Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 19

Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 19
halda. Þessir kunningjar Sólons þóttu sumir heldur kynlegir kvistir og nefndi Þórbergur þá ,síðustu leifar hins vestfirzka aðals.“. Má hér nefna „þingmann“ Bolvíkinga, Gísla Hjálmars- son, nefndur ,dopli“. Var hann stakur ráð- vendnismaður, kurteis og góður í umgengni en vínhneigður mjög. Sú hugsun hafði sest að í höfði hans að hann væri alþingismaður og ætti að vera á Alþingi. Stjórnmál áttu hug hans all- an og stundum hélt hann þrumandi ræður uppi á kössum og tunnum á Isafirði. Hitt var svo annað mál, að í eyrum þeirra sem lögðu við hlustir voru ræður hans „tóm endileysa að orð- um og efni, gersamlega óskiljanlegur vaðall, en tilfinningarnar voru auðfundnar." Annar gest- vinur Sólons var Jón Bassi og var viðurnefnið dregið af fæðingarstað hans, Bassastöðum við Steingrímsfjörð en sjálfur kallaði hann sig Jón Strandfjeld. Hann hafði ungur farið í siglingar og mannast nokkuð á sinn hátt. En jafnframt mun hann hafa misst jafnvægið og Bakkus reynst honum óhollur förunautur. Var hann löngum á faraldsfæti en greip þó í vinnu annað veifið, sjóróðra og fleira. Barnakennslu sinnti hann oft á afskekktum stöðum og var ekki að því starfi hans fundið. Þegar hann dvaldi í Slúnkaríki fann hann sér oft stund aflögu til að kenna fróðleiksfúsum börnum lestur og enn er á lífi fólk sem lærði að lesa hjá Jóni Bassa í Slúnkaríki. Eins og nærri má geta, vai' stundum mikill hávaði og læti í Slúnkaríki þegar þar voru sam- ankomnir hinir drykkfelldu vinir Sólons. Sjálf- ur vai- hann lítið fyrir vín og kunni illa drykkju- látum í híbýlum sínum eins og eftirfarandi saga ber vitni um. Einhvern tímann gerðist það seint um kvöld, að Sólon var sóttur heim af ekki ófrægari manni en Kristófer Kólumbus, sjómanni úr Bolungavík sem einnig gekk undir nafninu Kitti Kolli. Vínhneigður var hann líkt og margir aðrir, en að þessu sinni var vinurinn ofurölvi og hafði Sólon af honum lítið gaman og leiddist drykkjurausið. Svo vildi til, að þetta sama kvöld héldu templarar á ísafirði bindind- isfund í Góðtemplarahúsinu og þegar Sólon var búinn að fá nóg af gestinum, gerði hann sér lít- ið fyrir og skellti Kitta Kolla niður í hjólasleða sem hann átti og hélt rakleitt niður í Gúttó. Þar skvetti hann úr sleðanum inn á ganginn og sagði: „Hér áttu heima, elska.“ Um nokkurn tíma var Sólon í tygjum við konu eina er Kristín Gunnarsdóttir hét. Kallaði hann hana Kittu og í sálnaregistri var hún jafn- an skráð ráðskona hans eða bústýra. Árið 1916 voru þau skötuhjú þó skyndilega komin í hjónaband samkvæmt sálnaregistrinu en eng- ar aðrar heimildir finnast fyrir því að þau hafi tekið upp á því að láta pússa sig saman. Fyrir einhvern misskilning hefur prestur skráð þau sem hjón enda íeit það vafalaust betur út í sáln- aregistrinu. Þegar sálirnar í sókninni voru taldar aftur ári seinna var hjónabandið gleymt og Kristín aftur skráð bústýra í Sólonskoti. Sé litið í manntal ísafjarðarkaupstaðar 1916-1918 kemur í ljós, að hún er talin til þeirra lægst settu í samfélagsstiganum, þ.e. hún er skráð ómagi og í skjölum fátækranefndar sést að Sól- on fær greitt meðlag með henni í nokkur ár. Hvernig leiðir þeirra Kristínar og Sólons lágu saman er ómögulegt að segja til um en það litla sem um hana er vitað bendir eindregið til þess að líf hennar hafi verið afskaplega dapur- legt enda var hún nánast útskúfuð kona. Þá þótti hún með afbrigðum ófríð og notaði nef- tóbak mikið og lítt snyrtilega. í Slúnkaríki átti Kristín