Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 33

Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Blaðsíða 33
KATRÍN MIKLA SNÝR AFTUR EFTIRTONY LENTIN Alla sína stjórnartíð taldi Katrín mikla að Rússlandi yrði ekki stjórnað eða óstand þjóðfélagsins bættón þess að algert einveldi væri stjórnarformið. Hún var samtó móti bændaónauðinni, en taldi ekki færtað rísa gegn aðlii num með afnómi hennar. KATRÍN mikla var í sjötíu ár í útlegð úr rússneskri sögu. Sovéskir sagnfræðingar töldu hana hafa verið erlenda ævin- týrakonu, hræsnara og sýnd- arkvendi, sem hafi ekki sýnt alþýðu Rússlands minnsta . áhuga. Hún féll ekki inn í stéttabaráttumunstrið, en samkvæmt kórrétt- um kenningum var stéttabaráttan „hreyfiafl sögunnar“. Katrín mikla var keisarainna Rússa frá 1762-96 og tvöhundruð ára ártíð hennar var á síðastliðnu ári. Endurmatið á störfum Katrínar hófst með „glasnost" seint á níunda áratugnum og upp úr 1990 hófst endur- mat og uppreisn æru hinnar löngu liðnu keis- arainnu ekki síst með umfjöllunum og ritum Alexanders Kamenskys og Oleg Omelcheno. í ágúst 1966 var haldin alþjóðleg ráðstefna í Pét- ursborg til að minnast 200 ára ártíðar drottn- ingar Rússlands. Lydia Kisliagina skrifar að Katrín mikla hafi að sönnu alltaf talað rússnesku með þýskum hreim, en hún bendir á þá staðreynd að Katrín hafi búið í Þýskalandi aðeins fyrstu fjórtán ár- in af þeim sextíu og sjö sem hún lifði. Hún lifði og starfaði hin fimmtíu og þrjú árin í Rússl- andi. Kamensky hélt opnunarræðuna á ráð- stefnunni í St. Pétursborg og benti í henni á pólitíska snilld Katrínar, lagni hennar í valda- baráttu og færni hennar i samningum og mannlegum samskiptum. Hún hafði til að bera óvenjulegt innsæi og mannþekkingu sem gerði henni auðvelt að sjá vissa hæfileika í fari manna og auðveldaði henni að laða menn til fylgis við skoðanir sínar og tryggja sér holl- ustu þeirra. Hún tryggði stjórnarfarslega festu í meira en þrjá áratugi, þrátt fyrir and- stöðu og valdakröfur sonar hennar, Páls, til krúnunnar. Síðustu fjörutíu árin fyrir valda- töku Katrínar hafði hver hallarbyltingin rekið aðra, en öllum tilraunum til slíks var haldið í skefjum, þótt réttmæt tilefni gæfust til þess samkvæmt áliti fylgjenda Páls, sonar hennar. Katrín mikla stefndi að ákveðnum markmið- um í stjómarstefnu sinni. Hún lýsti því yfir í Stefnuyfirlýsingu - Nakaz - sem hún gaf út sem leiðsögn um nýjan lagabálk sem skyldi staðfestur af fulltrúasamkomu, sem Katrín kvaddi saman 1767. Þessi yfirlýsing hófst með því að lýst var yfir að Rússland væri evrópskt ríki. Þessi yfirlýsing gaf til kynna stefnu Kat- rínar í utanríkis- og innanríkismálum. Hún ætlaðist til að hugarfarsbreytingu yrði komið á meðal þegna sinna og einnig var skilgreint hver staða hennar væri sem drottningar Rúss- lands. Inntak stefnu hennar var kenningin um „hið upplýsta einveldi". Lög skyldu ríkja í Rússaveldi, réttlæti og upplýsing var á stefnu- skránni. Katrín var sískrifandi athugasemdir og nót- ur, nefndi sjálfa sig „blekbullara", einvaldinn sem gekk með „lagaréttlætinguna í magan- um“. Hún var haldin kenningum „heimspek- inganna“ frönsku og trúði staðfastlega á upp- lýsinguna. Hún áleit að upplýsingin myndi verða til þess að skynsemin réði gjörðum manna og leitaðist við að koma upp „almenn- ingsáliti" meðal Rússa í þá veru. Hún setti saman móralskar smásögur fyrir barnabörn sín, kennslubækur og gamanleiki fyiir þegna sína. 011 þessi skrif hennar voru mörkuð þeirri trú að almenn