Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1997, Blaðsíða 2
30% ISLENDINGA
LESA LJÓÐ
Islenskar konur lesa meira en karlar
TÆPLEGA 30% íslendinga lásu eina ljóða-
bók eða fleiri á síðastliðnum 12 mánuðum
samkvæmt skoðanakönnun Gallup. Hlut-
fallslega flestir íslendingar lesa skáldsögur,
tæplega 67% lásu eina eða fleiri skáldsögur
á síðastliðnum 12 mánuðum. Tæplega 53%
íslendinga lásu eina eða fleiri fræðibækur
sl. 12 mánuði og tæplega 42% eina ævisögu
eða fleiri.
Yngra fólkió les Irekar frœðibækur
Konur lesa talsvert meira en karlar, ef
frá eru skildar fræðibækur. Um 48% kvenna
las eina eða fleiri ævisögur síðastliðna 12
mánuði en rúmlega 34% karia. Rúmlega
34% kvenna las a.m.k. eina ljóðabók á sl.
12 mánuðum en 26% karla, og rúmlega
74% kvenna las eina skáldsögu eða fleiri
á síðustu 12 mánuðum en tæplega 61%
karla.
Yngra fólk les frekar fræðibækur en þeir
sem eldri eru. Um 60% þeirra sem eru 16-44
ára lásu a.m.k. eina fræðibók á síðustu 12
mánuðum, en rúmlega 48% þeirra sem eru
45-54 ára og rösklega 36% fólks á aldrinum
55-75 ára. Hins vegar snýst lesturinn alveg
við þegar ævisögulestur er skoðaður. Rösk-
lega fjórðungur 16-24 ára las a.m.k. eina
ævisögu á sl. 12 mánuðum, tæplega 36%
þeirra sem eru 25-34 ára, rúmlega 39%
fólks á aldrinum 35-44 ára, tæplega 47%
45-54 ára fólks en rúmlega 60% þeirra sem
eru 55-75 ára höfðu lesið ævisögu á síð-
ustu tólf mánuðum.
Ljóóalestur svipaóur í öllum
aldurshópum
Lestur ljóða virðist svipaður í öllum aldurs-
hópum, rúmlega 30%, nema meðal þeirra sem
eru 25-34 ára, tæplega 23% þeirra lásu ljóða-
bók á síðustu tólf mánuðum. Rúmlega 78%
fólks á aldrinum 16-24 ára lásu eina eða
fleiri skáldsögur á síðustu 12 mánuðum en
á bilinu 63-66% hinna aldurshópanna.
Kli>iA skil;
.... , K»' '
<Wíx ifi i tri>xmi>&
> itfXMXto. tiK ftfwiv*
Omifs.V:í<in CinUUi
íófvjbr JíkIíkJ
<■? KfitHff >>:*»:« tato-.V
#&)** «4«
:t :>'«■ if> i i «:,!
Morgunblaðid/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
EINN fornkappa séður með augum Sögusetursins.
Njálusýningin opnuð
yiGDÍS Finnbogadóttir opnaði sýninguna
Á Njáluslóð, sem Sögusetrið á Hvolsvelli
stendur að, síðastliðinn fimmtudag. Fór
opnunin fram við hátíðlega athöfn að við-
stöddu fjölmenni.
Sýningin, sem jafnframt er fyrsta verk-
efni Sögusetursins, felur ekki einvörðungu
í sér uppstillingu á fornköppum og vopnum
þeirra, heldur einnig hópferðir um sögu-
svið Njálu og fleira. Aðstandendur þessa
verkefnis skilgreina það sem menningar-
lega afþreyingu og nýjung í ferðaþjónustu.
Blásarakvintett Reykjavíkur
A LEIÐ ITONLEIKA-
FERÐ UM BRETLAND
Morgunblaðið/Arnaldur
VÍÐFÖRLIR blásarar: Hafsteinn, Daði, Joseph, Einar og Bernharður.
BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur býr sig
nú af kappi undir tónleikaferð um Bretland
sem hefst í næstu viku. Verða ríflega tveir
tugir tónverka með í för, þar á meðal nokkur
íslensk. í haust heldur kvintettinn síðan til
Ástralíu, þar sem hann mun meðal annars
koma fram á tónlistarhátíðinni Vor í Sydney.
