Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1989, Blaðsíða 17
Einar brá oft fyrir sig ferskeytlunni. í Ólafs rímu Grænlendings eru hvorki meira né minna en 157 erindi, öll dýrt kveðin: Kólga norðurs faðmar fjöll, fölvar strýkur grundir. Ólga storðar fossaföll fannabríkum undir. Sumar vísur Einars eru ástarljóð, til dæmis þessi: Siglir dýra súðin mín, sveipuð himinbjarma, yfir heimsins höf til þín, hrundin bjartra arma. Veit ég hjúpa léttust lín leyndir dýpstu barma.- Teyga ég þinna vara vín, -veigar sælu og harma. Einatt siglir súðin mín sæl til þinna arma. Það er alkunnugt, að lindir skáldskapar- ins voru mjög teknar að þorna, þegar Ein- ar fluttist til Herdísarvíkur, enda heilsan tekin að bila. í síðustu utanferð sinni til Túnis orti hann nokkrar vísur og sumir segja, að í Herdísarvík hafi hann ort vísu, sem vel er þekkt og getur staðið sem eins- konar punktum finale fyrir lífsverk skálds- ins: Falla tímans voldug verk -valla falleg baga- snjalla ríman stuðlasterk stendur.alla daga. í heildarútgáfu forlagsins Braga á ald- arafmæli skáldsins er þessi vísa þó ekki höfð með, sem væri við hæfí, ef hún er það síðasta sem Einar orti. Hugsanlegt er, að einhveijir hafi ranglega eignað Ein- ar vísuna og eru bókmenntamenn beðnir um að láta í sér heyra, svo hægt sé að hafa það sem sannara reynist. IV Sá maður sem hafði mest samneyti við Einar í Herdísarvík, fyrir utan sambýlis- konu skáldsins, var Ólafur Þorvaldsson, bóndi á jörðinni og leiguliði hjá Einari eft- ir að hann fluttist til Herdísarvíkur. Ólafur hafði búið í Úthlíð í sambýli við foreldra mína, en sóttist eftir ennþá betri beit fyr- ir fé sitt og mikið orð fór af fjörubeit í Herdísarvík. Túnið var hinsvegar aðeins smá blettur og útslægjur nánast engar. Ólafur var einstaklega greindur og glöggur maður; merkur fræðimaður og gaf m.a. út rit um sögu Hafnarfjarðar og Harðspora, sem er ýmis þjóðlegur fróðleik- ur. Eftir að hann hætti búskap í Herdís- arvík, varð hann þingvörður og stundaði ritstörf. Ólafur sagði mér, að fyrsta kastið hafði verið mjög ánægjulegt að búa með Einari á þessum afskekkta stað. Hann átti þá sínar góðu stundir og fór á kostum, en stundum, sagði Ólafur, ruglaðist hann al- veg og stikaði um hlaðið í Herdísarvík og hélt að hann væri á Trafalgar Square í London. Og smám saman fækkaði þeim stundum, að Ólafur gæti talað við hann svo gagn og ánægja væri af. Herdísarvík er afskaplega sérkennilegur staður. Þó nú sé hægt að aka þangað á innan við klukkutíma úr Reykjavík, hefur maður samt sem áður tilfinningu fyrir mikilli afskekkt. Þetta er eins og staður við yzta haf. En það er skemmtilegt að ganga eftir hraunbollunum út með ósnum og fram á fjörukambinn, þar sem „strand- mölin grýtir landið“ eins og Einar sagði. Og svo þetta snarbratta fjall að baki. Héðan var farið til Hafnarfjarðar í kaup- stað og liggur göngugata, sem enn sést vel, yfir fjallið og niður hjá Helgafelli. Reykjanesskaginn var kostarýr og ennþá rýrari er hann orðinn núna. Ekki þarf að fara aftar í tímann en á fyrripart þessarar aldar til að finna tals- verða byggð á skaganum, sem nú er fyrir löngu komin í eyði. Mörg býli voru austur af Krýsuvík. Fyrir nútímafólk er nánast óskiljanlegt hvernig hægt var að búa á svo kostarýru