Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 31.10.1998, Side 16
ÞESSI mynd Wendy Sue Lamm frá Bandaríkjunum hlaut fyrstu verðlaun í flokknum fréttavið- burðir, stakar myndir. Palestínumaður verður fyrir skoti frá ísraelskum hermönnum í þann mund sem hann varpar grjóti að árásarmönnunum. DRENGIR úr hafnaboltaliði Anderson Monarch, sem skipað er tíu og eilefu ára gömlum svörtum krökkum frá suðurhluta Fíladelfíu, eru á mynd bandaríska Ijósmyndarans Eric Menchers, sem varð hlutskörpust í flokki mynda úr heimi íþróttanna. i I ! WORLD Press Photo-mynd ársins er eftir alsírska Ijós- myndarann Hocine. Kona grætur fyrir utan Zmirli- sjúkrahúsið, þar sem látn- um og særðum var komið fyrir eftir fjöldamorð í Bent- hala í Alsír. í FLOKKNUM náttúra og umhverfi, stakar myndir, bar franski Ijósmyndarinn Xavier Desmier sigur úr býtum. Tveir háhyrningar á eftirlits- sundi meðfram ströndinni bíða þess að tveir sex vikna gamlir sæfílar stingi sér til sunds í Suðuríshafið. Á LÍÐANDI Á LJÓSMYNDASÝNINGU World Press Photo árið 1998, sem opnuð var í Kringlunni í gær, er að finna myndir, sem óháð, alþjóðleg dómnefnd valdi í 41. keppni World Press Photo. Keppnin er sú stærsta í heimi og ber vitni mestum metnaði á sviði fréttaljósmyndunar. Á sýningunni er fjallað um forsíðufréttirnar og málefni líðandi stundar sem og málefni á borð við náttúruna og listir. Rúmlega milljón gestir koma á sýninguna, sem er sett upp í meira en 35 löndum árlega. Verðlauna- myndirnar eru birtar í bók, sem kemur árlega út á sex tungumálum. World Press Photo eru óháð samtök, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Þau voru stofnuð í Hollandi árið 1955. Helsta markmið þein-a er að styðja og vekja athygli á störfum atvinnufrétta- ljósmyndara um allan heim. Eftir því, sem árin hafa liðið, hafa samtökin þróast í að vera sjálf- stæður vettvangur fyrir blaðaljósmyndun og frjáls upplýsingaskipti. Auk þess að setja upp þessar 16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 31. OKTÓBER 1998

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.