athvarf og fór víst ekki oft út fyrir kofa- dyi'nar. Væri hún hins vegar tilneydd að fara út, varð hún að þola þá auðmýkingu að fólk sneiddi hjá henni og vék fremur úr vegi en að mæta henni. Ymsar ófagrar sögur gengu um hana og sumar sannar. Hún hafði drukkið sér til vanvirðu og var sú ástríða ein af orsökum þeirrar niðurlægingar, sem þessi vesalingur hafði fallið í. Ekki var hún talin húsum hæf og kom því í hlut Sólops að gegna þeim erindum sem gegna þurfti. í bókinni Líf og lífsviðhorf segir séra Jón Auðuns frá kynnum sínum af þessari konu: ... móðir mín hafði samband við þessa undar- legu konu með gjöfum sínum, þótt ég hugsi að hún hafi aldrei séð hana. Sólon kom venjulega með bréfmiða frá henni til móður minnar, þeg- ar um annað þraut í allslausu koti. Kristín í Slúnkaríki sendi miða þessa oftast í ljóðum, ef ljóð skyldi rugl það kalla, er Sólon mun hafa samið. Þegar hún var orðin tóbakslaus, hét svo, að tóm var tóbaksstofa (nefið) hennar ... Vín- bannið, sem þá var í gildi, varnaði Kristínu í Slunkaríki þess að geta eignazt einstök hlý- legri augnablik. Hve margir vorkenndu henni það, veit ég ekki, en svo gerði móðir mín. Þá var það einu sinni á sumardaginn fyrsta, að ég var sendur með sumarglaðning í kotið. Kristín gamla kom til dyra og tók feginshendi sending- unni. Hún stóð við kofadyrnar og opnaði pakk- ann meðan ég stóð þai-na, en skyndilega ljóm- aði þetta gamla, ófríða og raunar óhrjálega andlit. Hjá matvörunni hafði móðir mín lagt lít- ið glas með brennivínslögg. Gamla konan horfði á glasið í hendi sér. Þetta var henni stór og dýrmæt sumargjöf. Hún tautaði fyrir munni sjálfri sér titrandi rómi: „Blessuð, blessuð frú ísfirðingurinn Finnur Finnsson lét Lesbók í té þessa teikningu af Slunkaríki, en þannig og með þeim myndskreytingum sem þarna sjást, telur Finnur að Sólon hafi hugsað sér Slunkaríki. Margrét." Hún kvaddi ekki en gekk inn í kotið. Þar hefur brugðið sumarbirtu yfir allan ömur- leikann stutta stund. (Líf oglífsviðhorí, 35) Eins og séra Jón nefnir, þá fékkst Sólon nokkuð við ljóðagerð en ekki var sá skáldskap- ur almennt í miklu áliti hjá fólki eins og skýrt kemur fram hjá séra Jóni. Þó voru þeir til sem voru á öndverðum meiði og t.d. fer Þórbergur fögrum orðum um ljóðagerð Sólons og lagði til að ljóðunum yrði safnað saman og gefin út í bók. Um ljóðin segir hann: Megnið af skáldskap Sólons eru lausavísur, sem oft er saman þjappað í miklu efni: djúpum sálarlífslýsingum, margbrotnu lífsstarfi, langri ævisögu, jafnvel ófreskum mannlífsskilningi.... Það er ennfremur einkennilegt um skáldskap Sólons, að hann brýtur iðulega af sér alla rím- fjötra, auðsæilega til þess að geta gefið hugsun sinni víðara svigrúm og meiri nákvæmni í tján- ingu og orðalagi. (Islenskur aðaii, 59.) Sólon sjálfur gerði aldrei mikið úr skáldskap sínum og sagði þetta ekki vera vísur heldur skrýtlur. Hann orti sér til ánægju og yndisauka en hvorki til lofs eða frægðar. Eftirfarandi vísa er dæmigerð fyrir þann stíl sem Sólon tileinkaði sér í ljóðagerð: Eiríkur hinn óþekkti feiknageymirvizku. Mold og myi'kur klífur hann ogrambarmillilanda. Og víst um það, að eitthvað hefur Þórbergur fyrir sér þegar hann segh- að „í ljóðum Sólons andar móti lesandanum meira af ferskum og frumlegum uppmnaleik en í kveðskap annarra samtíðarskálda hans.