landi og framfleyta fjöl- skyldum. En það tókst einhvernveginn; á örlitlu kotbýli, sem eitt sinn sfóð við veg- inn, rétt austan við Krýsuvík, var 14 börn- um komið til manns. V Á fyrsta og öðrum áratugi aldarinnar var svo þröngt setinn bekkurinn í sveitum, að ungt fólk sem vildi heíja búskap, átti nánast enga möguleika, ef það gat ekki tekið við búskapnum af feðrum og mæð- rum. Sumir fluttust til Ameríku af þessum ástæðum og aðrir reyndu að hola sé niður þar sem manni sýnist núna, að engir af- komumöguleikar hafi verið. Ef ég man rétt, var það 1913, að ung hjón austan úr Laugardal, sáu þann kost einan til að geta hafið búskap að koma sér fyrir í hellinum á Laugardalsvöllum og fyrsta barnið þeirra fæddist þar. En það var ekki bara húsaskjólið í hellinum, sem dró þau þangað, heldur slægjurnar á völlunum, allt kúgæft hey. Frá sumarbústöðunum í Brekku- og Miðhúsalandi sést norður yfir viði vaxið hraunið. Lengst norður við Brúará heitir Hrúthagi; þar er dálítil hæð og mýrlendi niður frá henni, sem hraunið hefur ekki runnið yfir. Á öðrum tugi aldarinnar flutt- ist landlaus fjölskylda út í Hrúthaga og byggði sér bæ, þótt ekkert væri túnið og ekki annan heyfeng að hafa en þann sem reyta mátti í mýrinni. Sá búskapur stóð ekki lengi, en eftir standa tóttir, sem segja sína sögu um harða lífsbaráttu. Það er tímanna tákn, að í Miðhúsa- hrauni, skammt frá Hrúthaganum, er Verzlunarmannafélag Reylqavíkur að byggja heilt hverfi sumarbústaða; já vetr- arbústaði einnig, því þarna verða öll hugs- anleg nútíma þægindi og lúxus; þangað er lögð hitaveita frá Efri Reykjum og plast- ker, sem eiga eftir að verða heitir pottar, lágu þama eins og hráviði í vetrarbyijun. Raunar er orðið rangt að kalla þetta sum- arbústaði, því fólk fer þangað árið um kring, líka að vetrarlagi, ef ekki gerir ófasrð af snjó. Á þessum slóðum, þar sem greinar- höfundurinn eltist fyrmm við fé og leitaði að kúm, er nú orðið talsvert þéttbýli og það era sannarlega engir smákofar, reistir af vanefnum, sem þar blasa við. Mér skilst, að sumarbústaðir af algengri gerð, sem nú era framleiddir á sérstökum verkstæð- um, kosti á bilinu 2,5 - 3 milljónir. Þá er eftir að kaupa allt, sem á að vera innan- stokks. Það blasir einnig við, að við ótrú- lega marga þessara nýju bústaða, standa bílar, sem kósta nú vel yfir 2 milljónir. Mitt í öllum harmagráti efnahagsmálanna er ekki hægt annað en að undrast hvað svo mikil velmegun er algeng. Og þar sem skógarþrösturinn var áður einráður með sína músík og einstaka spói og hrossa- gaukur tóku undir, þar heyrist nú fremur í bílaumferð, ellegar ómur af einhverri síbyljurásinni úr viðtæki. Og í bland við ilm af birki má æði oft á síðkvöldum greina ilm af glóðarsteiktu kjöti; grillveizl- ur þykja ómissandi þegar dvalið er í bú- stöðunum. VI Fólkinu sem flutti með fátæklegar fögg- ur sínar út í Hrúthaga og í hellinn á Laug- arvatnsvöllum, hefði áreiðanlega þótt þetta undarlegt mannlíf. Þá var ekki hægt að ímynda sér líf í sveit, nema þar væra slægj- ur, jafnvel rýrar beijur vora betri en ekki neitt. Nú era aliar horfur á því, að fleiri og fleiri jarðir við hlíðina frá Laugarvatni til Gullfoss verði sumarbústaðaland eða athvarf fyrir einhverskonar útivist og sport, ekki sízt hestamennsku. Það