Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1997, Side 13
FRELSI
SMÁSAGA EFTIR
PÁL HERSTEINSSON
ÓRÐUR hellti í bollann úr
kaffikönnunni og lokaði
henni. Hann sneri tappanum
þangað til hann þóttist örugg-
ur um að heitt loftið í henni
slyppi ekki út. Hann þoldi
ekki þegar kannan andvarp-
aði með jöfnu millibili. Svo sat
hann, beið og leit í kringum sig. Hún mundi
bráðum koma og setjast á tappann. Húsflug-
an treysti honum fullkomlega og var búin
að vera gestur hans í nokkra daga. Honum
þótti vænt um hana; hún var eina lifandi
veran sem hann umgekkst allan liðlangan
daginn. Síðan hann losnaði af endurhæfingar-
deildinni lamaður fyrir neðan mitti fyrir sex
mánuðum hafði hann sveiflast milli þess að
vera einmana og alvarlega þunglyndur. Minn-
ingin um það þegar hann lá kraminn undir
bílflakinu og vissi að hann væri lamaður yf-
irgaf hann ekki. Honum fannst einhver hugg-
un í að hafa einhveija lifandi veru hjá sér.
Jafnvel flugu. Hún dreifði huganum.
Konan hans vann mikið. Það var full þörf
á því núna, þegar hún var eina fyrirvinnan.
Hún var farin út úr dyrunum snemma morg-
uns og kom sjaldnast heim fyrr en um kvöld-
matarleytið. Stundum þurfti hún að vinna á
kvöldin og um helgar. Henni var að jafnaði
meinilla við flugur en Þórðar vegna lét hún
þessa í friði.
Einu sinni á dag setti hann nokkur korn
af sykri á tappann á kaffikönnunni og flugan
kunni að meta það. Það var svo skrýtið með
þessa flugu. Hann sá hana aldrei nema þegar
hún sat á tappanum. En þar sat hún líka allt-
af nema eitthvað truflaði. Þegar hann hellti
úr könnunni flaug hún upp og fór eitthvað
aftur fyrir hann. Hann var aldrei nógu snögg-
ur að snúa sér við til þess að sjá hvert hún
færi. Svo var hún komin aftur fyrr en varði.
Hann grunaði að hún vildi sitja á tappanum
af því að hann var nánast eini svarti hluturinn
í íbúðinni og þar var hún næstum ósýnileg.
Honum þótti vænt um þessa flugu en hann
skildi hana ekki. Hún gat flogið um og farið
hvert sem henni sýndist. Samt vildi hún bara
sitja á þessum tappa. Hún var fijáls ferða
sinna en samt fór hún ekki. Ef hann væri í
hennar sporum léti hann ýmislegt eftir sér
sem hann gæti ekki núna, bundinn við hjóla-
stól það sem eftir væri ævinnar. Hvernig
skildi heimurinn annars líta út frá þessu
sjónarhorni, af tappanum? Þórður hallaði sér
fram þangað til nefið snerti kaffikönnuna.
Hann lokaði öðru auganu og reyndi að imynda
sér að hann væri flugan á tappanum. Hann
horfði í kringum sig af tappanum. Þarna var
stofuglugginn. Svo ógnarlangt í burtu. Til
vinstri var langveggurinn með bókaskápnum.
Og enn lengra til vinstri var... Hvað var
nú þetta? Risastórt nef! Og ofan við það?
Auga! Stórt, blágrátt auga. Og annað auga,
lokað, við hliðina.
Þórður hrökk upp með andfælum. Flugan
flaug upp af tappanum, hringsólaði einu sinni,
tvisvar, yfir könnunni, og settist aftur. Þórð-
ur sat sem í leiðslu góða stund. Svei mér þá.
Hann hafði raunverulega horft á sjálfan sig
af tappanum. Hann hafði séð sjálfan sig eins
og flugan sá hann. Samt ekki alveg eins.
Einhvers staðar hafði hann lesið að augu flug-
unnar væru samsett úr mörg hundruð augum
sem hvert um sig sæi mynd af umheiminum.
Hann hafði ekki séð sig svoleiðis. Nei, frekar
eins og allan í smáum doppum, líkt og ljós-
mynd tekin með grófri filmu, næstum eins
og málverk eftir Van Gogh.
Þetta var einkennileg lífsreynsla. Þórður
varð andvaka um nóttina af að hugsa um
þetta. Það var ekki fyrr en hann var búinn
að ákveða að endurtaka tilraunina daginn
eftir sem hann loksins sofnaði.
Um leið og eiginkonan var farin til vinnu
rúllaði hann stólnum yfir að borðinu þar sem
kaffikannan stóð enn frá því í gær. Flugan
var á sínum stað eins og ævinlega. Þórður
hallaði sér ofurvarlega í áttina að henni uns
nefbroddurinn nam við könnuna. Hann lokaði
öðru auganu og horfði á umhverfið af tappan-
um. Hann sá stofugluggann. Svo leit hann
til vinstri, á bókaskápinn. Hann var allur
doppóttur. Hann leit enn lengra til vinstri.
Þarna var hann! Hann horfði á sjálfan sig
ofan af kaffikönnunni. Mikið skelfilega var
hann ljótur frá þessu sjónarhorni. Allir þess-
ir gömlu fílapenslar á nefinu. Hann hag-
ræddi vængjunum með afturfótunum og
strauk sér svo um höfuð og fálmara með
hægri framfæti.
