Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Blaðsíða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 19.03.1988, Blaðsíða 23
Hann mótar ímynd Islands í Bandaríkjunum „ÞAÐ ER ekki nóg að hamra alltaf á Gullfoss og Geysi. Nýjar sögur, nýjar fréttir af því sem er að gerast í menningar- og ferðamálum í landinu verða stöðugt að vera tiltækar til þess að landið dragist ekki aftur úr í samkeppninni um ferðamann- inn,“ segir Bill Connor, sem markaðssetur Flugleiðir á Bandaríkjamarkaði og gerir sér nokkuð vel grein fyrir hvemig best er að „pakka landinu inn“ til þess að það seljist. Starf Bills er að móta jákvæða ímynd íslands á Bandaríkjamarkaði og er for- vitnilegt að heyra hvernig hann gerir það. Snjóhús og eskimóar á Islandi Ég veit að þið trúið því ekki hve margir Bandaríkjamenn þekkja ísland lítið, heldur Bill áfram. Þeir sjá ísland aðeins sem klett upp við Norðurheimskautið, þakinn ís og snjó. Og auðvitað hljóta þeir að álykta að þið búið í snjóhúsum. Mitt starf er að skrifa um áhugaverða menningar- þjóð sem býr það nýtískulega á þessum litla kletti að það er þess virði að heimsækja hana. Það er uppselt á söngleikinn Vesalingana fram til 1989 í New York. Það vakti mikla athygli þegar ég fór að hvetja Bandaríkja- Bill Connor, markaðsfulltrúi Flugleiða í Bandarikjunum. menn til að sjá söngleikinn á íslensku leiksviði. Ég geri alls ekki ráð fyrir að margir komi til að sjá Vesalingana hingað, en ég vakti athygli á íslandi þar sem verið er að sýna nákvæmlega sama söngleik og gengur best á Broadway. Ég segi söguna af Hófí, leik- skólakennaranum sem elskaði landið sitt svo mikið að hún lét ekki heillast af gullnum tilboðum um fyrirsætustörf, heldur sneri aftur. Ég segi að það séu fleiri sjávarréttastaðir í Reykjavík en í New York. „Það getur ekki ver- ■ ið,“ segja þeir. „Jú, vissulega, ef miðað er við íbúaíjölda," segi ég. írsk arfleifð ogjólasveinar Ég spyr: „Hvaða skandínávískt land var numið af írum“? Þetta vekur athygli, .þar sem margir Bandaríkjamenn eru af írsku bergi brotnir og fáir vita um írska arfleifð á íslandi. Þá fer ég að segja þeim frá Patreksfirði, Papey og Papósi og tala um „grænu bylgjuna á íslandi", þegar írar settust þar að. Ég segi frá þegar ég var úti í Vestmannaeyjum og ætlaði að taka götumynd af stað- arbömum og mér fannst ég allt í einu vera staddur í Dublin, þar sem svipmótið var svo líkt. „í Ameríku er aðeins einn jóla- sveinn, en á íslandi eru þeir þrett- án“, „Ótrúlegt, furðulegt," segja - þeir og vilja fá að heyra meira. Jólasveinasagan vakti það mikla athygli að nokkrir barnaskóla- kennarar vildu fá hana til að segja nemendum sínum. Bömin bera söguna til foreldra sinna og at- hygli er vakin á litla klettinum á norðurhjara veraldar. Páll og steinninn Vestmannaeyjar em ómissandi þáttur í kynnisferð, þegar banda- riskir blaðamenn koma til íslands. Þeir verða alltaf jafn undrandi þegar Páll Helgason fer með þá út að nýja hrauninu og segir: „Viltu taka upp þennan stein fyr- ir mig.“ Og steinninn er svo heit- ur að það er ekki hægt að halda á honum. Vestmannaeyjar era ' nútíma Pompei og hafa gífurlegt BÚLGARÍA 1988 Hótel/strönd: 24. mai 14. júní 5. og26.júlí 16.ágúst 6.sept 27. sept. Drushba/Grandhotel Vama: 2vikur 35.170 41.100 37.600 36.380 3vikur 42.200 49.900 44.600 40.990 Albena/Dobrudja: 2vikur 29.440 34.780 31.850 30.650 3vikur 33.540 40.340 35.950 34.750 Albena/Bratislava 2vikur 25.930 30.690 28.340 27.140 3vikur 28.270 34.200 30.680 29.480 Ferðaskrifstofa KJARTANS HELGASONAR Gnoðarvogi44 -104 Reykjavik - Sími91-68 62 55 Simnefni: Istravel - Telex: 2265Istrav-IS Innifalið í verði erflug KEF- LUX-VAR fram og til baka, gisting á hótelum í 2ja manna herbergjum rrteð baði, w.c./sturtu, hálftfæði (matar- miðar), leiðsögn, ath. ekki flug vallarskattur og annað ótalið hér. Verð er miðað við gengi US$ 20. jan. 1988 og breytist við breytingar hans gagnvart ísl. krónunni eða búlgörsku leva og breytingar á flugmiða- verði. Vöruflutningarí lofti sparatímaog Hraðsendingar samdægurs tii flestra staða. Eftirkröfuþjónusta tilogfrá26stöðum. Fraktafgreiðsiatil 37 staða á landinu. Fraktafgreiðsla Flugleiða Reykjavíkurflugvelli er opin ALLAVIRKA DAGA KL 8.00 TIL 18.00. Á LAUGARDÖGUM KL 8.00 TIL 12.00. Símarvöruafgreiðslu á Reykjavikurflugvelli: Skiptiborð 690100. Vörumóttaka: 690584. Vöruafhending: 690585. M Aiiaruppiýsingar áskrifstofum Fiugleiðaoghjá umboðsmönnum. FLUCLEIDIR LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. MARZ 1988 23

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.