Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Qupperneq 2
FLYTJA JÓLAÓRATÓRIUNA
VIÐ SEX GUÐSÞJÓNUSTUR
JÓLAÓRATÓRÍA Bachs verður flutt í sínum
upprunalegu sex hlutum við jafnmargar guðs-
þjónustur í Langholtskirkju frá jóladegi til
þrettándans.
Flytjendur eru Kór Langholtskirkju,
Kammersveit Langholtskirkju ásamt hljóm-
sveit og einsöngvurum undir stjórn Jóns Ste-
fánssonar, kantors kirkjunnar.
Jólaóratórían hefur aldrei verið flutt áður
með þessum hætti hér á landi en það er nú gert
í tilefni af Kristnihátíð og árþúsundamótum.
„Þessi flutningur okkar á Jólaóratóríunni er
með þeim hætti sem gert var af Bach sjálfum, í
sex messurn," segir Jón Stefánsson. „Hver
hluti um sig segir á sinn hátt söguna af fæðingu
Jesú. Og hver þáttur hefur sitt svið.
Fæðing Jesú og dauði - jól og fasta - hefur
frá upphafi kristindóms verið óþrjótandi efni-
viður listamanna. I máli, myndum og tónum
hafa þessi tvö svið verið túlkuð.
Krossinn á Golgata og hin grýtta leið þangað,
og svo hin algjöra andstæða, jólin, stjarnan yfir
Betlehem, nótt fjárhirðanna með þeim undrum
sem fyrir þá bar og ekkert listaverk nær að
sýna nema daufan bjarma af, fjárhúsið í Betle-
hem, Jósef, María og hinn nýfæddi Gyðinga-
konungur í jötunni," segir Jón og bætir því við
að Bach hafi ekki að ástæðulausu stundum ver-
ið nefndur 5. guðspjallamaðurinn. „Það er mikil
guðfræði í tónlistinni hans.“
Jón segir að þeir Jón Helgi Þórarinsson
sóknarprestur hafi velt því talsvert fyrir sér
hvernig flutningurinn yrði sem best felldur inn
í guðsþjónustumar án þess að lengja messuna.
„Flutningur hvers þáttar tekur um 20-25 mín-
útur og niðurstaðan varð sú að stytta aðra hluta
messunnar sem því nemur en láta þó guðspjall
dagsins ráða því hvaða hluti yrði fyrir valinu
hverju sinni. í aríum hvers þáttar Oratóríunnar
er útlegging á því sem guðspjallstextinn segir.
Hver kantata er síðan í rauninni predikun á
guðspjallstexta verksins. Þetta er því upphaf-
Jólaóratoría J.S. Bachs verður flutt vid guðs-
þjónustur í Langholtskirkju yflr hátíðarnar.
lega samið til flutnings sem hluti af guðsþjón-
ustunni og þannig ætlum við að gera þetta.“
Jón segir að það hafi verið draumur sinn allt
frá því hann stjórnaði fyrsta flutningi
Langholtskórsins á Jólaóratóríunni 1980 að
flytja hana með þessum hætti. „Það eru þrjár
ástæður fyrir því að okkur þótti vel við hæfi að
ráðast í þetta núna. Við fögnum 1000 ára
kristnitökuafmælinu. Þetta er einnig hluti af
því að sýna Reykjavík sem menningarborg á
menningarárinu og loks í þriðja lagi em á
næsta ári liðin 250 ár frá dauða Bachs. Fyrsta
hugmynd mín var að flytja óratoríuna á tónleik-
um þar sem kostnaður við flutninginn er slíkur
að treysta verður á aðgangseyri til að mæta
honum. Séra Jón Helgi kom með þá djörfu hug-
mynd að fá einhvern til að styrkja okkur. Þetta
er auðvitað nokkuð djarft af söfnuði sem er
nýbúinn að kaupa orgel og steindan glugga fyr-
ir nær 40 milljónir. En þegar við lögðum þessa
hugmynd fyrir stjórnendur Olíufélagsins hf.
leist þeim svo vel á hugmyndina að við ákváðum
að ráðast í þetta. íslandspóstur er annar styrk-
taraðili og í sameiningu styrkja þessi fyrirtæki
okkur svo rausnarlega að þetta var mögulegt
fyrir okkur.“
Jón segir að þetta sé einstakt tækifæri fyrir
almenning að njóta þessarar fögm tónlistar án
þess að þurfa að greiða aðgangseyri, „... og það
var auðvitað það sem vakti fyrir stjórnendum
þessara tveggja fyrirtækja að bjóða almenningi
að njóta Jólaóratóríunnar endurgjaldslaust á
jólum og nýári 1999-2000." Því má reyndar
bæta við að kostnaður við flutninginn er nokkm
meiri en nemur stuðningi fyrirtækjanna
tveggja og hefur Kór Langholtskirkju ákveðið
að mæta honum. „Kórinn er því í rauninni að
borga með sér til að geta flutt Jólaóratóríuna,“
segir Jón Stefánsson stjómandi sem er nú að
stjórna óratóríunni i 8. sinn en í fyrsta sinn á
þann hátt sem Bach ætlaði hana flutta. „Þetta
býður upp á meiri breytileika við flutninginn en
á hefðbundnum tónleikum þar sem allt verkið
er flutt í einu. Við getum sniðið fjölda flytjenda,
stærð kórs og hljómsveitar, að hverjum þætti.“
Einsöngvarar em þau Nanna Man'a Cortes,
Þorbjörn Rúnarsson, Olafur Kjartan Sigurðai’-
son, Valgerður Guðrún Guðnadóttir, Jónas
Guðmundsson, Eiiíkur Hreinn Helgason, Ólöf
Kolbmn Harðardóttir, Bergþór Pálsson, Þóra
Einarssdóttir og Stefanía Valgeirsdóttir.
