Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Side 10

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Side 10
Dauðinn og stúlkan, 1915. Fegurð hnignunar og ótímabær dauði voru mynd- efni, sem alla tíð stóðu Egon Schiele nærri. Arfurinn Adele, systir Ediths, skrifaði hjá sér síðustu orðin, sem hinn dauðvona sagði: „Stríðinu er iokið — og ég verð að fara. — Það á að sýna málverkin mín í öllum lista- söfnum heims! — Það á að skipta teikningun- um mínum milli ykkar og míns fólks! Og eftir tíu ár á að selja þær.“ Listamaðurinn, sem vill hafa hönd í bagga með frægð sinni að honum látnum — það er reglan, ekki undantekningin. Schiele mat markaðshorfurnar fyrir verk sín réttilega, en honum skjöplaðist einungís í mati sínu á lengd biðtímans, hélt hann verða styttri heldur en reyndin átti eftir að leiða í Ijós. Eins og dauða hans bar að á sama tíma og tilkynnt var um lok heimsstyijaldarinnar fyrri, og þær fféttir yfirgnæfðu því andláts- fregnina, þannig féll líka tregablandin loka- ákvörðun Schieles varðandi örlög iistaverka hans algjörlega í skuggann af upplausn og sundurlimun austurríska keisaradæmisins; enginn veitti ákvörðun hans hina minnstu athygli í þeim heimssögulega darraðar- dansi, sem þá stóð yfir. í því ríkiskríli, sem Austurríki varð upp úr 1918, hafði enginn lengur minnsta dálæti á list, sem hvorki fól í sér neitt háleitt til eftirbreytni, né heldur neinn' vonarboðskap. Slík list hlaut því enga viðurkenningu þar í landi, a.m.k. ekki fyrst um sinn. I allri þeirri ólgu og þeim tvístringi sem ríkti í innanríkismálum smáríkisins Austurríkis komust menn almennt á á skoð- un, tíu árum eftir dauða Schieles, að verk hans bæri að skoða sem list hins „fuli- komna“ listskapaðar. Hann var þá ekkert minna en það. Listrænn línudans Schieles leiðir í ljós hneigð hans til spennu og átaka. Ein af sjálfsmyndum hans, sem hann teiknaði í Neulengbach-fangelsinu, ber heitið „Ég elska andstæður". Vissi hann, að listsköpun hans sjálfs fól í sér andstæðu við liststefn- una die modeme, sem á þeim árum var alls staðar, milli Parísar og Mílanó, Berlínar og Múnchenar, álitin framúrstefna og tákn réttrar listþróunar? í þeirri liststefnu lenti hið viðtekna tjáningarkerfi listarinnar í krumlunum á þeim aðilum, sem vildu gera hreint borð og taka listsköpun alveg nýjum tökum. Fjarvíddar niðurskipan myndsviðsins og þrívíddar tækni hvarf í skugga kúbism- ans. Manneskjur og hlutir urðu að torræðu höfðaletri, anatómískri niðurröðun og hlut- föllum var varpað fyrir róða, og litameðferð látin tala sinu eigin máli, laus úr öllu sam- hengi við náttúrulega liti umhverfisins. í Edith Harms, sem varð fyrsta og eina eiginkona Schieles. Myndin er frá 1918, sama árinu ogþau dóu bæði úr spönsku veikinni. •> Aárinu 1915 segir Schiele skilið við Wally Neuz- il, ástmey sína, sem árum saman hafði á sinn auðsveipa og þó ögrandi hátt staðið svo fús- lega módel fyrir hann. Schiele gengur að eiga smáborgaradótturina Edith Harms. Það er Síðari hluti greinar um austurríska myndlistarmanninn EGON SCHIELE, sem féll frá fyrir 70 árum, hneykslaði samtíð sína með framferði sínu og myndum, sem nú seljast fyrir svimandi upphæðir ef þær koma á uppboð. Eftir WERNER HOFFMANN einna líkast því að listskö])un hans, borin uppi af nýrri fijósemi, nái upp frá því að vekja heiminn aftur til lífs úr dauðastjarfa. Ur línunni hverfur allt hið skerandi ómst- ríða, og hún fer að taka á sig rólega festu. Munaðarfull gnótt og ávöl form taka að ná yfirhöndinni yfir hinu hrörnandi og út- glennta. Úr myndefninu hverfur þá líka skelfingin og styggðin í látæði, naktar myndverur hans hafa ekki lengur til að bera neina stórlega ýkta tilfinningasemi marghrakins bágindafólks. Við samfundi kynjanna tekst honum að ná fram gagn- kvæmum tilfinningalegum þreifingum þeirra á milli, viðhorfin eru ekki lengur stríndbergsk ofsabræði, en það ber heldur ekkert orðið á markvissri afhjúpun. I náttúr- unni rýfur iðuleg frjósemin þurra, lífvana jarðskorpuna. „Allir mosarnir koma yfir til mín og hjúfra lífi sínu voðfelldu að mínu.“ Þannig kemst Schiele að orði þegar árið 1910 í bréfi sínu til Antons Peschka. Núna tekur Schiele að leiða mönnum þessa upplif- un sína fyrir augu á myndrænan hátt: Sams konar þokka og þess, sem kvenlíkaminn er gæddur, gætir nú í fjallalækjum Schieles og mjúkum ávölum landslagssviðum. Sköp- unarhæfnin kastar þó engan veginn spar- seminni fyrir róða, þótt hún þurfi samt ekki lengur á áreynslumiklu meinlæti að halda. Einkennandi fyrir þessa stefnubreytingu er eitt atriði í málverki Sehieles. Úr „Elskend- unum“, sem meinað er að njótast, tekur Schiele samanhnipraðan kvenlíkamann og notar hann í gúmmístimpil (sem hann merk- ir bréfsefni sitt með) eftir að hafa breytt þessum líkama’ í útlínur móður, sem leikur sér við bamið sitt. Úr eintalinu verður sam- tal. Vinátta, 1913, blönduð tækni. Schiele lét eftir sig mikið af erótísk- um myndum, þar sem hann byggði á fyrirsætum, einni eða fleirum. „Stríðimi er lokið - og ég verð að fara“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.