Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 20

Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 20
20 Láugárdagur'2. júli 'lðÖ8 ^Húsnæðisstofnun ríkistns _____________TÆKNIDEILD_____________ Simi 696900 Útboó HÖFÐAHREPPUR (Skagaströnd) Hreppsnefnd Höföahrepps, óskar eftir tilboöum í byggingu þriggja íbúöa raöhúss, byggöu úr stein- steypu. Verk nr. K.05.01 úr teikningasafni tækni- deildar Húsnæöisstofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 276 m2. Brúttórúmmál húss 871 m3. Húsiö verður byggt við götuna Suöurvegur 26-30, Skagaströnd og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn. Afhending útboösgagna er á sveitarstjórnarskrif- stofu Höfðahrepps, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd, og hjá tæknideild Húsnæösstofnunar ríkisins, frá þriðjudeginum 5. júlí 1988 gegn kr. 10.000.- skila- tryggingu. Tilboöum skal skilaásömu staöi eigi siöaren þriðju- daginn 19. júlí 1988 kl. 11.00 og veröa þau opnuð aö viðstöddum bjóöendum. F.h. hreppsnefndar Höfðahrepps tæknideild Húsnæöisstofnunar ríkisins. ÚTBOÐ Biskupstungnabraut, Mosfellslækur — Brúará. Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboöum í ofangreint verk. Lengd vegarkafla 2,4 y, 'J/Æw km, skeringar 4.600 m3, fyllingar og V buröarlög 24.000 m3. V|wy Verki skal lokiö 1. júní 1989. Útboösgögn veröa afhent hjá Vega- gerö ríkisins á Selfossi og í Reykjavík (aöalgjaldkera) frá og meö 4. júlí 1988. Skila skal tilboðum á sömu stööum fyrir kl. 14.00 þann 25. júlí 1988. Vegamálastjóri Fulltrúastaða í utanríkísþjónustunni Staöa háskólamenntaös fulltrúa í utanrikis- þjónustunni er laust til umsóknar. Laun eru sam- kvæmt launakerfi starfmanna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu, Hverfisgötu 115, 150 Reykjavík, fyrir 15. júlí 1988. Utanrikisráðuneytið Reykjavík, 28. júní 1988. Sumarferð Alþýðuflokksins Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík og á Reykjanesi fara í sameiginlega sumarferð laugardaginn 2. júlí n.k. og að þessu sinni verður haldiö í austur. Ferðaáætlun: 1. Lagt af staö frá BSÍ kl. 9.30. 2. Komið við í Hveragerði og á Selfossi, þar bætast í hóp- inn hressir félagar af Suðurlandi. 3. Ekið sem leið liggur í Þjórsárdal, þar verðursnætt nesti. Við skoðum þjóðveldisbæinn og rústirnar að Stöng. Farið verður í sund (hafið með ykkur sundföt). 4. Þessu næst verður haldið upp á hálendið. Virkjanirnar við Hrauneyjarfoss og Sigöldu heimsóttar. 5. Næsti áfangastaðurerSkíðaskálinn í Hveradölum með viðkomu í Hveragerði. Þar verður tekið á móti hópnum með veglegri víkingaveislu. Ef vel viðrar verður grillað úti. , Áætlaður komutimi til Reykjavíkur er kl. 23.00. Reyndir fararstjórar og leiðsögumenn verða með hópnum. Verð fyrir fullorðna kr. 1.800,- og verð fyrir börn yngri en 12 ára kr. 800.-. Skráning þátttöku er á skrifstofu Alþýðuflokksins Hverfis- götu 8-10 frákl. 10-16 allavirkadagasími 91-29244. Athugið greiðslukortaþjónusta. Alþýðuflokkurinn. BARNAHORNIÐ Umsjón: Gunnlaugur Karlsson og Þór Martinsson Ljósmyndir: Ingólfur Guðmundsson Gunnlaugur blaðamaður er staddur út i Eyjum. EYJAPISTIII Vestmannaeyjar eru falleg- ar á að lita. Fuglalífið er með fádæmum fjölbreytt. Þar mætti fyrst telja lundana. Afkvæmi lundans heitir pisja. Á haustin þegar pisjan er nógu stór til að ferðast úr lundaholunni flýgur hún í sjó- inn. Ljósin í bænum villa hana oft og hún lendir á göt- um bæjarins. Á kvöldin byrjar svo björg- unarstarfiö. Allir í bænum reyna að finna pisju, geyma hana svo um nóttina og sleppa þeim svo loks í sjó- inn. — Frá Gunnlaugi Karlssyni blaðamanni Barnahornsins. HVAD KOSTAR TIL EYJA? Fjölskylduferðir til Eyja eru gey silega vinsælar. Hér er verð- listi um ferðakostnað þangað. Flugleiðir: Ferð fyrir einn fullorðinn................... 