Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Page 7
Morgunblaðiö/Þorkell AÐALSTEINN Einarsson bassasöngvari á æfingu með Selkórnum í Langholtskirkju. verk fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit, C- dúr messa Mozarts (Spatzenmesse) og Sálu- messa (Requiem) eftir Gabríel Fauré. Sálu- messa Fauré er nokkuð þekkt, en hefur sjald- an verið flutt með heilli hljómsveit á íslandi. Messa Mozarts er meðal stystu kirkjuverka Mozarts og er oft nefnd Spörvamessan, vegna tístandi fiðluhljóma í Sanctus-kaflanum. Yfir- bragð messunnar er glaðlegt og eins og í öðr- um messum Mozarts eru endurtekningar stefja notaðar til að gefa verkinu heildarsvip. Að sögn aðstandenda tónleikanna hefur C-dúr messa Mozarts ekki verið flutt með svo stórri hljómsveit fyrr á Islandi.Stjórnandi á tónleik- unum er Bernharður Wilkinson og organisti er Friðrik Vignir Stefánsson. NY BASSARODD A AFMÆLISTÓNLEIKUM SELKÓRSINS SELKÓRINN á Seltjarnamesi, ásamt Sinfóníuhljómsveit ís- lands heldur tónleika í Lang- holtskirkju í dag klukkan 17 í tilefni 30 ára afmælis kórsins. Tónleikamir em tileinkaðir minningu frú Guðrúnar Katrín- ar Þorbergsdóttur fyrrverandi forsetafrúar og áður bæjarfulltrúa á Seltjam- arnesi. Einsöngvaramir em Þuríður G. Sigurðar- dóttir sópran, Alina Dubik alt, Snorri Wium tenór og Aðalsteinn Einarsson bassi. Aðal- steinn hefur verið búsettur í Bandaríkjunum við nám og störf í söng frá 1989 og hefur ekki komið fram á tónleikum hér á íslandi síðan 1990. Aðalsteinn lauk 6. stigsprófi frá Söngskól- anum í Reykjavík 1989 og lauk síðan BA prófi í söng frá Tónlistarháskólanum í Bloomington Indiana í Bandaríkjunum 1992. Aðalkennari hans var Roy Samuelsen. Hann lauk masters- prófi í ópemsöng frá tónlistardeild háskólans í Maryland 1995. „Eftir það fór ég á flæking í 1-2 ár og fór um Þýskaland og söng mikið fyr- ir í óperuhúsum," segir Aðalsteinn. „Þegar ég kom til baka til Bandaríkjanna hélt ég tón- leika í Washington og söng í litlum óperuhús- um þar í kring. Eftir það fór ég og hóf dokt- orsnám í söng við Bloomington tónlistarskól- ann. Þetta er mjög langt og strembið nám, ein 6-7 ár, og mjög kostnaðarsamt. Ég fékk fullan námstyrk frá skólanum til eins árs og nýtti mér hann en hef nú tekið hlé á frekara námi. Aðstæður í Bloomington em á heimsmæli- kvarða, óperaleikhúsið er gríðarlega gott og ég tók þátt í einum sex ópemuppfærslum á síðasta ári. Það var mjög góð reynsla." Aðalsteinn segist vera kominn út á markað- inn aftur og byrjaður að þreifa fyrir sér. „Ég hef verið að syngja í ópemhúsum og á tónleik- um í kringum Washington en ég er búsettur í Maryland sem er á þeim slóðum." Aðalsteinn hefur fengið ágætar umsagnir um söng sinn og segist bjartsýnn á framhaldið. „Það tekur tíma að koma sér áfram en tækifærin eru mjög mörg þó margir séu um hituna.“ Á efnisskrá tónleikanna í dag era tvö stór GAMALT OG NYTT í DÓMKIRKJUNNI TVENNIR tímar mætast á tónleikum í Dómkirkjunni á sunnudag. Flutt verða verk eftir meistara barokktímans, Purcell, Telemann óg Hándel, og frumflutt verk íslensku tónskáld- anna Þorkels Sigurbjörnssonar og Hildigupnar Rúnarsdóttur. Fram koma Brynhildur Ásgeirsdóttir semballeikari, Hallfríður Ólafsdótt- ir þverflautuleikari, Sigurður Hall- dórsson sellóleikari og Þórann Guðmundsdóttir sópransöngkona. Tónleikarnir hefjast kl. 17. Tónleikamir em liður í tónlistar- dögum Dómkirkjunnar og segir Þórunn Guðmundsdóttir hópinn