Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 43

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 43
i-Egnm [m o r g u n b l a o: s. I;ÍN ÍSj 19. DESEMBER 1989 FERtMBIáÐ LESBÓKAR Silfurskrínið sem varðveitir líkama heilags Fransis Xavier. Ævintýra- strönd Indlands Góa, með fjarlæga draumavídd af hvítum pálmaströnd- um og stórkostlega aðstöðu fyrir ferða- menn. Og „Róm aust- ursins" á heimsveld- istíma Portúgals geymir eitt mesta að- dráttarafl ferða- manna á Indlandi - órotinn líkama heil- ags Fransis Xavier í silfurskríni Frá yfirþyrmandi mann- fjölda Bombay er aðeins 50 minútna flug inn í paradís hvítra, friðsælla stranda, sem teygja sig yfir 105 km. Pálma- skógar mynda skörp skil við hvíta sandhóla og blátært Arabahaf. Á skilum sands og pálmalunda standa aðlaðandi ferðamannaþorp. Þau ná ekki út fyrir trjálínu, teygja sig ekki upp fyrir tijákrónur, en falla inn í landslagið eins og þau hafi staðið þar um aldir. Skrítin tilfinning að vera inni í skógi, þegar gengið er eftir opn- um hótelgangi. Litríkir fuglar og fiðrildi, meinleysislegar eðlur, en líka einstaka ókennileg skordýr setja að manni hroll. En allt er vel þrifið og nýmálað. í Góa verð- ur að þrífa og mála allt utan dyra árlega. Þriggja mánaða monsún- rigningar (júní-september) klæða allt með grænni slikju. Monsún- regnið dregur til sín svarta ferða- menn frá sólþjakaðri Afríku, sem Mikill íburður er í kirkjum Gou. geta setið tímunum saman og horft á regndropana falla! Út um gluggann sést niður á sjóræningjavirki frá dögum Port- úgala, sem réðu yfir Góu frá 1510-1967. Hafið dregur til sín og gaman er að sitja á virkinu og hugsa til fyrri tíma. Vegna náttúruauðæfa og staðsetningar var Góa miðpunktur á tímum sjó- ferða. „Govapuri“ var Góa nefnd vegna kryddsins sem flæddi héð- an. Múhameðstrú barst hingað, með pílagrímum á leið til Mekku. Krossinn kom með Portúgölum, sem krýndu Góu austræna drottn- ingu síns sjóveldis. Portúgalar sigldu til Góu fyrir Góðrai’vonar- höfða og héðan til Kínahafs, með galeiðurnar hlaðnar af ilmandi kryddi, austurlensku silki, grát- andi þrælum, gulli og gimsteinum. Hlýr andvari leikur um ósnortna strönd og sólin er hættu- lega heit. Mannverur á gangi hverfa út í auðnina eða fela sig á milli hvítra sandhóla. Skyndi- lega birtist mjálmandi köttur og á eftir honum kemur kona með flögrandi, litríkar silkislæður. Hún vefur þeim um mig og keppist við að breiða útsaumaða dúka á sandinn. Bækistöð hennar er inni í sandhólunum og þar eru fleiri dúkar og jafnvel útsaumaðir bak- pokar! Með fingramáli er auðvelt að prútta og tölur eru skrifaðar í sandinn. Og ekki er verðið hátt! Sölufólki er bannað að sýna sig á ströndinni, nema á vikulegum strandmarkaði, svo viðskiptin eru ólögleg! Skoðunarferð meðfram strand- lengjunni sýnir fleiri ferðamanna- þorp í undurfögru umhverfi - á klettabrúnum - lengst inni í skógi - við stöðuvötn, en Góa er sundur- skorin af ám og vatnasvæðum. Hér er gott að hvíla sig frá streitu- hlöðnum stórborgum Evrópu. Það fannst hippunum líka, sem hópuð- ust hingað á sjötta áratugnum. Bjuggu um sig í tjöldum á strönd- inni, týndu ávexti og lifðu sínu „fyrirmyndar“ letilífi! En Indveij- um fannst þeir sóðalegir og borga lítið fyrir sig! „Sem betur fer ei-um við búnir að losa okkur við þann ófögnuð," segir leiðsögumaður- inn. Núna er ströndin vel hirt og vöktuð. Vel búnum sumarhúsum þjónað frá hótelum og margskon- ar íþróttaaðstaða er í boði. í víkunum eru fiskikarlar að mála báta sína eða gera að netum fyrir kvöldróður. Gjöful fiskimið eru rétt utan við ströndina og ferðamenn geta komist í veiði og jafnvel krækt í þann stóra. Um kvöldið eru framreiddir grillaðir risahumrar við sundlaugina, hið mesta hnossgæti. Og kókoshnetu- ávaxtablöndu í Góa verða allir að prófa. Fiskréttir eru mjög fjöl-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.