2384 Ferð fyrir barn ............................. 1192 MS Herjólfur: Ferð fyrir einn fullorðinn.................... 800 Ferð fyrir barn............................... 400 Ferð á einum bíl ........................... 1750 Fjölskyldufargjöld: '’inn fulloröinn fullt gjald og hinir hálft. Börn borga hálft gjald og ókeypis fyrir börn yngri en sex ára. Borga verður báðar leiðir. Barnahornið vill hvetja sem flesta að skreppa til Eyja í sumarleyfinu. SKAUTASVELL FYRIR 45 MILUÓNIR Iþrótta- tómstundarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að byggja vélfryst skautasvell í Laugardalnum. Skautasvellið verður vél- fryst og er kostnaður áætlað- ur um 45 milljónir króna. Svelliö verður 62x32 metrar að stærð og umhverfis verða 2,5 metra háar jarðvegsmanir, þar verða gróðursett barrtré. Það verður allt að fjögurra metra hár skjólveggur um- hverfis svellið. Þetta er mikið gleðiefni fyrir unga sem aldna skautaáhugamenn en nokkuð hefur verið af því að strákar á öllum aldri hafi æft þessa íþrótt og höfðu Reyk- víkingar til dæmis úrvalslið og þeir kepptu á ísknattleiks- móti við Akureyringa á Akur- eyri. Einnig höfðu nokkrir nemendur úr Haga- og Vest- urbæjarskóla lagt leið sína til borgarstjórnar Davíðs Odds- sonar. Samkvæmt þessu er áætlað að byrjað verði að byggja á næsta ári og húsið verði tilbúið upp úr áramót- um 1990. STULDURINN Á SIGGU LÍSU Þessi saga segir frá því er ég Sponni spæjó fæ það verkefni að komast til botns í því hver stal málverki sem heitir Sigga Lísa. Til þess að finna vísbendingar fór ég á Listasafn íslands. Þar sá ég að hafði verið opnað með lykli. Það var ekki það eina sem ég fann. Ég fann líka bréf sem stóð á að ég ætti að hitta mann, sem kallaði sig „vin“ við stoppistöð 5 á Lækjartorgi. Þegar ég kom þangað var þar bréf sem fyrr. Stóó í bréfinu að menn hefðu farið með „vin“ burt og hver bílþjófurinn væri. Ég náði ekki að klára bréfið, því að tekið var um handlegginn og ég sprautaður með deyfilyfi. Stuttu síðar vaknaði ég og sá manninn sem sprautaði mig. Síðan tók ég byssu mína og skipaði þeim að henda frá sér byssunum. Allt kom fyrir ekki, ég var skotinn. Sá stærsti öskraði á þann sem skaut mig og úr varð rifrildi sem hinir fylgdust með. Þetta var kjörið tækifæri. Ég slapp, stal bíl og var handtek- inn fyrir það. Stuttu síðar var mér sleppt og keyrður á sjúkrahús. Maðurinn í sjúkra- rúminu sagöi við mig: Ég er vinur. 5 og síðasti kafli: „Ert þú vinur?“ „Já“. „Hvernig stendur á því að þú ert hér?“ „Rétt eftir að ég skrifaði bréfið til þín var ég tekinn af manni, sem var 2,5 metrar á lengd...“. „Það var sá stærsti af þessum sem tóku mig“. „Stuttu síðar fóru þeir með mig út fyrir framan mikla umferðargötu. En allt í einu hentu þeir mér fram fyrir bll“. „Ha,ha, nú hef ég byssu. Komdu með málverkið," segir forstjóri Listasafns íslands við „vin“.“ „Upp með hendur,“ segi ég sem hef tekið upp byssu. Forstjóri Listasafnsins var dæmdur í 4 ára fangelsi, þeg- ar það komst upp að hann hefði stolið málverkinu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.