skynsemi, brjóstvit og trúin á hið góða í manninum myndi stuðla að þjóðfé- lagslegum framförum og efla ábyrgðai-kennd meðal þjóðarinnar og yi'ði þar með skapað sið- aðra manna samfélag ábyrgra borgara í ríkinu. Fræðsla og upplýsing myndi skapa „dygga syni föðurlandsins" jafnvel „nýja mannteg- und“. Hún stofnaði Smolny stofnunina, fysta kvennaskóla í Rússlandi, fyrir ungar stúlkur af aðalsættum og af borgaralegum uppi-una. Hún studdist við nýjustu uppeldisfræðikenningar og taldi að menntun kvenna myndi stuðla að mótun borgaralegs samfélags. Hún virðist hafa talið bændaánauðina, þ.e. ánauð og þrældóm þegnanna, af hinu illa. Afstaða henn- ar til vísinda samtímans kom, best fram í því að hún var mjög fylgjandi bólusetningu, sem þá átti ekki upp á pallborðið meðal helstu þjóð- höfðingjaætta Evrópu af trúarlegum ástæð- um. Katrín stofnaði til spítala og taldi að með því að lækna fólk mætti skapa gagnsamlega þegna úr fyrrum spítölsku og sjúku fólki. Hún stofnaði rússnesku Akademíuna 1783. Þeirri stofnun var ætlað það verk m.a. að staðla rúss- nesku og í þeim tilgangi var samin Orðabók rússneskrar tungu, sem skyldi gera rússnesku hlutgenga með öðrum evrópskum þjóðtungum. Menn skyldu taka eftir þessari afstöðu Katrín- ar til þjóðtungunnar og minnast hinnar neik- væðu afstöðu Friðriks mikla Prússákonungs til þýskunnar skömmu áður. Sovéskir sagnfræðingar höfðu ritað mikið um útþenslu Rússaveldis á síðari hluta 18. ald- ar og sleppt hlut Katrínai' miklu að þeirri út- þenslu. Hún virðist hafa markað útþenslust- efnuna framar öðrum og mótað utanríkisstefnuna ekki síst gegn Tyrkjum. Katrín mikla var mikill bókaormur. Hún var ástríðufullur bókasafnari og hafði næman skilning og smekk fyrir bókinni sem listaverki í sjálfri sér, hún var það sem kallað er „bibliom- aniac“. Trú hennar á þýðingu og gildi hins prentaða orðs var tvímælalaus. Hún hvatti til þýðingarstarfa og bókaútgáfu og vann að því að rit skynsemishyggju og upplýsingar yrðu lesin í ríki sínu. Bókaútgáfa hafði fram til 1783 verið einokuð af ríkisvaldinu, en það ár leyfði hún og hvatti til sjálfstæðrar bókaútgáfu. Hún gekk svo langt að margra áliti þá að hvetja blaðaskrifara til að semja satírur og bein háðs- rit gegn yfirvöldunum. Þegar franska bylting- in brast á, neyddist hún þó til að draga í land með ritfrelsið, tók aftur upp efth'lit með útgáfustarfsemi. Rússland á dögum Katrínar miklu var að mestu byggt ólæsum og barbarískum bænda- lýð. Stéttaskiptingin var algjör og yfirstéttin skiptist hugmyndalega í pan-slavista, gamla rússneska aristókratíið og þá sem litu í vestur- átt og lögðu stund á evrópska siðun og evrópska menntun. Það var í rauninni ofætlun þessarar gáfuðu drottningar að ætla sér að koma upp þjóðfélagi með evrópskum áhrifum við þessar aðstæður. Afstaða Katrínar til bændaánauðarinnar var talin mjög tortryggi- leg af sovéskum sagnfræðingum, talin hræsni eða sleppt að ræða þau mál frekar. En nú er ekki lengur efast um einlægni hennar varðandi þann málaflokk. Aðstæðurnar voru þess eðlis, að það var fullkominn ógerningur að lina ána- uðina með boðum ríkisvaldsins. Allur aðallinn var andsnúinn hvers konai' breytingum á kjör- um bænda og Pugachov uppreisnin 1773-74 gerði henni Ijóst að róttækar breytingar á þjóðfélagsgerðinni gátu leitt til hrikalegra at- burða. Pugachov var kósakki sem hóf uppreisn í nafni hins myrta eiginmanns Katrínar, Pét- urs III. Bændauppreisnin hófst eins og áður segir 1773 og var lamin niður og Pugachov var hlut- aður