Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 39

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 39
í garði Hvíta hússins, þegar Bandaríkjafoseti, George Bush ávarpaði gesti. Þarna má einnig sjá forsetafí’úna, söiigvarann Kenny Rogers og Jean Smith Kennedy. Islenzku þátttakendurnir voru: Birgitta Harðardóttir, Gunnar Gunnbjörnsson, Hildur Óskarsdóttir, Ingibjörg Arnadóttir, Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir, Sigfíis Svanbergsson, Jóhanna S. Guðmundsdóttir, Þorbjörg Guðlaugsdóttir og með þeim: Sigríður Eyþórsdóttir, Ieikstjóri, Eyþór Arnalds, aðstoðarmaður og höfundur tónlistar, Freyja Þorvaldsóttir, aðstoðarmaður og foreldri, og Helga Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður og kennari. Eins og mörgum er kunn- ugt er starfandi hér í Reykjavík leikhópur sem skipaður er þroskaheftu fólki. Þetta er leikhópur- inn Perlan. Þrátt fyrir töluverða aldursbreidd innan hópsins hafa þau öll fylgst að árum saman í námi og starfi. Markmið leikhópsins Perlunnar er að sýna leiklist á sviði og í sjónvarpi. Frá byrjun hafa þau flutt u.þ.b. 10 verk og sýnt víða og hlotið verðsluldað lof fyrir túlkun sína. Leikstjóri Perlunnar hefur verið frá upphafi Sigríður Eyþórsdóttur. í leikhópnum Perlunni er þroskaheft fólk, sem í sumar tók þátt í listahátíð fatlaðra í Bandaríkjunum. Hér er úrdráttur úr ferðasögunni. Eftir FREYJU K. ÞORVALDSDÓTTUR Sumarið 1988 fór Perlan til Noregs að frumkvæði íslenskra kvennasamtaka og sýndi tvö leikverk, „Sólin og vindurinn" og „Síðasta blómið", á norrænu kvennaráð- stefnunni Nordisk Forum. Nokkru áður en haldið var til Noregs barst leikhópnum boð um að koma til Banda- ríkjanna og taka þátt í listahátíð fatlaðra, Very Special Arts í Washington D.C., sem halda skyldi ári síðar, þ.e. í júní 1989. Very Special Arts, hér eftir skammstafað VSA, eru alþjóðleg samtök fatlaðra lista- manna og er stofnandi þeirra Jean Kennedy Smith systir John F. Kennedy fyrrum Bandaríkjaforseta en ein systir þeirra er þroskaheft. Fljótlega var hafist handa við undirbúning þessarar ferðar og veitti ekki af þeim tíma. Undirbúningsvinnan var margþætt og tímafrek og henni lauk í raun ekki fyrr en rétt fyrir brottför. Þegar nær dró fór mikil eftirvænting að gera vart við sig og hjá flestum miðaðist allt við fyrirhugaða Bandaríkjaferð. Það fór þó ekki hjá því að hjá okkur fylgdarmönnun- um var eftirvæntingin blandin örlitlum kvíða því við gerðum okkur ljóst að við vorum að færast mikið í fang með því að ferðast svona langa leið með þetta marga fatlaða einstaklinga og sumir líkamlega veilir að auki. Og svo kom sá langþráði dagur, föstudag- íslenzku þátttakendurnir í Listahátíð fatlaðra á þaki Kennedy Center. Talið fíá vinstri: Jóhanna Guðmundsdóttir, Hildur Óskarsdóttir, Sigríður Eyþórs- dóttir, leikstjóri, Birgitta Harðardóttir, Ingveldur Ólöf Ragnarsdóttir og Hildur Davíðsdóttir. aði og eftir 5 klst. bið var lagt í hann í örlítilli reilu frá American Airlines sem okk- ur leist tæplega á að væri fær um að koma okkur heilum á áfangastað. En allt gekk vel. Við vorum fyrstu þátttakendur VSA sem mættu til leiks og höfðum líka stóran mat- sal út af fyrir okkur fyrsta daginn. En síðan mættu hópar frá hinum ýmsu iöndum, hver af öðrum svo að í matsalnum sem annars staðar var nú þéttsetinn bekkurinn. Þátttak- endur VSA komu frá 50 ríkjum Banda- ríkjanna og 50 þjóðlöndum að auki. 14. júnf var okkur boðið í bústað íslensku sendiherrahjónanna í Washington. Þar átt- um við skemmtilegar stundir með sendi- herrahjónunum og starfsfólki sendiráðsins ásamt fleiri gestum. ■ Daginn eftir var móttaka í Hvíta húsinu, þ.e.a.s. í stórum garði hússins. í dagskrá hátíðarinnar lásum við að í stað þess að borða hádegisverð í matsalnum áður en lagt yrði af stað í rútum til Hvíta hússins æitu menn nú að sækja þangað matarpakka og skildum við það svo að matinn ættum við að hafa meðferðis í móttökuna sem nesti. En fljótlega tókum við eftir því að engir aðrir voru með svona mikið meðferðis og fór okkur að skiljast að þarna hafði okkur orðið á í messunni. Auðvitað áttum við að borða matinn heima áður en við lögðum af stað. Til þess að komast inn í garðinn þurfti að fara í gegnum hluta hússins þar sem vopnaðir öryggisverðir sáu um að allur urinn 9. júní 1989. Flugið var þægilegt og virtist örstutt þó það tæki u.þ.b. 6 klst. I New York og nágrenni var heillirigning og þrumuveður, svo fluginu til Washington D.C. var frestað aftur og aftur. Við vorum þó einu sinni kölluð út í vél, en rekin strax inn aftur. Og þvílík rigning! En veðrinu slot- Greinarhöíundurinn, Freyja K. Þor- valdsdóttir, ásamt Þorbjörgu Guðlaugs- dóttur. Ánægja og sköpunargleði skein af hverju andliti LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 39

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.