“ Það var undir lok ársins 1918, að Kitta í Slunkaríki kvaddi sína aumu jarðvist. Á ís- lensku þjóðina voru ýmsir erfiðleikar lagðir þetta ár og mátti hún meðal annars takast á við frostavetur aldarinnar, Kötlugos og inflúensu- faraldur auk þess sem skortur var á öllum nauðsynjum sökum heimsstyrjaldarinnar. Á Isafirði var sérlega slæmt ástand en þar þarfn- aðist um það bil helmingur bæjarbúa opinberr- ar hjálpar, nálægt þúsund manns. í ársbyrjun hófust mikil harðindi þegar skall á vonsku norðanveður með hörkufrosti og snjókomu, auk þess sem hafís varð þegar landfastur. Um nokkurt skeið hafði fólk mátt horfast í augu við atvinnuleysi, eldsneytisskort og matarskort en nú bættist við vond tíð, sífelldir kuldar í marg- ar vikur og allar bjai'gir bannaðar til sjávar. Neyðin var mest hjá þeim sem fátækastir voru og í kotinu hans Sólons hefur vafalaust verið dapurlegt ástand þennan kalda vetur. Og öm- urleikinn hélt áfram. Þegar kom fram á haustið tók spánska veikin að herja á landsmenn og þessi skæði inflúensufaraldur fór ekki hjá garði á Vestfjörðum. Kitta gamla hefur vai'la þolað meira mótlæti í lífinu og hinn níunda dag desembermánaðar dó hún drottni sínum, 69 ára gömul. Ekkert er sagt um dánarmein hennar, kannski var hún fórnarlamb spönsku veikinnar, kannski hallærisins. Ekki var Sólon lengi einn í kotinu því sam- kvæmt sálnaregistri fiuttist fljótlega til hans maður að nafni Olafur Einarsson, titlaður verkamaður. Var sá lítið eitt eldri en Sólon og er ekki að efa að húsráðandi hefur af sinni hjartagæsku boðið honum að vera enda nóg pláss eftir að Kitta hvarf yfir í sæluvistina hin- umegin. Ólafur þessi virðist hafa verið til heim- ilis í Slúnkaríki í nokkur ár en frekar segir ekki af honum. Þegar Slúnkaríki lauk hlutverki sinu Með árunum þvarr krafturinn og ellin fór að segja til sín. Líkaminn gerðist lúinn af ævi- löngu striti og erfiðisvinna varð Sóloni um megn. Lífsbaráttan varð erfiðari en áður enda ekki auðvelt fyrir gamlan mann að afla sér lífsviðurværis þegar starfsþrekið er þrotið. En á þessum síðasta speli í lífshlaupi Sólons sýndi það að ýmsir báru góðan hug til hans og réttu hjálparhönd þegar hann þurfti á því að halda. Á köldum vetrardögum mátti oft mátti sjá hann orna sér við heitan bakarofninn hjá Sveinbirni Halldórssyni, bakarameistara, sem reyndist honum afar vel. Tók hann karlinn undir sinn verndarvæng og átti sá gamli jafnan öruggt athvarf heima hjá Sveinbirni sem lét út- búa sérstaka koju fyrir hann uppi á háalofti. Þar fann Sólon öryggi þegar ofsóknaræðið hel- tók hann og eins í vondum veðrum. Hann átti einnig hauk í horni í Norska bakaríinu þar sem Helgi Guðmundsson, bakari, réð ríkjum og á báðum þessum stöðum var hann í ýmsum snúningum, oft með kerru eða hjólbörur sem hann keyrði alls konar varning í, t.d. kol eða mjölsekki. I staðinn fékk hann húsaskjól, mat, brauð og kökur - og ekki sló hann hendinni á móti tóbakskorni í nefið. Þegar búið var að seðja sárasta hungrið, mátti nota afganginn af bakkelsinu í ýmis vöruskipti. Beint fyrir neðan Slúnkaríki bjuggu hjónin Ásgeir Jónsson, vélstjóri, og Rebekka Dag- björt Hjaltadóttir. Reglulega kom Sólon þang- að með fatapoka sem hann hengdi við glugg- ann og skildi eftir. Eftir þegjandi samkomulagi þvoði húsmóðirin af honum og stoppaði í fötin og sokkana eftir því sem þurfti. Síðan hengdi hún pokann aftur út við gluggann og þegar Sól- on sótti pokann sinn, skildi hann eftir dýrindis kökur úr bakaríinu í þakklætisskyni. Aldrei fór hann inn eða eyddi mörgum orðum á þau hjón, en nokkur samskipti átti hann við börnin sem gerðu sér oft ferð upp í Slúnkaríki þar sem þau mættu ævinlega hlýju viðmóti því Sólon var barngóður þótt hann væri almennt mannfæl- inn. Þótt börn hefðu í fyrstu beyg af þessum tröllvaxna manni, þá varð forvitnin oft óttanum