Hann gekk nokkur skref út að brún tapp-
ans. Þótt hann væri búinn að vera lamaður
mánuðum saman reyndist það ekkert mál að
ganga. Það var furðu auðvelt að stjórna
fótunum þótt þeir væru sex talsins. Allt í
einu var hann floginn af stað. Hann hafði
ekki einu sinni ætlað að fljúga. Hann hafði
bara sagt við sjálfan sig: „Gaman væri að
gá hvort skallinn á mér hefur stækkað,“ og
þá var hann kominn á loft, sló vængjunum
inörg hundruð sinnum á sekúndu án nokk-
urra vandkvæða og sveif yfir höfðinu á sjálf-
um sér. Skallinn hafði heldur betur stækkað.
Hann flaug um allt herbergið. Hann flaug
um alla íbúðina. Svo settist hann aftur á
tappann. Hann horfði á augað á sjálfum sér
og var að velta fyrir sér hvort það yrði erfítt
að verða hann sjálfur á ný og þá, skyndilega
var hann aftur orðinn lamaður maður í hjóla-
stól. En hann var dauðþreyttur. Aðallega í
bakinu. Hann var næstum þvi búinn að segja
„í vængjunum" þegar hann útskýrði það fyr-
ir konu sinni um kvöldið hvers vegna hann
vildi fara snemma að sofa.
Næstu daga breytti Þórður sér í flugu á
hveijum degi. Hann lét sér ekki nægja að
fljúga innanhúss heldur skellti sér út um litla
rifu á eldhúsglugganum og flaug um allt
hverfið. Hann naut þessa nýfengna frelsis til
fullnustu. Skemmtilegast var að setjast í
grennd við fólk og hlusta á samtölin án þess
að það grunaði nokkurn skapaðan hlut.
Stundum flaug hann hátt í loft upp, sérstak-
lega í góðu veðri þegar sólin náði að verma
kroppinn vel, og horfði á umhverfið frá allt
öðru sjónarhorni en hann var vanur. En það
fylgdu þessu líka hættur. í tvígang gat hann
með naumindum vikið sér undan árásum ill-
kvittinna skógarþrasta. Þegar hann varð
svangur átti hann ekki í neinum erfiðleikum
með að finna sér mat. Hann þurfti yfirleitt
ekki að leita lengi í eða við öskutunnur eða
sjoppur til þess að finna eitthvað ætilegt.
Smám saman var hann farinn að vera í
burtu allan daginn. Hann breytti sér í flugu
um leið og konan hans fór en passaði sig
bara á að vera kominn heim í tæka tíð áður
en hún kæmi heim. Konan hans hafði áhyggj-
ur af því að hann borðaði ekkert. Allan dag-
inn snerti hann ekki matinn sem hún skildi
eftir handa honum. Aftur á móti var hann
alveg hættur að kvarta yfir fötlun sinni sem
var mikil framför. Þórður hafði ekki áhyggj-
ur af því þótt hann borðaði lítið. Hann var
svo matgrannur á daginn. Örlítill sykur eða
blaut brauðmylsna var nóg fyrir hann. Hann
var venjulega saddur þegar konan bar fram
kvöldverðinn en reyndi að neyða nokkrum
bitum ofan í sig til þess að hún hefði ekki
eins miklar áhyggjur.
Svo var það einn daginn þegar hann flaug
óvenjuseint inn um rifuna á eldhúsglugganum
að hann heyrði mannamál í stofunni. Hann
flýtti sér þangað. Konan hans sat í sófanum
og grúfði andlitið í höndum sér. Systir henn-
ar sat hjá henni og hélt utan um hana. Þórð-
ur tók stefnuna á kaffikönnuna og settist á
tappann. En það var eitthvað að. Það var
ekkert nef upp við könnuna. Ekkert blágrátt
auga sem nam við brún tappans. Hann var
rétt að átta sig á þessu þegar hann heyrði
konuna sína tala: „Ég hef aldrei séð neitt
eins óhugnanlegt. Þarna sat hann, hafði hall-
að sér í áttina að kaffikönnunni og dregið
annað augað í pung en hitt augað var upp-
glennt. Það var svo skrýtinn glampi í því.
Eg ætlaði ekki að trúa því að hann væri >
dáinn en það var ekki um að villast. Hann
var alveg stirðnaður og kaldur. En mikið var
hann léttur. Næstum eins og fluga. Ég held
að hann hafi svelt sig til bana.“
Þórður flaug um alla íbúðina en fann sjálf-
an sig hvergi. Hann hafði verið fjarlægður.
„Ég er ekki dáinn, ég er ekki dáinn,“ reyndi
hann að kalla og flaug allt í kringum systurn-
ar. Hann reyndi að vekja á sér athygli og
kalla en það virtist í'fyrstu vera alveg árang-
urslaust. Svo leit konan hans upp. Hún horfði
á hann eins og hún þekkti hann. Hafði hún
heyrt köllin? Hann settist á öxlina á henni
og reyndi að kalla enn hærra. „Þessi helvítis s
fluga,“ sagði konan, slæmdi hendinni á öxlina
á sér og kramdi fluguna.
Flugan datt í gólfið. Hún reyndi að skríða
í burtu með framfótunum því hún var lömuð
í vængjum og afturfótum.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 1997 1 3