Alþýðublaðið - 17.03.1995, Side 1
■ Hagfræðistofnun Háskóla Islands hefur reiknað út áhrif aðildar Islands að Evrópusambandinu
Mgtarverð lækkar um 40%
ef Island gengur í ESB
■ Kjör fjögurra manna fjölskyldu munu batna um 88 þúsund krónur á ári. Meiri-
hluti kjósenda vill aðildarumsókn, samkvæmt skoðanakönnunum. Jón Baldvin
Hannibalsson: Aðild að Evrópusambandinu er stórkostlegt hagsmunamál fyrir
íslenska neytendur, ekki síst láglaunafólk. Kjör bænda versna ekki.
Með aðild íslands að Evrópusam-
bandinu myndi verð landbúnaðaraf-
urða á íslandi lækka um 35-45%,
samkvæmt útreikningum Hagfræði-
stofnunar Háskóla fslands. Kjör
hvers einstaklings í landinu myndu
batna af þessum ástæðum um 22
þúsund krónur að meðaltali, eða um
88 þúsund á hverja fjögurra manna
íjölskyldu á ári. Ný skoðanakönnun
Gallups gefur til kynna að 56% ís-
lenskra kjósenda vilji að ísland sæki
um aðild að Evrópusambandinu.
,Aðild að Evrópusambandinu er
stórkostlegt hagsmunamál fyrir ís-
lenska neytendur, ekki síst láglauna-
fólk,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson í samtali við Alþýðublaðið í
gær. „Skoðanakannanir sýna að
meirihluti þjóðarinnar vill láta á það
reyna með aðildarumsókn, hvemig
samningum er hægt að ná við Evr-
ópusambandið. Stjómmálamenn
geta ekki daufheyrst við vilja þjóðar-
innar með því einu að segja að málið
sé ekki á dagskrá. Umræðan um Evr-
ópusambandið snýst um lífskjör á ís-
landi. Stjómmálamönnum ber sið-
ferðileg skylda til að svara kjósend-
um afdráttarlaust fyrir kosningar
hver afstaða þeirra er,“ sagði Jón
Baldvin.
Jón Baldvin sagði að skýrsla Hag-
fræðistofnunar sýndi ótvírætt að
verð á landbúnaðarafurðum myndi
stórlækka. „Jafnframt er alveg ljóst
að kjör íslenskra bænda munu ekki
versna. Niðurstöður Hagfræðistofn-
unar em ótvíræðar í þeim efnum.
Bændur munu fá styrki sem nema
4-7 milljörðum. Það gerir um 800
þúsund krónur á hvem bónda á ári.“
Alþýðuflokkurinn er eini flokkur-
inn sem hefur tekið afdráttarlausa af-
stöðu með aðildarumsókn að Evr-
ópusambandinu. Jón Baldvin sagði
enga ástæðu til að óttast að flokkur-
inn einangraðist fyrir vikið: „Al-
þýðuflokkurinn hefur einn flokka
fi-amtíðarsýn og þor tii að taka af
skarið í þessu mikilvæga máli. Það
er ekkert nýtt að Alþýðuflokkurinn
sé brautryðjandi í íslenskum stjóm-
málum. Aðrir flokkar verða knúnir
til þess að taka afstöðu á næsta kjör-
tímabili. Þá skortir hinsvegar dirfsku
úl að taka af skarið fyrir kosningar.
Meirihluti þjóðarinnar styður ein-
dregið stefnu okkar og æ fleiri gera
sér grein fyrir því að kosningamar nú
í vor snúast að vemlegu leyti um
þetta mikilvæga mál.“
Ásta B. Þorsteins-
dóttir, skipar 3. sætið á
framboðslista Alþýðu-
fjpkksins í Reykjavík
Island til
forystu í
Evrópu
„Við erum alltaf að tala um
hvað við getum fengið útúr inn-
göngu í Evrópusambandið, en
ekki hvað við getum lagt á vogar-
skáiarnar. Ég er þess fullviss að
okkar sýn á velferðarkerfið og
okkar vinnubrögð hvað það snert-
ir er eitthvað sem fullt erindi á í
umræðuna í Evrópu í dag. Norð-
urlöndin eiga sarnan
mikinn möguleika á að
hafa varanleg áhrif til
framfara í velferðarmál-
um í álfunni. ísland
verður fremst meðal
jafningja í Evrópusam-
bandinu og er þannig í
þriðja eða fjórða sæti yf-
ir þær þjóðir í heimin-
um sem státa af mestum
gæðum heilbrigðisþjón-
ustu. ísland á að ganga í
Evrópusambandið
hnarreist og án bctlistafs
og láta til sín taka sem
forystuafl. Við höfum af
miklu að miðla,“ segir
Asta B. Þorsteinsdóttir,
sem skipar 3. sætið á
framboðslista Alþýðu-
flokksins í Reykjavík, í
viðtali við Alþýðublaðið.
Siá hlaðsíðu 12.
„Þú setur þitt atkvæði í matarkörfuna!"Fram-
bjóðendur Alþýðuflokksins í Reykjavík boðuðu til blaðamannafundar í
Bónus í Holtagörðum í gær þarsem var fjallað um þær kjarabætur sem
íslenskir neytendur fá, gangi ísland í Evrópusambandið. Á myndinni eru
Magnús Árni Magnússon 4. maður á lista, Hrönn Hrafnsdóttir sem skip-
ar 5. sæti og Jón Baldvin Hannibalsson formaður flokksins við „Matar-
körfu Alþýðuflokksins". Til samanburðar er siðan „Matarkarfa hinna
flokkanna". í samtali við Alþýðublaðið sagði Hrönn að „Matarkarfa Al-
þýðuflokksins" myndi færa neytendum mikla og kærkomna verðlækk-
un. Kosningabarátta Alþýðuflokksins er nú komin á fullan skrið. í gær
voru teknar í notkun tvær kosningamiðstöðvar á hjólum - gámar sem
búið er að breyta í færanlegar upplvsinaamiðstöðvar «—„h f m
Hallgrímur
Helgason
mig*
i
I
Jón
Baldvin
Nýjar
leiðir
í land-
búnaði
I
Guðmundur
Andri
Og...
menning-
armál
| Bryndís
l$jarnadótfir
A leið í
munka-
klaustur?
„Talsvert greindari en ég..." „Ég er sjálfur með vest-
firskt blóð í æðum, og Birta er furðulega lík mér, breiðleit og glaðlynd,
þó mamma segi reyndar að hún sé talsvert greindari en ég. Hún hefur
módökk augu, likt og margar sjóaradætur að vestan, þar sem franskt
blóð hefur skotist inn í ættirnar með heimsóknum duggaranna fyrr á
öldum," segir Össur Skarphéðinsson í hressilegu viðtali um lífið, tilver-
una og pólitíkina. - Sjá blaðsíðu 5.
-W—
7438 ProLogi
með Dolby Surround ProLogic hljó
Sjónvarpstæki í hæsta gæðaflokkt
Komið — sjáið — heyrið — sannfæris
Miidð úrval af sjónvarpstækjuxn frá
Sliarp — Loicr og Pioneer
Verð á 28” tækjum frá kr. 89.900
iw
s
oE
Visa raðgreiðslur
til allt að 24 mán.
Euro raðgreiðslur
til allt að 36 mán.
Munalán til allt
að 30 mán.
VERSLUNIN
HVERFISGOTU 103-SIMI62S999