Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 16
16
Laugardagur 2. júlí 1988
Fangar
mánaðarins
- Júní1988
Mannréttindasamtökin
Amnesty International vilja
vekja athygli almennings á
máli eftirfarandi samvisku-
fanga í júni. Jafnframt vonast
samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar
þessum föngum og sýna
þannig í verki andstöðu sína
gegn því að slík mannrétt-
indabrot séu framin. íslands-
deild Amnesty gefur einnig
út póstkort til stuðnings
föngum mánaðarins og fást
áskriftir á skrifstofu samtak-
anna.
Tyrkland: Dr Nihat Sargin
(61 árs) og Haydar Kutlu (43
ára) eru báðir meðlimir í
stjórnmálasamtökum sem
eru bönnuð í Tyrklandi. Þeir
voru handteknir þann 16. nóv.
1987 þegar þeir snéru heim
úr nokkurra ára útlegð. Til-
gangur heimkomunnar var að
reyna að fá friðsamlega
stjórnmálaþátttöku lögleidda.
Benin: Anselme Agba-
houndo er 33 ára gamall jarð-
fræðingur. Hann var handtek-
inn í júlí 1985 og haldið í
stuttan tíma á lögreglustöð-
inni í Cotonou. Þar var hann
spurður um afstöðu hans til
stjórnarinnar og leynilegs
kommúnistaflokks. Þremur
mánuðum seinna, 9. okt., var
hann handtekinn aftur af
tveimur lögreglumönnum til
frekari spurninga.
Kina: Yang Wei er 32 ára
gamall námsmaður frá
Shanghai. Hann lauk mast-
ersgráðu í sameindalíffræði
frá Arizonaháskóla í maí
1986. Hann giftist þegar hann
kom heim frá námi. Kona
hans fór til Bandaríkjanna í
nóv. sama ár í nám en Wei
beið eftir að fá leyfi til að
fara lika og klára doktors-
nám. Mikil mótmæli áttu sér
staö meðal stúdenta i helstu
boraum Kína í des. 1986 og
jan. 1987. Farið var fram á
aukið lýðræði og frjálsræði.
Þann 11. jan. var Wei hand-
tekinn eftir að öryggissveitir
höfðu rannsakað íbúð
foreldra hans og fundið
bæklinga og persónuleg skrif
sem áttu að sýna stuðning
hans við stúdentahreyfing-
una.
Þeir sem vilja leggja mál-
um þessara fanga lið, og þá
um leið mannréttindabaráttu
almennt, eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við
skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykajvík, sími 16940. Skrif-
stofan er opin frá 16-18 alla
virka daga. Þar fást nánari
upplýsingar sem og heimilis-
föng þeirra aðila sem skrifa
skal til. Einnig er veitt aðstoð
við bréfaskriftir ef óskað er.
kominn...
að vera í öruggu
sambandi við umheiminn ?
Mitsubishi farsíminn
sér um það !
Komdu og kynntu þér kosti
Mitsubishi... það borgar sig !
Er ekki tími til
■
Greiöslumáti Útborqun Verö
Staögreitt 127.510,-
Almennt verö 137.108,-
Eurokredit 11 mán. 0- 137.108,-
Visa raðgr. 12 mán. 0,- 137.108,-
Kaupleigusamn. 3 ár 0,- 137.108,-
‘Ví6 tö&ccvH- vel á mótc fién l
Iðnrekendur
vilja frelsa
fjármagnið
Stjórn Félags íslenskra
iðnrekenda leggur til eftirfar-
andi breytingar á íslenkum
fjármagnsmarkaði:
1. Islenskum sparifjáreig-
endum og lántakendum verði
gefið fullt frelsi til að binda
sparnað sinn og lántökur hér
á landi við gengi erlendra
gjaldmiðla.
2. í beinu framhaldi verði
gerðar nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að afnema öll höft
sem nú eru á möguleikum ís-
lendinga til sparnaðar eða
lántöku erlendis.
3. Erlendum bönkum verði
leyft að stunda bankastarf-
semi á íslandi.
4. Athugað verði með teng-
ingu íslensku krónunnarvið
myntkerfi eins og ECU.
„Ef framangreindar ráðstaf-
anir verða framkvæmdar
gefst tækifæri til að tryggja
íslenskum sparifjáreigendum
og lántakendum jafnstöðu
við það sem tíðkast erlendis.
Þannig skapast færi á að
losa sig undan þeim sérís-
lensku fyrirbærum á pen-
ingamarkaðnum sem birtist
annars vegar í lánskjaravisi-
tölu og hins vegar i háum ís-
lenskum nafnvöxtum," segir í
ályktun stjórnarinnar.
Skólastjóra-
ráðningu
mótmælt
Kennarafélag Reykjavíkur
hefur sent Alþýðublaðinu
afrit af yfirlýsingu sem félag-
ið sendi, menntamálaráð-
herraog Fræðsluráði Reykja-
víkur vegna veitingar skóla-
stjórastöðu í Ölduseisskóla:
„16. maí s.l. mælti meiÞ
hluti Fræðsluráðs Reykjav.*-
ur með Sjöf Sigurbjörnsdótt-
ur í skólastjórastöðu í Öldu-
selsskóla. Þá gerðu fulltrúar
kennara í Fræðsluráði bókun
þar sem þeir hörmuðu
atstöðu meirihlutans i ráðinu
og bentu á lengri starfs-
reynslu Daníels Gunnarsson-
ar við grunnskólastigið og
eindregið traust allra starfs-
manna skólans.
Nú hefur menntamálaráð-
herra veitt Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur stöðuna þrátt fyrir
stuðningsyfirlýsingar allra
starfsmanna og foreldra 93%
nemenda skólans.
Stjórn Kennarafélags
Reykjavlkur harmar þá
ákvörðun mennamálaráðherra
að veita stöðuna þvert gegn
vilja foreldra barna og allra
starfsmanna skólans. Þar
sem Fræðsluráð Reykjavíkur
taldi báða umsækjendur
hæfa til starfsins hefði verið
eðlilegast að veita Daníel
Gunnarssyni stöðunavegna
eindreginna óska allra þeirra
sem málið varðar mest.
Allt skólastarf byggist á
því að gott samstarf sé milli
allra starfsmanna skólans,
nemenda og foreldra þeirra
og að gagnkvæmt traust sé
milli þessara aðila. Með þvi
að taka ekki tillit til vilja
foreldra nemenda og starfs-
manna í Ölduselsskóla hefur
menntamálaráðherra unniö
gegn þeirri yfirlýstu stefnu
að auka sjálfstæði skóla og
efla samstarf heimila og
skóla.“