Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1998, Blaðsíða 28
I
Morgunblaðið/Gunnar Sverrisson
PÉTUR Gautur heimsækir geðveikrahæli í Egyptalandi, frá hægri á myndinni eru Jakob Þór
Einarsson, Sunna Borg, Árni Pétur Reynisson og Agnar Jón Egiisson í hlutverkum sínum.
ALVARLEGUR
EN FULLT AF
MENN fá sér í staupinu í brúðkaupinu á Heggstað, frá hægri Eva Signý Berger, Agnar Jón
Egilsson, Jakob Þór Einarsson, Árni Pétur Reynisson og fyrir aftan stendur Guðjón Sigurður
Tryggvason.
UNDIRTÓNN
ÓLÍKINDUM
Jólaverkefni Leikfélags
Akureyrar, Pétur Gautur
eftir Henrik Ibsen, verður
frumsýnt í Samkomuhús-
inu ó Akureyri 28. des-
ember næstkomandi. Sýn-
ingin er byggð ó nýrri
þýðingu Helga Hólfdanar-
sonar á verkinu og er
þetta í fyrsta sinn sem hún
er leikin á leiksviði.
MARGRÉT ÞÓRA
ÞÓRSDÓTTIR ræddi
við leikstjórann, Svein
Einarsson.
HENRIK Ibsen skrifaði Pétur
Gaut á Ítalíu vorið og sumar-
ið 1867 og kom leikritið út
sama ár. Það vakti þegar
mikla athygli og hefur í ár-
anna rás hlotið heiðurssess í
norskum og norrænum bók-
menntum. Pétur Gautur er
eitt mest leikna sviðsverk allra tíma og hefur
verkið verið sýnt víða um veröld, en í því tekst
höfundurinn á við áleitnar spurningar um til-
vist mannsins á öllum tímum. Jafnframt er
leikritið stórskemmtilegt með fjölda litríkra
og eftirminnilegra persóna. Leikritið er þrátt
fyrir sinn alvarlega undirtón fullt af algjörum
ólíkindum, gamansamt og gróft, hárfínt og
hádramatískt; fullkomið ævintýri þar sem
hver furðan rekur aðra í endalausri leit Pét-
urs að sjálfum sér. I stuttu máli fjallar leikrit-
ið um hinn fjörmikla piltung Pétur Gaut sem
strýkur frá móður sinni, Ásu, unnustunni,
Sólveigu, frá heimabyggð sinni og fóðurlandi.
Líf hans er uppfrá því stöðugur flótti, en þeg-
ar hann hefur flakkað um heiminn alla sína
ævi snýr hann aldurhniginn heim.
Slóðsl ekki freistinguna
Sveinn Einarsson kom til Akureyrar í haust
frá Lundúnum þar sem hann setti upp eigið
verk, Dóttur skáldsins, en hann sagði
nokkum aðdraganda að uppsetningu sinni á
Pétri Gaut. Fyrir um þremur árum var rætt
við hann um að ieikstýra hjá félaginu en hann
JAKOB Þór Einarsson fer með titilhlutverkið, Pétur Gaut.
var bókaður allt fram á þetta ár. „Ég hef
aldrei sett Pétur Gaut upp áður og stóðst ekki
freistinguna," sagði hann, en Ibsen er honum
afar hugleikinn og hefur hann leikstýrt fjölda
verka eftir hann. Sveinn var t.d. leikstjóri
þegar Leikfélag Akureyrar setti Afturgöng-
urnar upp árið 1993, en uppfærslan var til-
nefnd tii leiklistarverðlauna það ár, og einnig
hlaut hann afar góða dóma fyrir uppsetningu
á sama verki í Kaupmannahöfn. „Ég hef verið
handgenginn Ibsen allt frá því ég var barn og
unglingur, las þá allt eftir hann og ýmislegt í
kringum verk hans,“ sagði hann.
Margslungið verk
sem eelið ó erindi
Sveinn sagði Pétur Gaut feikilega marg-
slungið verk, enda eitt stærsta skáldverk
heimsbókmenntanna og hægt væri að túlka
það á marga vegu. Sveinn gengur ekki í fót-
spor þeirra sem áður hafa flutt verkið, enda
verði hver ný uppsetning að hafa sýnar eigin
forsendur. Þannig hafí trúarlegi þátturinn
aldrei verið ríkjandi, en Sveinn sagði ógern-
ing að horí'a framhjá hugtökum eins og fyrir-
28 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 19. DESEMBER 1998