Fyrsti hluti Jólaóratóríunnar verður fluttur við
hátíðarmessu á jóladag kl. 14, síðan annan jóla-
dag kl. 14, þá við aftansöng á gamlársdag kl. 17,
síðan við hátíðarmessu á nýársdag kl. 14, þá við
hátíðarmessu sunnudaginn 2. janúar kl. 14 og
sjötti og síðasti hlutinn verður svo fluttur kl. 18
við aftansöng á þrettándanum.
STYRKVEITINGAR
ÚR NORRÆNA
MENNINGAR-
SJÓÐNUM
Ragna Róbertsdóttir, Finnbogi Pétursson og Kristjón Guðmundsson skoða
grafikmöppuna, sem kemur út í 38 eintökum.
GRAFIKMAPPA MEÐ VERKUM
ÞRIGGJA LISTAMANNA
Á STJÓRNARFUNDI Norræna menningar-
sjóðsins sem haldinn var í Kaupmannahöfn á
dögunum vom veittir styrkir að upphæð um
58 milljónir króna. Þar af hlutu íslenskir aðil-
ar styrki að upphæð röskar 7 milljónir;
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar hlaut röskar
tvær milljónir vegna myndlistarsýningarinn-
ar Hærra til þín. Ungmennafélag íslands f.h.
samtaka norræna ungmennafélaga fékk
sömu upphæð vegna verkefnisins Menning
og æska og hafði áður fengið um 2,8 milljónir
króna til sama verkefnis. Dalabyggð fékk um
1,4 milljónir króna vegna hátíðar Leifs Eir-
íkssonar í ágúst 2000 og Alþjóðleg bók-
menntahátíð í Reykjavík árið 2000 fékk um
750 þúsund krónur. Þá hlutu eftirtaldir aðil-
ar styrki. Sigurður Flosason tónlistarmaður
vegna verkefnisins Nordic big band music,
Norræna húsið í Reykjavík vegna sumartón-
leika, Ljósálfar í Kópavogi vegna ljósmynda-
sýningar og Isark vegna verkefnisins,
Gleymdir staðir.
Verkefni Norræna menningarsjóðsins er
að styðja menningarsamvinnu á Norðurlönd-
um, í fyrsta lagi samvinnu á sviði menningar,
lista og fjölmiðlunar auk menntunar- og
rannsóknarverkefna sem tengjast menningu.
I öðru lagi verkefni þar sem þessi menning-
arsvið skarast og í þriðja lagi menningar-
samstaf milli Norðurlanda, grannsvæðanna
(Eystrasaltslandanna og Norðvestur-Rúss-
lands) og annarra svæða Evrópu. Veitt er úr
sjóðnum tvisvar á ári, í júní og desember.
Umsóknarfrestur er annars vegar 15. mars
og hins vegar 15. september ár hvert. Full-
trúar íslands í stjórn sjóðsins eru þau Rann-
veig Guðmundsdóttir alþingismaðui- og Þor-
steinn Gunnarsson arkitekt og leikari.
ÚT ER komin á Islandi og í Þýskalandi
grafíkmappa sem hefur að geyma verk
þriggja listamanna, Rögnu Róbertsdóttur,
Finnboga Péturssonar og Kristjáns
Guðmundssonar.
títgefendur eru Gallerí i8 og Galleri
Michael Sturm í Stuttgart og er upplagið
lítið, nítján eintök verða til sölu á hvorum
stað fyrir sig.
Edda Jónsdóttir hjá Galleríi i8 segir þetta
cinstakt tækifæri til að eignast verk eftir
listamennina. Mappan kostar fimmtiu þús-
und krónur fram til 20. desember að gal-
leríið fer í jólafrí, en. þegar opnað verður
aft.ur, 6. janúar, hækkar hún að sögn Eddu.
Sýning á verkum þremenninganna stend-
ur nú yfir í Galleri Michael Sturm í Stutt-
gart. Verkin eru þrykkt af Thomas Ruppel /
Stuttgart sem er, að sögn Eddu, eitt; besta
grafíkverkstæði í Evrópu. Þar á bæ þrykktu
menn meðal annars mikið fyrir Dieter heit-
inn Roth.
STYRKIR SNORRA STURLUSONAR
LIN Hua, Christos Chrissopoulos og Catalin
Avramescu hafa hlotið styrk Snorra Sturluson-
ar, sem nú hafa verið veittir í áttunda sinn.