er vita- skuld með öllu óþarft, að sauðfjárbúskapur sé rekinn á þessu svæði, sem nær væri að hafa alfriðað. Nóg er af sveitum utan við móbergssvæðið, þar sem búa má með allt það sauðfé, sem við þurfum og nóg er erfitt að beijast við ágang sands og jökulleirs, sem enn er í flæmum innantil á Haukadalsheiði og vill íjúka, þegar þurrt er og hreyfir vind. Við heftingu sandsins og uppgræðslu hefur verið unnið stór- virki, en slíkir landvinningar eiga enga samleið með sauðfjárbúskap, sem byggir á lausagöngu allt sumarið. Þetta hafa menn bent á lengi og því hefur verið tek- ið „með skilningi“, sama skilningi og þeg- ar Einar Benediktsson benti mönnum á að ekki stoðaði að nota bátskeljar til fisk- veiða; Bretinn mokaði upp fiskinum með toguranum. „Sá guli er utar“, sagði Ein- ar. Þessi sólhvarfasyrpa hófst á Einari og endar á vísu hans um fallvaltleika jarð- neskra ijármuna: Gengi er valt, þar fé er falt, fagna skalt í hljóði. Hitt varð alltaf hundraðfalt, sem hjartað galt úr sjóði. GÍSLI SlGURÐSSON STEINGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Fjögur prósaljóð Brosið Þrá Meðan fjárhirðar Betlehemsvalla fylgdu stjörnunni bjöitu, í undrun og þögulli eftirvænting, brosti barnið sem í jötunni lá. Ef til vill skynjaði það í andrá — í óljósri mynd — líf sjálfs sín, líf hins fulltíða manns, erflutti mann- kyni þann boðskap sem víg og eld- ar fá eigi eytt, boðskap um sigur kærleikans yfir hatri og hefnd. Ef til vill skynjaði það fögnuð, kjark, baráttu, myrkur þjáninga er umbreyttist í birtu eilífðar. Og barnið brosti, brosti við sínum fyrstu gestum, fyrstu fylgjendum, fjárhirðunum erkrupu við lágajötu og lutu því í auðmjúkri lotning. Já, barnið brosti — og brosið fylgdi þeim til hinstu stundar. Bros, sem fylgir mannkyni öllu til eilífðar — ef — já, ef einhver vill Þiggja. Á djúpsævi hugar míns býr kyrrð — dimmblá kyrrð. Þangað leitar sífellt löngun mín og þrá. En mýrarljós og gjörningaveður hindra för. Því getur mig aðeins langað. Huggun mín er sú, að ég veit hvar hún býr, veit að hún bíður mín um síðir — kyrrðin dimmbláa — veitir mér hvíld og frið — um síðir. Flótti Vaka Eitt — / hljóðleik nætur — vakir skáld og leggur við hlustir. Það veit að með náttfallinu berast því orðin brothættu, fágæt, litrík, léttust allra orða — en þyngst á vogarskál draumsins. Ef skáldið festir blund, fara þau hjá þessi orð og eru því glötuð. Þess vegna vakir það — eitt um óttu — og hlustar. Skáldið ann því að vera einfari í myrkviði orða. Vaka þá aðrir sofa. Hann er á flótta, eirðarlausum flótta frá sjálfum sér, frá viðjum örlaga sinna. Hann brýst um til að losna úr þess- um fjötrum, særir sig til blóðs, en nær aðeins að festast fastar í möskvum uppreisnar og ósættis við sjálfan sig. Ljósfælin er sál hans, myrkurfælin einnig. Hvers vegna flýr hann? Ef til vill hefur hann ekki énn skynjað, ekki viðurkennt guðseðlið sem í honum býr, ekki tekist að leita það uppi, kynnast því? Guðseðlinu sem hann fékk í arf í upphafi tilvistar sinnar. Þess vegna er hann — ef til vill — á eirðarlausum flótta frá sjálfum sér. Höfundur er skáld og hefur gefið út 5 Ijóðabækur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 19. DESEMBER 1989 17

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.