í parta á Rauða torginu í Moskvu, sem var ekki beinlínis aðgerð í anda upplýsingarinnar. Þessi uppreisn var alvarlegasta tilraunin til að hrekja Katrínu frá völdum alla hennar stjórn- artíð. En þrátt fyrir þetta var trú ICatrínar á mátt upplýsingar og skynsemi óbilandi, hún kynnti upplýsinguna þegnum sínum og átti sjálf hlut að þýðingum franskra upplýsingannanna á rússnesku. Þegar Voltaire lést 1778, lét hún senda sér hundrað eintök af síðustu útgáfu verka hans, „svo ég geti dreift verkum hans, þessa meistara míns, sem víðast. Ég vil að þau verði fyrirmynd, ég vil að þau verði lesin og íhuguð, lærð utan að, vil að þau verði hráefni í nýjar hugsanir". Sagnfræðingar hafa löngum íhugað þörf Katrínar fyrir ímynd Katrínai- miklu. Hún vann að því að gera þá mynd af sér sem sýndi „gloire et grandeur" hinnar glæstu drottning- ar, drottningar sem jók veldi Rússlands og færði Rússa úr ástandi búrans í mynd siðaðs og menntaðs Evrópumanns, altekinn skyn- semisstefnu, raunhyggju og upplýsingu. Sú mynd sem drottningin vildi skapa telja sumir sagnfræðingar að hafi mótast af hæpinni rétt- lætingu hennar til valda í Rússlandi, morða eiginmanns hennar og þeim aðferðum sem hún beitti til að fela líkið í kjallaranum. Fortíð hennar þarfnaðist góðrar yfirbreiðslu og þá komu í góðar þarfir myndir af „Minerva Triumphant", frægir sigrar í baráttunni við Tyrki, glæstar hallir og söfnun listaverka, sem Rússar búa enn að, hirðsiðir sem vöktu undrun og aðdáun og ást á menntun, listum og bók- menntum auk bréfanna til Voltaires. Sigurhá- tíðin eftir sigrana á Tyrkjum sýndi svo ekki varð um villst mátt og veldi hins almáttuga yf- irbjóðanda allra Rússa, dýrð og glæsileik - „hina alvitru móður föðurlandsins“. Sonarson- ur hennar var skírður eftir Alexander mikla og Konstantínusi mikla. Það mátti marka hvert hugur hennar stefndi. Fræg mynd af Katrínu á ferðalagi um ríki sitt, minnir á Potemkin og tjöld hans. Framhlið þrifalegra bændabýla og vel kembdir og hrein- ir bændur og eiginkonur þeirra fyrir framan framhliðarveggina. Potemkin var ágætur her- foringi og mikill vinur Katrínar og sem land- stjóri í syðstu héruðum Rússlands vildi hann sýna drottningunni hið ágæta ástand sem ríkti í umdæmi hans. Alla sína stjórnartíð taldi Katrín mikla að Rússlandi yrði ekki stjórnað eða ástand þjóðfé- lagsins bætt án þess að algjört einveldi væri stjórnarformið. Hún trúði á að einveldið væri söguleg og pólitísk nauðsyn fyrir Rússland enda þótt hún ritaði um að konungsveldið yrði að byggja á lögum og yrði að vera bundið lög- um í konungsríkjum Evrópu á 18. öld. 1787 rit- aði hún hugrenningar um „grundvallarlög" sem mundu binda hendur einvaldra konunga. Hún stóð fast á Stefnuyfirlýsingunni - Nakaz frá 1767, þvert á allar stjórnarfarslegar teoríur sínar, „um að stjómandi Rússlands væri al- gjörlega einvaldur, ekkert vald nema persónu- bundið vald einvaldsins gæti stjórnað með árangri svo víðlendu ríki sem Rúss- landi.. .annað stjómarform myndi leiða til stjórnleysis og hörmunga fyi-ir föðurlandið...