Lesbók Morgunblaðsins - 18.12.1999, Page 27
m
Treasurers House, hús féhirðisins. Þar bjuggu um aldir féhirðar dómkirkjunnar í York. Eftfr siðaskiptin var embættið lagt niður og komst húsið þá í
eigu krúnunnar. Endurbygging hússins hófst 1550 og er því mjög vel við haldið.
Rústir heilagrar Maríu í Safnagarðinum í York. Kirkjan var byggð um 1088 en brotin niður um
siðaskiptin að skipun Hinriks áttunda árið 1539.
Clifforðs Tower var reistur í tíð Vilhjálms sigursæla á árunum 1245-62 og notaður sem virki allt
til loka 17. aldar. Cliffords Tower stendur á nokkuð hárri hæð og þegar upp er komið sér til allra
átta yfir borgina.
V/KINMSMiÐl 06 S/HMTVI
Víkingasmíði og smíðatól eins og sjá má í Víkingasafninu.
var mjög fallegur, með styttum og stein-
bekkjum. Þetta var Treasurer’s House, hús
féhirðisins, og stendur það bak við dómkirkj-
una. Staðsetning Treasurer’s House er æva-
forn. Talið er að húsið sé byggt á rómversk-
um rústum. I kjallara þess eru greinilegar
leifar frá rómverskum tímum og í ljós kom
rómversk gata í kjallara hússins þegar það
var endurreist árið 1897. Fyrir um það bil
fimmtíu árum varð pípulagningamaður, sem
var að vinna í kjallaranum, fyrir því að „sjá“
heila hersveit rómverskra hermanna útataða
auri ganga gegnum vegg, rétt fyrir framan
sig, og halda síðan áfram eftir þessum upp-
runalega vegi sem liggur um kjallarann.
Sagt er að draugagangur hafi verið í húsinu
frá því það var upphaflega reist, rétt fyrir
árið 1100. Féhirðar dómkirkjunnar í York
bjuggu í húsinu allt frá þeim tíma er breyt-
ingar urðu við siðaskiptin. Árið 1547 var
embættið lagt niður og ekki endurlífgað fyrr
en árið 1936. Húsið komst í eigu krúnunnar
við siðaskiptin. Erkibiskupar ensku
kirkjunnar bjuggu í húsinu næstu öld. Þá
var húsið selt og skipti um eigendur, allt
fram á seinni hluta nítjándu aldar, þegar
Frank Green iðjuhöldur, kunnur maður þess
tíma, eignaðist það. Hann arfleiddi „National
Trust“ að húsinu árið 1930.
Endurbygging hússins, eins og það er í
dag, hófst um 1550 og var það endurbætt og
skreytt næstu aldir og hefur, síðan það
komst í eigu þjóðarinnar, verið mjög vel við
haldið. í húsinu er mikið af dyrmætum göml-
um húsmunum og í hverju herbergi var
starfsmaður sem sagði okkur sögu herberg-
isins og húsbúnaðar þess sem þar var, en
hver hlutur á sína sögu. Margt merkra
manna og kvenna hefur gist þetta hús, m.a.
prinsinn af Wales, síðar Játvarður VII, og
hans fjölskylda.
Við gengum út úr garðinum, nokkra metra
að dómkirkjunni. Til hliðar við hana er „kór-
bræðrakapellan". Kapellan var byggð á ár-
unum 1270-1280. Ekki er vitað hver byggði
hana, en talið að hugmyndin hafi komið frá
John le Romeyn, erkibiskupi í York. Hvelf-
ingin er með timburþaki, sem var mjög
óvanalegt á þessum tímum á Englandi, og
minnir það á gotnesk hvolfþök. Mestallan
innanverðan hring kapellunnar eru 44 básar
úr kalksteini og á milli þeirra súlur með
sérkennilegum súlnahöfðum. í sum súlnahöf-
uðin hafa verið skornar út myndir af dýrum
og mönnum. Leiðsögumaður í kapellunni
benti okkur á að setjast í einn básinn, en sitji
maður þar heyrist ekkert. Þetta er það sem
kallað er „dauður punktur". En standi mað-
ur í miðju kapellunnar heyrist jafnvel hvísl
um allt, nema í þessum eina bás. Gamlir
steindir gluggar prýða kapelluna og er þar
meðal annars gluggi frá byrjun 16. aldar sem
sýnir myndir úr lífi Krists og Tómasar
Becket, erkibiskups af Kantaraborg. Kapell-
an tengist dómkirkjunni með fordyri, sem
byggt var nokkrum árum seinna. Við geng-
um gegnum fordyrið og aftur inn í kirkjuna,
stóðumst ekki freistinguna að skoða hana
aftur.
Degi var tekið að halla og gengum við glöð
og þakklát niður Museum Street, að járn-
brautarstöðinni. Á leið okkar til London
strengdum við þess heit að koma aftur til
York, því þar eigum við margt eftir að skoða.
Heimildir:
City of York. l’itkin Cuides. Wclcomc to York Minstcr.
Dcan of York. Guided Walks. Yorkshirc Tourist Board.
Trcasurer’s House. Kupcrl Hildyard.
Höfundur er kennari, teiknarinn er mynd-
listarmoður..
ÁGÚSTÍNAJÓNSDÓTTIR
GEISLAHÚS
Teiknum saman
ljósgeislahús
með skýjagluggum
og sólarhwðum
áfjallinu tigna
það verður saga okkar
kvöldið sem ljósker
tendrast í rökkrinu
ókominn dag eftir aldir
UÓSFIRÐ
Ósýnilegw tíminn
sitw um hug minn
sem slútiryfir auðum örkum
milli spurnar og svara
með fögnuð að veði
á morgun telja einhverjir
áríljósfírð
ég tel allt í orðum
ástríðuheit
slít ótal orðum
á hverrí mínútu
Höfundurinn er Ijóðskóld og kennari í
Reykjavík.
rr
ÞÓRA BJÖRK BENEDIKTSDÓTTIR
JOLA-
STEMMN
ING
Nú ljúfasta
minningin vaknar,
hlítt man ég
bemskunnarjól,
alsæl í faðmi móðw
varfríðw
var skjól.
Langternú
liðið síðan
er lít ég farinn veg
fábrotnu jólin heima
í minningu
geymast vel.
Komdu nú
bemska aftw
lýstu upp hjarta mitt,
af fríð sem
frelsarinn gefw
um heilaga
helga nótt.
Vegurínn heim
til lífsins
vargefínn
þá heilögu hljóðu nótt
á Betlehemsvöllum
þar englarnir sungu
frelsarí
fæddur er.
íjötu var
lausnarinn lagðw
innan um dýrin smá
þó var hann
kon ungw lífsins
og enga gistingu að fá
í höllum hjá
mannanna bömum.
Komdu nú
frelsari vinw
gistu hjarta mitt
mætti égaftw
verða að barni
sem syngw þér
dýrð umjól.
Höfundurinn er skóld í Reykjavík.
r
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 18. DESEMBER 1999 27