 1 1