Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Blaðsíða 19
m/SÍA 21.05 Tilbúin „suðrœn baðparadís" undir þaki. lengur. Náttúrufegurð, friðsæl fjallavötn, skóglendi og andrúms- loft bæja og borga í Mið-Evrópu er farið að draga íslendinga til sín. Sumarhúsahverfin bjóða land- anum upp á sama félagsanda og sólarstendur Spánar, þar sem margir íslendingar taka sumarfrí saman. Tungumál sem fáir tala heldur íslendingum saman, en kannski er það líka samheldni hjá lítilli þjóð sem finnur smæð sína enn meir á erlendri grund. Rútuferðir eða bílaleigubíll með Litla sólklúbbinn fyrir yngri kynslóðina. íslendingar á öllum aídri vilja greinilega skemmta sér saman af lífi og sál í Spánarferð- um. Önnur mið- jarðarhafslönd Italía hefur um árabil verið annar helsti sumarleyfisstaður íslendinga. ítalir koma í síauknum mæli til íslands og Arnarflug er að he§a áætlunarflug til Mílanó svo að trúlega verða tengslin milli þjóðanna enn meiri. Saga býður nýjan stað á Ítalíu í tengslum við Amarflug. Skrifstofan býður einnig gististaði á frönsku „rívíer-, unni“ og er áfram með ferðir til Túnis. Italía býður upp á svo marga áhugaverða skoðunarstaði, að Italíuferð verður oft meira skoðunar- en sólbaðsferð. Frakkland hefur orð á sér fyrir að vera dýrt, þó að Frakkar stað- hæfi að þar sé hægt að finna rútuferðir um ólík lönd. Rútuferð- ir eru nokkuð hefðbundinn ferða- máti, en ferðaskrifstofan Útsýn byijaði með þær, meðal annars í gegnum dönsku ferðaskrifstofuna Tjæreborg. Þær eru einn besti ferðamátinn fyrir fólk sem hefur áhuga á sögu landanna og vill láta leiða sig í gegnum fallega, áhugaverða staði. Góð fararstjórn í rútuferð hefur geysilega mikið að segja og oftast eru fararstjórar búnir að kynna sér sérstaklega sögu viðkomandi landa. Yfirleitt er það eldri kynslóðin sem sækist eftir rútuferðum, fróðleiksfúst fólk eða fólk sem er ekki vant að ferðast á eigin vegum. Allar ferðaskrifstofurnar bjóða upp á flug og bíl, sem er tiltölu- lega nýr og mjög vinsæll ferða- máti. Flugleiðir byijuðu að bjóða „flug og bíl“ í tengslum við sína áfangastaði. Þessi ferðamáti krefst sjálfstæðis og nokkurrar þekkingar í ferðalögum. Kannski hentar hann betur þeirri kynslóð sem hefur alist upp við ferðalög. Atlantik og Saga bjóða upp á Sumarhús í hlýlegu umhverfi í Þýskalandi. „Flug og bOI“ sjálfstæður ferðamáti. verð við allra hæfi. Tungumála- erfíðleikar hefta nokkuð ferðir þangað og nýleg krafa um vega- bréfsáritun. En þeir sem elska góðan mat og vilja reyna eitthvað nýtt á því sviði verða ekki fyrir vonbrigðum. Túnis er of framandi land til þess að margir Islendingar fari þangað. Sumir verða heillað- ir, en öðrum finnst það of fram- andi. Túnis er heillandi heimur Múhameðstrúar með gjörólíkum lífsháttum og siðvenjum frá því sem við eigum að venjast. Sumarhús og bíll Atlantik, Ferðamiðstöðin og Pólaris bjóða úrval af sumar- húsum víðsvegar í Evrópu. Dvöl í sumarhúsum erlendis er tiltölu- lega nýr ferðamáti hjá íslending- um. Segja má að sumarhúsadvöl erlendis hefjist þegar Samvinnu- ferðir fara að bjóða hollensku sumarhúsin. Síðan hefur eftir- spum eftir sumarhúsum stórauk- ist og fer vaxandi. Þjóðvetjar eru farnir að byggja upp svipaðar „baðparadísir" og Hollendingar. Veðrið hefur lítil áhrif á sumar- leyfísfólkið, þar sem öll aðstaða er undir þaki. Fólkið sem nýtir sumarhúsin er mest fjölskyldu- og barnafólk eða áþekkt fjölskylduform og sól- arlandafjölskyldan á Spáni. í sum- arhúsunum eiga fjölskyldur fastan samastað í sumarfn'inu, eru alveg út af fyrir sig, en geta flakkað um að vild. Sólin og sand- ströndin em ekki eins ríkjandi Nýjung. Farþegar Sögu fá í hend- ur sérstakt afsláttarkort sem gildir í fjölda verslana og veitingastaða. DAGFLUG A FIMMTUDOGUM CostaDelSol Við leggjum ,áherslu á 1. flokks fjölskylduíbúðir ávöldum gististöðum, eins og |PRINCIPITO SOL og SUNSET BEACH CLUB, sem bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. 2-3 vikur, íslenskur fararstjóri. Verð frá 31.005 kr.* 4 í íbúð 37.736 kr. 2 í íbúð 40.492 kr. FERDASKRIFSTOFAN LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. MARZ 1988 19

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.