Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1997, Síða 20
Morgunblaðið/Arnaldur
ÍSLANDSSKÁL eftir Olgu S. Olgeirsdóttur, selir eftir Árdísi Olgeirsdóttur og rúnir og
bein í skeljum eftir Dröfn Guðmundsdóttur.
FJÖLL eftir Sigríði Helgu Olgeirsdóttur, víkingur eftir Charlottu R. Magnúsdóttur, blaða-
pressur úr gleri eftir Sveinbjörgu Hailgrímsdóttur og lágmyndir af þjóðbúningum
eftir Hugrúnu Reynisdóttur.
PAPPÍRSVERK eftir Maríu Valsdóttur, byggð á gömlum mynstrum sem höfundur nefn-
ir minningar um liðna tíð.
TEHETTUR og pottaleppar, þrykkt á bómull og púðar úr viscose og satíni eftir Hrönn
Vilhelmsdóttur. Á myndinni eru einnig tvö textílverk eftir Þórdísi Sveinsdóttur.
ÞÆR DRÖFN Guðmundsdóttir
skúlptúristi, Hrönn Vilhelm-
sdóttir og María Valsdóttir
textíllistakonur, sögðu, að
munir á sýningunni ættu að
minna á íslenska náttúru
enda væri heiti sýningarinn-
ar, Menjar, náskylt minj-
agripum. Efniviður listakvennanna er trjöl-
breyttur, sem og viðfangsefni. Þarna breg-
ður fyrir hvölum, selum, beinum, vættum,
víkingum, þjóðbúningum, kindum, hestum,
fiskum, fuglum og fjöllum. Dröfn dregur
fram lyklakippur úr beini og segir frá vinns-
lunni: „Ég hreinsa beinin og lita með nátt-
úrulegum efnum og kalla þau lukkubein.
Það er mikil fita á þeim sem þarf að hrein-
sa og það er mikið ferli.“ Selirnir hennar
Árdísar Olgeirsdóttur spretta fram og eru
ekki allir þar sem þeir eru séðir því þeir eru
líka flautur.
Þaó sem er islenskt
Listakonurnar eru öðrum þræði drifnar
áfram við sköpun sína af spurningunni um
hvað sé íslenskt. „Það kemur manni á óvart
hvað útlendingum finnst vera íslenskt", seg-
ir Hrönn. „Utlendingar skynja ekki þann
greinarmun sem okkur er að tamt að gera
til dæmis á laxi, ýsu og þorski“, segir hún
og réttir fram trefil skreyttan sveigðum löx-
um. „Þeim finnst þetta einfaldlega vera fisk-
ur.“
Um aðdragandann segja þær að sam-
starfið hafi byijað upp úr umræðum teng-
dum markmiðum listsköpunarinnar. „Okk-
ur fannst við ekki vera nógu markvissar
og við sáum að við þurftum að einbeita
okkur að vönduðum vörum, sem ekki væru
fjöldaframleiddar, en hefðu jafnframt list-
rænt gildi og fælu í sér minningu um ís-
lenska náttúru", segir Dröfn. Hún bætir
því við að þær hafi allar hvatt hver aðra
til að vera trúar sínum efnivið og efla
umræðuna sín á milli um úrvinnslu hans.
„Maður fær oft góðar hugmyndir en það
getur oft verið erfitt að hrinda þeim í fram-
kvæmd þannig að þær birtist í líki list-
muna“, segir hún.
Náttúran aóalatvinnurekandinn
Efniviðurinn er í öllum tilvikum náttúru-
legur, jafnt bein, skeljar, gler og leir, sem
tré, steinar, pappír og ull og er þá ekki
allt upptalið. Þegar samræðurnar höfðu
snúist um það hvers vegna aðdráttarafl
náttúrunnar væri eins sterkt og raun ber
vitni var niðurstaða innan seilingar og
Dröfn fékk orðið. „Náttúran er aðallista-
konan. Hún slípar, eltir, litar og mótar hluti.
Hún er síbreytileg og menn fá aldrei leið
á henni og ég leitast við að láta hana njóta
sín í mínum verkum", segir hún og bætir
því við að náttúran sé aðalatvinnurekandi
sinn og María og Hrönn taka undir kímnar
á svip.
Innblástur Maríu Valsdóttur í verkum
hennar kemur úr gömlum íslenskum útsau-
msmynstrum. Þar ber að líta gömul vík-
ingaskip en María fæst einkum við pappírs-
gerð og býr til ýmsa nytjahluti eins og disk-
amottur og bókakápur. „Ég plasthúða þær
til að gera þær sterkari þannig að útkoman
verði eins og leður.“ María hefur haft sér
til fyrirmyndar mynstur úr munum frá
Þjóðminjasafninu og úr ýmsum bókum og
nefnir hún verk sín Minningar um liðna
tíð. „Ég vinn yfirleitt með form, liti og
áferð og er að þróa mig út í veski.“
Síðan listakonurnar tólf stofnuðu gallerí
Listakot hafa þær selt muni víða um heim
og þeim er annt um að fylgjast með því
hvar munirnir hafna. „Við höfum haldið
allnákvæma skrá yfir selda muni síðustu tvö
árin“, segir Hrönn og minnist á hesta í
Frakklandi, fiska í Ástralíu og víkinga í
New York. Hún segir að lokum að eftir
árið geti þær svarað því hvort þeim hafi
tekist að setja ísland í listrænar neytend-
aumbúðir.
Auk þeirra Drafnar, Hrannar og Maríu
eiga þessar listakonur verk á sýningunni:
Árdís, Sigríður Helga og Olga S. Olgeirsdæt-
ur og Charlotta R. Magnúsdóttir, sem vinna
í leir, Gunnhildur Ólafsdóttir og Jóhanna
Sveinsdóttir, grafík og Þórdís Sveinsdóttir
og Hugrún Reynisdóttir textíllistakonur og
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir málari.
Sýningin stendur til laugardagsins 5. júlí.
UMBÚÐIR
UM ÍSLAND
Tólf listakonur sýna verk sín ó handverkssýningu,
sem opnuó veróur í dag kl. 14 í galleríi Listakoti.
Sýningin ber yfiskriftina Menjar. ÖRLYGURSTEINN
SIGURJONSSON ræddi viö þrjór kvennanna.
MARÍA Valsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir og Hrönn Vilhelmsdóttir.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 21. JÚNÍ 1997