Alþýðublaðið - 17.03.1995, Page 2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
S k o ö a n
HELGIN 17.-19. MARS 1995
MPYBUBU9IB
20890. tölublað
Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Lækkun matarverðs
Alþýðuflokkurinn vill sækja um aðild að Evrópusambandinu
og láta á það reyna hvaða kjör íslendingum bjóðast við aðild.
Meirihluti þjóðarinnar er sammála Alþýðuflokknum um þetta
samkvæmt skoðanakönnun Gallups. Meirihluti stjómmála-
manna daufheyrist því við þessum óskum meirihluta kjósenda.
Hræðslubandalagið gegn Evrópusambandinu reynir að túlka
Evrópustefnu Alþýðuflokksins sem hverja aðra sérvisku. Þessi
sérviska er þó í meira samhljómi við óskir þjóðarinnar en þrúg-
andi þögn þeirra sem segja málið ekki á dagskrá og hinna sem
segja NEI áður en málið er skoðað.
Almenningur í landinu er óhræddur við Evrópusambandið.
Fólk veit sem er að við aðild að Evrópusambandinu myndu lífs-
kjör þess batna og tækifæri bama þeirra aukast í framtíðinni.
Mörgum finnst umræðan öll svífa í lausu lofti án tengsla við
hversdagslegt líf þess, - þangað til matarreikningur Evrópu-
sambandsins sýnir þeim svart á hvítu ávinninginn við aðild.
Strax frá fyrsta degi aðildar myndi verð á landbúnaðarafurðum
lækka um 35 til 45%, sem þýðir ávinning fyrir hvem einstak-
ling í landinu um 22 þúsund krónur, eða um 88 þúsund krónur
á fjögurra manna fjölskyldu á ári.
Hefur íslenskt launafólk efni á að sleppa slíkum ávinningi?
Svari nú hver fyrir sig. Norðmenn, sem búa við mun betri lífs-
kjör en íslendingar, telja sig ekki hafa efni á þvf og flykkjast nú
í ESB-verðlagið í Svíþjóð. Landamæri Noregs og S víþjóðar em
nú að breytast í stærsta búðarborð í heimi. Þeir íslensku stjóm-
málamenn sem reyna að standa í vegi fyrir umræðu um aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu em því að vinna gegn betri lífs-
kjömm á íslandi.
Stöðugleikinn -
besta kjarabótin
Stöðugleiki er margnotaður orðaleppur í stjómmálaumræðu
samtímans. Að baki liggur þó vemleiki sem snertir kjör hvers
einasta manns og rekstur fyrirtækjanna í landinu. Aratugum
saman var ísland vel þekkt sem helsta verðbólguríki Evrópu.
íslendingar virtust taka það sem gefinn hlut að ekki tækist að
koma böndum á verðbólguna. Verðbólgan væri náttúrulögmál.
Þetta var sérstaklega áberandi á ffamsóknaráratugunum, þegar
hvert metið á fætur öðm var slegið í hárri verðbólgu. Nú er öld-
in önnur. I fyrra var verðbólgan 1,5% og í ár er áætlað að hún
verði 2,5%. Verðbólgan á íslandi er nú með því lægsta sem
þekkist á byggðu bóli.
Lág verðbólga er forsenda lágra vaxta. Lágir vextir em eitt
mesta hagsmunamál heimila og atvinnulífs. Þetta.er ljóst af
dæmi. Hver íjögurra manna fjölskylda skuldar að meðaltali 4,3
milljónir króna. Fyrir slíka fjölskyldu leiðir 2% varanleg vaxta-
lækkun til 86 þúsund króna minni vaxtagreiðslna á ári. Þær
fjölskyldur sem hafa keypt húsnæði á undanfömum ámm
skulda að jafnaði mest. Vaxtalækkun er því einhver mesta
kjarabót sem slíkar íjölskyldur geta fengið.
Málefni fatlaðra
Alþýðuflokkurinn hefur 'jafnan sett málefni fatlaðra í önd-
vegi. Þrátt fyrir samdrátt í þjóðfélaginu síðustu árin og minni
tekjur ríkisins hefur stórauknu fé verið veitt til málefna fatlaðra.
Framlögin hafa í ríkisstjómartíð Alþýðuflokksins aukist um
500 milljónir króna á föstu verðlagi, eða um 37 af hundraði.
Sú áhersla sem Alþýðuflokkurinn Ieggur á málefni fatlaðra
endurspeglast glöggt á framboðslistanum í Reykjavík. í þriðja
sæti, baráttusætinu, er Ásta B. Þorsteinsdóttir sem um margra
ára skeið hefur verið formaður Þroskahjálpar. Sennilega þekkir
enginn íslendingur jafn vel til aðstæðna fatlaðra og hún. Þess-
vegna er nauðsynlegt að Reykvíkingar tryggi henni kjör á Al-
þingi fslendinga.