„Við fljúgum til Skotlands miðvikudaginn
25. júní og mér skilst að Skotinn í hópnum,
Daði Kolbeinsson óbóleikari, sem alinn er upp
í Edinborg, sé búinn að útvega okkur verk-
efni strax daginn eftir,“ segir Einar Jóhann-
esson klarinettuleikari. Og Daði tekur upp
þráðinn: „Já, já. Við förum beint inn í upp-
töku á þættinum Mr. Anderson’s Fine Tunes
hjá BBC Scotland í Glasgow, þar sem við
munum flytja nokkur létt lög.“
Föstudaginn 27. júní koma fimmmenning-
arnir fram á tónleikum á elliheimili í Glasgow,
sem skipulagðir eru af stofnun sem sér um
tónlist á sjúkrahúsum og elliheimilum í Skot-
landi. „Svo skemmtilega vill til að meðal áheyr-
enda á þeim tónleikum verður hálftíræð kona
sem lánaði mér fyrsta óbóið fyrir 35 árum,“
segir Daði.
Laugardaginn 28. júni heldur Blásarakvint-
ett Reykjavíkur tónleika í stærstu dómkirkju
sem reist hefur verið í Skotlandi eftir siða-
skipti, Kirkju heilagrar Maríu í Glasgow. Dag-
inn eftir bíða hans síðan tónleikar í stóru gler-
hýsi í Glasgow, Kibbies Palace, þar sem
pottaplöntur þjóna þeim tilgangi að bæta
hljómburðinn, að því er Daði upplýsir.
The Picasso Set frumflutt
Lokatónleikar Skotlandsferðarinnar verða
síðan á West End-hátíðinni í Glasgow, þar sem
félagamir munu meðal annars frumflytja verk
eftir Möltubúann Charles Camilleri, The Kcasso
Set, sem samið var sérstaklega fyrir þá í vor.
Blásarakvintettinn hefur margoft efnt til
tónleika í Bretlandi og er, að sögn Einars,
nokkuð vel kynntur þar um slóðir. Þetta verð-
ur aftur á móti fyrsta heimsókn fimmmenning-
anna til Skotlands „og var svo sannarlega tími
til korninn," svo Daða sé gefíð orðið. Vill hann
í þessu samhengi færa íslenska ræðismannin-
um í Glasgow sérstakar þakkir fyrir að greiða
götu þeirra.
Frá Glasgow heldur kvintettinn til Lund-
úna, þar sem hann efnir til tónleika í nýju
tónleikahúsi, The Space, sem áður var kirkja,
1. júlí. Er húsið staðsett í gömlu hafnarhverfi
sem tekur nú hröðum breytingum í menningar-
átt, að því er blásararnir staðhæfa. Þar verð-
ur annar liðsmaður, Bernharður Wilkinson
flautuleikari, á heimavelli, því hann er fæddur
og uppalinn í Englandi.
5. júlí verða félagarnir á ferð í St. Cyprians-
kirkjunni nærri Baker Street í Lundúnum,
sóknarkirkju Sherlocks Holmes, að því er Ein-
ar vekur athygli á, þar sem Norma Fisher
píanóleikari mun slást í hópinn. Lék hún með-
al annars með Joseph Ognibene, hornleikara
Blásarakvintetts Reykjavíkur, á tónlistarhátíð
á Kirkjubæjarklaustri í fyrra og lýsti þá yfir
áhuga á að vinna með honum á ný. Gefst nú
tækifæri til þess. „Það er virkilega ánægjulegt
að Norma Fisher skuli sjá sér fært að spila
með okkur í Lundúnum en tónleikarnir verða
að öllum líkindum hljóðritaðir á vegum BBC,“
segir Joseph.
Bretlandsferðinni — og þar með fimmtánda
starfsári Blásarakvintetts Reykjavíkur — lýk-
ur síðan með tónleikum á Exeter-tónlistarhá-
tíðinni nafnkunnu, 7. júlí. „Það er að skapast
hefð fyrir því að ljúka starfsárinu með tón-
leikaferð til útlanda,“ segir Hafsteinn Guð-
mundsson fagottleikari.
Sextánda starfsár kvintettsins hefst síðan
á sama hátt og því fimmtánda kemur til með
að ljúka — á ferðalagi. Áfangastaðurinn þá
verður Ástralía, þar sem fimmmenningarnir
munu spila á tónlistarhátíðinni Vor í Sydney
í byrjun september fyrir milligöngu kunningja
Einars, Rogers Woodwards píanóleikara. Mun
Einar jafnframt flytja fyrirlestur á hátiðinni,
sem hann gerir ráð fyrir að helga íslenskri
tónlist, auk þess sem kvintettinn mun efna
til opinnar æfingar, einskonar „Master Class“,
í háskólanum í Sydney.
