Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1997, Qupperneq 5
börnum og sá þriðji er búinn tækjum og heim-
ildum sem gerir þeim kleift er þess óska að
læra fjörutíu tungumál.
Bókasafn Pompidou hefur skipulagt marg-
ar sýningar er tengjast rituðu máli. Einnig
eru sýndar þar reglulega kvikmyndir sem
fjalla um félagsfræðileg og mannfræðileg efni
og í mars á hverju ári er haldin kvikmyndahá-
tíð heimildarkvikmynda. Safnið stendur einnig
fyrir fyrirlestrum um ýmis efni samtímans.
Bókasafnið mun nýta lokunartimabil
Pompidou til að auka alla tæknivæðingu og
bæta aðgang blindra að heimildum þess.
í Pompidou eru sýningasalir sem taka ann-
ars vegar 450 manns í sæti og hins vegar
350, fyrir lifandi sýningar; leiklist, dans, tón-
leika, kvikmyndasýningar, fyrirlestra o.s.frv.
en ætlunin er að bæta þremur sölum við og
hafa þá alla á sama stað í byggingunni, það
er að segja í kjallara. Það að setja salina á
sama stað gerir kleift að hafa tækjabúnað
allan er tengist tæknilegri hlið sýninga á sama
stað fyrir alla sali og þar af leiðandi af meiri
gæðum.
Um þessar mundir er í gangi japönsk kvik-
myndahátíð þar sem almenningi gefst tæki-
færi á að sjá myndir eftir t.d. Yasujiro Ozu,
Akira Kurosawa eða Kenji Mizoguchi.
Oft eru haldnar danssýningar á nútíma-
dansi, má þá nefna Dominique Bagouet, Bill
T. Jones eða Daniel Goldin sem allir hafa sýnt
í Pompidou. Þá er lögð áhersla á flutning
nýrra leikrita og sérstaklega tilraunaleikhús,
sýnd hafa verið t.d. Hinir málglöðu eftir Lou-
is-Rene des Forets eða leikstykki Tadeusz
Kantor.
Morgunblaðið/Þórdís Ágústsdóttir
POMPIDOU-MIÐSTÖÐIN hefur verið skreytt afmælisborða í tilefni ársins, og í forgrunni má sjá litríkan gosbrunn sem er í eigu
miðstöðvarinnar og var hannaður af listamönnunum Niki De Saint-Phalle og Jean Tinguely.
SUMIR koma til að njóta útsýnis yfir borgina, en það er Ijómandi gott af efstu hæðunum.
Á TORGINU fyrir framan Pompidou safnast saman listamenn, til að koma listsköpun
sinni á framfæri, helst fyrir nokkra franka.
listasafn Parísarborg), sú vinnustofa var of
lítil, næst var byggð vinnustofa við Pompidou-
safnið sem brann árið 1977 en þannig tapað-
ist hluti verka listamannsins. Nýjustu gerð
vinnustofunnar var lokið 1996, en opnuð al-
menningi 29. janúar síðastliðinn.
Pompidou eða Beaubourg, eins og menning-
armiðstöðin er oft kölluð eftir hverfinu sem
umkringir hana, er heimsótt af ýmsum ástæð-
um. Fólk fer þangað til að lesa, hlusta á
músík, vinna, skemmta sér, slæpast, komast
í skjól, fara upp á efstu hæð til að njóta útsýn-
is yfir borgina eða til að njóta og kynna sér
listaverk. Það er álitið að þetta sé eitt mest
heimsótta mannvirki í heiminum í dag.
Listamiðstöðin er hugsuð sem heild-
arstaður þar sem saman kemur
starfsemi sem fram að því hafði
verið aðskilin, samanber; mynd-
list, lestur, iðnhönnun og tónlist.
Hún á að miðla öllum menningar-
hvötum og vera opin sem flestum,
vera bæði safn listsköpunar þess-
arar aldar og einnig hvati að tilurð nýs hæfi-
leikafólks. Hér hittist fólk mismunandi að-
stæðna og skapandi fólk úr ýmsum geirum
lista og menningar.
Pompidou skiptist í nokkrar deildir, Nú-
tímalistasafn Frakklands, miðstöð iðnhönn-
unar, almennings bóka- og fjölmiðlunarsafn
og Irca; stofnun sem tileinkuð er rannsóknum
og samræmingu á hljóðeðlisfræði og tónlist.
Nútímalistasafn Frakklands var fært árið
1976 til Pompidou. Það hefur að geyma
stærsta safn listaverka og sköpunarverka
tuttugustu aldar í heiminum, um 40.000 verk
allra listastrauma þessarar aldar og þá mörg
lykilverk listasögunnar eftir þekktustu lista-
mennina svo sem Henri Matisse, Pablo Pic-
asso, Wassily Kandinsky, Marcel Duchamp,
Georges Braque, Marc Chagall, André Bre-
ton, Joan Miro, Max Ernst, Lucio Fontana,
Yves Klein, Joseph Beuys, Francis Bacon svo
einhverjir séu nefndir. Menningarmiðstöðin
er sjö hæðir en á þriðju og fjórðu hæð eru
stöðugar sýningar á safni í eigu Pompidou, á
9.000 fermetra fermetra svæði. Þar eru sýnd
að meðaltali 800 verk sem gefa skýra mynd
af listasögu þessarar aldar. Verkunum er
skipt út reglulega en lögð er áhersla á að
hafa sýninguna skipulagða í tíma og eftir
listastefnum þannig að almenningi gefist kost-
ur á að kynna sér listasögu þessarar aldar á
rökréttan hátt. Á fimmtu hæð eru salir ætlað-
ir skammtímasýningum á einstaka listamönn-
um eða þemasýningar. Á sömu hæð mun
verða opnað eftir 1999 ljósmyndagallerí, en
ljósmyndasýningar hafa verið haldnar fram
að þessu á fimmtu hæð og í kjallara bygging-
arinnar.
