Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 02.07.1988, Blaðsíða 6
6 Forsetaembœttið VARNAGLI LÝÐRÆDIS Rœtt við Pétur Guðjónsson Forsetakosningarnar líöa ekki strax úr minni. Mótfram- boö við forseta kom flestum í opna skjöldu. Var veriö að storka kerfinu, eða liggur eitthvað miklu meira aö baki? Er Flokkur mannsins að gera út á veilu í stjórnkerfi landsins? Eða hvað? „Ég gerði mér fulla grein fyrir þvi aö fyrstu viöbrögðin yrðu tilfinningaleg, og þegar það sjatlaðist smávegis færi fólk að hugsa. Endirinn yrði sá að margir yröu okkur sam- mála. Og það kom á daginn,“ segir Pétur Guöjónsson stjórnunarfræðingur. Pétur er af mörgum talinn maöurinn á bak við Flokk mannsins og helsti hönnuður manngildisstefnunnar (hú- manismans), sem flokkurinn aðhyllíst. Pétur er á ferð og flugi. Hann rekur stjórnunarskóla suður á Spáni og skýst um heiminn til að veita fyrirtækj- um ráðgjöf. Daginn eftir samtal okkar lá leiðin til Brasilíu, Argentínu og Chile. í Chile er flokkur húmanista stærri en flokkur Pinochet hershöfðingja. Við spjöllum áfram um ný- afstaðnar forsetakosningar: „Ferillinn varð þessi hjá mörgum, að fyrst varð fólk öskuvont, síöar hótaði það að skila auðu, en að lokum komst fólk að raun um aö það væri rétt aö forseti beitti lýðræðisákvæðum stjórnar- skrárinnar," segir Pétur. „Elskan mín, þetta er deyjandi flokkur“ — Hvers vegna mann- gildisstefnu? „Tilgangurinn er afskap- lega einfaldur. Ég vil sjá hér manneskjulegt þjóðfélag, þar sem ríkir jafnrétti og frelsi — og þar sem viö leggjum áherslu á aö búa til þjóófélag fyrir manninn, þ.e.a.s. ekki bara fyrir manninn „dýrið“, ekki bara hugsa um hvað hann étur og hvar hann sefur. Maðurinn þarfnast frelsis. Til þess að tryggja það notar maður öll tiltæk ráð. Ein að- ferð er pólitík, vegna þess að það er erfitt fyrir fólk að ræða málin, ef það þarf að vinna langan vinnutíma eða hefur áhyggjur af víxlunum sem falla.“ Viötal: Þorlákur Helgason — En ertu ekki að ein- angra skoöanir með þvi aö leggja á brattann með „söfn- uði“ eins og Flokki manns- ins? Nærðu nokkurn timann út í samfélagið með þessu móti?“ „Það kann að vera rétt, en við reyndum að fara inn í hefðbundnu flokkana. Sú leið gekk bara ekki. Við fór- um inn í marga flokka. Ég fór t.d. á landsfund hjá Alþýöu- bandalaginu 1983, og sá aö sá flokkur var búinn að vera. Ég sagði við þáverandi fram- kvæmdastjóra flokksins: Elskan mín þetta er deyjandi flokkur. Ég bauð þeim að veita ráð um hvernig bæri að virkja fólk, en sjálfur hafði ég ekki áhuga á að starfa með þeim. Flokkarnir eru of fastir í sínu. Það eru of mörg hags- munasamtök sem þurfa sitt. Okkar flokkur er hreinn hugsjónaflokkur. Það eru engin hagsmunaöfl sem toga í.“ Einn flokkur algjörlega sammála — Voruð þið að kanna við- brögð þjóðarinnar með því að bjóða fram til forseta? Þið vissuð að þið fengjuð ekki forseta. „Það má segja það að það væru frekar litlar líkur til þess að við fengjum forseta, en það er alltaf möguleiki. Við gerðum ekki ráð fyrir því að Vigdís myndi hopa af hólmi. Við gerðum ráð fyrir því að frambjóðendur myndu mæta hvor öðrum, og við vissum að viö myndum vinna mörg atkvæði á því. Við gerð- um heldur ekki ráð fyrir þvi að fjölmiðlar fjölluðu eins lítið um kosningarnar eins og þeir gerðu. Það var heldur ekki gert ráð fyrir því aö sjón- varp kynnti forsetaframbjóð- endur ekki fyrr en viku fyrir kosningar. Með öðrum orðum, ef þetta hefði verið sæmileg kynning, hefði verið sann- gjarnari samkeppnisað- staða.“ — En buöuö þiö ekki samt fram til að kanna .. „Nei, við gerðum aðeins það sem við töldum rétt. Það er ekki það að við höfum hugsað okkur að gera usla í þjóðinni eöa sjá hvort fólk tæki þessu vel.“ — En þaö er ekki undar- legt þó að tilraun sé gerð, þegar þaö er svona auövelt aö bjóöa fram. „Við höfum sjálfsagt verið of einföld til að hugsa þannig. Þarna var vettvangur til að koma ákveðnum hugmyndum á framfæri um þjóðfélagið. Fá fólk til að verða virkara. Það voru hugmyndir um að þetta borgaði sig ekki t.d. fyrir Flokk mannsins að bjóða fram. En það sem á

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.