Og... menningarmál
„Síðustu tvær mínúturnar var rætt um menningarmál, og ef þið
vilduð vera fljót að því. Maður horfði á það hvernig þeir drógu
þar sem stjómmálaforingjar sátu fyr-
ir svömm um mennta- og menning-
armál. Þetta var einkennilegur þátt-
ur. Eiginlega var hann fráleitur. I hátt
á aðra öld var
fimbulfambað,
þvargað 'og þráttað
um menntamál,
skólamál, lánamál,
uppeldismál,
kjaramál, byggða-
mál, byggingamál,
menntamál, skóla-
mál, lánamál, sér-
kennslu, fjar-
kennslu, nær-
kennslu og síkennslu, rannsóknir,
vísindi, menntamál, skólamál, lána-
mál, sveitastjómarmál, einkavæð-
ingu og... menningarmál.
Stjómmálaforingjamir lýstu því
hver um annan þveran hversu gífur-
legt forgangsmál uppbygging
menntamála væri - sem óneitanlega
var svolítið kyndugt að heyra í ljósi
þess að þau mál virðast greinilega í
kaldakoli hvar sem á er litið og hafa
verið afrækt svo lengi að kennarar
em orðnir kolvitlausir. Það var
greinilegt að pólitíkusar hafa hrokk-
ið upp með andfælum þegar neyðar-
ástand er komið. Islenskir stjórn-
málamenn fúnkera nefnilega best í
náttúmhamfömm - „Vestmannaeyj-
ar skulu rísa“ - þeir em sífellt að
bregðast við ástandi, maður sér þá
sjaldnast skapa nokkuð.
Og... menningarmál.
Síðustu tvær mínútumar var rætt
um menningarmál, og ef þið vilduð
vera fljót að því. Maður horfði á það
Vikupiltar |
I Guðmundur
m" . , ■ i Andri
Thorsson <
ysL j skrifar
eitt allsherjar „úff ‘ fór um alla stóla-
röðina. Þegar röðin var loks komin
að vesalings Þráni Bertelssyni gat
hann fátt annað gert en að froðufella
en pólitíkusamir
hölluðu sér aftur í
sætunum, búnir að
ræða alvörumálin,
sögðu skrýtlur og
flissuðu og biðu
þess að röðin
kæmi að sér að
bmna í gegnum
rútfnuna.
Svanfríður Jón-
asdóttir ræddi
ferðamennsku og byggðamál, Svav-
ar Gestsson og Guðný Guðbjöms-
dóttir deildu um hvort skíra ætti
ráðuneytið Mennta- og Menningar-
málaráðuneytið eða Menningar- og
Menntamálaráðuneytið; Jón Baldvin
vildi engin afskipti ríkisins af menn-
ingunni (nema auðvitað að skatt-
leggja hana í topp) og Ólafur G. Ein-
arsson reyndi ekki einu sinni að ljúga
því að sér væri skattlagningin leið.
Óll var framganga þáttarstjómenda
og stjómmálamannanna heldur til
þess fallin að misbjóða þeim hundr-
að og eitthvað þúsund Islendingum
sem láta sig menningarmál einhveiju
varða.
Þáttarstjómendum var að vísu
vorkunn. Þegar svo fáránlegt kraðak
framboða er á boðstólum og allir
þurfa að fá að romsa upp úr sér því
sama og næsti ræðumaður á undan
sagði þá hlýtur að teygjast óþægilega
mikið á umræðum, sem verða reynd-
ar óbærilegar á að hlýða. Eins og ég
er reimleikar og draugunum fjölgar
sífellt. Nýrri kynslóð íslenskra
stjómmálamanna virðist ætla að mis-
takast að knýja fram nýja flokka-
skipan; þama koma þau glöð og kát
úr Röskvu þar sem enginn sér mun-
inn á sér og næsta manni en fara
engu að síður að starfa gersamlega
athugasemdalaust eftir forsendum
hinnar eldri kynslóðar í öllum þessu
absúrd flokkum sem maður nennir
ekki einu sinni að muna hvað heita;
þau láta eldri kynslóðina enn um að
setja leikreglumar, og enn um sinn
munum við langþreyttir kjósendur
sem ekki viljum kjósa hinn sovéska
Sjálfstæðisflokk búa við flokkakerfí
Gúttóslagsins, flokkakerfi sem snýst
um afstöðuna til Ráðstjómarríkj-
anna, hersins, sambandsins, vöku-
laganna, flokkakerfi sem snýst um
löngu útrædd mál sem engum koma
lengur við. ‘Við emm í herleiðingu.
Við emm í einhverri Keflavíkur-
göngu sem dregist hefur svo mjög
fram á vetur að við þurftum að grafa
okkur í fonn - ef við urðum ekki
hreinlega úti. Þetta em réttir og dug-
miklir fjallkóngar á þönum við að
stugga okkur hveiju í sína rétt. Fyrir
síðustu borgarstjómarkosningar
vom ráðin tekin af þessari Fjallskila-
nefnd íslenskra stjómmála og þá var
rokkað í réttunum - en nú hafa þess-
ir boðberar gærdagsins öll ráð okkar
í hendi sér.