Miðstöð iðnhönnunar Pompidou gerir
áhugasömum kleift að kynna sér sögu og
þróun iðnhönnunar, byggingar-, innanhúss-
og landslagsarkitektúrs og listiðnaðar tuttug-
ustu aldar, með reglulegum sýningum og út-
gáfustarfsemi.
Almenningsbókasafn Pompidou er á tveimur
hæðum, (fyrstu og annarri). Það er opið öllum
án nokkurra formerkja. Safnið hefur að geyma
500.000 rit og bækur fyrir utan heimildir á
myndböndum, hljóðböndum og microfilmum,
plötur, tölvudiska og tímarit. Það eru til 30.000
skjalamöppur um rithöfunda, tónskáld og lista-
menn. Bókasafnið lánar ekki út heimildir en
tekur 1.800 manns í sæti. Að meðaltali heim-
sækja safnið 12.000 manns á dag sem gerir
safnið eitt mest sótta bókasafn í heiminum.
Þar sem heimildir eru ekki til útláns er safnið
vel búið myndbandstækjum, sjónvörpum, tölv-
um og sýningatjöldum.
Einn salur varðveitir nýjustu útgefnu bæk-
ur og plötur, annar er sérstaklega ætlaður
Pompidou-miðstöðin leggur
áherslu á upplýsingaþjónustu
og fræðslu fyrir almenning,
bæði með því að bjóða upp á
þjónustu leiðbeinenda á sýn-
ingum sem eru yfirleitt lærðir
listfræðingar og einnig með því
að halda uppi sérstakri „vinnu-
stofu“ fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Börn-
in fá tækifæri til að skapa sjálf undir hand-
leiðslu kennara og listamanna. Hlutverk
vinnustofunnar er að gefa börnum tækifæri
á að koma saman um helgar og kynnast nú-
tímalist, ýmsum tækninýjungum, nútímatón-
list og öllu öðru sem tengist menningu tuttug-
ustu aldar. Þessi uppfræðsla barna er mjög
vinsæl og yfirleitt komast færri að en vilja.
í tengslum við þessa vinnustofu eru haldin
námskeið fyrir kennara sem vilja sérhæfa sig
í menningarlegri uppfræðslu fyrir börn.
Fyrir utan allt þetta heldur menningarmið-
stöðin uppi útgáfustarfsemi, gefur út vegleg-
ar sýningarskrár og tímarit um nútímalist og
menningu. Gefnar hafa verið út um 900 bæk-
ur um listamenn, arkitektúr, hönnun, kvik-
myndir, ljósmyndun og allt annað er tengist
nútímamenningu. Fyrir utan rit framleiðir
menningarmiðstöðin myndbönd tekin af list-
viðburðum og sýningum sem eiga sér þar
stað og nýlega var hafin útgáfa á tölvudiskum
um_ safn listaverka tuttugustu aldar.
Á jarðhæð er verslun þar sem bæði er
mjög mikið úrval tímarita og bókmennta um
listir og menningu en einnig safn minjagripa
sem hannaðir hafa verið með innblæstri í
verk ýmissa listamanna auk eftirprentana,
plakata og póstkorta.
IRCAM-stofnunin, sem helgar sig rann-
sóknum og samhæfingu í hljóð og tónlistar-
fræðum, er einnig til húsa í Pompidou-mið-
stöðinni. Stofnunin varð til fyrir tilstuðlan
þáverandi forseta Frakklands, Georges
Pompidous, árið 1978. Ircam stundar rann-
sóknir á framlagi tölvuvæðingar og hljóm-
burðar í viðfangsefnum tónlistar. Rannsókn-
irnar spanna þannig vítt svið: hljómburður
hefðbundinna hljóðfæra, tónlistarsálafræði,
hljómburður i sölum, nútimahljóðupptöku-
tækni, framleiðsla tónlistaforrita svo eitthvað
sé nefnt.
Fyrir utan rannsóknir kemur stofnunin á
framfæri tónskáldum nútímatónlistar með því
að skipuleggja tónleika. Einnig eru haldnir
fyrirlestrar fyrir almenning og gefinn kostur
á reglulegri kennslu allt árið fyrir áhugamenn.
Það má þannig ýmislegt gera sér til gleði
og upplýsingar í þessu hofi lista og menning-
ar. Margur íslendingurinn hefur þegar lagt
leið sína þangað en fyrir þá sem eiga það
ógert er síðasta tækifærið í sumar þangað til
árið 2000! Miðstöðin er opin frá klukkan
12-22 virka daga en 10-22 um helgar og
hátíðardaga. Á fimmtu hæð er veitingastaður
með góðu útsýni yfir borgina, og fyrir framan
safnið safnast saman alla daga tónlistarfólk
og listamenn, bæði til að skemmta sér og til
að koma listsköpun sinni á framfæri.
Þeir sem óska eftir frekari upplýsingum
geta fengið þær í gegnum alnetið: Pompidou
menningarmiðstöðin: http://www.cnac-gp.fr.
Bókasafnið: http://www.bpi.fr og Ircam
stofnunin: http://www.ircam.fr.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 1997 5