hafa gengið út frá verkum fyrir sembal við val á efnisskrá en Dóm- kirkjunni var einmitt gefinn semb- all á siðasta ári. Hugur Þómnnar stóð strax til þess að flytja íslenskt efni í bland við erlent á tónleikunum. Fann hún fljótt verk Hildigunnar Rúnars- dóttur við Passíusálm nr. 45 sem meðal annars er samið fyrir semb- al. „Mér leist strax vel á verkið en hafði á orði við Hildigunni að gam- an væri að flytja annað verk líka. Það átti hún ekki en kvaðst tilbúin að semja nýtt verk fyrir okkur - sem hún og gerði. Er það úr 11. Passíusálmi og verður fmmflutt á sunnudag." Svipaða sögu má segja af þjóð- lagaútsetningunum þremur eftir Þorkel Sigurbjörnsson, fyrir sópr- an, flautu og selló, sem fmmfluttar verða í Dómkirkjunni. „Ég minntist á þessa tónleika við Þorkel og spurði hvort hann ætti eitthvað fýr- ir þessa samsetningu. Það átti hann ekki en kom með þetta fáum dög- um seinna," segir Þórunn en lögin em af trúarlegum toga, svo sem nöfnin gefa til kynna, Guð gaf mér eyra, Hvað flýgur mér í hjarta blítt? og Einn Guð í hæðinni. Enska tónskáldið Henry Purcell rammar inn tónleikana en í upphafi og við lok þeirra verða flutt lög eft- ir hann. „Ég hef lengi haft áhuga fyrir Purcell enda er hann alveg stórkostlegt tónskáld og hefur í raun verið fluttur alveg ótrúlega lítið ef horft er til þess hve mörg góð verk hann samdi um dagana,“ segir Þórann og bætir við að lögin séu bæði í léttari kantinum, um ást- ina og gleðina, og af alvarlegri toga. Eitt er til dæmis eintal geð- sjúkrar konu. Þá er trúarleg Ijóð að finna á efnisskránni, meðal annars lýkur tónleikunum á kvöldsálmi. Ennfremur verða flutt á tónleik- unum Fantasía fyrir einleiksflautu eftir Georg Philipp Telemann og kantatan Nell dolce dell’oblio eftir Georg Friedrich Hándel. Morgunblaöið/Þorkell BRYNHILDUR Ásgeirsdóttir, Þór- unn Guðmundsdóttir og Sigurður Halldórsson koma fram á tónleik- unum f Dómkirkjunni ásamt Hail- fríði Ólafsdóttur. SIGURJÓN ÓLAFSSON í ÖLLUM SÖLUM , HAFNARBORGAR IHAFNARBORG hafa allir sýn- ingarsalir verið teknir undir um- fangsmikla yfirlitssýningu á verkum Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara. Sýningin verður opnuð í dag kl. 16 og verða þar verk allt frá æskuverkum og fram á síð- ustu æviár Sigurjóns. Sýningin er samstarfsverkefni Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í Laugamesi og Hafnarborgar, menningar- og listastofnun Hafnar- fjarðar, og er í tilefni þess að í ár era níutíu ár liðin frá fæðingu myndhöggvarans, en hann lést árið 1982. í Laugamesi hafa verið sett upp verk frá síðasta aldursári Sigur- jóns. Á sýningunni gefst tækifæri til að skoða á einum stað allan feril þessa frjóa og fjölhæfa myndhöggvara og sjá hvernig list hans þróast af einu skeiði á annað. Á sýningunni verða bæði fullunnin verk og frammyndir sem Sigurjón gerði að stærri verk- um og útilistaverkum, teikningar og skissur, auk ljósmynda, segir í fréttatilkynningu. Hafnarborg er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 14-18. Sýn- ingin mun standa fram á Þorláks- messu. giæpur „ 0G refsing heimsbókmeriíitir Fjórar af perluih heimsbókmenntanná sem hafa veri^ ófáanlegar um skeið i fást nú aftur á mjög hagstæðu verði! aðeins /1.980 kr.. /2 480 kr. 1 Mél og monnlng aoelns /1.980 kr.. aðelns /1.980 kr.. FOR.LAGIÐ www.mm.is LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. OKTÓBER 1998 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.