Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Blaðsíða 20
STEFNUMÓT TÓNLISTAR OG MYNDLISTAR Á KJARVALSSTÖDUM
ÞEGAR SJÓNTAUGINNI OG
HEYRNARTAUGINNI SLÆR SAMAN
Morgunblaðiö/Ásdís
HALLDÓR Ásgeirsson og Snorri Sigfús Birgisson við bátinn sem er hluti af sýningu þeirra á
Kjarvalsstöðum, þar sem tónlistin og myndlistin eiga sér stefnumót.
SNORRI Sigfús Birgisson, tónskáld og píanó-
leikari, og Halldór Asgeirsson, myndlistar-
maður, hafa komið á stefnumóti tónlistar og
myndlistar á Kjarvalsstöðum. Sýning þeirra
verður opnuð í dag, laugardag, kl. 16, í mið-
rými og utandyra.
„Tónlist og myndlist tengjast, eftir því
^þvemig maður lítur á það, annars vegar mjög
mikið og hins vegar ekki neitt. Pær tengjast
jafn mikið og augun og eyrun tengjast, það er
að segja þær tengjast ekki en eru samt í sömu
manneskjunni, sjóntaugin og heyrnartaugin
fara inn í sama heila en eru tvær ólíkar taug-
ar,“ segir Snorri. „Annars er til fólk þar sem
þessum tveimur taugum, sjóntauginni og
heyrnartauginni, slær einhvern veginn sam-
an, þannig að það sér tóna í lit. Ég er bara
ekki nógu vel að mér í taugalíffræði til þess að
geta útskýrt það en þetta er víst til,“ segir
hann hugsi.
„Þá sá ég hvað hann var
músíkalskur"
Halldór og Snorri eru gamlir vinir og voru
m.a. samtíða við nám í París á sínum tíma.
^,,Þá réð ég Snorra sem hálfgerðan hirðljós-
myndara, ég var að gera verk sem ég varð að
vera inná sjálfur svo ég fékk Snorra til að
taka myndimar. Og hann var góður í því,“
segir Halldór og bætir við að það sé í rauninni
það eina sem þeir hafí unnið saman áður.
Snorri kveðst ekki áður hafa tekið þátt í
stefnumóti tónlistar og myndlistar en bendir
á að það hafí Halldór aftur á móti gert. „Hann
var með myndlistargjörning á Norrænum
músíkdögum fyrir tveimur árum, með raftón-
list, og mér fannst það hrikalega gott hjá hon-
um. Þá sá ég hvað hann var músíkalskur,"
segir Snorri.
*■ „Þó að mér finnist hið hefðbundna tónleika-
form bæði fallegt og heillandi og allt gott um
það að segja, þá er ekki þar með sagt að það
geti ekki verið gaman að gera tilraunir með
að víkka aðeins út möguleikana," segir Snorri.
Halldór tekur í sama streng. „Myndlistar-
'menn eru alltaf að leita að nýjum formum eða
nýrri umgjörð, finna nýjan vettvang fyrir sína
list. Ég held að það sé mjög gott að stefna
svona saman tveimur listgreinum, þá eyðir
maður líka vissum fordómum. Þetta er að
nokkru leyti tilraun, ég veit ekkert hvernig
hún tekst en við tökum sénsinn," segir Hall-
dór.
Verkið sem er miðpunktur gjörnings Hall-
dórs eru þrír vagnar sem eru eins og bátar á
hjólum, svipuðum þeim sem eru undir flyglin-
um, en hann er einnig hluti af verkinu. Hall-
dór segist hafa viljað virkja flygilinn sem
skúlptúr, þannig að hann sé ekki bara hljóð-
færí heldur líka eins og einn af bátunum. Á
hverjum vagni er glerker á stærð við baðker,
sem hefur verið fyllt af vatni. „í staðinn fyrir
að báturinn sigli í vatninu þá ber báturinn
vatnið,“ segir listamaðurinn. Hann hefur fest
halogenlampa á vagnana og verður birtan frá
þeim eina lýsingin í salnum. Halldór mun
með reglulegu millibili blanda bleklitum út í
vatnið, svo úr verður „vatnslitamynd" í orðs-
ins fyllstu merkingu og þar hefur birtan mik-
ilvægu hlutverki að gegna, síbreytileg og
hverful eins og vatnið.
Veggspjald, geisladiskur,
bók og tónleikar
Tónlistin sem Snorri hefur samið fyrir
sýninguna eru sjö sjálfstæð píanóverk sem
hann segir þó mynda eina heild eða flokk,
sem hann tileinkar Jóni Nordal tónskáldi.
„Ég kalla þau Portrett 1-7 vegna þess að ég
hef í huga ákveðna persónu fyrir hvert
verk,“ segir hann.
Gjörningurinn verður fluttur fyrst við opn-
unina í dag, því næst á fimmtudag kl. 13 og
sunnudaginn 8. nóvember kl. 17. Eftir það
verður hver gjörningur kynntur sérstaklega.
Við opnunina leikur Snorri þrjú portrett-
anna, númer 1, 6 og 7 og er þar um að ræða
frumflutning á tveimur þeim síðarnefndu.
