Alþýðublaðið - 20.08.1988, Page 19
sumarnótt að morgni hins 12. ágúst
MYNDAVÉLIN?
Skýin náðu niður á hálf fjöllin og því var þessi
ekki eins björt og maður hefði ætlað. Uti á
sléttum firðinum var ljósaþyrping sem mjak-
aðist fremur hægt inn eftir firðinum. Þetta
var Hvalur 9 á leið til lands með síðasta hval
þessarar vertíðar. Einn hvalur er ekki mikið
miðað við það sem áður var en þá komu hval-
bátarnir helst ekki með færri en fjóra hvali í
land. En sú spurning sem óneitanlega læðist
að manni er sú hvort að vertíðirnar og þarmeð
hvalirnir verði nokkuð fleiri en í ár. Verða
gufuknúnir hvalbátarnir kannski notaðir í út-
sýnisferðir á hvalaslóðir fyrir túrista á næsta
ári? Hér verður hvorki tekin afstaða með eða
á móti hvalveiðum heldur aðeins sýndur einn
angi af íslensku atvinnulífi í framkvæmd, eða
a.m.k. gerð heiðarleg tilraun til þess. Mynd-
irnar tala sínu máli.
Um kl. 4.30 byrjuöu
„flensararnir" aö sneiöa
hvalinn i sundur.
■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■i
Skurði lokið og beinin ein standa
eftir, höfuöiö fyrirmiöju myndarinn-
ar, siðan hryggurinn.
Þarna er kjötiö verkað áöur en þaö fer i frystingu.
Hluti garnanna úr dýrinu. Ef myndin prentast vel má sjá móta fyrir stígvéli
efst til vinstri á myndinni.
Myndir og texti:
Gunnar H.
Ársælsson.
Laugardagur 20. ágúst 1988
hi