Lin Hu, þýðandi í Beijing, fær styrk til að
vinna að þýðingum á íslenskum fornbókmenn-
tum, Christos Chrissopoulos, rithöfundur í
Aþenu, til að vinna að bók um ísland og Catalin
Avramescu, heimspekingur í Búkarest, til að
fást við hugmyndir um stjórnmálaheimspeki í
frásögnum um Island frá sautjándu öld og
fram á þá nítjándu. Þrjátiu umsóknir bárust
frá tuttugu og einu landi. í úthlutundarnefnd
styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason, forstöðu-
maður Stofnunar Sigurðar Nordals, Kristján
Árnason dósent, og Ingibjörg Haraldsdóttir
rithöfundur. Varamaður Kristjáns er Bergljót
Kristjánsdóttir dósent og tók hún þátt í starfi
nefndarinnar að þessu sinni í forföllum hans.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn: Verk Ásmundar
Sveinssonar.
Galleri(a)hlemmur.is: Sara Björnsdótt-
ir. Til 19. des.
Gallerí OneoOne:
Gjörningaklúbburinn. Til 4. jan.
Gallerí Reykjavík: Ebba Júlíana Lár-
usdóttir. Til 1. jan.
Gallerí Sævars Karls:
Vignir Jóhannesson. Til 19. des.
Gerðarsafn: Verk úr safni Þorvaldar
Guðmundssonar. Til 30. jan.
Gerðuberg: Eiríkur Smith. Til. 9. jan.
Hallgrímskirkja: Leifur Breiðfjörð. Til
16. feb.
i8, Ingólfsstræti 8: Ola Kolehmainen.
Til 23. jan.
íslensk grafík, Tryggvagata 17, (hafn-
armegin)
Smámyndasýning. Til 19. des. Skúffug-
allerí félagsmanna.
Kjarvalsstaðir: Ragna Róbertsdóttir.
Til 19. des.
Listasafn ASÍ: Arinstofa: Verk úr eigu
safnsins.
Listasafn Einars Jónssonar: Lokað í
des. og jan., en höggmyndagarðurinn
opinn alla daga.
Listasafn Islands:Kaffist. Dunganon.
Til 31. des. Vormenn íslenskrar mynd-
listar. Til 16. jan.Við aldamót. Til 10.
jan.
Listasafn Sigurjóns Olafssonar: Lokað
í des. ogjan..
Listhúsið Laugardal: Sjpfn Har. Til 31.
des.
Norræna húsið: Kalevala. Til 31. des.
Sparisjóður Garðabæjar: Átta mynd-
listakonur. Til 31. des.
Stofnun Árna Magnússonar: Handi’ita-
sýning opin þriðjudag-föstudaga kl.
14-16. Til 15. maí.
TÓNLIST
Laugardagur
Háskólabio: Jólatónleikar Sinfón-
íuhljómsveitar íslands. Kl. 15.
Dómkirkjan: Dómkórinn. Kl. 21.
Sunnudagur
Neskirkja: Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna, Inga Bachman, Jónas Ingi-
mundarson og þrír barnakórar. Kl. 17.
Hallgrímskirkja: Mótettukór Hall-
grímskirkju. Sigurður Flosason, Marta
Halldórsdóttir. Kl. 20.
Kópavogskirkja: Skólakór Kársness.
Kl. 22.
Salurinn, Kópavogi: Jóladjass. Kl.
20.30.
Mánudagur
Ilafn ar fj ar ð ar k i rkj a: Camerarctica.
Kl. 21.
Þriðjudagur:
Kópavogskirkja: Camerarctica. Kl. 21.
Miðvikdudagur
Dómkirlgan: Camerarctica. Kl. 21.
Föstudagur
Langholtskirkja: Kór Langholtskirkju
flytur 1. hluta Jólaóratóríu Bachs. Kl.
14.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Gullna hliðið, frums. 26.
des. Þrið. 28., mið. 29. des. Glanni glæp-
ur í Latabæ, fim. 30. des. Abel Snorko
býr einn, þrið. 28., mið. 29. des.
Borgarleikhúsið: Bláa herbergið, þrið.
28. des. Litla hryllingsbúðin, fim. 30.
des. Sex í sveit, mið. 29. des. Al’aspil
frums. 26. des., mið. 29., fim. 30. des.
Fegurðardrottningin frá Línakri, þrið.
28. des. Leitin að vísbendingu..., fim. 30.
des.
Iðnó: Stjörnur á morgunhimni, frums.
29. des. Fim. 30. des.
Hafnarljarðarleikhúsið: Salka, ástar-
saga, mið. 29. des.
Leikfélag Akureyrar: Blessuð jólin,
lau. 18., sun. 19.,, þrið. 28., mið. 29., fim.
30. des.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtai’ verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega eða í tölv-
upósti fyrir kl. 16 á miðvikudögum
merktar: Morgunblaðið, Menning/listir,
Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir:
5691222. Netfang: menning@mbl.is.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. DESEMBER 1999