Tvennir tónleikar og jafnmörg „Master
Class“-námskeið eru síðan fyrirhuguð í Tass-
maníu á vegum háskóla eyjarinnar og einir
tónleikar og eitt „Master Class“-námskeið í
höfuðborginni Canberra og einir tónleikar í
Adeleide.
Sendinefnd islands
Á efnisskrá tónleikanna í Ástralíu verða
að mestu íslensk og norræn tónverk og hefur
Joseph því gefið Blásarakvintett Reykjavíkur
heitið „Sendinefnd íslands" þar neðra.
Ferðin í haust verður sú fyrsta sem kvintett-
inn fer til Ástralíu en hann hefur komið fram
í flestum ríkjum Evrópu, auk Bandaríkjanna.
„Það er alltaf gaman að kynnast nýjum heim-
sálfum," segir Daði, „og víkka sjóndeild-
arhringinn."
Þar með linnir reyndar ekki sögum af ferða-
lögum blásaranna, því Einar er nýkominn frá
Singapore, þar sem hann kom fram sem ein-
leikari á tvennum tónleikum með sinfóníu-
hljómsveit landsins undir stjórn Lan Shui.
Segir hann ferðina hafa verið velheppnaða.
„Hljómsveitin var góð, hljómburðurinn í húsinu
frábær og dómarnir ágætir".
í sömu ferð sótti klarinettuleikarinn Lista-
háskóla Hong Kong heim sem hann segir að
sé glæsilegur í alla staði.
MENNING
LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Kirkja ogkirkjuskrúð, miðaldakirkj-
an í Noregi og á Islandi.
Listasafn íslands
Sögn í sjón; sýning á verkum sem byggð eru
á íslenskum fornritum.
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar
Árbæjarsafn
í sumar verða sýndar ljósmyndir frá Reykja-
vík, ásamt ljóðum skálda.
Listasafn ÁSI - Ásmundarsalur, Freyju-
götu 41
Sigríður Siguijónsdóttir, Takashi Homma til
15. júni.
Kjarvalsstaðir - Flókagötu
íslensk myndlist til 31. ágúst.
Safn Ásgríms Jónssonar - Bergstaða-
stræti 74
Sýning á úrvali vatnslitamynda eftir Ásgrim.
Norræna húsið - við Hringbraut
Grímur Karlsson skipstjóri: Skipslíkön til 9.
júlí.
Nýlistasafnið - Vatnsstíg 3b
Opin sýning í öllum sölum nema í setustofu,
þar er gestur safnsins Ásgerður Búdóttir.
Til 29. júní.
Gallerí Handverk & Hönnun
Elísabet Thoroddsen sýnir peysur til 26. júní.
Gallerí Listakot
Menjar - handverkssýning til 5. júlí
Gallerí Stöðlakot
Philip Richard sýnir textílverk til 7. júli.
Mokka - Skólavörðustíg
Sigurdís Harpa Amarsdóttir sýnir til 6. júlí.
Gerðarsafn - Hamraborg 4 Kóp.
Ása Ólafsdóttir, Íris Elfa Friðriksdóttir og
Sigurbjörn Jónsson sýna til 6. júlí.
Hafnarborg - Strandgötu 34 Hf.
Norræn farandsýning; Flóki án takmarka. í
Sverrissal sýnir Björg Pjetursdóttir verk unn-
in í flóka.
Listasafn Siguijóns - Laugarnestanga 70
Sumarsýning á völdum verkum Siguijóns.
Ingólfsstræti 8 - Ingólfsstræti 8
Roni Horn_ sýnir til 29. júní.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd.
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýn. til 8. ágúst.
Byggðasafn Hafnarfjarðar
Undir Hamrinum — Af lífi hafnfirskrar al-
þýðu til 30. sept.
TONLIST
Þriðjudagur 24. júní.
Hlíf Siguijónsdóttir heldur fiðlutónlerika í
Siguijónssafni klukkan 20:30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Fiðlarinn á þakinu lau. 21., fös. 27.,lau.28..
Listaverkið lau. 21.,fím. 26., fös. 27. júní.
íslenska óperan
Evíta lau.21.,fim.26., fös.27.,lau.28.júní.
Loftkastalinn
Á sama tíma að ári su.22., fim. 26. júní.
Hermóður og Háðvör
Að eilífu fim.26., fös. 27. júní.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er
eftir að birtar verði I þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið, Menning/list-
ir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691181. Netfang: Andrea @mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 1997