yfirsterkari og þau sem mönnuðu sig upp í að heimsækja hann fengu yfirleitt hlýlegar mót- tökur og var þá ísinn brotinn. Eitt barna þeirra Ásgeirs og Rebekku, Jón Ásgeirsson (fæddur 1921), var mikið hjá Sóloni og í miklu eftirlæti hjá honum, ekki síst vegna móður sinnar. Kom hann stundum með vini sína með sér og hjálp- uðu þeir karlinum þá að tína saman rusl á lóð- inni. Að launum fengu þeir krækiberjasaft, eina skeið á mann, sem Sólon sagði mjög holla. Fyrir kom að Sólon setti út á vinnubrögð strákanna, fannst þeir ekki svitna nóg sem með öðrum orðum þýddi að þeir voru ekki nógu duglegir. Brugðu strákarnir þá á það ráð að fara í læk skammt frá og ausa yfir sig vatni þannig að þeir litu út fyrir að vera rennsveittir. Þegar Sólon sá allan þennan ,svita“ sagði hann ánægður: „Nú líkar mér við ykkur“ og gaf hverjum og einum tvær skeiðar af krækiberja- saft. Þórbergur segir að þegar að „ferðum Jóns Strandfjelds og annaira frjálsborinna höfð- ingja á Isafjörð fór sífækkandi sakir vaxandi ellihrumleiks og úrkynjunar mannfólksins“, hafi Sóloni fundist Slúnkai-íki hafa lokið hlut- verki sínu í þágu íslenskrar menningar. Seldi hann skikann sinn og reisti sér einum til íbúðar dálítinn skúr innar í hlíðinni, fyrir ofan svokall- að Sveinbjarnartún. Byrjaði hann á að grafa þar gryfju og yfir hana sló hann síðan upp grind og negldi innan á hana bárujárn. Kofinn hallaði lítið eitt upp í fjallið, svokallaður vatns- halli. Eins og Slúnkaríki þótti þessi bygging nokkuð sérkennileg og þá einkum vegna þess að inni var hrútastía tveimur fetum hærri en gólfið. Væri Sólon inntur eftir því hvers vegna hann hefði hrútana þarna uppi en væri sjálfur niðri, svaraði hann því til að hrútarnir væru einhverjar göfugustu skepnur jarðarinnar og því gæti hann ekki boðið þeim upp á að vera í sömu gólfhæð og hann sjálfur. En hlutverk gryfjunnar var annað og mikilvægara því hún var í raun nokkurs konar skotgi’öf sem veitti hinum ofsótta manni skjól. Þai-na gat Sólon at- hafnað sig og sofið án þess að þurfa að óttast að byssukúla yrði honum að aldurtila. Svo sem vænta mátti hugðist Sólon ekki fara troðnar götur við hönnun hússins og að sögn Þórbergs ætlaði hann að láta allt snúa and- stætt því sem fram til þessa hafði tíðkast í húsagerðarlist hérlendis. Bárujárnið skyldi vera innst, en síðan átti allt að koma í öfugri röð þannig að veggfóðrið yrði utan á húsinu. Þegar Sólon var spurður, hvers vegna hann hyggðist byggja skúrinn þannig, svaraði hann glottandi: ,Veggfóður er til skrauts, elska, og þess vegna er sjálfsagt að hafa það þar, sem flestir hafa gaman af því.“ Ekki náði Sólon hins vegar að ljúka við bygginguna á þann hátt sem hann ætlaði sér. Einhverjum samborgurum hans þótti nóg komið af brölti karlsins uppi í hlíð enda enginn maður lengur til að standa í húsbyggingum eða öðrum framkvæmdum, hvorki stórum né smáum. Komu menn sér saman um að rétti staðurinn fyrir Sólon væri á elliheimili kaupstaðarins og báru þá hugmynd undir hann. En þótt gamall og hrumur væri orðinn, þá var stoltið óbugað enda hafði hann fram til þessa séð um sig sjálfur og enginn ómagi vildi hann vera, minnugur bernsku sinn- ar. Eftir miklar og erfiðar fortölur tókst að fá hann til að þiggja vist á elliheimilinu en ekki var hann sáttur við þá tilhögun og jaðraði við að hann væri fluttur þangað með valdi. Naut hann þar góðs atlætis og undi glaður og áhyggjulaus þessu hlutskipti sem hafði verið þröngvað upp á hann. Er kom fram á haustið 1931 þoldi lúinn lík- ami Sólons ekki meira og hann veiktist alvar- lega. Þorrinn þreki