“ Þótt Katrín væri einvöld og vald hennar yfir þegnum sínum algjört, þá tempraði hún alla grófa valdbeitingu, hún tók alltaf tillit til stað- reynda og gætti hófsemi í stjórnarathöfnum, framkoma hennai' var alúðleg, hún gat vottað samúð á þann hátt að menn fundu að þar var engin sýndarmennska á ferðinni. Hún ritaði íhuganú' og ráðleggingar fyrir sjálfa sig á spássíur „Télemaque“ eftir Fénelon, „hlýhug- ur og samúð þín má aldrei verða á kostnað eða rýra á neinn hátt hin afdráttarlausu völd þín“. Hún undirbjó vandlega allai’ stjórnarathafn- ir sínar og ræddi þær við nánustu ráðgjafa sína áður en til framkvæmda kom. Eins og áður segir var frumkvæði hennar til eflingar menntunar og lista glæstasta arfleifð stjórnar hennar. Hún leitaðist einnig við að endurskipuleggja umboðsstjórnina og stjórn sveita og bæjarfélaga og þær ráðstafanir mörkuðust af stefnu hins upplýsta einveldis, samkvæmt skoðunum Omelchenkos. í utanrík- ismálum gat hún vissulega stært sig af því að hafa aukið áhrif Rússa í Evrópu og fært út landamæri ríkisins, einkum á kostnað Tyrkja. Hún mótaði stefnu Rússa til Konstantínópel, rússnesku zarirnir töldu sig arftaka keis- aranna í austur-rómverska keisaradæminu og Katrín hélt þeirri stefnu til streitu í óþökk helstu ríkja í Evrópu, sem töldu verulega hættu steðja að Evrópu ef Rússar næðu yfir- ráðum yfir sundunum, Konstantínópel og ná- grenni, valdajafnvægið í Evrópu mundi stór- lega raskast með stórauknum áhrifum Rússa við Miðjarðarhaf og auknum áhrifum þeirra austast í Evrópu - Póllandi. Katrín mikla ætlaði sér að siðmennta hið hálfbarbaríska ríki sitt með því að innprenta þegnum sínum höfuðkenningar upplýsingar- innar með fræðslu og uppeldi. Henni mistókst þetta, vegna þess að í Rússlandi voru aðeins tvær stéttir, eða öllu heldur tvær þjóðir, ann- ars vegar aðall og ortódoxa kirkjan og síðan allur þorri íbúanna bændastétt á „stigi hálfsið- unar“. Þriðja stéttin, borgarar og iðnaðarmenn voru vart til í evrópskri merkingu hugtakanna. Það var ekki gjörlegt að útbreiða kenningar skynsemishyggjumanna meðal meginhluta þjóðarinnar með bóklestri, þai’ sem ólæsi var algjört meðal þeirra. Aðallinn var tvíátta í af- stöðunni til stjómarstefnu Katrínar miklu, en þar voru áhrif hennar víðtækust. Afstaða ortó- doxu kirkjunnar var afdráttarlaus gegn öllum tilburðum í anda upplýsingarinnar. Katrín mikla varð að hemja þá hugmynda- fræði upplýsingarinnar sem hún mótaði stjómaraðgerðir sínar eftir á fyrsta áratugi ríkisstjórnai’ sinnar, eftir bændauppreisn Pugachovs og enn frekai- eftir Frönsku stjórn- arbyltinguna. En marktækustu umfjallanh- um Katrínu miklu, eftir Kamensky og Omelchen- ko, staðfesta þá mynd að Katrín hafi þrátt fyrir allt, ætíð verið trú hugmyndum sínum og hug- sjónum sem hún kynnti í Stefnuyfirlýsingunni frá 1767 og stjórnarathafnir hennar þvert á þær hugmundir hafi verið henni nauðsynleg^* nauðung vegna stjórnarformsins. í athuga- semd sem hún skráir 1787 segir: „Verður ástundun mín og umhyggja fyrir velferð ríkis- ins og þegna þess árangurslaus, vegna þess að ég sé skýrt að ég get ekki löggilt að viðhorf mín og hugmyndir erfist?" En hugmyndir skynsemishyggju og upplýs- ingar höfðu skotið rótum í hugum margra þegna hennar og áhuginn fyrir siðmenntun þjóðarinnar og evrópíseringu þjóðfélagsins jókst í þessu víðlenda ríki. Þannig lifðu hug- myndir Katrínar miklu áfram og á síðari hluta 19. aldar vai’ ánauð rússneskra bænda afnumin og menntastefna Katrínar tekin upp fyrir til-. stuðlan ríkisvaldsins. Iðnvæðing og uppkoma borgarastéttar var hafin, læsi og heilbrigðis- þjónusta jókst og leiðin virtist liggja til Evrópu, en þá brast fyrri heimsstyrjöldin á og afleiðingar hennar m-ðu til þess að hugmyndir og hugsjónir Katrínar annarrar hurfu í þessu víðlenda ríki, hurfu í sjötíu ár á þessari öld. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. DESEMBER 1999 33

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.