Og... menningarmál.
Menningarmál já - ég ætlaði að
skrifa um menninguna. Eða þarf
kannski ekkert að skrifa um hana?
Kannski er það satt hjá Jóni Baldvini
stefnuferlíki í þeim málum, heldur
bara að greiða fyrir og láta í ffiði.
Mig minnir að hann hafi þessa línu
frá Vilmundi landlækni og þetta
hljómar ósköp vel. Frasinn er að vísu
betri eins og Halldór Guðmundsson
meitlaði hann einhvem tímann; „Hið
opinbera á að greiða götur en ekki að
leggja vegi.“ Jón Baldvin slapp vel
frá þessu, losnaði við að svara spum-
ingu um virðisaukaskatt á bækur,
eftirlét menntamálaráðherranum að
verja þá gjörð. Greiða fyrir og láta í
friði: mikil ósköp - fyrir alla muni!
Viðurkennt er að bóklestri fer hnign-
andi, enda ekki að furða á þessari
miklu myndaöld. Viðurkennt er að
fátt er vænlegra þroska bama og
unglinga en bóklestur því hann ven-
ur þau við annars konar hugsun en
myndir örva. Viðurkennt er að bóka-
útgáfa á íslandi er í kaldakoli. Viður-
kennt er að íslensk menning snerist
um sögur og Ijóð um aldir. Viður-
kennt er að fátt er verra rekstri fýrir-
tækja en skyndilegar geðþótta-
ákvarðanir stjómvalda um fyrirvara-
lausa skattlagningu sem kippir stoð-
unum undan öllum reksu-aráætlun-
um - viðurkennt er að fslensk bóka-
útgáfa þarfnast stuðnings sem aldrei
fyrr. Allt er þetta almennt viðurkennt
utan ríkisstjómarinnar. Samt...
Við getum huggað okkur við það
að þegar síðasta bókaútgáfan verður
gjaldþrota munu málsvarar gærdags-
ins sem stjóma íslenskum stjómmál-
um vakna upp með andfælum og
fara - að greiða fyrir og láta í friði.
Líka... í menningarmálum.
Dagatal 17. mars
Atburðir dagsins
1610 Tugir manna urðu úti í stórhríð,
einkum í Borgarfirði og Miðfirði.
„Ekki mundu menn slíkan skaða
orðið hafa í eins dags veðri á landi,“
segir í Skarðsannál. 1757 Þrjú skip
frá Vestmannaeyjum fórust undan
Eyjafjöllum með 42 mönnum. 1969
Golda Meir, sjötug amma, tekur við
stjómartaumum í Israel. 1983 Liðs-
menn IRA reyna að granda Margréti
Thatcher, forsætisráðherra Breta,
með bréfsprengju. 1988 Fyrsta ís-
lenska glasabamið fæðist á Land-
spítalanum, 12 marka drengur.
Afmælisbörn dagsins
Gottlieb Daimler þýskur bifreiða-
hönnuður og verkfræðingur, 1834.
Nat „King“ Coie bandarískur
söngvari og píanóleikari, 1917.
Rudolf Nureyev rússneskur ballett-
dansari, 1938.
Bindindi dagsins
Ég minnist þess nú, sem hann eitt
sinn sagði við mig: „Ég var um tíma
á unga aldri fallinn í þá freistni að
veija óhóflegum tíma í tafl - var far-
inn að tefla klukkutímum saman á
hverjum degi. En svo ákvað ég að
reyna heldur að verða að manni og
gekk í ævilangt bindindi.
Kristján Albertsson um
Ragnar Jónsson í Smára.
Annálsbrot dagsins
Höggvinn maður á alþingi úr Aust-
fjörðum fyrir bamsleynd og laun-
gröft.
Setbergsannáll, 1686.
Lokaorð dagsins
Það er furðulegt í ljósi þess að ég hef
verið að æfa mig í alla nótt.
Hinstu orð írska skáldsins John Phil-
pot Curran, 1750- 1817, við lækni sem
hafði sagt að skáldið ætti í sí meiri
örðugleikum með að hósta.
Málsháttur dagsins
Svo verður hver að fljúga sem hann
er fjaðraður.
Orð dagsins
Hertu þrek í harðviðri
hopaðu ei í mótblæstri.
Trúðu fast á tálleysi,
treystu guði í réttlæti.
Skák dagsins
Tafllok dagsins em fengin úr bréf-
skák Schachters og Pantaleonis.
Hvftu mennimir era einkar uppi-
vöðslusamir á hinni hættulegu 7.
línu: svarta drottningin virðist þann-
ig bundin í báða skó við að valda h7.
En Schachtererbýsna lunkinn og nú
snýr hann Pantaleoni niður með ein-
um leik. Hvað gerir hvítur?
sjá meira og gafst upp. Samanber: 2.
hxg4 Hhl mát eða 2. Kh6 Dh3+ 3.
Dh5 Dxd7. Snoturt.
Faxmynd: HH