og kröftum eyddi hann síð- ustu ævidögunum á Sjúkrahúsi ísafjarðar þar sem dauðinn vitjaði hans að nóttu hins 14. október og létti byrðinni af þessum sérkenni- lega manni sem öðlaðist loks ró í sinni ofsóttu sálu. Sömu nótt var einn af kunmngjum Sólons, Helgi Guðmundsson, bakari á ísafirði, á leið með skipi frá Akureyri til Húsavíkur. Dreymir hann þá, að hann sé kominn heim til sín í Norska bakaríið og tekinn þar til starfa, en þar hafði Sólon verið tíður gestur. Þykir honum þá Sólon koma inn í bakaríið, og er hann upp á búinn og leikur á als oddi. Helgi undrast mjög, hve hress hann sé og fínn til fara, því að hann vissi að Sólon lá sjúkur á spítalanum. Segir Sólon, að sér sé nú albatnað, og hann sé farinn burt af sjúkrahúsinu. Þegar Helgi kom heim úr ferðalaginu, frétti hann lát Sólons, og hafði hann andazt sömu nóttina og Helga dreymdi drauminn. (íslenskur aðall, 68) Sólon Guðmundsson var 71 árs þegar hann kvaddi þessa jarðvist og var banamein hans talin hjartabilun. Það var margt manna sem fylgdi gamla manninum þegar hann var borinn til grafar hinn 27. október og kvöddu hann eins og konungi sæmdi. Þrátt fyrir að sá látni hefði verið fátækur einsetukarl sem ekkert átti nema fataleppana utan á sig, þá var ljóst að ís- firðingar mátu hann fyrir annarra hluta sakir, - óeigingjarna hjálpsemi í þágu mannanna og meðfæddan, hressandi frumleika. í þeirra huga var konungur Slúnkaríkis til grafar geng- inn, kominn af berangri lífsins í skjólborgir dauðans þar sem einu gildir hvaða búnað menn hafa. I fréttablaðinu Vesturlandi var getið um andlát hans og sagði meðal annars: „Sólon sál- uga þekktu allir ísfirðingar. Var hann rammur að afli og hið mesta hraustmenni á yngri árum. Er með honum horfinn einn þeirra sérkenni- legu manna, sem nú óðum fækkar." En þótt Sólon væri horfinn á vit feðra sinna, lifðu áfram sagnir um hann. Árið 1942 gaf Guðmundur E. Geirdal út lítið kver sem bar heitið Sólon í Slunkaríki aliur og innihélt kvæðabálk sem lýsti lífshlaupi Sólons. Er við hæfi að láta Guð- mund E. Geirdal eiga síðasta orðið: Öld þó bregði brandi brennuvargs í líki, ilmarSólonsandi yfir Slunkaríki. Helstu heimildir: Guðbjörg Jónsdóttir frá Broddanesi: Við Sólai'lag. Rv. 1952. Guðmundur E. Geirdal: Sólon í Slunkaríki allur. ísaf. 1942. íslenskur söguatlas 2. bindi. Frá 18. öld til fullveldis. Rv. 1992 Jón Auðuns: Líf oglífs- viðhorf. Rv. 1976. Jón P. Pór: Saga ísafjai'ðar og Eyrar- hrepps hins forna. II. bindi 1867-1920. ísaf. 1986. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum: Af sjónarhóli. Minningaþættir. Rv. Isafjarðarkaupstaður, manntalsbók 1914-1915 og 1916-1921. Isafjarðarkaupstaður, gerðabók fátækranefnd- ar 1903- 1917 og 1917-1932. Óðinn, 3.tbl. 1915, bls. 23-24. Ragnheiður Mósesdóttir: „Gloucestermenn í lúðuleit.“ Ný saga 1987,13-25. Sálnaregistur Eyri I Skutulsfirði, ísafirði 1913 - 1922. Sálnaregistur í Kirkjubólssókn 1869-1875. Vestanpóstur, 1. tbl. 1993,2,5-11. Vesturland, 23. tbl 1966, 28-29 og 41. tbl. 1931,3. Þórbergur Þórðarson: íslenskur aðall. Rv. 1959. Þórbergur Þórðarson: Ólíkar persónur. Rv. 1976. Örnólfur Ai-nason: Járnkarlinn. Matthías Bjarnason ræðir um ævi sína og viðhorf. Rv. 1993. Heimildarmenn: Böðvar Sveinbjarnarson Halldór Sveinbjarnarson Jón Ásgeirsson Matthías Bjarnason Höfundur er fædd í Reykjavík árið 1966 og lauk BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Islands árið 1991. Hún býr á ísafirði. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. DESEMBER 1999 1 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.