I tilefni sýningarinnar verður sérprentuð
ljósmynd af hluta úr verki eftir Halldór gef-
in út í takmörkuðu upplagi í veggspjalds-
stærð, tölusett og árituð. í lok nóvember
kemur svo út hjá Japis geisladiskur og bók
með myndum Halldórs. Á diskinum leikur
Snorri heildarútgáfu tónlistarinnar sem
hann samdi fyrir sýninguna og verður útgáf-
unni fylgt úr hlaði með tónleikum á Kjar-
valsstöðum.
NÚTÍMINN OG NÁTTÚRAN
(FÆREYSKRI MYNDLIST
NÝJA KYNSLÓÐIN í
NORRÆNUM ARKITEKTÚR
V.
I'IRSKRIFT sýningar á
verkum þrettán núlifandi
færeyskra myndlistar-
manna, sem verður opnuð
í austursal Kjarvalsstaða í dag kl.
16, er á frummálinu Framsýning,
F oroysk nútíðarlist. Sýningin er
sett upp í samvinnu Listasafnsins
í Færeyjum, Listasafns Reykja-
víkur og Listasafnsins á Akureyri.
Á sýningunni gefst tækifæri til
að kynnast því sem efst er á baugi
í listalífi Færeyja um þessar
mundir. Listamennirnir sem eiga
verk á sýningunni eru þau Astrid
Andreasen, Zacharias Heinesen,
Bárður Jákupsson, Rannvá Páls-
dóttir Kunoy, Amariel Norðoy,
Hans Pauli Olsen, Marius Olsen,
Torbjorn Olsen, Tróndur Paturs-
Son, Guðrið Poulsen, Ingálvur av
Reyni, Kari Svensson og Tita
Vinther.
Þó að samfelld íslensk listasaga
sé ekki löng er sú færeyska enn
styttri og hefur þróun þar orðið
með nokkuð öðrum hætti en hér.
I fréttatilkynningu segir að þó að
listamennirnir þrettán sem nú
sýna á Kjarvalsstöðum séu á
_ýmsum aldri og hafi sótt menntun
sína á ólíka staði virðist þeir flest-
ir eiga það sameiginlegt að fást
við náttúruna og manninn í nátt-
jj.runni, og hið áhrifamikla fær-
'eyska landslag sé þeim upp-
spretta tjáningarríkra verka.
Sýningin stendur fram til 20.
desember nk. og er opin alla daga
kl. 10-18.
Morgunblaðið/Ásdis
TITA Vinther er höfundur verksins Pétursnót, sem
unnið er úr mannshári.
SÝNING á verkum ungra nor-
rænna arkitekta, sem ber yfir-
skriftina Nýja kynslóðin í nor-
rænum arkitektúr, verður opnuð
í vestursal Kjarvalsstaða í dag, laugar-
dag, kl. 16. Sýningin var framlag Norð-
urlandanna á arkitektúrtvíæringnum í
Feneyjum 1996 og var unnin af Bygg-
ingarlistasafni Finnlands í samráði við
systurstofnanir þess á öðrum Norður-
löndum en fyrir Islands hönd tók bygg-
ingarlistardeild Listasafns Reykjavík-
ur þátt í undirbúningnum.
I fréttatilkynningu frá Kjarvalsstöð-
um kemur fram að á sýningunni er leit-
ast við að draga fram sérnorræn ein-
kenni og sýna hvernig þau birtast á
mismunandi hátt í húsagerð hvers
lands. ,Á meðal þess sem greina má í
verkum arkitektanna eru söguleg
tengsl, áhersla samfélagsins á jafnrétti
og félagslega samhjálp, áhrif hinnar
margbreytilegu norrænu birtu og hlið-
stæður í stílþróun, form- og efnis-
kennd,“ segir ennfremur.
Þátttakendur voru valdir úr hópi
yngstu kynslóðar starfandi arkitekta,
af fjórum teiknistofum frá hverju landi.
Islensku verkin fjögur eru hús Hæsta-
réttar Islands, teiknað af Margréti
Harðardóttur og Steve Christer,
Studio Granda, dælustöð við Faxaskjól,
teiknuð af Baldri Ó. Svavarssyni, Birni
S. Halldórssyni og Jóni Þór Þorvalds-
syni, Uti og inni, innrétting í verslun
ATVR í Austurstræti eftir Pálmar
Kristmundsson og safnaðarheimili og
tónlistarskóli í Hafnarfirði eftir Hans-
Olav Andersen og Sigríði Magnúsdótt-
ur.
Sýningin stendur fram til 20. desem-
ber nk. og er opin alla daga kl. 10-18.
Morgunblaðið/Ásdfs
PÉTUR Ármannsson, safnvörður byggingarlistar-
deildar Listasafns Reykjavíkur, og Hannu Helleman
frá Byggingarlistasafni Finnlands í óða önn að setja
upp sýningu nýju kynslóðarinnar í norrænum
arkitektúr í vestursal Kjarvalsstaða.
&0 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. OKTÓBER 1998