Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Page 20
H
í súluvarpinu uppi og vestan á Skrúð. Þar er gulbleikur flekkur sem sést alla leið úr landi.
Súluvarpstaðirnir eru talsvert ofar en langvíubælin.
Langvíumömmur með unga sína vestan á Skrúð. Þarna er gífurlegur hávaði þegar þær garga í kór.
LJÓSMYNDIR: SNORRI SNORRASON
ÚTI FYRIR austurströnd Fáskrúðsfjarðar rís
klettaeyjan Skrúður og raunar eru heimildir
fyrir því að Fáskrúðsfjörður hét Skrúðsfjörður
til forna. í næsta nágrenni eru tvær aðrar eyj-
ar, Andey og Æðarsker, báðar grasi vaxnar, en
Seley er ásamt hólmum og smáeyjum undan
austurströnd Reyðarfjarðar. Papey er lang-
stærst þessara eyja við Austfirði og sú eina
þeirra sem hefur verið byggð. Ljóst er að eyj-
an er kennd við Papa, sem viða voru fyrir þeg-
ar norrænt landnám hófst á Islandi.
Þjóðsaga er til um vætti í Skrúðnum; var
hún kölluð Skrúðsbóndi. Þótti vissara að bægja
þessum dularfulla bónda frá og átti að nota
tækifærið þegar Guðmundur biskup góði var á
ferðinni á Austurlandi 1201 eða 1203, þegar
hann kom í Mjóafjörð á heimleið úr vígsluför
til Niðaróss. Atti hann þá að vígja eyjuna og
bægja Skrúðsbónda frá. Af því varð þó ekki, en
vætturin hélt áfram að éta þá sauði sem bænd-
ur létu ganga í eyjunni. Auk þess seiddi
Skrúðsbóndinn til sín prestsdóttur frá Hólm-
um í Reyðarfirði. Um það efni er leikrit
Björgvins Guðmundssonar tónskálds, Skrúðs-
bóndinn.
í Skrúðnum er Skrúðshellir, hár hellir og
víður, og hefur fallið allmikið úr hellisloftinu
sem myndar stóra grjóthrúgu. Fyrr á tímum
voru róðrar stundaðir úr Skrúð og höfðust ver-
menn þá við í hellinum; notuðu hann sem ver-
búð. Eins og ljóst má vera af myndum Snorra
Snorrasonar er geysimikið fuglalíf í Skrúð og
var eyjan mikið forðabúr matar áður fyrr, bæði
fugla- og eggjataka, sem kom sér vel þegar
sulturinn svarf að á vorin. Fuglinn á mestan
þátt í að Skrúður er grænn til að sjá, jafnvel
einnig að vetrarlagi. Þetta fallega matarforða-
búr heyrði til jörðinni Vattarnesi við Reyðar-
fjörð. Úm eyjuna kvað Páll Ólafsson:
Skrúður rís grænn úr græði,
getur-at hvítur vetur
hann litverpan látið
líta of sveitir hvítar.
Bezti lendingarstaðurinn við Skrúð er í þessari vík, sem er austan á eyjunni. Ofan við víki
Þarna er allt vafið þykkum gróðri.
plpr m
[1 s| m ■■ ^rÍ//; % ,.-d m mr % ‘4-,.r
■gst&aÍTi'm
Lendingarstaðurinn vestan á eyjunni, þar sem leiðangursmenn lentu til þess að komast sem næst
Vattarnesi, en báturinn var farinn þegar myndin var tekin. Lygnt var og sléttur sjór; að öðrum kosti v
staöar á Skrúð er stuðlaberg.
70 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 18. DESEMBER 1999