Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 3
r Laugardagur 2., iúlí 1988 ..ini \ \ i;,i i .rr i i \ VAXTARSJOÐURINN NÝR VERÐBRÉFAS JÓÐUR STÍGUR SÍN FYRSTU SKREF Útvegsbankinn hefur stofnað verðbréfasjóð sem ætlaður er ein- staklingum sem vilja ávaxta fé sitt á einfaldan og öruggan hátt. Verðbréfasjóður þessi bera nafnið Vaxtarsjóðurinn. Markmið sjóðsins er að gefa einstaklingum kost á að nýta sér ávöxtunar- möguleika hins ahnenna verðbréfamarkaðar án þess að þeir þurfi að taka mikla áhættu. HLUTDEILD ÞÍN í VAXTARSJÓÐNUM Með kaupum á Vaxtarbréfum, sérstökum verðbréfum sem Vaxtarsjóðurinn gefur út, gerist þú þátttakandi í spennandi fjár- festingarsamtökum. Þú eignast hlutdeild í Vaxtarsjóðnum, sem stýrt er af sérfræðingum Verðbréfamarkaðar Útvegsbankans. Þeir kappkosta að ná sem mestri áhættudreifingu og sem bestum vöxtum. VAXTARBRÉF I FIMM VERÐFLOKKUM Vaxtarbréfin eru gefin út í fimm verðflokkum. Það ódýrasta kostar 1.000 krónur en það dýrasta 500.000 krónur. Bréfin henta þeim best sem vilja leggja smærri fjárhæðir eða stærri til hliðar, en vita ekki nákvæmlega hvenær þeir þurfa að grípa til pening- anna. VAXTARBRÉF OG VERÐBÆTUR Vaxtarsjóðurinn er uppsöfnunarsjóður. Vaxtarbréfin safna vöxt- um og verðbótum sem greiðast ásamt höfuðstól þegar þú lætur Verðbréfamarkað Útvegsbankans innleysa bréfin þín. SÉRÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR V AXTARBRÉF A Þeir sem kaupa Vaxtarbréf hjá Verðbréfamarkaði Útvegsbank- ans geta lagt bréf sín inn á Fjárfestingareikning og fengið þannig fjárvörslu sér að kostnaðarlausu. VERTU MEÐ í SPENNANÐI FJÁRFESTINGARSAMTÖKUM Fáðu upplýsingar um fjárfestingarstefnu Vaxtarsjóðsins hjá Verðbréfamarkaði Útvegsbankans og Útvegsbankanum um land allt. Með því að kaupa Vaxtarbréf færðu tækifæri til að ávaxta sparifé þitt á hagstæðan hátt. Þekking okkar og þjónusta tryggja þér góðan arð. I- VERÐBRÉBMVIARKAÐUR CnVEGSBANKANS SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.